Morgunblaðið - 13.05.2003, Qupperneq 47
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 2003 47
FRAKKAR unnu stórsigur á
Ungverjum, 4:0, á útivelli í und-
ankeppni Evrópumóts kvenna-
landsliða í knattspyrnu á sunnu-
daginn. Þessar þjóðir eru með
Íslandi í 3. riðli og mætir ís-
lenska liðið þeim báðum í ár.
Þetta var leikur númer tvö í
riðlinum en áður hafði Ung-
verjaland sigrað Pólland á úti-
velli, 2:0. Rússar og Íslendingar
hafa ekki leikið ennþá en Rúss-
ar fá Pólverja í heimsókn næsta
sunnudag og síðan leika Ísland
og Ungverjaland á Laugardals-
vellinum hinn 14. júní.
Ísland sækir Rússland heim í
ágúst og fer til Frakklands í
september, en spilar í kjölfarið
tvívegis við Pólverja, fyrst
heima og síðan í Póllandi.
Af öðrum úrslitum í und-
ankeppni EM um helgina má
nefna að Noregur vann stór-
sigur á Belgíu, 6:0, í 2. riðli og
Portúgal sigraði Úkraínu á úti-
velli í 4. riðli, 1:0. Í neðri styrk-
leikahópi keppninnar vann
Austurríki yfirburðasigur á
Armeníu, 11:0.
Þær frönsku fóru létt með Ungverjana
EINN leikur fór fram í norsku
úrvalsdeildinni í gærkvöld þar sem
Lilleström lagði Tromsö að velli,
3:2. Indriði Sigurðsson, Lille-
ström, var eini íslenski leikmað-
urinn sem tók þátt í leiknum en
Davíð Viðarsson var á varamanna-
bekk liðsins. Gylfi Einarsson var
ekki í liði Lilleström vegna
meiðsla. Þetta var annar sigurleik-
ur Lilleström á leiktíðinni.
PETTER Belsvik framherji
Lilleström er nú markahæsti leik-
maður allra tíma í norsku úrvals-
deildinni en hann skoraði fyrsta
mark leiksins og hefur nú skorað
159 mörk í efstu deild, en metið
átti Odd Iversen faðir Steffens
Iversens leikmanns Tottenham.
BANDARÍSKI kylfingurinn
Tiger Woods er sem fyrr í efsta
sæti heimslistans í golfi. Hann hef-
ur nú verið í toppsætinu í samtals
265 vikur á ferlinum. Ástralinn
Greg Norman á metið á toppnum
þar sem hann sat þar í 331 viku á
ellefu keppnistímabilum, frá 14.
september 1986 til 4. janúar 1998.
Woods þarf því 66 vikur í viðbót til
að bæta met Normans. David
Toms, sem sigraði á PGA-mótinu í
Carlotte um helgina, hækkaði sig
um tvö sæti á listanum, fór úr 8.
sæti upp það sjötta.
ÚLFAR Jónsson úr GK sigraði í
Opna Carlsbergsmótinu sem fram
fór á Hólmsvelli í Leiru um
helgina. Hann lék á 66 höggum og
fékk sjö fugla á hringnum, þar af
fimm fugla á seinni níu. Þá fékk
hann 10 pör og einn skolla. Örn
Ævar Hjartarson, GS, hafnaði í
öðru sæti ásamt Magnúsi Lárus-
syni, sem léku á 68 höggum.
Magnús fékk örn á 9. holu sem er
par-4.
SÆNSKI kylfingurinn Annika
Sörenstam sigraði með nokkrum
yfirburðum í Nichirei mótinu sem
lauk á Yomiuri-vellinum í Tókíó í
Japan í á sunnudag. Hún lék loka-
hringinn á 68 höggum og samtals
275 höggum, sem er 13 höggum
undir pari. Hún vann með níu
högga mun og hefur nú unnið tvö
af sex mótum á LPGA-mótaröðinni
í ár, en hún vann 13 mót á síðasta
ári.
