Morgunblaðið - 20.05.2003, Blaðsíða 10
FRÉTTIR
10 ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÞRÍR sendifulltúar Rauða
kross Íslands fara til Íraks á
næstu dögum þar sem þeir
munu taka þátt í verkefnum á
vegum Alþjóða Rauða krossins.
Um er að ræða verkfræðing og
tvo hjúkrunarfræðinga.
Kristjón Þorkelsson verk-
fræðingur fór af landi brott í
gærmorgun og búist er við að
hann verði kominn til Íraks síð-
ar í vikunni, segir í frétt frá
Rauða krossi Íslands. Hann
verður í starfshópi sem leggur
mat á ástand vatnsveitu í Írak
og þörfina fyrir aðstoð. Krist-
jón vann við hjálparstörf á veg-
um Rauða krossins í Írak eftir
stríðið 1990–91.
Eva Laufey Stefánsdóttir og
Guðbjörg Sveinsdóttir hjúkr-
unarfræðingar fara til Íraks í
næstu viku. Eva Laufey fer til
starfa á sjúkrahúsi á vegum
Rauða krossins en Guðbjörg
verður í starfshópi sem leggur
mat á þarfir í geðheilbrigðis-
málum. Báðar hafa reynslu af
hjálparstarfi erlendis.
Fyrir er í Írak einn sendi-
fulltrúi Rauða kross Íslands,
Þorkell Þorkelsson ljósmynd-
ari. Hann hefur starfað við
myndatökur á vegum Alþjóða
Rauða krossins, fyrst í Jórdan-
íu og nú í Írak.
Sigrún Árnadóttir, fram-
kvæmdastjóri Rauða kross Ís-
lands, kom í fyrrakvöld frá Írak
eftir fjögurra daga vettvangs-
ferð til Bagdad.
Félagið er nú að fara yfir
hugsanleg afskipti sín af
uppbyggingarstarfinu í Írak.
Þrír sendi-
fulltrúar
RKÍ á leið
til Íraks
ÞÝSK lögregluyfirvöld komust á
sporið um starfsemi umfangsmikils
smyglhrings í Norðvestur-Þýska-
landi fyrir um ári og hafa unnið að
rannsókn málsins æ síðan. Fljótlega
kom í ljós að hringurinn hafði tengsl
við Ísland og var lögreglu hér á landi
gert viðvart síðastliðið haust. Þjóð-
verji sem talinn er höfuðpaur smygl-
hringsins og meintur samverkamað-
ur hans hér á landi afplánuðu
samtímis fangelsisdóma á Litla-
Hrauni fyrir fíkniefnasmygl árið
2001.
Hjá fíkniefnadeild lögreglunnar í
Reykjavík gengur rannsóknin undir
nafninu „Operation Germania“.
Tveir lögreglumenn eru nú í Þýska-
landi og hafa þeir yfirheyrt sakborn-
inga sem þýska lögreglan handtók
fyrir skemmstu.
30 kílóa prufusending
Smyglhringurinn sem lögregla
telur sig nú hafa upprætt var um-
fangsmikill. Samkvæmt fréttatil-
kynningu frá lögreglu- og tollayfir-
völdum í Hamborg og Itzehoe, sem
er lítil borg norður af Hamborg, var
amfetamíni, kókaíni og hassi smygl-
að til Þýskalands frá Hollandi, Spáni
og Marokkó. Flugvöllurinn í Ham-
borg var eins konar dreifingarmið-
stöð en þaðan var fíkniefnum smygl-
að til Noregs og Íslands. Einnig er
talið að hringurinn hafi haft á prjón-
unum stórtækt smygl á kókaíni til
Liverpool. Til marks um umsvifin
má nefna að þegar lögregla og tollur
stöðvuðu sendingu með 30 kílóum af
hassi sem verið var að flytja með
húsbíl áleiðis til Noregs er talið að
aðeins hafi verið um prufusendingu
að ræða. Ætlunin hafi verið að
smygla um 100 kílóum mánaðarlega
til landsins.
Í fréttatilkynningunni er fullyrt að
samvinna við lögreglu- og tollgæslu
á Íslandi hafi orðið til þess að þrjú
þýsk burðardýr voru handtekin hér
á landi. Einn var með eitt kíló af
hassi, annar með um eitt kíló af hassi
og 900 grömm af amfetamíni og sá
þriðji með 1,5 kíló af kókaíni. Ásgeir
Karlsson, yfirmaður fíkniefnadeild-
ar lögreglunnar í Reykjavík, segir að
rannsókn hafi ekki staðfest að þessi
mál séu tengd en margt bendi þó til
þess.
