Morgunblaðið - 13.05.2003, Qupperneq 55
VEÐUR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 2003 55
! "#$ %
#" & #'
!
)
)
"#
( ! ( "#
(
( "$%&&'(
" )'$
*+,(( " (+%
-%.,
(%# (
(
!
(
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
*+" " ## " ,,-#" !" #'" ."
#/ . 0
(& 0##,,-#" !" #')
-#"!" (
&'/011 *,
!
"
#$%&'
(
)
*
%+
%)'*+,(2 ,3
12"",,-#" + !& #'(
45 +#% 45 +#% 45 +#%
+6/!7 /
89%.,7 /
/%+6 ,((# /!%23!
.:6+.
;%%/
;((((%<
="()> 8+,+.
?( %&..)
3
04-
4-
/ 4! ." ##'
2''
04-
#4!
4-
04-
4-
4-
"##"
5!4
9//)"%
@+(./
%2 (,9A
9.*9.
(
(+*
./ @29 8+ .
.
,7+
4-
4-
4/ .(4(
4/
4/
4-
4-
4-
4-
04-
4-
4.
:,
((
8B+9.
:9B
"
+.+6!
C..&+,
:9.+
@D
;+A 5)B,9
.*9
6
6
04-
04-
04-
#
#
4.
4-
5
4-
4-
4-
%*,%9,>(%*,%
## #6%)# " #
(
4- !"'./'## #6!"
# #')#$ #! #(
*") - #! #6
#'(
%,*,%9,(%..%*,%
* " "!"4-
4)# -. (
:#7/%*,%+ ")6%!"
4- 4)#5 4 (
*") - # #'(
,,-
%&+.
ÉG fylgdist með
lokaspretti kosning-
anna um helgina í
gegnum sjónvarps-
miðlana. Hef reynd-
ar fylgst með bar-
áttunni þar þessar
lokavikur, þegar allt
flóði í auglýsingum.
Ég man ekki til
þess að magnið hafi
verið jafn mikið og
nú. Gaman líka að
sjá taktana sem not-
aðir voru. Ingibjörg
Sólrún var kynnt
líkt og um forsetaefni væri að ræða,
Davíð gætti þess að vera landsföður-
legur á meðan Halldór – að hætti
miðjumanna – kom fram sem fulltrúi
hins almenna, bjartsýna og harðdug-
lega Íslendings. Kannski var Fram-
sóknarflokkurinn að landa best með
þessari herkænsku sinni. Halldór „sí-
brosandi“ Ásgrímsson, eins og Stein-
grímur J. nefndi hann svo skemmti-
lega, græddi því á glaðlyndinu eftir allt
saman.
Allt tal um ofgnótt auglýsinga,
ímyndarsölu og slíkt sýnist mér því
falla dautt, ef horft til blákaldra stað-
reynda. Mér sýnist einfaldlega á öllu
að hérlendir stjórnmálaflokkar séu að
vakna til vitundar um það að X-kyn-
slóðin er komin á kosningaaldur og til
hennar verði að höfða.
Ég varð fyrir pólitískri vakningu er
ég var langt kominn yfir tvítugt. Fram
að því þekkti ég vart muninn á hægri
og vinstri eða svo gott sem. Í fyrstu
hafði ég einkum áhuga á erlendum
stjórnmálum en hef þokast jafnt og
bítandi að ströndum Íslands, gamla Ís-
lands, undanfarin ár. Það hefur leitt til
þess að í ár var ég verulega spenntur
fyrir ati helgarinnar. Sameiginleg út-
sending Sjónvarpsins og Stöðvar 2 á
föstudaginn, þar sem lokasenna leið-
toganna fór fram var því orðin eins og
mikilvægur knattspyrnuleikur í huga
mér. Ég flýtti mér heim úr vinnunni á
föstudagskvöldið með þægilegan fiðr-
ing í maganum og hugsaði „gaman,
gaman!“. En um leið hvarflaði þetta að
mér: „Er það svona sem það er að vera
fullorðinn?“
Daginn eftir var það svo sjálf kosn-
ingavakan, maraþonútsendingin eina
og sanna. Ég horfði á Ríkissjónvarpið
og hélt mig við það, enda lítið fyrir
rásaflakk á ögurstundum sem þessum.
Útsendingar sem þessar eru dálítið
sérstakar, enda allir á fullu og kátleg
spenna í gangi. Logi Bergmann tók
púlsinn úti í bæ og leysti það með
glans. Síðan flökkuðu myndavélar á
milli kjördæmanna, aftur inn í sal og
aftur út úr honum með tilheyrandi
brauki og bramli. Mér fannst botninn
samt detta niður strax eftir tíu því að
fyrstu tölur segja í raun allt um hvern-
ig þetta endar. Restin af nóttinni fer í
að sjá hverjir merja þingsæti og hverj-
ir renna af bríkinni.
En þá voru það skemmtiatriðin. Og
enn einu sinni olli Spaugstofan mér
vonbrigðum. Allt efnið endurtekið –
engin nýsköpun í gangi. Man það
gjörla að sjálfur Kristján „heiti ég“
Ólafsson fæddist á sínum tíma í kosn-
ingasjónvarpi. Hver sem tók ákvörðun
um þetta er að minnsta kosti búinn að
koma kjörfylgi Spaugstofunnar í
hættu.
Fór um nóttina niður í Iðnó þar sem
Vinstri grænir voru með sína vöku.
Hitti þar fyrir Loga Bergmann og
reyndi að troða mér í sjónvarpið ásamt
Erpi Eyvindarsyni, rímnamanninum
snjalla. En það er önnur saga...
Ljósvakinn
Starfsmenn Sjónvarpsins undirbúa sig fyrir útsend-
ingu, en mikið gekk á um kosningahelgina.
X-X
Arnar Eggert Thoroddsen
Morgunblaðið/Jim Smart
ÚTVARP/SJÓNVARP
BRESKI spennu-
myndaflokkurinn
Illt blóð (Wire in
the Blood) er á
dagskrá Sjón-
varpsins í kvöld.
Þetta er næstsíð-
asti þátturinn í
þessari þáttaröð,
sem hefur vakið
nokkra athygli,
en þess má geta að hver saga er
sögð í tveimur þáttum.
Aðalsöguhetjur þáttanna eru sál-
fræðingurinn dr. Tony Hill (Robson
Green) og rannsóknarlögreglumað-
urinn Carol Jordan (Hermione
Norris úr Haltu mér, slepptu mér).
Þau taka höndum saman við lausn
morðmála í norðurhluta Englands,
þar sem fjöldamorðingjar koma við
sögu.
Tony er skarpur og brjóstgóður
en einnig skemmtilega sérvitur.
Hann sýnir morðingjunum hluttekn-
ingu og setur sig í spor þeirra og
fórnarlambanna. Óvenjulegar að-
ferðir hans skapa honum þó nokkr-
ar óvinsældir meðal lögregluliðsins.
Illt blóð í Sjónvarpinu
Unnið er að lausn flókinna sakamála í spennuþætt-
inum Illu blóði, þar sem fjöldamorðingjar dúkka upp.
Sérvitur sálfræðingur
Spennumyndaflokkurinn Illt blóð
er á dagskrá Sjónvarpsins kl. 22.20
í kvöld.
Hverafold 1-3 • Torgið - Grafarvogi • Sími: 577 4949
Opnunartími:
11-18 mánudag-föstudag
11-18 og 20-22 fimmtudag • 12-16 laugardag
Vorum að taka upp
nýjar vörur