Morgunblaðið - 20.05.2003, Side 25

Morgunblaðið - 20.05.2003, Side 25
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2003 25                      !  ! "    !           # $ %  %&  ' #(#     )##  %& Náttúrufræðistofnun Íslands Umhverfisráðuneytið Alþjóðlegur dagur líffræðilegrar fjölbreytni Fræðsluráðstefna Í tilefni af alþjóðlegum degi líffræðilegrar fjölbreytni hinn 22. maí 2003 verður haldin fræðsluráðstefna í Borgartúni 6, Reykjavík, 4. hæð, kl. 14:00–17:00 þann sama dag. 14:00-14:05 Setning, Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra. I. hluti: Samningur um vernd líffræðilegrar fjölbreytni - hugmyndafræði og framkvæmd. 14.05-14:25 Leikhús þróunarinnar – hvernig verður líffræðileg fjölbreytni til? Sigurður Snorrason, Háskóla Íslands. 14:25-14:40 Samningur um vernd líffræðilegrar fjölbreytni – forsaga og lagalegar skyldur. Sigurður Þráinsson, umhverfisráðuneyti. 14:40-14:55 Samningur um vernd líffræðilegrar fjölbreytni – hugmynda- og aðferðafræði. Jón Gunnar Ottósson, Náttúrufræðistofnun Íslands. 14:55-15:10 Líffræðileg fjölbreytni og ágengar innfluttar tegundir. Kristín Svavarsdóttir, Landgræðslu ríkisins. 15:10-15:25 Líffræðileg fjölbreytni í landbúnaði – verndun og sjálfbær nýting. Áslaug Helgadóttir og Emma Eyþórsdóttir, Rannsóknastofnun landbúnaðarins. 15:25 Kaffihlé II. hluti: Skráning, flokkun og verndun líffræðilegrar fjölbreytni Íslands 15:55-16:05 Íslenskar vistgerðir. Sigurður H. Magnússon, Náttúrufræðistofnun Íslands. 16:0516:15 Íslensk stöðuvötn. Hilmar Malmquist, Náttúrufræðistofu Kópavogs. 16:15-16:25 Botndýr á Íslandsmiðum. Sigmar A. Steingrímsson, Hafrannsóknastofnuninni. 16:25-16:35 Verndun tegunda – válistar. Kristinn Haukur Skarphéðinsson, Náttúrufræðistofnun Íslands. 16:35-16:45 Verndun svæða – náttúruverndaráætlun. María Harðardóttir, Umhverfisstofnun. 16:45-17:00 Lokaumræður, samantekt og ráðstefnuslit. Snorri Baldursson, Náttúrufræðistofnun Íslands. Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur er ókeypis. „HINGAÐ kemur fólk í fötum eftir nýjustu tízku í nýtízkubíl og ég veit það á nýmóðins hús, og það segir við mig: „Ég þoli ekki þessa nýju list. Ég vil sjá eitthvað sem þú gerðir fyrir 40 árum.“ Ég veit ekki til að fólk komi til neinna annarra en listamanna og biðji um fjörutíu ára gamla vöru. Mundi þetta fólk fara inn í rafmagnsverzlun og segja: „Nú þarf ég ljós í stof- una mína, þér eigið víst ekki lýsislampa?“ Nei, þessi hugs- unarháttur er andlegt líkþorn.“ Svo mæltist Ásmundi Sveinssyni í viðtalsbók sem Helgafell gaf út um mynd- höggvarann 1981, ári fyrir andlát hans. Í dag, þriðjudag, fagnar Ásmund- arsafn, þar sem áður var heimili og vinnustofa listamannsins, 20 ára af- mæli með opnun yfirlitssýningar um list Ásmundar. Yfirskrift sýningar- innar er Nútímamaðurinn. „Hann var talsmaður tækniframfara, uppbygg- ingar og mannjöfnuðar. … Titlar eins og Framtíðin, Rafmagn, Í gegnum hljóðmúrinn, Geimdreki, Samhljómur hnattanna og Röntgenminnisvarði bera þessu viðhorfi Ásmundar glöggt vitni; hann hreifst af tækninýjungum og mörg verka hans tengjast fram- förum á þeim sviðum,“ segir í frétta- tilkynningu frá Ásmundarsafni. Opnar heimili sitt Á sýningunni verða verk frá öllum ferli Ásmundar, sem varð tæplega ní- ræður, „verkalýðstengdar myndir frá fjórða áratugnum, myndir undir áhrifum kúbisma og síðan verk sem hann leit á sem svar við ógnum stríðs- ins, eins og Móðurást,“ segir Þor- björg. Til viðbótar þessum verða sér- staklega sýnd örfá þeirra verka sem sködduðust í húsbruna í Fákafeni fyr- ir tæpu ári og sérfræðingar hafa nú unnið við að lagfæra um hríð. En að sýna verk listamanns sem lagði svona mikið upp úr kviku sam- hengi við samtíma og umhverfi, inni á safni, er það ekki misgerð? „Nei,“ segir Þorbjörg, „í fyrsta lagi eru verk Ásmundar úti um allan bæ, en safnið sjálft var líka heimili Ásmundar og vinnustaður hans og hann er í raun- inni að opna heimili sitt fyrir gestum – hér inni eru engin helg skrín, engin stofa sem hefur verið fryst eins og listamaðurinn skildi við hana eða þess lags, heldur hefur húsið, sem er eitt af listaverkum Ásmundar, verið lifandi.