Morgunblaðið - 20.05.2003, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 20.05.2003, Qupperneq 20
AKUREYRI 20 ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ AFLIÐ, sem er systursamtök Stíga- móta, hóf starfsemi af krafti um síð- ustu áramót, en félagið var stofnað fyrir um einu ári, í apríl 2002, og voru stofnfélagar um 50 talsins. Aflið hefur fengið að láni húsnæði hjá Menntasmiðjunni við Glerárgötu á Akureyri, en boðið er upp á síma- tíma einu sinni í viku, frá kl. 17 til 19 á miðvikudögum. Sæunn Guðmundsdóttir og Anna María Hjálmarsdóttir eru í stjórn samtakanna en alls sitja í stjórninni 7 manns. Þær sögðu starfsemina byggjast upp á sjálfboðaliðastarfi, en vonast til þess að hægt verði að ráða starfsmann í hlutastöðu síðar á árinu eða kringum næstu áramót. Að sögn Sæunnar og Önnu Maríu er starfsemi Aflsins byggð upp með svipuðu sniði og hjá Stígamótum, en þolendum kynferðisofbeldis er boðið upp á einkaviðtöl og eins eru starf- andi sjálfshjálparhópar. Þeir eru um þessar mundir tveir, á Akureyri og Húsavík. Þeir standa yfir í 15 til 17 skipti og eru þrír tímar í senn og eru þátttakendur í hverjum hópi ekki fleiri en 8. Aflið hefur yfir að ráða 4 leiðbeinendum í þessum hópum og hafa þeir sótt námskeið og verið í starfsþjálfun á vegum Stígamóta. „Það hefur sýnt sig að þörf fyrir þessa þjónustu var brýn hér norðan heiða,“ sagði Sæunn, en hún benti á að um 25% þolenda kynferðisofbeldis væru búsett á landsbyggðinni og vit- anlega ættu ekki allir sem vildu leita sér hjálpar heimangengt til að taka þátt í starfsemi sjálfshjálparhópanna í svo langan tíma. „Það þarf yfirleitt mikið að hafa gengið á áður en fólk leitar sér að- stoðar, en við finnum að fólk er þakk- látt fyrir að geta fengið þessa þjón- ustu í heimabyggð,“ sagði Anna María, en þær stöllur bentu á að til þeirra leitaði fólk af öllu Norðurlandi og allt austur til Vopnafjarðar. „Það er yfirleitt mjög erfitt fyrir þolendur að brjóta ísinn og hafa samband. Sektarkenndin er mikil og skömmin yfir því að þetta hafi gerst, margir líta svo á í fyrstu að þetta sé þeim sjálfum að kenna,“ sagði Anna María. Næsta haust er ætlunin að fara í framhaldsskóla á svæðinu og jafnvel í eldri deildir grunnskóla til að kynna starfsemina, en þær benda á að rann- sókn hafi sýnt fram á að 1 af hverjum 4 konum hafi orðið fyrir einhvers konar ofbeldi fyrir 18 ára aldur. „Við reynum að benda fólki á að það geti leitað sér aðstoðar hafi það orðið fyrir ofbeldi af einhverju tagi,“ segja þær Sæunn og Anna María. „Það er aldrei of seint að hafa samband og ræða málin,“ Þær segja það svo undir hverjum og einum komið hversu mikla aðstoð hann vill, eitt spjall í síma, einkaviðtal eða þátttöku í sjálfs- hjálparhópum. „Mín reynsla er sú að það gerir manni mest gagn að hlusta á hvað aðrar konur í hópnum segja, heyra í hverju aðrir hafa lent og hvernig þeir takast á við afleiðing- arnar,“ sagði Anna María. Svo sem áður er nefnt er boðið upp á símatíma einu sinni í viku, en einnig gefst fólki kostur á að tala inn á sím- svara og þá hafa starfsmenn Aflsins samband. Þá má einnig hafa samband með tölvupósti á netfangið