Morgunblaðið - 20.05.2003, Síða 41

Morgunblaðið - 20.05.2003, Síða 41
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2003 41 SÍGRÆN tré eru ómissandi í umhverfi okkar, sérstaklega að vetrarlagi þegar allur annar gróður er í dvala og gráir litatónar ríkjandi allt um kring. Greni- og furutegundir hafa sýnt það og sannað á síðustu áratugum að íslenskt veðurfar hentar þeim ákaf- lega vel, margar þessara tegunda hafa nú þegar náð að viðhalda sjálfum sér í íslenskri náttúru með sáningu. Sitka- greni er sú greniteg- und sem vex hvað hraðast á Íslandi og hefur fyrir þeirra hluta sakir náð mikl- um vinsældum því íslensk þjóðarsál krefst árangurs strax, líka í ræktun. Sitkagrenið nær að fjölga sér með sáningu hérlendis og eru nú til að minnsta kosti annarrar kynslóðar Íslendingar af þessari duglegu tegund. Ræktun sitkagrenis hefur gengið ljómandi vel frá upphafi en þó hafa dunið yfir áföll sem hafa velgt ræktendum undir uggum. Í vorhretinu í apríl, 1963, þegar snöggkólnaði eftir langvarandi hlýindi á sunnan- og vestanverðu landinu, fór sitkagreni mjög illa. Mikið af plöntum drapst því þær voru komnar vel af stað í vöxt þegar ósköpin dundu yfir og þær sem lifðu af voru margar illa farnar af frostskemmdum. Önnur áföll má rekja beint til sitkalúsarinn- ar. Sitkalúsin barst líklega fyrst hingað til lands með jólatrjám frá Danmörku haustið 1959, hugguleg jólagjöf frá frændum okkar það árið. Hún breiddist út um landið í rólegheitum en svo skall fyrsti faraldurinn á árið 1964. Síðan þá hafa nokkrir far- aldrar geisað og eiga þeir það sammerkt að þeir eiga sér stað á mildum vetrum. Nú, vorið 2003, horfum við upp á það að sitka- grenitré víðs vegar um land eru mjög illa farin af völdum lúsarinnar enda hefur þessi vetur verið sá hlýjasti frá því mælingar hóf- ust. Sitkalús fjölgar sér með meyfæð- ingu, móðurlúsin fæðir lifandi unga. Lúsin nær fullum þroska á 2–3 vikum og fer strax að fæða unga eftir að fullum þroska er náð. Sitka- lús er yfirleitt vængjalaus og situr sem fastast á plöntunni sem hún fæddist á en þegar líð- ur á sumarið fær hluti lúsanna vængi og geta þær þá numið land á nýjum trjám. Lúsin fjölg- ar sér hratt á vorin en þegar vöxtur hefst í grenitrjánum fækkar lúsinni verulega, ýmis dýr sem lifa á lúsum er komin á kreik auk þess sem efnasam- setning sáldæðavökva trjánna breytist verulega í vaxtarbyrjun og virðist sú samsetning ekki henta lúsinni alls kostar vel. Þegar líður á sumarið og hita- stig hækkar sækja lýsnar hins vegar í sig veðrið og fara að fjölga sér af krafti og er talið að stofninn sé einna stærstur á haustin. Sitkalús er harðgert kvikindi og lifir vel af í mildum vetrum. Hún heldur áfram að fjölda sér þrátt fyrir það að hitastigið fari niður fyrir frostmark og hefur verið sýnt fram á það að til að drepa lúsina niður þarf hitastig að fara niður í –15°C og haldast þar í smá tíma. Veðurfar eins og við höfum horft upp á und- anfarna vetur hefur því verið mjög lúsvænt, hitastigið hefur varla farið niður fyrir frost- mark, verið kringum núllið meira og minna allan veturinn og lýsnar því lifað, hressar og sprækar. Eins og aðrar blaðlýs nær sitkalúsin sér í næringu með því að stinga sérstökum rana inn í sáldæðarnar í barrnálun- um og sjúga sætan sáldæða- vökvann. Þær gefa frá sér sér- stakt efni sem heldur stungu- sárinu opnu. Sitkalús sækir einkum á gamlar nálar, lætur þær nýju í friði og því sjáum við skemmdirnar aðallega inni í krónu trjánna. Nálarnar verða fyrst gular og síðar rauðbrúnar en þær geta haldist lengi