Morgunblaðið - 20.05.2003, Page 44

Morgunblaðið - 20.05.2003, Page 44
ÍÞRÓTTIR 44 ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ  INGVI Sveinsson, hægri bakvörð- ur Þróttar, lenti í samstuði gegn KR í gær og var studdur af velli. Farið var með hann á slysadeild eftir leikinn og talið að hann hefði fengið vægan heilahristing en misst um leið minnið. Ásgeiri Elíassyni, þjálfara Þróttar, fannst slæmt að missa Ingva útaf, sagði að hann hefði spilað eins og her- foringi. Ásgeir átti von á að leikmað- urinn fengi minnið væntanlega síðar, jafnvel eftir nokkra daga – hann hefði sjálfur nokkrum sinnum lent í slíku.  HILMAR Björnsson, hægri bak- vörður KR, meiddist einnig í leiknum. Hann fann til meiðsla í hné og eftir skoðun að leik loknum var ákveðið að hann færi í myndatöku í dag. Talið var að hann hefði rifið liðþófa og var Hilmar frekar sáttur við það, það þýddi speglun og hvíld í nokkrar vik- ur en ef liðband hefur slitnað má bú- ast við hléi fram eftir sumri. Hilmar tognaði í nára í vor en var búinn að jafna sig alveg eftir það.  AÐEINS fjórir leikmenn Þróttar sem hófu leikinn gegn KR í gær höfðu áður spilað í efstu deild hér á landi. Það voru þeir Fjalar Þorgeirsson, Páll Einarsson, Halldór Hilmisson og Jens Sævarsson, og einnig Björgólf- ur Takefusa sem kom inn á sem vara- maður. Að auki er Sören Hermansen með reynslu úr efstu deildum í Dan- mörku og Belgíu en allir aðrir léku sinn fyrsta leik á þessum vettvangi.  ÞRÓTTARARNIR fjórir í byrjun- arliðinu höfðu áður aðeins leikið sam- anlagt 90 leiki í efstu deild hér á landi.  ÞEIR ellefu KR-ingar sem hófu leikinn áttu fyrir hann samtals 1.160 leiki að baki í efstu deild hér á landi, auk þess sem sjö þeirra hafa leikið í efstu deild erlendis.  KR-INGAR voru með 10 A-lands- liðsmenn í byrjunarliði sínu gegn Þrótti í gær, sem eiga samtals 135 landsleiki að baki. Sá ellefti kom inn á um miðjan fyrri hálfleik.  ÞRÓTTUR var með einn A-lands- liðsmann í sínu liði, Fjalar Þorgeirs- son, sem hefur spilað einn landsleik.  MARK Hjálmars Þórarinssonar var 200. mark Þróttar í efstu deild frá upphafi.  RÓBERT Magnússon, fyrrum fyr- irliði FH í knattspyrnu, reiknar ekki með að geta leikið neitt með Hafn- arfjarðarliðinu í sumar. Bakmeiðsli hafa verið að hrjá Róbert sem honum hefur gengið illa að vinna bug á.  HEIÐMAR Felixson, landsliðsmað- ur í handknattleik, reiknar ekki með að spila með Reyni á Árskógsströnd í 3. deildinni í knattspyrnu í sumar en í blaðinu í gær var greint frá því að hann hefði skipt þangað frá Dalvík. Heiðmar sagði við Morgunblaðið í gær að ólíklegt væri að hann yrði eitt- hvað með þar sem hann þyrfti að nota sumarið í að jafna sig af meiðslum. FÓLK Nýliðarnir fengu sannkallaðaóskabyrjun og sjálfsagt hefur það ekki oft gerst að þeir skori mark jafn fljótt og raunin varð í gær. Þegar ein mínúta og 27 sek- úndur voru liðnar lá boltinn í marki meistaranna og þar var á ferðinni Hjálmar Þórarinsson með sitt fyrsta mark í efstu deild enda hans fyrsti leikur þar. Sannarlega glæsileg byrjun hjá þessum 17 ára gamla pilti. Nýliðarnir virtust koma meistur- unum á óvart í upphafi leiks í gær. Þróttarar spiluðu vel, boltinn gekk vel manna á milli, alveg frá öftustu varnarmönnum og fram völlinn á meðan vörn KR var mjög óstyrk, miðjumennirnir óvirkir og sóknin því alls ekki beitt. Hjá Þrótti virtist sjálfstraustið í fullkomnu lagi, leik- menn lokuðu svæðum hratt og örugglega og gáfu leikmönnum gest- anna engin grið. KR-ingar virtust óöruggir, lítið var um stuttan samleik, helst að tví- burarnir Arnar og Bjarki