FÓLK
Auðun gekk í raðir Landskrona ívetur frá Lokeren í Belgíu en
þar hafði hann verið úti í kuldanum í
langan tíma. Þegar
hann hóf að leika
með Landskrona var
rúmt ár liðið frá því
hann lék síðast al-
vöruleik. Auðun samdi við Lokeren
fyrir þremur árum eftir þriggja ára
dvöl hjá Viking í Noregi en síðast-
liðið sumar fór að síga á ógæfuhlið-
ina. Að skipun forseta Lokeren var
hann settur út í kuldann, fékk ekki
einu sinni að æfa með varaliðinu, og
það var ekki fyrr en í október í haust
sem Auðuni tókst að að fá sig lausan
undan samningi við félagið. Auðun
kjálkabrotnaði í leik með Lokeren í
mars í fyrra og eftir sumarfríið átti
hann ekki upp á pallborðið hjá for-
seta og þjálfara liðsins.
„Þetta var skelfilegur tími undir
það síðasta hjá Lokeren. Ég lenti í
hræðilegum málum hjá félaginu og
bæði var það þjálfarinn en þó að-
allega forsetinn sem gerði mér lífið
leitt. Það snerist allt um að reyna að
bola mér í burtu til þess að spara
einhverjar krónur og mér leið ákaf-
lega illa á þessum tíma,“ sagði Auð-
un í samtali við Morgunblaðið.
Auðun skrifaði í janúar undir
tveggja ára samning við Lands-
krona, lítið félag með stórt hjarta
eins og Auðun orðar það, og hann
sér ekki eftir því.
„Það má með sanni segja að
kviknað hafi nýtt líf hjá mér hvað
fórboltann varðar. Ég er ákaflega
ánægður hjá félaginu og líkt og í
Noregi þar sem ég lék með Viking
er samkeppni um stöður í liðinu
mjög sanngjörn. Ég náði strax að
vinna mér sæti í liðinu. Ég leik í
minni gömlu stöðu, hægri bakverð-
inum, og ég get ekki annað sagt en
ég sé mjög sáttur við mína frammi-
stöðu til þessa. Ég er smátt og smátt
að komast í gott form og komast í
leikæfingu eftir að hafa verið frá al-
vöru leikjum í meira en ár. Mannleg
samskipti eru á allt öðrum nótum en
ég upplifði hjá Lokeren síðasta árið
sem ég var þar og nú er ég farinn að
hafa gaman af þessu aftur. Hér er
æft mikið og á þann hátt sem hentar
mér vel og það er allt í miklu fastari
skorðum en í Belgíu. Mér finnst
leikskipulagið ekki upp á marga
fiska í Belgíu en hér er allt annað
upp á teningnum og liðin miklu
skipulagaðri. Það er erfitt að bera
saman styrkleikann hér og í Belgíu
en mér sýnist á öllu að deildin bæði í
Svíþjóð og í Noregi sé ámóta sterk
og í Belgíu. En þegar ég ber Svíana
saman við Norðmennina finnst mér
Svíar eiga fleiri góða knattspyrnu-
menn og tæknilega betri.“
Held í vonina um að fá tæki-
færi með landsliðinu
Auðun á 27 landsleiki að baki fyrir
Íslands hönd en eitt og hálft ár er
síðan hann spilaði síðast í landsliðs-
treyjunni, í 3:0-ósigri á móti N-Írum
í Belfast í september 2001.
„Til að bæta gráu ofan á svart
datt ég út úr landsliðinu. Ég var í
hópnum á móti Dönum í Parken í
október og síðan hef ég ekki verið
valinn.“
Þú hlýtur enn að hafa metnað til
að spila með landsliðinu?
„Já það hef ég og ein aðalástæða
þess að ég gekk á fund forseta
Lokeren og bað um að fá lausn frá
samningnum var að ég vildi sem
fyrst komast í baráttuna á nýjan leik
með nýju félagi og þar með opna
möguleika á því að fá tækifæri með
landsliðinu. Það var eðlilegt að ég
væri ekki valinn meðan á þessu stóð
hjá Lokeren. Sjálfstraustið var í
molum en ég held í vonina um að
komast í landsliðið aftur. Ég hef
fundið það í síðustu leikjum að ég er
að öðlast fyrri styrk og sjálfstraustið
eykst með hverjum leik. Ég er mjög
sáttur við það sem ég er að gera og
þetta er ekki ósvipað því þegar ég
var hjá Viking og fyrsta árinu hjá
Lokeren.“
Auðun segist hafa verið mjög
heppinn að fá tilboð frá Landskrona
enda atvinnumannaheimurinn erfið-
ur um þessar mundir. „Það var kom-
ið að þeim tímapunkti að hugsanlega
lægi leiðin heim í vetur en mér til
happs datt ég inn á þetta hjá Lands-
krona. Ég sé ekki eftir því að hafa
komið hingað. Ég má heita heppinn
að hafa komist að hjá Landskrona.
