Morgunblaðið - 20.05.2003, Blaðsíða 22
LANDIÐ
22 ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
VERKMENNTASKÓLA Austur-
lands í Neskaupstað var slitið laug-
ardaginn 17. maí í Egilsbúð. Alls út-
skrifuðust 34 nemendur frá
skólanum að þessu sinni, bæði af
bóknáms- og verknámsbrautum.
Fram kom í máli skólameistara,
Helgu M. Steinson, við skólaslitin
að á næsta skólaári hefst kennsla á
starfsbraut áliðnaðar í samstarfi
við álrisann Alcoa og munu tólf
nemendur hefja nám við skólann á
þeirri braut í haust. Þá kom einnig
fram í máli Helgu að skólar í Nor-
egi og Danmörku hafi óskað eftir
samstarfi við Verkmenntaskólann
um álfræðslu og er það samstarf
hafið.
Fjölmenni var við skólaslitin.
Morgunblaðið/Ágúst
Nýstúdentar Verkmenntaskóla Austurlands árið 2003. Alls útskrifuðust 34 nemendur frá skólanum að þessu sinni.
Verkmenntaskóla Austurlands slitið
Neskaupstaður
ATVINNUUPPBYGGING í dreif-
býli tengist á ríkan hátt ferðaþjón-
ustu enda spáð mestum vexti innan
þeirrar atvinnugreinar á komandi
árum. Að tilstuðlan atvinnu- og
ferðamálanefndar Snæfellsbæjar
blása ferðaþjónustuaðilar til vorhá-
tíðar helgina 23.-25. maí næstkom-
andi undir heitinu Vor undir jökli,
velkomin í Snæfellsbæ.
Örvar Marteinsson, formaður at-
vinnu- og ferðamálanefndar, veitti
góðfúslega nánari upplýsingar um
þessa vorhátíð. Hann sagði að nefnd-
in hefði unnið að framgangi þessarar
hugmyndar síðan í janúar og að und-
irtektir hjá ferðaþjónustuaðilum
hefðu verið sérlega góðar.
Opið golfmót og gönguferðir
Að sögn Örvars eru allir gististað-
ir í bæjarfélaginu með tilboð á gist-
ingu þessa helgi en jafnframt verður
boðið upp á ýmislegt til afþreyingar.
Á ýmsum bæjum í Staðarsveit gefst
ferðamönnum kostur á að komast í
snertingu við lömb og önnur húsdýr
og verða bæirnir sérstaklega merkt-
ir við þjóðveginn.
Örvar sagði að golfarar gætu
glaðst yfir því að golfvellirnir á Görð-
um í Staðarsveit og í Ólafsvík væru
opnir og á þeim síðarnefnda væri op-
ið golfmót þessa helgi. Þeir sem eru
gönguglaðir geta farið í gönguferðir
undir leiðsögn Sæmundar Kristjáns-
sonar á Rifi, Skúla Alexanderssonar
á Hellissandi og Guðlaugs Berg-
mann á Hellnum, sem allir fara í
söguferðir um sín svæði. Kajakaleig-
an verður staðsett á Breiðinni og
Snjófell verður með jöklaferðir ef
veður leyfir. Sjávarsafnið í Ólafsvík
verður opið, svo og hestaleigur víðs
vegar í bæjarfélaginu sem bjóða
bæði reiðtúra og að teyma undir
börnum. Að sjálfsögðu verða svo
veitingahúsin í bæjarfélaginu með
eitthvað gott á boðstólnum.
Handverksmarkaður
og Evróvisjón
Sýningin „Krambúðarloftið“ opn-
ar í Pakkhúsinu í Ólafsvík með
harmonikkuleik að sögn Örvars og á
neðstu hæð hússins opnar ljós-
myndasýning Morgunblaðsins og
Sjóminjasafnið á Hellissandi verður
opið.
Í félagsheimilinu á Arnarstapa
verður handverksmarkaður á laug-
ardeginum og ferðaþjónustuaðilar
hafa ekki gleymt því að þetta er
Evróvisjón-helgi. Örvar sagði að all-
ir gististaðir í bæjarfélaginu byðu
upp á sjónvarp í setustofu og þeir
sem vilja vera í meiri stemmningu
geta farið á veitingahúsið Svörtuloft
á Hellissandi eða Gistiheimili Ólafs-
víkur sem skartar breiðtjaldi.