á trénu áður en þær detta af. Nálar sem eru orðnar rauðleit- ar verða aldrei grænar aftur og því getur farið svo að lúsin nái að hreinsa meira og minna allar barr- nálarnar af trján- um, nema þær sem eru á yngstu sprot- unum. Sitkalús nær í fæstum tilfellum að ganga af sitka- greninu dauðu en oft eru plönturnar ansi tuskulegar eft- ir svona árás. Vöxt- ur trjánna verður miklu minni en ella enda hefur tréð miklu færri laufblöð til að sjá um ljós- tillífun. Garðeigend- ur sem kanna skemmdir trjáa sinna þurfa að athuga hvort vaxtarbrumin á endum greinanna séu í lagi, ef svo er getur tréð náð sér aftur en það tekur nokkur ár fyrir það að verða aftur þétt og fal- legt. Það er blóðugt að horfa að- gerðarlaus upp á stórar og fal- legar greniplöntur skipta litum úr dökkgrænu yfir í ryðbrúnt. Þess vegna grípa margir til þess ráðs að úða gegn lúsinni. Hægt er að nota venjulegt lús- alyf eins og Permasect en fyrir þá sem kjósa vistvænar aðferð- ir er að koma á markað olía sem virkar ágætlega á lúsina og er umhverfisvænni en lúsalyfin. Þriðja leiðin er svo auðvitað sú að biðja veðurguðina um bruna- gadd í eins og vikutíma að haustlagi, það kemur lúsunum örugglega fyrir kattarnef og hefur ekki í för með sér úðun efna af neinu tagi, nema kannski salts á göturnar... Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur. Sitkagreni illa farið eftir árás lúsarinnar. SITKALÚSA- FARALDUR VIKUNNAR BLÓM Um s j ó n S i g r í ð u r H j a r t a r 489. þáttur Borgartúni 28, símar 520 7901/520 7900 www.ef.is www.hofdi.is Suðurlandsbraut 20 Sími 533 6050 Bæjarhrauni 22 Sími 565 8000 Sportbar til sölu ! Höfum fengið til sölu einn glæsilegasta sportbar landsins. Á staðnum er m.a. glæsilegt eldhús, bar, poolborð, spilakassar og breiðtjöld. Verðhugmynd er 65 millj. Áhugasamir hafi samband við Ásmund Skeggjason hjá Höfða. Upplýsingar eru eingöngu veittar á skrifstofu Runólfur Gunnlaugsson viðskiptafræðingur, löggiltur fasteigna- og skipasali HELGIN var nokkuð annasöm hjá lögreglu og þá sérstaklega á föstu- dagskvöld og aðfaranótt laugardags. Nokkuð var um foreldra- laus partý og ölvun unglinga þar sem prófum í skólum var víða að ljúka. Um helgina var tilkynnt um 38 um- ferðaróhöpp. Í a.m.k. tveimur tilvika urðu lítilsháttar meiðsl á fólki. 46 öku- menn voru kærðir fyrir of hraðan akstur. Tilkynnt var um bíla í spyrnu á Fiskislóð aðfaranótt laugardags. Lögregla fór á staðinn í ómerktum bíl og mældi tvo bíla sem þar öttu kappi á 130 km hraða en leyfður hraði er 50 km. Það þarf vart að taka fram hversu gáleysisleg slík hegðun er, sérstaklega þegar til þess er litið að við höfum nýleg dæmi um að ung- menni hafi slasast alvarlega í þess konar spyrnukeppnum. Aðfaranótt laugardags voru 28 ökumenn stöðvaðir í áfengiseftirliti og reyndust þeir allir allsgáðir. 10 ökumenn voru samt sem áður kærðir vegna gruns um ölvun við akstur um helgina. Töluverður fjöldi unglinga í flestum hverfum Á föstudagskvöld var lögregla með sérstakt eftirlit með unglingum vegna loka samræmdra prófa í vikunni. Töluverður fjöldi unglinga var í flest- um hverfum borgarinnar og var nokkur ölvun. Lögreglan lagði hald á og hellti niður nokkru magni af áfengi sem tekið var af unglingum, einhverj- um var ekið til síns heima og farið með aðra í athvarf þangað sem for- eldrar sóttu þá. Í vesturbænum hafði lögregla ítrekað afskipti af gleðskap unglinga þar sem 40-50 unglingar voru samankomnir. Gestgjafinn var 13 ára unglingsstúlka sem hélt sam- kvæmið án vitundar og leyfis húsráð- anda sem var