Morgunblaðið - 13.05.2003, Side 48
FÓLK Í FRÉTTUM
48 ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikud. 14. maí kl 13.30
Sunnud. 18. maí kl 14
Sunnud. 25. maí kl 14
Stóra svið
Nýja svið
Þriðja hæðin
Miðasalan er opin frá kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnaður kl. 10 virka daga.
Fax 568 0383 - midasala@borgarleikhus.is
Miðasala 568 8000
PÍKUSÖGUR eftir Eve Ensler
Su 18/5 kl 20, Su 25/5 kl 20
Takmarkaður sýningarfjöldi
Litla svið
RÓMEÓ OG JÚLÍA
e. Shakespeare í samstarfi við VESTURPORT
Fö 16/5 kl 20, Lau 17/5 kl 20
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN
í samstarfi við SJÓNLEIKHÚSIÐ
Leikrit með söngvum - og ís á eftir!
Lau 17/5 kl 14
MAÐURINN SEM HÉLT AÐ KONAN HANS
VÆRI HATTUR
eftir Peter Brook og Marie-Hélène Estienne
Fö 16/5 kl 20, Fö 23/5 kl 20
ATH: SÍÐUSTU SÝNINGAR
KVETCH eftir Steven Berkoff
í samstarfi við Á SENUNNI
Fi 15/5 kl 20 aukasýning
ATH: SÍÐASTA SÝNING
DANSLEIKHÚS JSB
Mi 14/5 kl 20, Lau 17/5 kl 14, Þri 20/5 kl 20
ATH: Aðeins þessar sýningar
SUMARÆVINTÝRI e. Shakespeare og
leikhópinn
Lau 17/5 kl 20, Fi 22/5 kl 20, Lau 24/5 kl 20
ATH: Sýningum lýkur í maí
GESTURINN e. Eric-Emmanuel Schmitt
Su 18/5 kl 20 - Aukasýning
Örfáar sýningar vegna fjölda áskorana
ÖFUGU MEGIN UPPÍ e. Derek Benfield
Lau 17/5 kl 20, Lau 24/5 kl 20, Mi 28/5 kl 20
PÚNTILA OG MATTI e. Bertolt Brecht
Fi 22/5 kl 20, Su 25/5 kl 20, Fi 29/5 kl 20
ATH: SÍÐUSTU SÝNINGAR
SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI
eftir Sálina og Karl Ágúst Úlfsson
Fö 16/5 kl 20, Fö 23/5 kl 20
Fö 30/5 kl 20, Lau 31/5 kl 20
ATH: SÍÐUSTU SÝNINGAR
"DANS FYRIR ÞIG"
30 ára afmælissýning Íslenska dansflokksins
FROSTI-Svanavatnið (lokakafli) eftir Láru Stefánsdóttur
Brot úr nokkrum af eftirminnilegustu
verkum Íslenska dansflokksins
2.sýn fi 15/5 kl 20,
3.sýn su 18/5 kl 20
ATH. AÐEINS ÞESSAR TVÆR SÝNINGAR
www.sellofon.is
lau 17. maí kl. 21, NASA, örfá sæti
fim 22. maí, HÓTEL SELFOSS
föst 23. maí, kl. 21 nokkur sæti
mið 28. maí, Lokasýning í Nasa í vor
fim 5. júní kl. 21, SJALLINN AKUREYRI
Miðasala á Akureyrir fer fram í
Pennanum Eymundsson Glerártorgi
og á Selfossi í Alvörubúðinni,
Ofursjóliðarnir 2
(U.S. Seals 2)
Spennumynd
Bandaríkin 2001. Myndform. VHS (95
mín.) Bönnuð innan 16 ára. Leikstjóri:
Isaac Florentine. Aðalleikendur: Michael
Worth, Damian Chapa, Karen Kim, Mar-
shall R. Teague, Kate Connor.