Hér er haldið vel á spöðunum og ég
vona bara að þjálfarinn haldi áfram
þó svo að samningur hans klárist í
sumar.“
Auðun og félagar hafa byrjað
tímabilið ágætlega og eftir sex leiki
er liðið með níu stig, hefur unnið tvo
leiki, gert þrjú jafntefli og tapað ein-
um leik.
„Markmið okkar á tímabilinu er
að lenda í einu af sjö efstu sætunum
og eins og þetta hefur farið af stað
eru ágætur líkur á að það takist.
Liðið er að vísu mjög ungt en efni-
legt að sama skapi og til marks um
það þá eru fimm leikmenn okkar í
sænska U-21 árs liðinu. Ég er einn
af gömlu mönnunum svo ég get von-
andi miðlað einhverju til ungu strák-
anna.“
Morgunblaðið/Kristinn
Auðun Helgason í landsleik gegn Tékkum á Laugardalsvellinum. Pavel Nedved sækir að honum.
Hef öðlast nýtt líf
ÞAÐ má vel segja Auðun Helgason knattspyrnumaður hafi öðlast
nýtt líf hvað knattspyrnuna varðar en þessi 28 ára gamli varn-
armaður hefur fest sig í sessi hjá sænska úrvalsdeildarliðinu
Landskrona og skoraði um liðna helgi sitt fyrsta mark fyrir félagið
þegar það lagði Öster að velli og var útnefndur maður leiksins í
leikslok.
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar
Hafnfirðingurinn Auðun Helgason kominn á ferðina á ný eftir langt hlé
KSÍ, Sport Five og VISA-
Ísland hafa gert samkomulag
sem gildir næstu þrjú árin og
mun bikarkeppni KSÍ í karla-
og kvennaflokki heita VISA-
bikarinn.
Sigurliðið í karlaflokki fær
1,5 millj. ísl. kr. í sinn hlut, silf-
urliðið 1 millj. kr. og liðin sem
tapa í undanúrslitum fá 800
þús. kr. hvort um sig. Liðin í
5.–8. sæti fá 500 þús. og liðin
sem falla út í 16 liða úrslitum
fá 300 þús. kr.
Bikarmeistaralið kvenna
fær 300 þús kr., silfurliðið 200
og liðin sem falla út í undan-
úrslitum fá 150 þús. hvort lið.
VISA-
bikarinn
HECTOR Cuper,
þjálfari Inter, hefur
útlokað að framherj-
inn Christian Vieri
taki þátt í leiknum við
AC Milan í kvöld. Míl-
anóliðin mætast þá í
síðari viðureign lið-
anna í undanúrslitum
Meistaradeildarinnar
en í síðustu viku varð
markalaust jafntefli
niðurstaðan í slag
erkifjendanna. Cuper
gaf í skyn um helgina að Vieri, sem
er markhæsti leikmaður ítölsku
A-deildarinnar með 24 mörk, gæti
hugsanlega spilað einhvern hluta af
leiknum en í gær afskrif-
aði Argentínumaðurinn
að Vieri gæti spilað en
hann meiddist á hné fyrir
þremur vikum og hefur
ekki tekist að vinna bug á
því.
Engin meiðsl eru í her-
búðum AC Milan en leik-
urinn í kvöld telst heima-
leikur Inter svo að endi
leikurinn 1:1 kemst AC
Milan í úrslitaleikinn á
Old Trafford. Fyrirfram
er AC Milan sigurstranglegra liðið í
kvöld en báðum deildarleikjum lið-
anna í vetur lauk með sigri AC Mil-
an.
Vieri ekki með Inter
gegn AC Milan
Vieri