Morgunblaðið - 20.05.2003, Side 21

Morgunblaðið - 20.05.2003, Side 21
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2003 21 KARL Njálsson í Garði hefur ákveðið að hætta fiskverkun 1. júlí næstkomandi. Hefur hann sagt upp öllu starfsfólki sínu en hyggst gera áfram út bátinn Röstina. Þá heldur hann eignum fiskverkunarinnar og vonast til að synir hans, Arnar og Karl, vinni þar fisk áfram. „Jú, þetta er orðin harðari grein en áður. En ég hætti ekki þess vegna,“ segir Karl Njálsson þegar hann er spurður um ástæður þess að hann hefur ákveðið að hætta fisk- verkun. „Ég hóf þennan rekstur í byrjun árs 1961 og er því á 43. árinu. Ég er nýlega orðinn 67 ára og finnst kominn tími til að breyta til. Ég ætla að gera bátinn út áfram og eiga hús- in. Strákarnir hafa verið með mér lengi og þeim stendur til boða að fá húsin til að taka upp þráðinn en þeir verða auðvitað að ákveða það sjálfir og reka starfsemina á sína eigin ábyrgð. Ég finn að þetta er eina leiðin til þess að ég geti losnað frá þessu sjálfur,“ segir Karl. Ekki blásið fyrirtækið út Karl vann við akstur áður en hann fór út í fiskverkun og útgerð. Hann ók vörubifreið og síðar leigubíl á Að- alstöðinni í Keflavík. Í ársbyrjun 1961 tók hann á leigu fiskverk- unarhús í Garði og keypti trillu. Síð- an byggði hann smám saman yfir fyrirtækið. Fyrir áratug var stofnað einkahlutafélag um reksturinn, Karl Njálsson ehf. Framleiðsla á saltfiski hefur lengst af verið uppistaðan í starf- seminni en einnig hefur fiskur verið þurrkaður og verkaður í skreið. Þá hefur fyrirtækið aðstöðu til að frysta fisk og hefur hún stundum verið nýtt. Undanfarin ár hefur ver- ið unnið úr um 1500 tonnum af fiski á ári. Hann hefur verið með 12–14 starfsmenn í landi og 7–8 á sjó allt árið. Starfsmenn hafa verið fleiri á háannatímum. En nú eru örfáir eftir og þeir síðustu hætta 1. júlí næst- komandi. Karl hefur verið farsæll í þessum rekstri og viðurkennir að það hafi reynst vel að hafa sveigjanlegt og ekki of stórt fyrirtæki. „Kúnstin er að synda rétt í gegn um þetta allt saman og það hefur tekist. Það hafa aldrei verið nein stór vandamál í þessu fyrirtæki, þótt stundum hafi gefið á bátinn. Þetta hefur alltaf gengið vel, bara misvel,“ segir Karl. Hann segir ómetanlegt að hafa gott starfsfólk og viðskiptamenn. Þannig hafi fólkið haldið tryggð við fyr- irtækið, sá sem lengst hefur verið hefur starfað hjá Karli í 38 ár. Þá hefur hann verið í samvinnu við sömu útgerðarmennina í áratugi, Hafnarberg RE hefur verið í við- skiptum við hann í yfir þrjátíu ár og Freyja GK í tuttugu ár. „Ég byggði þetta fyrirtæki upp til að sjá mér og fjölskyldu minni far- borða og ekki verið að blása það út þótt tækifæri hafi gefist til þess. Þess vegna hafa ekki orðið stórar niðursveiflur hjá mér.“ Ákveðinn léttir Karl er í jakkafötum þegar blaða- maður hitti hann í fiskverkuninni en er þó að setjast undir stýri á fisk- flutningabílnum til að aka tilbúnum saltfiski til Reykjavíkur. Hann seg- ist ganga í öll störf í fyrirtækinu en sé í jakkafötunum vegna þess að hann hafi verið að koma af stjórn- arfundi í Sparisjóðnum í Keflavík. Á hann hafa hlaðist ýmis trúnaðar- störf. Hann var lengi í stjórn SÍF hf. og Aðalstöðvarinnar í Keflavík enda var hann stór hluthafi í báðum fyr- irtækjunum, einnig hefur hann verið í stjórnum ýmissa dótturfélaga SÍF, í