Morgunblaðið - 20.05.2003, Qupperneq 50
Cannes. Morgunblaðið.
EITT heitasta teiti kvikmyndahátíðarinnar í Cann-
es í ár var MTV-teitið árlega sem að þessu sinni
var haldið til heiðurs væntanlegri Tortímanda-
mynd, hinnar þriðju í röðinni, sem frumsýnd verð-
ur í júlí.
Slegist var um miða í þetta sjóðheita teiti
enda búið að lofa miklum dýrðum og það
sem meira er, nærveru stjarnanna úr
Tortímandanum, þeim Arnold
Schwarzenegger, Clare Danes,
Kristönnu Loken og Nick Stahl.
Og loforðin voru sannarlega
efnd, það kom strax í ljós og
blaðamaður Morgunblaðsins
gekk inn í risastórt glæsihýsi í
hæðunum ofan við Cannes. Þar
voru stjörnurnar mættar á
staðinn og veifuðu til gesta og
blönduðu meira að segja geði
við þá. En þrátt fyrir það féllu
þær gjörsamlega í skuggann af
aðalstjörnu kvöldsins, höllinni
sem hýsti teitið. Eigandi hennar er
tískufrömuðurinn Pierre Cardin
og er hún við fyrstu sýn eins og
Tortímanda
fagnað í
Barbarellu-höll
Barbapabbahöll í laginu, samanstendur af
fjöldanum öllum af litlum kúlulaga sölum og
herbergjum og ekki hvasst horn að finna.
Gestgjafinn var að sjálfsögðu staddur í teit-
inu og í stuttu og óformlegu spjalli við
blaðamann sagði hann að húsið hefði verið
byggt árið 1968 og fyrirmyndin hafi verið
sviðsmyndin í framtíðarmyndinni Barbarellu
eftir Roger Vadim, með Jane Fonda í aðal-
hlutverki. Ekki vildi hann þó kannast við nein
Barbapabbaáhrif. Cardin sagði blaðamanni í
framhjáhlaupi að hann hefði einu sinni sótt Ís-
land heim, hrifist mjög af náttúrunni og fólkinu,
og sagðist vonast til að geta komist þangað aft-
ur fyrr en síðar.
Kynning á Tortímandanum 3: Upprisu vélanna
hefur annars verið mjög áberandi í Cannes en á
laugardag lét Schwarzenegger sjá sig á La
Croisette, er hann tróð upp hjá helj-
arinnar kynningarbás fyrir mynd-
ina sem staðsettur er hjá Carlton-
hótelinu fræga. Þar veifaði hann
til vegfarenda, setti þumal upp í
loft og lýsti yfir að Tortímanda-
myndirnar yrðu fleiri en þrjár,
fengi hann einhverju ráðið þar
um.
Arnold
Schwarzen-
egger var hinn
brattasti.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
50 ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10.Sýnd kl. 4 og 6. Ísl. tal. 500 kr.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Miðasala opnar kl. 15.30
kl. 6 og 9.
Sýnd kl. 5, 8 og 10.40. B.i. 12
Kvikmyndir.is
Þetta var hin
fullkomna
brúðkaupsferð...
þangað til hún
byrjaði!
Ertu nokkuð myrkfælinn?
Búðu þig undir að öskra.
Mögnuð hrollvekja sem fór
beint á toppinn í
Bandaríkjunum.
Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16.
HK DV
SV MBL Kvikmyndir.com
"Tvöfalt húrra"
Fréttablaðið
X-ið 977
500
kr
Sýnd kl. 8. B.i. 12
Kvikmyndir.com
HK DV
"Tvöfalt
húrra"
Frétta-
blaðið
SV MBL
Kvikmyndir.is
500
kr
Sýnd kl. 6. Ísl. texti.
Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 10.20.
EGYPSKI leik-
stjórinn Yousef
Mansour und-
irbýr nú gerð
sjónvarpsþátta í
anda bandarísku
strandvarðaþátt-
anna Baywatch
en í þeim hlaut
m.a. Pamela
Anderson frægð.
Mansour segist hafa fengið hug-
myndina er hann sá Strandverði
enda segist hann þar hafa komið
auga á gott tækifæri til að koma
náttúrufegurð Egyptalands á fram-
færi. Þá segist hann vera að leita að
tíu fallegum leikkonum og fimm
myndarlegum karlleikurum til að
fara með aðalhlutverkin í þáttunum
en gert er ráð fyrir að þau leiki
meira og minna í sundfötum.
Mansour segist þó ekki eiga von á
neikvæðum viðbrögðum íhalds-
samra Egypta þó Egyptaland sé
múslímaríki þar sem margar konur
hylji andlit sín. „Ég ætla ekki að
sýna neitt óviðeigandi. Þetta verður
gert með virðingu og reisn,“ segir
hann. „Það verður ekkert kynlíf.
Bara blíðir kossar og ástfangið
fólk.“
Í þáttunum verður töluð blanda af
arabísku og ensku enda vonast
Mansour til þess að þeir nái til
áhorfenda í Evrópu …Justin Timb-
erlake eyddi rómantískri nótt með
fyrrum „barnakryddinu“ Emmu
Bunton. Þetta átti sér stað nokkrum
dögum áður en Justin hélt tónleika á
Wembley Arena fyrir fullu húsi.
Þau sáust enn fremur saman í gleð-
skap eftir tónleikana á fimmtudag-
inn.
FÓLK Ífréttum
BANDARÍSKI
söngvarinn
Barry White er
sagður á bata-
vegi eftir að
hann fékk slag
sem hafði áhrif á
mál og lamaði
hægri hlið lík-
ama hans. White,
sem er 58 ára gamall, fékk slag fyrr
í þessum mánuði þegar hann beið
eftir að komast í nýrnaskiptaað-
gerð.
Hann þurfti á slíkri aðgerð að
halda vegna aukaverkana sem stafa
af of háum blóðþrýstingi, að sögn
BBC. White, sem hefur gælunafnið
„ástarrostungurinn“ í poppheim-
inum, hefur neyðst til þess að aflýsa
fjölda tónleika vegna spítalalegu
frá 1999.
Barry á
batavegi