Morgunblaðið - 20.05.2003, Page 1

Morgunblaðið - 20.05.2003, Page 1
STOFNAÐ 1913 135. TBL. 91. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Hættir í fiskinum Karl Njálsson í Garði hefur saltað fisk í 43 ár 21 Þriðja myndin um Tortímandann brátt á tjaldið Fólkið 50 Fram á ritvöllinn Mál og menning mun gefa út barnabækur Madonnu Listir 23 Tortímandinn mættur FIMMTA sjálfsmorðsárásin á tveimur dögum var gerð í Ísrael í gær er palestínsk kona sprengdi sjálfa sig í verslunarmiðstöð í bæn- um Afula í norðanverðu landinu. Tveir létu lífið í árásinni auk kon- unnar og 19 særðust. Þá slösuðust þrír ísraelskir hermenn í annarri sjálfsmorðsárás á Gaza-svæðinu í gær. Ísraelar saka Yasser Arafat, forseta Palestínumanna, um að reyna að bregða fæti fyrir friðar- umleitanir palestínska forsætisráð- herrans, Mahmuds Abbas. Bandaríkjamenn gagnrýna einn- ig Arafat harkalega fyrir að reyna ekki að stöðva ofbeldið. „Yasser Arafat hefur ekki verið hjálplegur [í baráttunni gegn hryðjuverkum] áður fyrr. Mér er ekki kunnugt um það hvaða hlutverki hann gegnir núna,“ sagði Ari Fleischer, tals- maður George W. Bush Banda- ríkjaforseta, í gær. Stjórn Ariels Sharons, forsætis- ráðherra Ísraels, þrengdi að Arafat í gær með ásökunum um að hann hvetti íslamska harðlínumenn til verka og gerði allt sem í hans valdi stæði til að spilla fyrir friðarumleit- unum Abbas. En þrátt fyrir ásak- anir Ísraela var sjálfsmorðsárásum helgarinnar ekki svarað með her- valdi þar sem slíkar aðgerðir myndu spilla fyrir friðarumleitun- um stjórnar Abbas. Þess í stað var möguleikanum á brotthvarfi Ara- fats af sviði stjórnmálanna og jafn- vel brottrekstri hans frá herteknu svæðunum velt upp. Bush Bandaríkjaforseti sagðist aðspurður í gær vera fullviss um að friðarferlið væri á góðri leið, þrátt fyrir sjálfsmorðsárásirnar. „Við erum enn á leið í átt til frið- ar. Leiðin kann að verða erfið yfir- ferðar en ég mun ekki víkja af henni fyrr en við höfum náð mark- miðinu um að skapa sjálfstætt Pal- estínuríki sem lifir í sátt við Ísrael,“ sagði Bush á blaðamanna- fundi. Þá ítrekaði hann þá ósk sína að Ísraelar, arabaþjóðir og Palestínu- menn legðust á eitt í baráttunni gegn hryðjuverkum og að stjórn- völd í Evrópuríkjum legðu barátt- unni jafnframt lið með því að loka fyrir allt streymi fjármuna frá Evrópu til harðlínumanna. Saka Arafat um að vinna gegn friði Fimm sjálfsmorðs- árásir á Ísraela á tveimur dögum Jerúsalem. Washington. AFP. SAMKOMULAG hefur tekist um nýjan málefnasamning Sjálfstæð- isflokksins og Framsóknarflokks- ins. Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, mun hitta forseta Íslands á Bessastöðum kl. 11.30 í dag til þess að gera honum grein fyrir stöðu mála. Samkomu- lagið verður síðan kynnt í þing- flokkum beggja flokka klukkan þrjú á morgun og í framhaldi af því verður það síðan kynnt innan stofnana flokkanna. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er stefnt að því að halda ríkisráðsfund á Bessastöðum á föstudag og að Alþingi komi saman í næstu viku. Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, segir að hvorki sé gert ráð fyrir fækkun ráðherra né að gerðar verði skipu- lagsbreytingar á einstökum ráðu- neytum. Halldór vildi ekki stað- festa að hann myndi gegna embætti forsætisráðherra síðar á kjörtímabilinu. Davíð og Halldór funduðu í ráð- herrabústaðnum í um eina og hálfa klukkustund síðdegis í gær en hvorugur vildi tjá sig efnislega um sáttmálann. Halldór sagði í samtali við Morgunblaðið að komist hefði verið að niðurstöðu í þeim málum sem stóðu út af borðinu á fundi þeirra Davíðs í gær. „Við höfum náð samkomulagi um málefna- grundvöll sem við erum tilbúnir að leggja fyrir þingflokka okkar og síðan fyrir stofnanir flokkanna. Efnislega getum við ekki tjáð okkur um sáttmálann því fyrst þarf hann að fara fyrir þingflokkana og stofnanir flokkanna þurfa síðan einnig að leggja blessun sína yfir málið.“ Óbreyttur fjöldi ráðherra Halldór segir að ekki sé gert ráð fyrir að ráðherrum í nýrri ríkis- stjórn verði fækkað. „Það er ekki gert ráð fyrir skipulags- breytingum á ráðuneytunum en flokkarnir geta að sjálfsögðu komið sér saman um slíkt á síðari stigum. En það liggur ekkert fyrir um það núna.“ Hvað ráðherraefni Fram- sóknarflokksins snertir segist Halldór eiga eftir að ræða við þing- flokkinn og einstaka þingmenn. „Ég geri mér enga grein fyrir því fyrr en að loknum þeim viðræð- um.“ Þegar hann er spurður um lendingu í skatta- og húsnæðis- málum segir Halldór að við myndun ríkisstjórnar þurfi að fara í gegnum mörg mál. „Öll mál sem snerta efnahags- og ríkisfjármál skipta miklu máli og það er eðlilegt að eyða þurfi nokkrum tíma í það.“ Morgunblaðið/Arnaldur Davíð Oddsson svarar spurningum blaðamanna fyrir fundinn í gær.Halldór Ásgrímsson kemur til fundarins í ráðherrabústaðnum. Samkomulag um nýj- an stjórnarsáttmála Stefnt að því að halda ríkisráðsfund á Bessastöðum á föstudag GERHARD Schröder, kanslari Þýska- lands, tryggði sér í gær stuðning meirihluta helstu ráðamanna Jafnaðarmannaflokksins (SPD) við umdeilda efnahagsáætlun, svo- nefnda Verkefnaskrá 2010. Schröder viður- kenndi óbeint á blaðamannafundi síðar um daginn að hann hefði hótað afsögn á fundi framkvæmdastjórnar flokksins í Berlín. „Ég verð að leggja vald mitt undir á hverjum einasta degi, hvort sem það er með beinum hætti eða ekki,“ sagði kanslarinn. Grundvallaratriði áætlunarinnar verða til umræðu á sérstöku flokksþingi SPD sem haldið verður 1. júní nk. og verður hún þá tekin til formlegrar umfjöllunar. Áætlunin, sem miðar að því að auka hagvöxt og draga úr atvinnuleysi, hefur reitt vinstrisinnaða flokksfélaga og verkalýðsfélög til reiði. Opinber útgjöld lækkuð Í grófum dráttum felst áætlunin í því að örva hagkerfið og minnka atvinnuleysi með því að draga úr greiðslum til þeirra sem hafa verið atvinnulausir til langs tíma, minnka opinber útgjöld með lægri út- gjöldum til heilbrigðis- og eftirlaunakerfis- ins, auðvelda atvinnurekendum að segja upp starfsfólki, hækka eftirlaunaaldur og veita sveitarfélögum lán á lágum vöxtum. Hótaði afsögn Berlín. AFP. AP. AP Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, eftir fund framkvæmdastjórnar SPD í gær. UM 200 manns eru talin hafa farist í mestu flóðum og aurskriðum sem orðið hafa í eyríkinu Sri Lanka í hálfa öld og óttast er að fórnarlömbin geti verið fleiri. Mest hafa flóðin orðið í borginni Ratnapura í suðaustan- verðu landinu. Yfirmaður aðgerða gegn náttúruhamförum, Karu Jayasuriya, taldi líklegt að hátt í milljón manna hefðu misst heimili sín. Forsætisráðherra Sri Lanka, Ranil Wickremesinghe, hvatti í gær lands- menn til einingar vegna hamfaranna en uppreisnarmenn úr þjóðarbroti Tamíla hafa lengi barist gegn stjórnarhernum. Norðmenn, Indverjar og Sameinuðu þjóðirnar hafa þegar boðið neyðaraðstoð vegna flóðanna. Flóð á Sri Lanka Colombo. AFP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.