Morgunblaðið - 20.05.2003, Page 47
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2003 47
STJÖRNUMENN fengu góðan liðs-
styrk í gær en þá gekk landsliðs-
maðurinn Gústaf Bjarnason til liðs
við Garðabæjarliðið. Gústaf er ný-
kominn heim úr atvinnumennsku
þar sem hann lék í fimm ár í
Þýskalandi, fyrst með Willstätt og
síðan Minden. Jafnframt því að
leika með Stjörnumönnum verður
Gústaf aðstoðarmaður Sigurðar
Bjarnasonar þjálfara en líkt og
Gústaf er Sigurður kominn heim
úr atvinnumennsku í Þýskalandi
og mun hann spila með lærisvein-
um sínum.
„Ég er gríðarlega ánægður með
að vera búinn að fá Gústaf til okk-
ar og tek honum fagnandi,“ sagði
Sigurður við Morgunblaðið í gær-
kvöld en hann tekur við þjálfun
Stjörnuliðsins af Sigurði Gunn-
arssyni.
Að sögn Sigurðar verður nú allt
kapp lagt á að fá nýjan markvörð
þar sem Árni Þorvarðarson mun
ekki standa í marki Garðbæinga
næsta vetur.
Stjörnumenn hafa misst línu-
manninn Björn Friðriksson til
Fram en Sigurður heldur enn í
vonina um að Vilhjálmi Halldórs-
syni snúist hugur og hann fari ekki
til sænska liðsins Sävehof en Vil-
hjálmur hefur gert munnlegt sam-
komulag við Svíana um að ganga
til liðs við félagið.
Gústaf Bjarnason
kominn í Stjörnuna
FRAKKINN Claude Makelele,
miðvallarleikmaður Real Madrid,
neitar þeim sögusögnum sem hafa
verið í gangi að hann sé á leið til
Manchester United. Umboðsmaður-
inn minn hefur ekkert talað við Man-
chester United og sjálfur hef engan
áhuga á að spila með liðinu,“ segir
Makelele við spænska blaðið AS.
BERTI Vogts, landsliðsþjálfari
Skota í knattspyrnu, hefur sagt
Barry Ferguson, fyrirliða Rangers
og leikmanni ársins í Skotlandi, að
hann þurfi á honum að halda í leikn-
um við Þjóðverja í undankeppni EM
í næsta mánuði. Ferguson hefur ver-
ið þjakaður af meiðslum en hefur
pínt sig í að spila síðustu leiki Rang-
ers.
FERGUSON þarf að gangast und-
ir aðgerð vegna meiðslanna en Vogts
hefur lagt hart að leikmanninum að
fresta henni fram yfir leikinn gegn
Þjóðverjum enda leikurinn gríðar-
lega mikilvægur fyrir Skotana.
JOHN Hartson, sóknarmaður
Celtic, getur ekki leikið með liði sínu
gegn Porto í úrslitaleik Evrópu-
keppni félagsliða sem fram fer í
Sevilla á miðvikudag. Hartson er
meiddur í baki.
MARTINA Navratilova, tennis-
kona frá Tékklandi, vann um helgina
opna ítalska meistaramótið í tvíliða-
leik kvenna. Meðspilari Navratilovu,
var 17 ára gömul rússnesk stúlka,
Svetlana Kuznetsova. Ítalska meist-
aramótið var 170. keppnin sem
Navratilova vinnur í tvíliðaleik.
FJÖLMIÐLAR í Englandi kepp-
ast þessa dagana um að hrósa
Thierry Henry fyrir að láta sig ekki
detta þegar varnarmaður South-
ampton, Claus Lundekvam, togaði í
treyju Frakkans á upphafsmínútu
úrslitaleiks ensku bikarkeppninnar á
laugardag. Hefði Henry látið sig
falla hefði dómari leiksins, Graham
Poll, þurft að vísa Lundekvam af
leikvelli.
EYJAMAÐURINN Atli Jóhanns-
son fékk ekki áminningu í leik ÍBV
og KA í úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu á sunnudag eins og haldið
var. Það leiðréttist hér með.
FÓLK
Þegar tekið er mið af því hvernigfyrri hálfleikur var hjá okkur
auk þess að vera einum manni færri
allan síðari hálfleik
þá getum við verið
sáttir við jafntefli,“
sagði Sigurður Þor-
steinsson, þjálfari
Aftureldingar, eftir 1:1 jafntefli við
Víking í 1. deild á Varmárvelli í gær-
kvöldi. „Það var alltof mikil spenna í
okkur í fyrri hálfleik. Í leikhléi fórum
við hins vegar vel yfir málin, það var
allt annað að sjá til liðsins í síðari
hálfleik og þá vorum við sterkari.“
Víkingar voru betri framan af og
réðu miðjunni en gekk illa að reka
smiðshöggin á sóknir sínar gegn
taugaóstyrkum varnarmönnum Aft-
ureldingar. Svo fór á 23. mínútu að
Höskuldur Eiríksson kom Víkingi
yfir á sanngjarnan hátt, skallaði
boltann í mark eftir hornspyrnu
Daníels Hafliðasonar.
Eftir markið voru Víkingar áfram
sterkari en fátt var um færi, en bar-
áttan í þeim mun stærra hlutverki.
Og mitt í baráttunni varð Alberti
Arasyni það á að brjóta af sér svo al-
varlega á 42. mínútu að Gísla H. Jó-
hannssyni var nauðugur sá kostur að
gefa honum gula spjaldið öðru sinni.