Lífeyrissjóði Suðurnesja, Skipa- afgreiðslu Suðurnesja og vinnuveit- endafélaginu. Ekki segist hann vera að setjast í helgan stein, þótt hann hætti sjálfur fiskverkun. Eins og fyrr segir von- ast hann til að Arnar og Njáll, synir hans, nýti húsin til að verka fisk og hann ætlar að gera bátinn út áfram. Segist raunar ekki hafa kvóta til að gera hann út allt árið og verði því að leggja honum fram á haust. „En vissulega er það ákveðinn léttir að hafa tekið þessa ákvörðun, þetta hefur verið sama rútínan í í 43 ár,“ segir Karl Njálsson. Karl Njálsson hættir fiskverkun eftir 43 ára starf en vonar að synir hans hefji verkun í húsunum Alltaf gengið vel – bara misvel Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Karl Njálsson hefur saltað fisk samfleytt í 43 ár og finnst kominn tími til að hætta. Hann heldur áfram að gera út.Flatti þorskurinn fer beint í pækil. Garður FJÖLMENNI var í Safnaðarheim- ilinu í Sandgerði um helgina þegar söngsveitin Víkingar hélt síðari vortónleika sína. Með tónleikunum lauk níunda starfsári Víkinganna en hún er skipuð 26 karlmönnum af Suð- urnesjum. Þeir hafa sungið víða í vetur, meðal annars með Kvenna- kór Suðurnesja og í þættinum Söngvar í sýslum landsins. Söng- stjóri Víkinganna er Sigurður Sæv- arsson og harmonikkuleikur var í höndum Einars Gunnarssonar. Söngsveitin fékk góðar undir- tektir á tónleikunum í Safnaðar- heimilinu. Þegar Víkingarnir höfðu sungið tvö aukalög fóru þeir ásamt tónleikagestum út í góða veðrið og sungu fjögur aukalög til viðbótar við góðar undirtektir. Morgunblaðið/Reynir Sveinsson Víkingarnir luku starfsárinu með því að syngja nokkur aukalög fyrir utan Safnaðarheimilið í Sandgerði. Aukalögin sungin úti við Sandgerði REYKJANESBÆR vinnur að því að tryggja sér aðild að for- kaupsrétti sem landeigendur Ytri-Njarðvíkur I hafa að landi þar sem verið er að skipuleggja nýtt íbúðarhverfi, Hlíðahverfi. Varnarliðið skilaði á síðasta ári til ríkisins landi sem það var hætt að nota á Neðra- Nikelsvæði í Njarðvík. Reykjanesbær vinnur að gerð deiliskipulags fyrir íbúðar- hverfi á hluta þess, þeim hluta sem leyfilegt er að nota til íbúðarbygginga, og nefnir Hlíðahverfi. Jafnframt hefur því verið lýst yfir af hálfu rík- isins að landið verði selt. Samþykkt samhljóða Landeigendur í Ytri-Njarð- vík eiga forkaupsrétt að land- inu þegar til sölu kemur. Bæj- aryfirvöld í Reykjanesbæ hafa áhuga á að geta úthlutað þarna lóðum og vinna að samningum um að tryggja sér aðild að forkaupsrésttinum með samningum við landeig- endafélagið. Drög að þessum samningum voru samþykkt samhljóða á síðasta fundi bæj- arráðs. Væntanlegt Hlíða- hverfi á Nikelsvæði Bærinn fær aðild að for- kaupsrétti Njarðvík HREINSUNDARDAGAR hófust í Reykjanesbæ í gær og standa fram á mánudag í næstu viku. Starfsmenn þjónustumiðstöðvar Reykjanesbæjar veita bæjarbúum aðstoð við að fjarlægja rusl. Úr- gangnum þarf að koma fyrir utan lóðarmarka og láta vita á þjónustu- miðstöð. Tekið er fram að nauðsyn- legt er að flokka allt rusl. Reykjanesbæ er skipt í hverfi. Í dag og á morgun verður til dæmis hreinsað rusl í mið- og suðurhluta Keflavíkur og á fimmtudag og föstu- dag í Njarðvík, í tveimur hlutum. Átakinu lýkur í Höfnum næstkom- andi mánudag. Hreinsun- ardagar í þessari viku Reykjanesbær

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.