Morgunblaðið - 20.05.2003, Blaðsíða 24
LISTIR
24 ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ er umhugsunarefni hvers
vegna ekki hafa verið starfandi
drengjakórar við kirkjur á Íslandi
þar sem sú hefð er margra alda göm-
ul í Evrópu og fallega syngjandi
drengjakór er einn fallegasti kór-
hljómur sem heyrist, kannski er það
vegna hins heimsfræga agaleysis
sem hér er landlægt. Uppeldi í kór er
mjög gott veganesti út í lífið, í kórum
læra menn að vinna undir miklum
aga og allir verða að læra að taka til-
lit til annarra. Öguð vinnubrögð eru
eitt það besta veganesti sem börn og
unglingar geta farið með út í lífið og
kemur þeim til góða í öllu því sem
þau taka sér fyrir hendur í framtíð-
inni. Drengjakór Neskirkju blés til
tónleika sl. sunnudag og efnisskráin
var ekki auðsungin. Hér ræður
metnaðurinn ríkjum og þegar dreng-
irnir hófu upp raust sína í laginu
Donna, donna var ljóst að laun erf-
iðisins voru góð. Hljómurinn í kórn-
um er hreinn, bjartur og fallegur og
öll framkoma til fyrirmyndar. Vina-
söngur Andrew L. Webber, Amigos
para sempre og Senn kemur vor eftir
Kabalwski voru mjög fallega flutt og
framburður sérlega skýr. Þrísöngur-
inn, Hve klukkur blítt klingja úr
Töfraflautu Mozarts sem einnig er
þekkt hér á landi við Hann Tumi fer
á fætur, hafði fallega snerpu og
klingjandi léttleika. Rífandi Vínar-
stemning var í Vorljóði Johanns
Strauss og Vínarljóði Schuberts. Hin
vel þekkta perla Jóns Ásgeirssonar,
Maístjarnan, var á sínum stað með
stórglæsilegum endi.
Kórinn fékk styrk frá Menningar-
sjóði Reykjavíkurborgar til að láta
semja verk fyrir sig og flytja þau.
Tvö verk voru samin fyrir kórinn og
bæði frumflutt á þessum tónleikum.
Það fyrra er LUSUS, Hymnus in
Gabrielem Archangelum, eða sálmur
til Gabríels erkiengils við texta frá
því um 1500 er samið af Szymon Kur-
an og gerir ráð fyrir meðleik á orgel.
Þetta er mjög athyglisvert verk og
gífurlega krefjandi af kórnum, bæði í
tónlegu sem er oft mjög há með
skiptum röddum og hljómlega með
töluverðum ómstríðum. Kórinn
komst mjög vel frá verkinu og
blómstraði í raun á erfiðustu köflun-
um og glæsilegum lokahljóm. Illgresi
samdi Hildigunnur Rúnarsdóttir fyr-
ir kórinn og píanó og er það verk allt
annars eðlis, fallega melódískt sem
gefur öllum röddum færi á að njóta
sín. Textinn er eftir Örn Arnarson.
Kórinn söng verkið af miklum þokka
og glæsibrag.
Ísak Ríkharðsson sem er aðeins 10
ára gamall söng Pie Jesu úr sálu-
messu Fauré af miklum glæsibrag.
Latnesku bænina Ave María eftir
Fauré svo og hymnann Ave verum
corpus í raddsetningu eftir sama og
einnig í raddsetningu Camille Saint-
Saëns flutti kórinn af glæsibrag.
Karl Jóhann Bjarnason, Halldór
Bjarki Arnarson og Hákon Björn
Högnason sungu Máríuvers Páls Ís-
ólfssonar mjög fallega. Alleluja úr
einsöngsmótettunni Exultate Jub-
ilate eftir Mozart og Forever blessed
be thy holy name eftir Händel voru
stórglæsileg.
Friðrik söngstjóri og Björk Jóns-
dóttir raddþjálfari gera mjög góða
hluti með drengjunum og aginn og
vinnubrögðin skila árangri. Túlkunin
var öll sérlega músíkölsk og vel mót-
uð. Gaman var að sjá drengina
standa með hendur fyrir aftan bak og
syngja eins og engla með alla athygli
á söngstjóranum sem leiddi þá í
gegnum tónleikana af öryggi við
glæsilegan píanó og orgelleik Lenku
Mátéovu.