Meintur höfuðpaur var
í fangelsi á Íslandi 2001
Lögreglan í Þýskalandi lét til
skarar skríða í upphafi mánaðarins
og hefur nú handtekið níu manns,
þar af einn á Spáni, en fjórum var
var sleppt eftir yfirheyrslur. Húsleit
var gerð í 14 íbúðum og hald lagt á 21
kíló af hassi. Samkvæmt frétt í þýska
dagblaðinu Norddeutsche Rund-
schau telur lögreglan í Itzehoe að
höfuðpaur smyglhringsins sé 42 ára
gamall Þjóðverji. Þessi maður var
handtekinn á Keflavíkurflugvelli
vorið 2001 með fimm kíló af hassi og í
kjölfarið dæmdur í 12 mánaða fang-
elsi. Líkt og aðrir sem dæmdir eru
fyrir fíkniefnasmygl afplánaði hann
dóminn á Litla-Hrauni. Á sama tíma
var meintur samverkamaður hans
hér á landi, Íslendingur um þrítugt,
að afplána fjögurra ára fangelsisdóm
sem hann fékk fyrir þátt sinn í Stóra
fíkniefnamálinu svokallaða. Sam-
kvæmt áreiðanlegum heimildum
Morgunblaðsins leikur grunur á að í
nokkrum tilvikum hafi kynni tekist
með íslenskum og erlendum fíkni-
efnasmyglurum á Litla-Hrauni og
þeir í kjölfarið átt samvinnu um
fíkniefnasmygl til landsins. Hvort
það hafi gerst í þessu tilviki er ekki
hægt að segja um með vissu.
Í Norddeutsche Rundschau er
jafnframt greint frá því að maðurinn
hafi setið í fangelsi víðar en á Íslandi
og myndað þar tengsl við fíkniefna-
smyglara. Einn af þeim er 49 ára
gamall Þjóðverji sem þýska lögregl-
an hefur handtekið. Hann hefur búið
í Marokkó í 20 ár en talið er að hann
hafi útvegað stóran hluta af fíkniefn-
unum. Mennirnir kynntust í fangelsi
í Frakklandi árið 1997.
Tveir menn ákærðir á Íslandi
Tveir menn hafa verið ákærðir á
Íslandi í tengslum við málið, tæplega
sextugur Þjóðverji og rúmlega þrí-
tugur Íslendingur sem fyrr var
nefndur. Þegar Þjóðverjinn var
handtekinn á Keflavíkurflugvelli í
nóvember 2002 var hann með nokkra
pakka falda í beltisstað sem inni-
héldu um kíló af hassi og 900 grömm
af amfetamíni. Í ákæru gegn þeim,
sem var þingfest í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær, kemur fram að
lögregla setti gerviefni í pakkana áð-
ur en Íslendingurinn tók við þeim á
hóteli í Reykjavík.
Verjandi Þjóðverjans, Guðrún
Sesselja Arnardóttir hdl., krafðist
þess í gær að ákærunni yrði vísað frá
þar sem skjólstæðingur hefði játað á
sig sex aðrar ferðir með fíkniefni til
landsins. Í hvert skipti var magnið
svipað eða um kíló af hassi og kíló af
amfetamíni, að því er hann telur.
Guðrún bendir á að hann sé aðeins
ákærður fyrir eina smyglferð en
væntanlega sé ætlunin að ákæra
hann fyrir hinar ferðirnar síðar.
Lögregla hér á landi og í Þýskalandi
hafi haft samvinnu um rannsókn
málsins en rannsókninni sé ekki lok-
ið ytra. Samkvæmt lögum um með-
ferð opinberra mála megi á hinn bóg-
inn ekki gefa út ákæru fyrr en
rannsókn máls sé að fullu lokið. Þar
að auki verði að dæma mönnum refs-
ingu í einu lagi en ekki sé gert ráð
fyrir því að geyma einhverjar sakir
til betri tíma. Guðrún telur að lög-
regla hafi áhyggjur af því að ef það
hefði dregist að ákæra í málinu væri
hætta á að gæsluvarðhaldi yrði
hnekkt. Þetta telur hún óþarfa
áhyggjur að því er hennar skjólstæð-
ing varði. Hann vilji alls ekki losna
úr gæsluvarðhaldi þar sem varð-
haldstíminn verður væntanlega
dreginn frá refsingunni sem honum
verður dæmd. Hann hafi sætt sig við
gæsluvarðhaldsúrskurðina og aldrei
kært þá til Hæstaréttar.
Rannsóknarblaðamennska?
Þjóðverjinn kveðst vera blaða-
maður í lausamennsku og hefur
framvísað blaðamannapassa því til
staðfestingar. Samkvæmt áreiðan-
legum upplýsingum Morgunblaðsins
hefur hann við yfirheyrslur haldið
því fram að með smyglinu hafi hann í
raun verið að stunda rannsóknar-
blaðamennsku, hann hafi ætlað sér
að koma upp um smylghringinn og
skrifa um það blaðagreinar. Lög-
regla hefur ekki tekið mark á þess-
um framburði.