aflid@ak- mennt.is. Margir hjálplegir Margir hafa lagt starfseminni lið, m.a. nefna þær að Zontakonur hafi styrkt starfsemina myndarlega, KEA, Soroptimistakonur, Svölurnar og ýmis bæjarfélög á Norðurlandi og verkalýðsfélög auk þess sem Akur- eyrarbær leggi til húsnæði og fjár- styrk. Félagsmálaráðuneytið hafi neitað að styrkja starfsemi á liðnu ári en reyna eigi aftur nú í ár. „Það gefur okkur mikinn kraft að sjá hversu margir eru tilbúnir að leggja okkur lið, það eflir okkur í því að halda ótrauðar áfram, enda finnum við að þörfin fyrir þjónustuna er mikil,“ segja þær Sæunn og Anna María. Aflið, systursamtök Stígamóta, með starfsemi á Akureyri Fólk þakklátt fyrir þjónustuna í heimabyggð Morgunblaðið/Kristján Anna María Hjálmarsdóttir og Sæunn Guðmundsdóttir í stjórn Aflsins, systursamtaka Stígamóta á Norðurlandi. Tvennir tónleikar verða á vegum Tónlistarskólann á Akrueyri í dag, þriðjudaginn 20. maí. Strengja- sveit skólans leikur kl. 18 í Ak- ureyrarkirkju og kl. 20 um kvöldið koma nemendur ljóðadeildar fram í Laugarborg þar sem einnig kem- ur fram kór skólans undir stjórn Michaels Jóns Clarke. Allir eru velkomnir á tónleikana. Síðasti fræðslufundur þessa skólaárs á vegum Skólaþróun- arsviðs kennaradeildar Háskólans á Akureyri verður haldinn í dag, þriðjudaginn 20. maí, kl. 16.15. Að þessu sinni nefnist fyrirlesturinn: Hvað geta börn lært af iðkun barnaheimspeki? Í fyrirlestrinum fjallar Guðrún Alda Harðardóttir, lektor við kennaradeild HA, um mikilvægi áhugahvatar nemenda til að rann- saka – að þeir taki virkan þátt í eigin menntun – mikilvægi sam- ræðu sem eina af mörgum aðferð- um til að læra og loks mikilvægi þess að kennarar séu næmir á hæfileika nemenda og veiti óbeina leiðsögn. Fræðslufundurinn verður haldinn í húsnæði kennaradeildar í Þingvallastræti 23. Í DAG HÚSIÐ við Gránufélagsgötu 6 á Akureyri, á horninu við Hótel Norðurland og Herradeild JMJ, var rifið um helgina en þar voru síðast til húsa Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra og rakara- stofa. Liðsmenn í Slökkviliði Akur- eyrar sáu sér leik á borði áður en húsið var rifið og æfðu þar reyk- köfun og lífbjörgun. Æfingarnar voru keyrðar eins og um venjulegt útkall væri að ræða og tóku allar vaktir slökkviliðsins þátt. Kveikt var í inni í húsinu, þannig að mynd- aðist þykkur reykur og hiti og þurftu slökkviliðsmennirnir að bjarga félögum sínum og dúkkum í eðlilegri líkamþyngd við erfiðar að- stæður. Æfðu reykköfun og lífbjörgun Morgunblaðið/Kristján AÐALFUNDUR Íþróttafélagsins Þórs sem haldinn var nýlega, sam- þykkti í ályktun að fela stjórn félags- ins að leita eftir samkomulagi við Ak- ureyrarbæ um uppbyggingu á fullkominni frjálsíþróttaaðstöðu á fé- lagssvæði Þórs. Þessi framkvæmd yrði fyrsti áfangi í því að gera mögu- legt að halda landsmót UMFÍ á Ak- ureyri 2007. Einnig var í ályktun fundarins lýst yfir mikilli ánægju með þann merka áfanga sem náðst hefur með tilkomu Bogans. Húsið og þeir nýju knattspyrnuvellir sem ver- ið er að ljúka við muni gjörbreyta allri aðstöðu íþrótttaiðkenda í bæn- um. Rekstur aðalstjórnar Þórs skilaði 2,4 milljóna króna hagnaði á síðasta ári og