Gunn- laugssynir gleddu augað á stundum fyrir hlé. Gestirnir vildu fá vítaspyrnu snemma leiks þegar togað var í Arn- ar innan vítateigs en dómarinn lét það óátalið. Skömmu síðar voru heimamenn heppnir að missa ekki leikmann útaf þegar hann sparkaði KR-ing niður, eingöngu til að hefna sín þar sem hann taldi greinilega á sér brotið. Dómarinn sá það ekki. Heimamenn komust í skemmti- lega skyndisókn um miðjan hálfleik- inn en Kristján Finnbogason varði vel og bjargaði málunum fyrir meist- arana. Hinum megin mátti Fjalar Þor- geirsson hafa sig allan við til að koma í veg fyrir að varnarmenn hans skor- uðu ekki sjálfsmark. Hann var aftur á ferðinni undir lok fyrri hálfleiks þegar Veigar Páll komst einn í gegn og átti fast skot af stuttu færi sem Fjalar varði mjög vel. Willum Þór Þórsson hefur sjálf- sagt bent sínum mönnum á hversu illa þeir léku í fyrri hálfleik. En fyrstu mínúturnar urðu nærri eins og í upphafi leiks. Þróttarar fengu fínt færi á fyrstu mínútunni en voru of seinir að athafna sig þannig að ekkert varð úr. Síðan tóku meistararnir völdin, náðu upp spili og lokuðu svæðum betur en þeir höfðu gert í fyrri hálf- leiknum, þegar leikur þeirra bar ekki þess merki að meistarar væru á ferð. Næstu tíu mínúturnar fengu þeir þrjú ágæt færi, Fjalar varði vel frá Arnari, Sigurvin Ólafsson átti góðan skalla rétt framhjá markinu og Bjarki skaut yfir af stuttu færi. Arnar jafnaði síðan metin á 65. mínútu og lá það mark í loftinu í nokkurn tíma. Glæsilegt mark hjá Arnari eftir frábæra sendingu Sig- urvins. Þegar rúmar tíu mínútur voru eft- ir munaði minnstu að mistök Krist- jáns Finnbogasonar kostuðu mark. Björgólfur Takefusa, sem var nýlega kominn inn á, elti þá sendingu sem gefin var á Kristján og lentu þeir í tæklingu sem Kristján hafði betur í, en litlu munaði að Björgólfur hefði betur. Fjórum mínútum síðar kom Sig- urður Ragnar Eyjólfsson meisturun- um yfir með ágætu marki og við það sat. Þrjú fyrstu stigin komin í hús hjá meisturum KR en jafnframt ljóst að Þróttarar geta gert góða hluti í sumar ef þeir spila svipað og þeir gerðu í gærkvöldi. Eysteinn Lárusson var besti mað- ur Þróttar ásamt Fjalari markverði. Virðist vera mikill leiðtogi og stóð vel fyrir sínu í vörninni ásamt Jens Sævarssyni. Óskabyrjun dugði ekki ÍSLANDSMEISTARAR KR voru fegnir þegar flautað var til leiksloka á Laugardalsvelli í gærkvöldi og sumir stuðningsmenn þeirra höfðu á orði að þeir mættu þakka fyrir að fara með öll þrjú stigin vestur í bæ. Meistararnir voru í heimsókn hjá nýliðum Þróttar og eftir að heimamenn höfðu verið sterkari í fyrri hálfleik og komist yfir strax á annarri mínútu, tókst KR-ingum að skipuleggja leik sinn í síðari hálfleik og skoruðu í tvígang, en voru heppnir að Þróttarar skoruðu ekki í lokin þegar Björgólfur Takefusa skaut í stöng úr aukaspyrnu. TEITUR Þórðarson fékk klapp á öxlina frá stuðningsmönnum Lyn og eiganda liðsins Atle Brynestad eftir að liðið hafði lagt Sta- bæk, 3:1, á útivelli í norsku úrvalsdeildinni á laugardag. Blaðamaður Verdens Gang segir í fyrirsögn að „Teitur sé laus úr helvíti“. Teitur segir við VG að undanfarnir níu mánuðir hafi verið afar erfiðir fyrir sig þar sem ekkert gekk með lið Brann á síðustu leiktíð og Lyn náði ekki að sigra í fyrstu fjór- um umferðunum en miklar væntingar eru gerðar til liðsins. „Nú finn ég loks bragð af matnum, ástand- ið var orðið þannig að ég naut þess ekki að borða góðan mat,“ segir Teitur en að loknum fjórum umferðum fyrir ári síðan var liðið með níu stig. „Við höfum verið með marga leikmenn fyrir utan liðið vegna