SEM betur fer þekki ég hvorki
haus né sporð á US Seals, hún
hlýtur þó að hafa verið skárri en
framhaldið sem er gjörsamlega
laust við snefil af afþreyingargildi.
Innantóm slagsmáladella og skot-
hríð þar sem góðu kallarnir fá ekki
skrámu en drepa allt kvikt í sjón-
máli.
Sagan á að gerast í Albaníu
Fyrrverandi sérsveitarmaður úr
bandaríska sjó-
hernum kemst yf-
ir kjarnorkuvopn
og heimsfriðurinn
í hættu. Nú eru
góð ráð dýr, en til
allrar guðslukku
fyrirfinnast heið-
arlegir bardaga-
menn og ofur-
hetjur í sjóhernum og lúskra þeir
hressilega á andstæðingunum.
Fyrst eru illyrmin svo vitgrönn að
sprengja konu aðalhetjunnar uppí
heiðið hátt og kalla yfir sig ósköp-
in.
Myndin er gjörsneydd sérein-
kennum og virðist gerð af van-
efnum og hæfileikaskorti einhvers
staðar í gömlu Austantjaldslönd-
unum. Það sér ekki á bílaflotanum
sem er að mestu leyti Ladadruslur
og Rússajeppar. Brellurnar og
leikararnir í svipuðum gæðaflokki.
Textinn á kápunni er ekki alveg í
samræmi við innihaldið, það skipt-
ir sjálfsagt minnstu máli.
Sæbjörn Valdimarsson
Myndbönd
Átök í Albaníu
BÆKUR Michaels Connellys um
Hieronymous „Harry“ Bosch, lög-
reglumann í Los Angeles, eru yf-
irleitt með því besta sem maður
kemst yfir glæpasagnakyns, eða var
svo í það minnsta með fyrstu bæk-
urnar sem komu út fyrir áratug eða
svo. Um tíma var sem Connelly
hefði misst áhugann á Bosch sem
virtist á sömu leið og fleiri geðflækt-
ir lögreglumenn; að breytast í inni-
haldslausa klisju. Í síðustu Bosch-
bók, sem kom út á síðasta ári, var
aftur á móti annað uppi á teningnum
og sú var hin besta skemmtun;
Harry Bosch lifnaði við. Connelly
sendi svo frá sér aðra bók á síðasta
ári, Chasing the Dime, með annarri
söguhetju, og um daginn kom út
þriðja bókin sem hann sendir frá sér
á innan við ári, Lost Light, sem seg-
ir enn frá Harry Bosch.
Lost Light hefst þar sem Harry
Bosch er nýlega hættur í lögregl-
unni (vonandi er ekki verið að
ljóstra upp neinum leyndarmálum),
en eins og menn muna lauk síðustu
Bosch-bók þar sem hann var búinn
að fá nóg. Hann hefur þó ekki sagt
alveg skilið við starfið því hann tók
með sér heim bunka af gömlum mál-
um sem hann átti eftir að upplýsa og
þar á meðal eitt sem hann hefur haft
í huga árum saman án þess þó að
hafa haft tíma og aðstöðu til að
glíma við það. Nú hefur hann tím-
ann, en kannski ekki aðstöðuna, sem
kemur þó ekki svo að sök. Málið
snýst um stúlku sem var myrt að því
er virðist að tilefnislausu – í fyrstu
virðist um nauðgun að ræða en sitt-
hvað við aðstæður á morðstaðnum
vekur spurningar sem Bosch hefur
loks ákveðið að reyna að fá svarað.
Ekki er hann þó búinn að vera lengi
að grúska er hann rekst á fyrirstöðu
þar sem er bandaríska alríkislög-
reglan og Bosch lendir heldur en
ekki í hremmingum áður en málið er
til lykta leitt.
Þótt þessi bók Connellys verði
seint talin veigamikið bókmennta-
verk, frekar en aðrar glæpasögur,
vita þeir sem hafa á honum dálæti
að hverju þeir ganga; Harry Bosch
er vel mótuð forvitnileg söguper-
sóna sem lesanda er ekki sama um.