Söngur um dauðann og ástina
Það þarf töluverða áræðni til að
stíga á stokk og halda sína fyrstu op-
inberu einsöngstónleika í fullri lengd
mörgum árum eftir að námi er lokið
eins og Kristján Helgason gerði á
laugardaginn var. Kristjáni tókst að
rífa upp góða stemningu í salinn með
lifandi og skemmtilegri sviðsfram-
komu og stórgóðum leiktilburðum.
Meginþemu tónleikanna voru tvö,
dauðinn og ástin. Lögin Máninn líður
eftir Jón Leifs, Come away death eft-
ir Gerald Finzi, Bikar Eyþórs Stef-
ánssonar og Sverrir konungur eftir
Sveinbjörn Sveinbjörnsson voru
fyrstu lögin og flutt sem eins konar
syrpa. Kristján náði ekki að finna sig
og staðsetja röddina í fyrstu, en
krafturinn kom í Bikarnum og text-
inn var mjög skýr í Sverri konungi.
Eftir þessa fyrstu syrpu söng Krist-
ján Abendstern aríu Wagners og átti
þar mjög góða spretti. Lag Schu-
berts Der Tod und das Mädchen var
vel sungið og fallega túlkað sem og
lag Kaldalóns, Kveldriður við texta
Gríms Thomsen. Kristján fæst einn-
ig við að semja lög og bauð upp á tvö
þeirra á þessum tónleikum. Það
fyrra var við dálítið einkennilegan
texta eftir Ævar Örn Jósepsson, sem
býður alls ekki upp á hefðbundið
sönglag, en er skondinn og lýsir
innbúi í ákveðnu húsi. Þarna tókst
Kristjáni einna best upp og sýndi það
svart á hvítu að hann er stórleikari
frá náttúrunnar hendi. Lagið er í stíl
við textann, bráðskondið og lifandi
með smellnum píanóleik.
Sá hluti efnisskrárinnar sem
fjallaði um ástina hófst á Drauma-
landi Sigfúsar Einarssonar sem var
fallega flutt sem og lag Emils Thor-
oddsen, Í fögrum dal. Sama er að
segja um ástararíuna O del mio dolce
amor eftir Gluck og An Silvia eftir
Schubert. Ungverska þjóðlagið
Bogyiszlai kertek, sem fjallar um
ástfanginn mann sem klúðrar öllum
ástarmálum sínum og stendur að lok-
um einn og yfirgefinn, er skemmti-
legt lag sem fór vel í flutningi Krist-
jáns. Undirritaður hafði á tilfinn-
ingunni alla tónleikana að rödd og
sviðsframkoma Kristjáns væri tilval-
in fyrir söngleikjatónlist og þetta
staðfestist í lögunum tveimur úr
West Side Story, Maria og Tonight
en þar fór Kristján á kostum bæði
sönglega og leikrænt. Síðara frum-
flutta lag Kristjáns var Ég man … og
var það eftir sama textahöfund og
það fyrra og í svipuðum stíl nema nú
voru það endurminningar, og það
stundum sárar. Flutningurinn var
góður og krafðist gamansams sam-
starfs við pínóleikarann sem tókst
vel. Síðasta lagið á efnisskránni var
Hamraborgin eftir Sigvalda Kalda-
lóns.
Það er ekki sanngjarnt að dæma
söngvara út frá fyrstu tónleikum sem
haldnir eru eftir svona langt (söng)
hlé. Söngvari sem og aðrir tónlistar-
menn þurfa að vera undir stöðugu
álagi og áreiti til að halda sér í formi
og bæta við sig. Það verður gaman að
fylgjast með Kristjáni nú þegar hann
er aftur kominn á skrið. Antonia
Hevesi er góður meðleikari og studdi
vel við bak söngvarans og átti sinn
þátt í ánægjulegum tónleikum.
Englaraddir og
leiktilburðir
TÓNLIST
KÓRSÖNGUR
Drengjakór Neskirkju. Stjórnandi Friðrik
S. Kristinsson. Meðleikari Lenka Mát-
éová. Sunnudagurinn 18. maí kl. 15.
Neskirkja
Jón Ólafur Sigurðsson
EINSÖNGSTÓNLEIKAR
Kristján Helgason, bariton og Antonia
Hevesi á píanó. Laugardagurinn 17. maí
kl. 17.30.
Hafnarborg
ÞRJÁR viðurkenningar voru veitt-
ar á Vorvindahátíð IBBY-
samtakanna við hátíðlega athöfn í
Norræna húsinu á dögunum.