Það var sem annað Afturelding-
arlið kæmi til síðari hálfleiks, sjálfs-
traustið geislaði af mönnum og
áræðni til sóknar sem varnar. Vík-
ingar virtust telja að þeir hefðu öll
vopn í höndum sér. Sú var ekki raun-
in. Aftureldingarmenn blésu
óhræddir til sóknar og á 63. mínútu
jöfnuðu þeir með marki Ásbjörns
Jónssonar úr vítaspyrnu.
Víkingar vöknuðu upp við vondan
draum, freistuðu þess að sækja en
sóknarleikur þeirra var máttlítill, ef
undanskildar eru skyndisóknirnar
sem voru skeinuhættar og varði Axel
Gomez, markvörður Aftureldingar, á
stundum vel. Þrátt fyrir nokkra
pressu Víkinga á síðustu fimm mín-
útunum þá tókst þeim ekki frekar en
áður að færa sér liðsmuninn í nyt og
niðurstaðan því sanngjarnt jafntefli.
Maður leiksins: Axel Gomez, Aft-
ureldingu.
Jöfnuðu
manni
færri
Ívar
Benediktsson
skrifar
Leikurinn var í járnum allan fyrrihálfleikinn og fram í miðjan
seinni en það sem gerði gæfumuninn
var þegar Börsungarnir skiptu
sænska markverðinum Ohlander inn
á. Hann lokaði markinu og Barce-
lona-liðið seig fram úr,“ sagði Rúnar
við Morgunblaðið. Rúnar náði ekki að
skora en hann lék einungis í vörninni.
Keppnistímabilinu er hvergi nærri
lokið hjá Rúnari en eftir deildar-
keppnina, sem klárast um næstu
helgi, leika átta efstu liðin í deildinni
um bikarmeistaratitilinn. Liðið í 1.
sæti mætir liðinu í 8. sæti, 2. sæti á
móti því 7. og svo koll af kolli. Keppn-
in fer fram í Santander og klárast á
fjórum dögum en úrslitaleikurinn fer
fram hinn 1. júní.
„Þetta er orðið ansi langt tímabil
og það er orðið sérlega erfitt að spila
leikina þar sem hitinn er mjög mikill.
Hjá okkur er til dæmis engin loftkæl-
ing í húsinu svo það er eins og fara í
gott gufubað að spila í húsinu,“ segir
Rúnar.
Rúnar á eitt ár eftir af samningi
sínum við Ciudad Real og hann veit
ekki annað en að hann verði um kyrrt
hjá félaginu þó svo að það hafi sankað
að sér nýjum leikmönnum fyrir
næsta tímabil. Ólafur Stefánsson
einn þeirra sem koma til liðsins í
sumar en forráðamenn félagsins,
sem á dögunum vann EHF-bikarinn,
ætla að leggja allt kapp á að hampa
spænska meistaratitlinum í fyrsta
sinn í sögu félagsins á næstu leiktíð.
Morgunblaðið/Sverrir
Rúnar Sigtryggsson segir að keppnistímabilið sé búið að vera ansi langt.
„Börsungar ein-
faldlega betri“
„BÖRSUNGARNIR voru einfaldlega betri, ég held að ég verði að
segja að þeir eigi titilinn skilinn,“ sagði Rúnar Sigtryggsson, lands-
liðsmaður í handknattleik, en lið hans Ciudad Real tapaði fyrir
Barcelona í uppgjöri toppliðanna í spænsku 1. deildinni í hand-
knattleik á heimavelli Ciudad á sunnudaginn. Með sigrinum tryggðu
Börsungar sér meistaratitilinn en Ciudad Real nægir sigur á móti
Altea í lokaumferðinni um næstu helgi til að hreppa annað sætið.
Rúnar Sigtryggsson og samherjar hans hjá
Ciudad Real náðu ekki meistaratitlinum á Spáni
ÖLL tíu liðin í úrvalsdeild karla í
knattspyrnu náðu að skora í
fyrstu umferð hennar sem lauk í
gærkvöld. Það er einsdæmi frá
því liðum í efstu deild hér á landi
var fjölgað, í átta lið 1969-1970 og
síðan í tíu lið 1976-1977.
Síðast skoruðu öll liðin í fyrstu
umferð árið 1964 en þá léku sex
lið í efstu deild. Þá voru skoruð 18
mörk í þremur leikjum þann 20.
maí. Keflavík vann Fram 6:5, KR
vann Val 2:1 og ÍA vann Þrótt 3:1.
Sautján mörk voru skoruð í
leikjunum fimm í fyrstu umferð-
inni nú, eða 3,4 mörk að meðaltali
í leik. Í fyrra voru gerð 2,99 mörk
að meðaltali í hverjum leik deild-
arinnar. Þetta er mesta marka-
skor í fyrstu umferðinni í sjö ár,
eða frá árinu 1996, en þá var
skorað 21 mark. Þar af sjö á
Kópavogsvelli þegar Fylkir vann
Breiðablik, 6:1.
Öll liðin skoruðu í fyrsta
skipti frá árinu 1964
Viltu spila fótbolta í sól og sumarhita?
Knattspyrnulið Einherja frá Vopnafirði auglýsir eftir
metnaðarfullum þjálfara sem getur
bæði spilað og þjálfað liðið í
sumar.
Áhugasamar hafi sambandi við
Svövu Birnu Stefánsdóttur í síma
691 1342 eða Lindu Björk Stefánsdóttur
í síma 861 2282.