“ Safnið er opið daglega frá 10–16, frítt inn á mánudögum en annars gilda miðar samdægurs í öll hús Listasafns Reykjavíkur. Nútímamaðurinn Ásmundur Sveinsson Ásmundur Sveinsson (1893–1982) við störf. Eden, Hveragerði Svala Sóleyg Jónsdóttir opnar málverkasýningu með yfirskriftinni Blómaljóð. Sýn- ingin samanstendur af olíu- málverkum og vatnslitamyndum. Svala Sóleyg hefur lengi fengist við listsköpun og sótt ýmis myndlist- arnámskeið, m.a. í Handíða- og myndlistarskólanum á sinni íð, lista- deild FB, sem og fjölmörg önnur námskeið í meðferð ólíu-, akrýl-, pastel- og vatnslita. Einnig hefur hún sótt námskeið í grafík og postu- línsmálun. Meðal kennara hennar eru Benedikt Gunnarsson, Hringur Jóhannesson, Sara Vilbergsdóttir, Harpa Björnsdóttir, Einar Garibaldi og Sólrún Björk. Sýningin stendur til 1. júní og er op- in kl. 9–21. Í DAG  Sjá einnig Staður og stund á mbl.is Á NÆSTUNNI kemur út hjá Orms- tungu heildarútgáfa á leikritum Guðmundar Steinssonar. Verkið er í þremur bindum, alls um 1.400 bls. með fjölmörgum ljósmyndum úr lífi og starfi Guðmundar. Umsjón með útgáfunni hefur Jón Viðar Jónsson, fil. dr., og ritar hann jafnframt ít- arlegan inngang. Guðmundur Steinsson fæddist ár- ið 1925 og lést árið 1996. Leikrit hans Sólarferð og Stundarfriður, urðu vinsæl þegar þau voru frum- sýnd fyrir rúmum tveim áratugum á sviði Þjóðleikhússins og Stundar- friður sýndur víða um lönd í kjölfar- ið. „Guðmundur var eitt fremsta leik- ritaskáld Íslands um sína daga og heildarútgáfa á leikritum hans er löngu tímabær,“ segir Gísli Már Gíslason útgáfustjóri. „Hann var höfundur sem þorði að fara eigin leiðir. Þetta rit er heildarsafn leik- rita Guðmundar, alls tuttugu og tvö leikrit. Einungis fimm þeirra hafa verið bæði sviðsett og prentuð áður: Þjóðhátíð, Sólarferð, Stundarfriður, Garðveisla og Brúðarmyndin. Birt- ust tvö þau fyrsttöldu í tímaritinu Lystræn- inginn (1976–77 og 1981), sem mun nú í fárra höndum, hin þrjú á bók um líkt leyti og þau voru sýnd í Þjóð- leikhúsinu. Sjö hafa verið sýnd á sviði, en ekki komið á prent: Forsetaefnið, Fóstur- mold, Sæluríkið, Skírn, Lúkas, Stakkaskipti og einþáttungurinn Róm- eó sem var frumsýndur í Pärnu í Eistlandi árið 1992 en hefur ekki ver- ið sýndur hér á landi til þessa. Níu hafa hvorki verið sviðsett né prentuð áður: Fjölnir, Tvíleikur, Þjóðlíf, Húsið, Sólarpakki, Katthóll, Spegilmyndin, Hjartsláttur og ein- þáttungurinn Þrætueplið. Lítill ein- þáttungur, Líftryggingin eða örlög innheimtumannsins, birtist í Fé- lagsbréfi Almenna bókafélagsins ár- ið 1960 og hefur aldrei komið á svið svo vitað sé. Af tuttugu og tveimur leikverkum ritsins birtast nítján hér á bók í fyrsta sinn, sjö árum eftir fráfall höfundar, og er slíkt einstakur viðburður í íslenskri útgáfusögu. Ritið hefur verið í und- irbúningi allt frá haustinu 1995 þegar Guðmundur og Jón Viðar tóku að huga að frágangi leikritanna með mögulega heildar- útgáfu fyrir augum. Guðmundi entist ekki aldur til að ljúka þess- ari vinnu, en Jón Viðar hélt ótrauður áfram með hléum í samráði við ekkju skáldsins, Kristbjörgu Kjeld, og inn- an fárra vikna lítur verkið dagsins ljós.“ Áhugamönnum og velunnurum ís- lenskrar bók- og leiklistarmenning- ar gefst þessa dagana kostur á að eignast þessa útgáfu á kynningar- verði og má fræðast meira um það hjá útgefanda eða á vefsíðu hans, www.ormstunga.is. Heildarútgáfa á leikritum Guðmundar Steinssonar Guðmundur Steinsson PÉTUR Gautur er sjöundi lista- maðurinn sem sýnir verk sín í Gall- eríi Landsbankans á netinu. Allir listamenn sem sýna verk sín í Gall- eríinu gefa eitt verk sem boðið er upp á vefnum og rennur ágóði verksins til góðgerðarmála. Fram til 22. maí mun Pétur Gautur standa fyrir uppboði á málverkinu Uppstilling og rennur upphæð verksins óskipt til Barnaspítala Hringsins, til kaupa á afþreying- arefni fyrir börn. Uppboðið fer fram á landsbanki.is. Þar gefst öll- um tækifæri til að senda inn tilboð og fylgjast með þróun uppboðsins. Uppboðsverk og fleiri verk eftir Pétur Gaut eru til sýnis í húsakynn- um Landsbankans á Laugavegi 77 meðan uppboðið fer fram. Uppboð á verki Péturs Gauts Pétur Gautur: Uppstilling.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.