einnig varð hagnaður af rekstri knattspyrnudeildar upp á 1,5 millj- ónir króna. Mikill viðsnúningur varð á rekstri körfuknattleiksdeildar og var hagnaður á síðasta ári 375 þús- und krónur fyrir fjármagnsliði en hins vegar varð tap af rekstri hand- knattleiksdeildar upp á 4,4 milljónir króna fyrir fjármagnsliði á árinu 2002. Fjármagnsgjöld félagsins námu 6,7 milljónum króna á síðasta ári og eru aðallega til komin af skammtíma- skuldum. Á næstu vikum mun stjórn félagsins leita leiða til að endurfjár- magna skammtímaskuldir en vaxta- byrði vegna þeirra skulda er félaginu veruleg byrði. Ennfremur verður skoðað að selja eignir félagsins. Jón Heiðar Árnason var endur- kjörinn formaður Þórs á aðalfundi fé- lagsins en aðrir í stjórn eru Guð- mundur Jóhannsson, Bjarni Kristinsson og Páll Jóhannesson, sem kom nýr inn í aðalstjórn. Auk þess eru formenn deilda sjálfkjörnir í aðalstjórn samkvæmt lögum félags- ins. Í máli formanns kom m.a. fram að árangur félagsins á síðasta ári var góður, íþróttastarfið mjög gott og öfl- ugt, enda sé það alltaf stefnan að eiga lið og einstaklinga á meðal þeirra bestu. Aðalfundurinn var fjölsóttur og urðu fjörlegar umræður um reikn- inga félagsins og ályktanir fundarins. Ályktun aðalfundar Íþróttafélagsins Þórs Áhugi á uppbyggingu frjálsíþróttaaðstöðu SKÓLANEFND Akureyrar- bæjar samþykkti á síðasta fundi sínum að fjölga rýmum á tveimur leikskólum bæjarins um samtals 35. Fyrir fundinum lá tillaga um að fjölga rýmum á Naustatjörn í Naustahverfi og Kiðagili í Giljahverfi vegna stöðu biðlista en ljóst er að nú vantar rými fyrir allt að 48 börn. Leikskólastjórar hafa nú þegar tekið eins mörg börn inn og mögulegt er að koma fyrir með góðu móti. Þessi staða er fyrst og fremst til komin vegna þess að nú þiggja nánast allir foreldrar rými fyrir barn sitt þar sem það býðst, en und- anfarin ár hafa allt að 48 for- eldrar viljað bíða í allt að eitt ár. Skólanefnd samþykkti að fjölga rýmum í Naustatjörn um 24 og í Kiðagili um 11. Nefndin óskaði jafnframt eftir aukafjár- veitingu í fjárhagsramma árs- ins 2003, sem nemur rúmum 900 þúsund krónum vegna Kiðagils og 5,9 milljónum króna vegna Naustatjarnar. Leikskólinn Naustatjörn er fyrsta byggingin sem ráðist var í í hinu nýja Naustahverfi en ráðgert er að taka skólann í notkun 18. ágúst nk. Leikskóla- rýmum fjölgað ÍÞRÓTTA- og tómstundaráð Akur- eyrarbæjar hefur skipað tvo vinnu- hópa til að skoða húsnæðismál, ann- ars vegar Hestamannafélagsins Léttis og hins vegar Fimleikaráðs Akureyrar. ÍTA skipaði Guðnýju Jóhannes- dóttur, Nóa Björnsson og Kristin H. Svanbergsson deildarstjóra, fulltrúa ráðsins í vinnuhóp vegna skoðunar á möguleika á byggingu reiðhallar en jafnframt óskaði ráðið eftir því að Léttir og ÍBA skipuðu hvor sinn full- trúa í vinnuhópinn. Þá skipaði ÍTA þau Steingrím Birgisson, Sigrúnu Stefánsdóttur og Kristin H. Svanbergsson deildar- stjóra í vinnuhóp vegna skoðunar á úrbótum í húsnæðismálum Fim- leikaráðs. Einnig óskaði ráðið eftir því að FRA og ÍBA skipuðu hvort sinn fulltrúa í vinnuhópinn. Húsnæðismál Léttis og FRA til skoðunar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.