Vor undir Jökli
Snæfellsbær
TEKIN hefur verið fyrsta skóflu-
stunga að safnaðarheimili við
Hvammstangakirkju. Lárus Jóns-
son, formaður sóknarnefndar, flutti
skýrslu um undirbúning og aðdrag-
anda að þessu mikla verkefni. Sagði
hann málið hafa verið í undirbúningi
í nokkur ár. Arkitekt er Haraldur V.
Haraldsson á Hvammstanga, en
Ráðgarður sf hefur annast teikning-
ar og ráðgjöf.
Áætlaður heildarkostnaður bygg-
ingarinnar er um fimmtíu milljónir
króna. Fyrsti áfangi verksins er að
steypa upp húsið og fullgera það að
utan með frágenginni lóð. Safnaðar-
heimilið verður áfast kirkjunni, en
jafnframt verður gerð ný loftræsting
fyrir alla bygginguna. Þessi áfangi
er metinn þrjátíu milljónir króna og
hefur verið samið við Tvo smiði ehf. á
Hvammstanga um verkið. Er það
þegar hafið og skal lokið í haust.
Á síðustu misserum hafa safnast í
byggingarsjóð um þrettán milljónir
króna og einnig hefur verið lofað
framlagi úr Jöfnunarsjóði sókna, tólf
milljónum króna, sem greiðast á
þremur árum. Þannig vantar enn
fimm milljónir í þennan fram-
kvæmdarhluta.
Skóflustunguna tóku fjórir ein-
staklingar úr Hvammstangasókn:
Arna Rós Bragadóttir fyrir hönd
barna, Bjarki Ragnarsson fyrir hönd
ungmenna, Jóhannes R. Jóhannes-
son fyrir hönd fullorðinna og Jenny
Jóhannesdóttir fyrir hönd aldraðra.
Sr. Sigurður Grétar Sigurðsson
blessaði athöfnina.
Ljósmynd/Karl Ásgeir Sigurgeirsson
Fjórir einstaklingar úr Hvammstangasókn tóku fyrstu skóflustunguna vegna byggingar safnaðarheimilisins.
Bygging safnað-
arheimilis hafin
Hvammstangi
ÞEGAR nýtt og glæsilegt tölvuver
var tekið í notkun sl. haust í grunn-
skólanum í Hveragerði opnaðist
möguleiki á því að halda námskeið
fyrir aðra en nemendur skólans. Nú
á vordögum ákvað Búnaðarbank-
inn í Hveragerði að bjóða eldri
borgurum upp á námskeið í tölvu-
fræði og upplýsingatækni. Leitað
var til Grunnskólans um fram-
kvæmd námskeiðsins og fékk Guðni
Sigurður Óskarsson kennari nem-
endur úr 8. bekk með sér og saman
hafa þau upplýst eldra fólkið í bæn-
um. Ánægja hefur einkennt andlit
krakkanna og ekki síður fullorðna
fólksins. Hugmyndir eru nú uppi
meðal kennara í upplýsingamennt
að gaman væri að gera þetta að ár-
legu verkefni krakka í 8. bekk.
„Hvað ungur temur
gamall nemur“
Eldri
borgarar
á tölvu-
námskeiði
Hveragerði
Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir
Kamilla Gylfadóttir, nemandi í 8. bekk, leiðbeinir Ólafi Steinssyni.
ÞAÐ var framandi tónlist sem
hljómaði í miðbæ Húsavíkur á dög-
unum þegar nemendur úr Hafra-
lækjarskóla í Aðaldal héldu þar tón-
leika. Spiluðu þau á afrísk hljóðfæri,
svokallaða marimbatónlist á þar til
gerð hljóðfæri.
Yfirskrift tónleikanna var „Okkar
lífsgleði er þeirra lifibrauð“ og fóru
þeir fram á Verbúðarþakinu gegnt
Húsavíkurkirkju. Voru tónleikarnir
haldnir í samstarfi við Rauða kross
Íslands til styrktar börnum í Írak.
Fjöldi fólks lagði leið sína á Verbúð-
arþakið í blíðviðrinu þennan dag og
hlustuðu á krakkana flytja þessa
tónlist og ekki var annað að sjá og
heyra að þeim líkaði hún vel.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Marimba-tónlist, ættuð frá Afríku, hljómaði á Húsavík á dögunum þegar
nemendur úr Hafralækjarskóla héldu tónleika á Verbúðarþakinu.
Framandi tónlist
hljómaði á Húsavík
Húsavík