Fyrstu viðurkenningu hlaut Engill í
Vesturbænum en það eru þrír lista-
menn sem standa að verkinu, þær
Kristín Steinsdóttir rithöfundur,
Halla Sólveig Þorgeirsdóttir mynd-
listarmaður og Sigrún Sigvalda-
dóttir, grafískur hönnuður. Í um-
sögn dómnefndar segir m.a.:
„Bókin er heildstætt og einstakt
listaverk, bæði hvað varðar texta
Kristínar Steinsdóttur og myndlýs-
ingar Höllu Sólveigar Þorgeirs-
dóttur. Síðan hefur Sigrúnu Sig-
valdadóttur tekist að setja saman
texta Kristínar og myndir Höllu
Sólveigar með svo mikilli smekkvísi
og listfengi að úr varð þetta lista-
verk sem gleður auga og birtir
huga þeirra sem njóta þess, hvort
sem þeir eru ungir eða gamlir.“
Aðra viðurkenninguna hlaut
Brynhildur Þórarinsdóttir sem
stytti og endursagði Njáls sögu í
bókinni Njálu með myndskreyt-
ingum Margrétar Laxness (Mál og
menning 2002). Í umsögn segir
m.a.: „Með þessu metnaðarfulla
brautryðjandaverki hefur Bryn-
hildur séð til þess að Njála yrði að-
gengileg börnum og unglingum á
auðlæsilegu máli og aukið þar með
áhuga þeirra á Íslendingasögunum.
Þessi bók gefur ungum lesendum
innsýn í fornsagnaheim þar sem
mannlífið iðar af skemmtilegum
frásögnum.“
Þriðju Vorvindaviðurkenninguna
hlaut Mjólkursamsalan fyrir Fernu-
flug, átak sem fyrirtækið stendur
fyrir í samvinnu við fleiri aðila.
Keppni var haldin meðal 13–16 ára
unglinga um örsögur og ljóð. Yfir
1.200 textar bárust inn en úr þeim
voru valdir 64 textar sem birtir eru
á milljónum mjólkurferna en þær
fara inn á næstum hvert einasta
heimili á landinu. IBBY þykir sér-
stök ástæða til að verðlauna þetta
framtak sem gerir ungu fólki kleift
að koma hugsmíðum sínum á fram-
færi á óvenjulegan hátt. Þykir það
leiða til aukins áhuga á ljóðagerð
og ljóðalestri landsmanna, yngri
sem eldri.
Fram til þessa hafa 59 Vor-
vindaviðurkenningar verið veittar.
Verðlaunahafarnir ásamt formanni Ibby, Önnu Heiðu Pálsdóttur.
Þrjú verk hljóta
Vorvindaviður-
kenningu IBBY
MÝRIN eftir Arnald Indriðason
kom út í Danmörku fyrir
skemmstu og hafa að undanförnu
birst lofsamlegir dómar í þarlend-
um fjölmiðlum að því er kemur
fram í upplýsingum frá Rétt-
indastofu Eddu útgáfu. Þannig tel-
ur gagnrýnandi Week-
endavisen Mýrina vera
glæpasögu í hæsta
gæðaflokki og hafi
verðskuldað að vera
kjörin besta norræna
glæpasagan. Politiken
hrósar stíl bókarinnar,
segir hana frábæra af-
þreyingu og hún sé í
senn kjaftfor og
mannleg. Þá segir
gagnrýnandi Inform-
ation að Mýrin sé
brimsaltur en fjári vel
saman settur og skrif-
aður biti frá sögueyj-
unni. Mýrin kom út hjá
Vöku-Helgafelli árið
2000 og var í fyrra valin besta
glæpasagan á Norðurlöndunum.
Gagnrýnandi Weekendavisen,
Katinka Bruhn, segir í upphafi
greinar sinnar að Mýrin sé glæpa-
saga í hæsta glæpaflokki. Mýrin
hafi allt það til að bera sem hjörtu
glæpasagnalesenda þrá, og þetta
eigi alls staðar við – blæbrigðaríka
persónusköpun og meistaralega
úthugsaða fléttu. Það hafi verið
fullkomlega verðskuldað að skáld-
sagan var kjörin besta norræna
glæpasagan í fyrra.
„Arnaldur Indriðason hefur til-
finningu fyrir morðum,“ segir
Connie Bork í Politiken, „en hann
hefur einnig tilfinningu fyrir orð-
um, og fyrst við erum að tala um
tungumálið, þá fljóta menn venju-
lega með straumnum því það er
einfaldast. En það koma augnablik
þegar mönnum er mjög brugðið,
þeir eru niðurdregnir eða örvænt-
ingarfullir, þegar menn lenda á
skjön. Og orðin skreppa út úr okk-
ur meira sem kvak en tungumál.