meiðsla en núna eru flestir þeirra farnir að æfa af krafti á ný og útlitið er bjartara,“ bætir Teitur við. „Finn nú bragð af matnum“ ÉG var í sjálfu sér ekki ánægður með leik okkar, við getum spilað miklu betur en við gerðum í dag og það var hálfergilegt að tapa þessum leik því að við getum betur,“ sagði Ásgeir Elíasson, þjálf- ari Þróttar, eftir leikinn. „Hins vegar voru margir okk- ar að spila sinn fyrsta leik í efstu deild svo maður getur ekki ætlast til að allir eigi toppleik en það spiluðu að mínu mati of margir undir getu. Þetta er ágætis lið sem á eftir að fá reynslu og á bara eftir að vaxa.“ Þjálfarinn ætlaði að reyna að halda aftur af snöggum mótherjum. „Við ætluðum að verjast og minnka svæðin sem KR-ingar gátu athafnað sig á því þeir eru með lipra menn og flinka sem eiga þægilegt með að vera einn á móti ein- um á stóru svæði. Það hélt að mestu leyti þó að KR hafi fengið dauðafæri sem Fjalar markvörður okkar sá við og líka nokkur í seinni hálfleik en það er nú þannig í fótbolta að oftast nýtir maður ekki nema helming færa. Við vor- um marki yfir í hálfleik og þá er oft tilhneiging til að bakka en ég er að sumu leyti ánægð- ari með seinni hálfleikinn hjá okkur þótt við höfum fengið á okkur tvö mörk. Við töpuðum boltanum klaufalega í fyrra marki þeirra og ég veit ekki hvað gerðist í því síðara en maður er ekkert ánægður með að fá á sig mörk á móti KR úr fyrirgjöf og föstu leik- atriði,“ bætti Ásgeir við. Ergilegt að tapa MÖRGUM nöfnum hefur verið fleygt á loft varð- andi starf knattspyrnustjóra hjá enska úrvals- deildarliðinu Aston Villa eftir að Graham Taylor sagði upp störfum í síðustu viku. Guðjón Þórðar- son, fyrrum landsliðsþjálfari og knattspyrnustjóri Stoke, er einn þeirra sem nefndir hafa verið til sögunnar en breska blaðið Sunday Express og Independentgreina frá því að Guðjón sé einn þeirra sem koma til greina hjá forráðamönnum fé- lagsins. Guðjón hefur tengst félaginu á und- anförnum mánuðum, bæði hefur hann starfað fyr- ir félagið sem „njósnari“ og þá hefur sonur hans, Jóhannes Karl, verið lánsmaður hjá Villa-liðinu síðustu mánuðina. „Það er ekkert að frétta frá mér en vissulega er ég stoltur þegar nafn mitt er nefnt í þessu sam- bandi. Ég er atvinnulaus en ég er að leita að vinnu og er með önglana út um allt,“ sagði Guðjón við Morgunblaðið í gær en eitt ár er liðið síðan hann hætti störfum hjá Stoke City. Martin O’Neill, Sam Allardyce, David O’Leary, George Graham, George Burley, Jean Tigana og Alan Curbishley hafa allir verið orðaðir við stjóra- stöðuna hjá Aston Villa, en samkvæmt heimildum enskra fjölmiðla er O’Neill efstur á óskalista stjórnarformannsins Dougs Ellis. Guðjón orðaður við Aston Villa Guðjón Þórðarson #  $  $  %! & ' $ & $ () & (   *+,       " ,4/ 56 7   $  , $   -  & $    %%" .,  /   + %,   0,  $   &   ,"  ! + $   84 8 & %% 0   ,,   0 " #  0  & $, 1 !   2, 3  4   $  +   8    64+7 &  , , 0 , ,%    ,  & & & $,"   )   984 :;<=< 3 4 57   7 "  7 > 48 5-8 /8.7==-? @  7 A B-), 87 C4 +8 1  7 44.6 - 4/7 448  447 B,44 7 ,4/ 56 7 8 +8 5-C/ 7 > D 64+8 1 +8 E-? D  /   *4 ./6A   AA9 ) .  . 4.F-8/+ ) 8 . 4 D448 & % , " &   A 8 : * , , ,  " 2'  , " ' 7 + .8 :" G6/ 4-  1! 6  * & ;"  A7 .6/ : /  7" 4  4 4-   7A,/ : 7 9 8 :  AD 8 : < < < ; H = = )   984 :;<E<E I A ,37 7 4/  D 7 >J6 @ 487-? 8  7 I A ,K 8 7 8 A 4 7 I A +4 7  -84 87 >@6 +A 7L=-? 8 C4 +7  56 G  47 >8 8 - 64+7H;-? !  B,448 7   -84 87 2, 3  4  () 8 "9 + 84A9 4.:  8 9 D4.: #, :8"9 :8 "9 :8"9 >? ;  >? Skúli Unnar Sveinsson skrifar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.