Þjóðverjinn er tæplega sextugur
og hafði ekki áður orðið uppvís að af-
brotum. Í Norddeutsche Rundschau
segir að hinn meinti höfuðpaur
smyglhringsins hafi beinlínis sóst
eftir burðardýrum á miðjum aldri
þar sem lögregla og tollgæsla myndu
síður telja þau grunsamleg. Það átti
t.a.m. við um 42 ára gamla konu sem
fór þrjár ferðir til Íslands með fíkni-
efni og tók 12 ára gamla dóttur sína
með sér í ferðalögin. Konan er nú í
haldi lögreglu í Þýskalandi.
Rannsókn ekki lokið
Meðal þess sem lögregla telur að
hafi auðveldað höfuðpaurnum að fá
fólk til liðs við sig var að smyglið var
verulega arðbært. Í Þýskalandi kost-
ar eitt gramm af hassi rúmlega 400
krónur „á götunni“ en á Íslandi er
verðið um 1.800 krónur. Kókaín er
einnig mun dýrara hér á landi en á
meginlandi Evrópu. Áhættan var að
sama skapi mikil því að refsingar við
fíkniefnasmygli eru að jafnaði hærri
hér á landi en á meginlandinu.
Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkni-
efnadeildar lögreglunnar í Reykja-
vík, vill ekki tjá sig frekar um málið
enda sé rannsókn þess ekki lokið.
Maður sem talinn er höfuðpaur þýsks smyglhrings og meintur
samverkamaður afplánuðu samtímis dóma á Litla-Hrauni árið 2001
Játar sjö smyglferðir
með fíkniefni til landsins
Handtaka 58 ára gamals Þjóðverja á Kefla-
víkurflugvelli með hass og kókaín í nóvem-
ber 2002 var hluti af mun stærri aðgerð lög-
reglu í Þýskalandi sem leiddi til þess að
rúmlega tugur manna hefur verið handtek-
inn í þrem löndum. Andrea Walter og Rún-
ar Pálmason komust að því að Þjóðverjinn
hefur játað 7 ferðir með fíkniefni til Íslands.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Þjóðverjinn var dæmdur í 12 mánaða fangelsi og afplánaði á Litla-Hrauni.
ALFREÐ Þorsteinsson, stjórnar-
formaður Orkuveitu Reykjavíkur
(OR), segir í bókun sem hann lagði
fram á stjórnarfundi OR sl. föstu-
dag, að í bókunum fulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins í OR vegna dóttur-
fyrirtækja komi fram mikil
vanþekking á uppbyggingu veitu-
fyrirtækja almennt. Eðli málsins
samkvæmt tekur það mörg ár að
fjárfestingar í veitingum skili sér,
segir í bókun Alfreðs.
Þá er minnt á að borgarlögmaður
hafi fjallað um hvort OR sé heimilt
að stunda fjarskiptarekstur og
komist að því að það brjóti ekki í
bága við lög um OR. Þá segir Alfreð
fulla ástæðu vera til þess að minna
á að hagnaður OR og dótturfélaga
hafi losað þrjá milljarða í fyrra.
Í bókun sinni fullyrðir Alfreð að
ljósleiðarakerfi Línu.nets, sem nú
sé í eigu OR og rekin sem fjórða
veitan, muni skila eigendum hagn-
aði þegar fram líði stundir. Ekki
megi heldur gleyma að þeir sem
hagnist nú mest á kerfinu séu stór-
notendur á borð við sjúkrahús, heil-
brigðisstofnanir, skóla, banka og
ráðuneyti og þau greiði 40% lægri
gjöld en ella væri. Þá tekur Alfreð
fram að ljóst hafi verið að nokkurn
tíma muni taka að byggja upp
rekstur Tetra Ísland og það sé ekki
á færi annarra en fjársterkra fyr-
irtækja á borð við OR, Landsvirkj-
un og Motorola að koma að því.
Gagnrýni sjálfstæðismanna sé sér-
kennileg í þessu ljósi.
Alfreð Þorsteinsson
um afstöðu D-listans til
Línu.nets og Tetra
Lýsir van-
þekkingu á
eðli veitu-
fyrirtækja
MIKIÐ var um að vera í Vest-
mannaeyjum í gær í tilefni af nátt-
úruvísindadegi grunnskólanna þar.
Yfir þúsund manns tóku þátt í há-
tíðarhöldunum þar sem lærdómi og
leik var blandað saman í hæfilegum
hlutföllum. Að lokum var slegið
upp grillveislu.
Að sögn Sigurhönnu Friðþórs-
dóttur, kennara í Barnaskóla
Vestmannaeyja, er náttúruvís-
indadagurinn liður í svokölluðu
Globe-verkefni. Markmiðið sé með-
al annars að börnin fái að kynnast
vinnubrögðum vísindamanna og
læri um leið að ganga vel um nátt-
úruna.
Náttúru-
vísindadagur
í Eyjum
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Grunnskólabörn í Vestmannaeyjum mynda stærsta Globe-merki í heimi á náttúruvísindadegi.