fjarverandi. Lögreglan leysti upp gleðskapinn. Eftir miðnætti var tilkynnt um gráa sportbifreið sem keyrt hafði á ofsahraða um Vatnsendaveginn og lent utan í hestafólki en ekki numið staðar. Svipast var um eftir bifreið- inni án árangurs. Nokkuð var um tilkynningar vegna skemmdarverka á bílum um helgina. Unglingspiltar gerðu sér að leik að hlaupa yfir mannlausa bíla, tilkynnt var um mann sem væri að brjóta spegla af bílum og tveir litlir drengir urðu uppvísir að því að rispa 11 bíla á bílastæði í Breiðholti. Einnig var tölu- vert um rúðubrot, t.d. voru 23 rúður brotnar í einum leikskóla í borginni. Þar náðust myndir af gerendum með öryggismyndavélum. Nokkuð var um slagsmál og pústra um nóttina. Mað- ur missti meðvitund eftir að hafa ver- ið barinn á skemmtistað í miðborg- inni. Talið var að hann gæti verið nefbrotinn og var hann fluttur á slysadeild. Seinna sömu nótt hlaut maður skurð neðan við auga eftir ryskingar við annan og um sexleytið braut maður flösku á andliti annars manns í miðborginni. Um fjögurleytið á laugardags- morgun voru tveir menn handteknir vegna gruns um fíkniefnaviðskipti. Á þeim fundust 30 e-töflur og nokkur peningaupphæð. Þrjár hópgöngur fóru fram á laug- ardaginn og aðstoðaði lögregla við skipulag þeirra. Þróttarar héldu hátíð í Laugardalnum, nemendur Háteigs- skóla fóru í skrúðgöngu um hverfið og skrúðganga var frá Norræna húsinu að Neskirkju í tilefni þjóðhátíðardags Norðmanna. Mikil umferð var í Laugardalnum, bæði vegna hátíðar Þróttara og sam- komu á vegum Bylgjunnar í Fjöl- skyldu- og húsdýragarðinum og myndaðist mikið umferðaröngþveiti á svæðinu þótt lögregla reyndi eftir megni að bregðast við þessari óvæntu uppákomu. Skömmu fyrir klukkan þrjú til- kynnti öryggisvörður um innbrot í fyrirtæki í Árbænum. Þjófurinn hafði brotið sér leið í gegnum margar hurð- ir innandyra. Hann var búinn að safna saman sjónvarpi, skanna og tölvu- turnum og setja góssið við útidyrnar þegar öryggisverðir náðu að stoppa hann. Lögregla kom á staðinn, hand- tók manninn og færði hann í fanga- geymslu. Úr dagbók lögreglunnar – 16. til 19. maí Unglingadrykkja í lok samræmdra prófa EINKAÞJÁLFUN, jógakennsla og „spinning“-kennsla verður meðal námskeiða sem FIA-þjálfaraskólinn mun bjóða í sumar. Skólinn hefur verið starfræktur í 13 ár en þetta er í fyrsta sinn sem sumarnámskeið eru haldin. Það er gert til að skólafólk 18 og eldra geti stundað námið, segir í fréttatilkynn- ingu frá skólanum. Um er að ræða 40 kvöldnámskeið sem taka 6 vikur en þau hefjast í byrjun júní. Auk fyrrnefndra námsbrauta verður einnig hægt að læra hóp- tímakennslu og svokallaða „frísk og sveitt“-jógatíma sem henta fyrir áhugafólk á öllum aldri og í öllum þyngdarflokkum, að því er fram kemur í fréttatilkynningunni. Hóptímar munu hefja göngu sína í öllum hverfum borgarinnar í haust. Skv. upplýsingum skólans verður boðið upp á einfalda leikfimitíma fyrir pabba og mömmu, afa og ömmu og börn 12 ára og eldri. „Þetta bráðsniðuga fjölskyldu- væna íþróttaform er sniðið að þekktri sænskri fyrirmynd,“ segir í fréttatilkynningu frá skólanum. Kennarar við FIA skólann verða: Sigríður Lára Guðmundsdóttir, íþróttafræðingur frá Noregi, Chris Herbert, „spinning“-kennari frá Bandaríkjunum, Ronny Kvist, heilsu- og næringafræðingur frá Svíþjóð, Jónína Ben, íþróttafræð- ingur, og Matthildur Gunnarsdóttir, jógakennari. Upplýsingar um námið má finna á heimasíðu Planet Pulse. FIA-þjálfaraskólinn heldur sumarnámskeið „Frísk og sveitt“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.