Hann hefur þróast með sögunum
um hann, verður sífellt skýrari en
þó flóknari, þversagnirnar sterkari
eins og vera ber. Síðasta bók Con-
nellys um hann endaði óvænt þar
sem Bosch tók ákvörðun um að
hætta í lögreglunni og þessi endar
ekki síður óvænt; greinilegt að Con-
nelly hefur tekið ákvörðun um að
kippa Bosch inn í nýtt umhverfi og
gaman verður að sjá hvernig hann á
eftir að spjara sig; nema þetta sé
síðasta bókin, hver veit.
Bosch í
nýju um-
hverfi
Lost Light, skáldsaga eftir Michael
Connelly. Orion gefur út 2003. 360 síður
innb. Kostaði 2.695 kr. í Pennanum-
Eymundsson.
Árni Matthíasson
Forvitnilegar bækur
ÞAÐ er alltaf gaman að sjá
kvikmyndir frá fjarlægum löndum
og menningarheimum sem maður
þekkir lítið til í. Það á svo sann-
arlega við um Samsara sem er
mjög falleg kvikmynd, tekin norð-
arlega í Indlandi og segir frá tíb-
eskum munki.
Það er hinn ungi maður Tashi
sem hefur nýlokið þriggja ára hug-
leiðslu og er að snúa aftur í
klaustrið sitt. Hann fer þá að fá
blauta drauma nótt eftir nótt.
Þetta veldur þessum andans
manni nokkurri hugarkvöl, og
hann ákveður að kynnast hinu ver-
aldlega lífi til að geta síðan afneit-
að því.
Persónur og aðstæður eru vissu-
lega áhugaverðar. Hins vegar
finnst mér eins og tveimur sögum
sé blandað saman þegar líða tekur
á, og sögum sem blandast ekkert
sérlega vel. Tashi giftist hinni
fögru Pemu, og við tekur hið
hversdagslega líf með barnaupp-
eldi og uppskeruvandræðum þar
sem „vondi karlinn“ er að svindla
á þeim. Tashi sem alltaf hefur alist
upp hjá munkum, er barnalegur
þegar kemur að venjulegum mann-
legum samskiptum og lífinu utan
klaustursins. Það, og leit hans að
sínum innri manni, gleymist mitt í
þessu gamaldags drama, þar til
lok myndarinnar nálgast. Þá popp-
ar aftur upp hin áhugaverða
raunsæissaga úr sálarlífi Tashis. Í
heild er frásögnin því miður ekki
tekin nógu þéttum tökum, nokkr-
um spurningum er látið ósvarað og
sögulok í óskýrasta lagi.
Myndin er mjög fögur á að líta
og full af skemmtilegum atriðum. Í
raunsæiskaflanum eru lífinu í
klaustrinu gerð frábær skil, þar
sem litlu strákarnir eru stjörnurn-
ar. Í gamaldags dramanu er bæj-
arferð Tashis og tengdaföðurins
skemmtileg, þar sem andstæður
sveitar og bæjar sjást vel. Ryþm-
inn er skemmtilega hægur og seið-
andi, í takt við lífið hans Tashi, og
kvikmyndatakan er stórkostleg.
Það skiptast á skin og skúrir í Samsara.
Átök sálar
og líkama
KVIKMYNDIR
Háskólabíó – Filmundur
Leikstjórn: Nalin Pan. Handrit: Tim
Baker, Nalin Pan. Kvikmyndataka: Rali
Raltschev. Aðalhlutverk: Shawn Ku,
Christy Chung, Neelesha BaVora, Lhakpa
Tsering, Tenzin Tashi, Jamayang Jinpa,
Sherab Sangey og Kelsang Tashi. 138
mín. Frakkl / Indl. / Ítalía / Þýs. Mira-
max 2001.
SAMSARA Hildur Loftsdóttir