Það er þetta snubbótta tungumál
sem Arnaldur Indriðason nær að
fanga.“
Síðan segir gagnrýnandinn:
„Það sem gerir þessa glæpasögu
að frábærri afþrey-
ingu er að hún er í
senn kjaftfor og
mannleg. Því í henni
er beinn þráður, allt
frá fyrsta sárs-
aukaandvarpinu til
háværrar tjáningar
harmleiks og mann-
legar mæðu, sem í
lokin stendur meitl-
aður inn í íslenska
rigningu.“
Gagnrýnandi In-
formation, Peter
Dürrfeld, ritar í
grein sinni um Mýr-
ina: „Sviðið er regn-
vot Reykjavík, það er
dimmt og drungalegt haust, og
hrifnir Íslandsfarar (þ.á m. þessi
gagnrýnandi), sem vonast kannski
eftir fögrum náttúrulýsingum og
hugljúfum norrænum skáldskap,
geta gleymt öllu slíku.“ Hann seg-
ir síðan að spennan setjist að í vit-
um lesandans og heldur áfram:
„Mýrin er, eins og menn munu
komast að, ekki bók fyrir við-
kvæmar sálir heldur kaldur og
brimsaltur biti frá sögueyjunni, og
alveg fjári vel saman settur og
skrifaður. Og að því er virðist
ákaflega vel þýddur.“
Mýrin fær
góða dóma í
Danmörku
Arnaldur Indriðason
SJÓMINJASAFNIÐ, Vesturgötu 8,
Hafnarfirði, er nú opið alla daga frá
kl. 13-17 fram til 15. september. Sjó-
minjasafnið er sérsafn á sviði fisk-
veiða, siglinga og sjómennsku. Það
er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
með aðsetur í Brydepakkhúsi sem
reist var um 1865 fyrir Knudtzons-
verslun, eitt helsta verslunarfyrir-
tæki hér á landi á 19. öld, en húsið
var endurbyggt með það fyrir aug-
um að hýsa sjóminjasafn. Hlutverk
safnsins er að safna, skrásetja, varð-
veita og rannsaka sjóminjar í víðasta
skilningi og kynna þær almenningi
og nemendum í samstarfi við skóla
og fræðsluyfirvöld.
Í safninu eru sýndir gamlir ára-
bátar, veiðarfæri, áhöld, myndir, lík-
ön og annað sem tengist sögu sjó-
sóknar og siglinga Íslendinga,
fiskveiðum og strandmenningu. Auk
grunnsýningar safnsins eru öðru
hverju sérstakar sýningar sem fjalla
um tiltekin efni. Myndbandasýning-
ar og fyrirlestrar eru einnig hluti af
starfseminni. Sameiginlegur afslátt-
armiði er að Sjóminjasafninu og sýn-
ingum Byggðasafns Hafnarfjarðar í
Sívertsenshúsi, Smiðjunni og Siggu-
bæ.
Sumaropnun
Sjóminja-
safnsins
KAMMERKÓR Reykjavíkur held-
ur tónleika í Laugarneskirkju kl. 20
annað kvöld, miðvikudagskvöld.
Einsöngvarar eru Svanlaug Árna-
dóttir og Árni Gunnarsson. Þetta
eru fyrstu tónleikar kórsins, en
hann var formlega stofnaður sl.
haust. Hann stóð, ásamt Ung-
mennafélagi Íslands, fyrir tónleik-
unum „Fíkn er fjötur“ sem haldnir
voru um allt land. Kórinn mun
syngja lög eftir Hjálmar H. Ragn-
arsson, Hallgrím Helgason, Hildi-
gunni Rúnarsdóttur o.fl. Einsöngv-
arar eru úr röðum kórfélaga.
Stjórnandi er Sigurður Bragason.
Píanóleikari er Bjarni Jónatansson
og þverflautuleikari Hugrún Sif
Hallgrímsdóttir.
Kammerkór
í Laugarnes-
kirkju
Vorhátíð LHÍ haldin í Listasafni
Reykjavíkur, Hafnarhúsi, kl. 12–
12.30 Fókusinn – verk nemenda
skoðuð.
Nemendaleikhúsið Sölvhólsgötu
13 kl. 20 Leiksýningin Tvö hús.
Á MORGUN
♦ ♦ ♦