Morgunblaðið - 20.05.2003, Síða 52

Morgunblaðið - 20.05.2003, Síða 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 6. Frábær rómantísk gamanmynd sem hefur allstaðar slegið í gegn. Sýnd kl. 8 og 10.05. B.i.14. Sýnd kl. 10. B.i.12 ára. Sýnd kl. 5, 6, 8, 9 og 11. B. i. 12 ára. Sýnd kl. 6. Sýnd kl. 8. Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20.  KVIKMYNDIR.COM Kvikmyndir.is ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRI Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.20. / Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.20. / Sýnd kl. 8 og 10. Sýnd kl. 4 og 6. / Sýnd kl. 6. ÁLFABAKKI / AKUREYRI Sýnd kl. 8. B.i. 14 ára ÁLFABAKKI Sýnd kl. 10. B.i. 14 ára ÁLFABAKKI Sýnd kl. 6. Íslenskt tal. KRINGLAN Sýnd kl. 10. / Sýnd kl. 8. ÁLFABAKKI / KEFLAVÍK KVIKMYNDIR.COM Í VIKUNNI eru væntanlegar alls átta nýjar myndir á leigurnar, þar af tvær sem koma út á DVD-diski. Í gær kom Rauði drekinn (Red Dragon) og ber hún tvímælalaust höfuð og herðar yfir jafningja þessa vikuna. Hér er á ferð forsaga hryll- ingsmyndanna Lömbin þagna (Sil- ence of the Lambs) og Hannibal þar sem áhorfendur fá að kynnast hug- arhimi hins sjúka snillings, sálfræð- ingsins Hannibals Lecters sem læt- ur sér ekki nægja að myrða fórnarlömb sín, heldur matreiðir hann þau af nærgætni og snæðir með bestu lyst. Anthony Hopkins er sem við er að búast bráðgóður í hlutverki sálfræð- ingsins sálsjúka en í Rauða drekan- um er Edward Norton í hlutverki góða gaursins, Will Graham rann- sóknarlögreglumanns, sem leitar til hins fangelsaða Hannibals um að- stoð við að hafa uppi á hroðalegum raðmorðingja sem fengið hefur gælunafnið Tannálfurinn og leikinn er af Ralph Fiennes. Ekki er nóg með að Tannálfurinn skuli vera með afbrigðum hættuleg- ur, heldur er Lecter óútreiknanlegur og hugsar Will Graham þegjandi þörfina fyrir að hafa komið sér í steininn til að byrja með. Leikstjóri er Brett Ratner. Myndin Allt látið flakka (Full Frontal) kemur út í vikunni og er mynd í hálfgerðum dogma-stíl sem segir frá ævintýrum og uppákomum í lífi sjö einstaklinga sem viðriðnir eru draumaiðnaðinum í Hollywood. Steven Soderbergh leikstýrir mynd- inni og í henni leika stjörnur á borð við David Duchovny og Juliu Ro- berts. Sprellimyndin Þarnæsta föstudag (Friday After Next) kemur á mynd- band í dag. Hér er á ferðinni mynd sem fellur undir hóp „ghettó-grín- mynda“ og státar af rappstjörnum á borð við Ice Cube og D.J. Pooh. Hér er á ferð þriðja myndin í röð kvik- mynda sem fást á hæðinn máta við raunir lífsins í hörðum heimi. Barnamyndin Eins og Mike (Like Mike) er væntanleg á morgun, en í henni leikur barnarapparinn Litli Bow Wow strák sem finnur töfrum gædda skó frá Michael Jordan. Skórnir gera hann í einni svipan að undragóðum körfuboltamanni og upphefst mikið húllumhæ. Loks ber að nefna tvær heimild- armyndir úr fótboltaheiminum: Liv- erpool FC, mynd sem fangar sögu knattspyrnufélagsins, og Roy Keane: Eins og ég sé það (Roy Keane: As I see it) þar sem talað er við knattspyrnumanninn Roy um helstu atriði á ferli hans. Körfubolti, kvalalosti og kynferðismál Reuters Hopkins leikur „manngæðinginn“ dr. Hannibal Lecter í Rauða drekanum.                                                            !"   !" #  #    !"   !" #  #    !" #  $ # #  #    !"   !"   !"   !" #   %  #  &   ' ' &   ' &   ' ' &   ' &   &   ' &   (  (  ' ' ' &                                 !     "  # $ % ! &   '(! #    #   )   %*# % + )  % ,%     Sakleysi / Innocence Fyrst og fremst fyrir fólk sem er far- ið að velta fyrir sér lífsgátunni miklu en höfðar í raunsæi sínu og vitrænni umfjöllun um mannlífsins flókna eðli til allra aldurshópa. Leikin, skrifuð og gerð langt yfir meðallagi. (S.V.) Hundalíf 2: Depill í Lundúnum / 101 Dalmatians II  Dásamleg Disney-teiknimynd, sem búið er að sannreyna að gagntektur yngstu áhorfendurna. Er það ekki líka tilgangurinn? (S.G.) Talaðu við hana/Habla con ella Frábær leikur og yndislegt meló- drama í mjög sérstakri ástarsögu Almodóvars. (H.L.) Tilraunin/Das Experiment  Kraftmikil og áhugaverð þýsk kvik- mynd sem gerist á hálfum mánuði í fangelsi. Fínir leikarar skapa trú- verðugar persónur en hegðan þeirra varpar fram krefjandi spurningum um dýrseðlið í manninum. (H.L.) Svefnleysi/Insomnia Grípandi frá upphafi til enda og leik- hópurinn unun, með vansvefta Al Pacino í fararbroddi. (S.V.) Tákn/Signs  Væntingar til leikstjórans M. Night Shyamalan eru miklar, en hér fatast honum flugið. Umgjörðin er vönduð en fyrirsjáanleiki og ósamræmi setja mark sitt á sálfræðina í sögunni. (H.J.) Lilo og Stitch  Skemmtileg Disney-mynd þar sem kveður við nýjan tón úr smiðju þeirri; hvað varðar teikningu, lita- notkun og efnistök. (H.L.) Leiðin til Perdition/The Road to Perdition  Sláandi glæpasaga frá kreppuár- unum, jafnframt einstætt augnakon- fekt. Óskarsverðlaunatilnefningar á færibandi en útlitið innihaldinu of- ursterkara. (S.V.) Maður eins og ég  Róbert Douglas nálgast raunveru- leikann (miðað við Drauminn) í grá- glettinni mynd um brösuglegt ástalíf ráðvillts svartsýnismanns. Dálítið glompótt en góð afþreying með Þor- stein Guðmundsson fremstan í fínum leikhópi. (S.V.) Kaffivagninn/Halbe treppe/ Grill Point  Vel leikin og raunsæ þýsk mynd um tvenn hjón sem neyðast til að endur- skoða líf sitt þegar framhjáhald kem- ur upp. Skemmtileg, áhrifarík og kemur á óvart. (H.L.) Skyndimyndir/One Hour Photo  Áhugaverð kvikmynd með Robin Williams í aðalhlutverki. Þar er fjallað um áhugaverð efni, einsemd, mannúð og hið ómanneskjulega í nú- tímanum. (H.J.) Harry Potter og leyniklefinn Harry og félagar eru komnir aftur í mynd fullri af frábærum karkater- um, ótrúlegum aðstæðum, spennu og hryllingi. Gaman, gaman! (H.L.) Skipt um akrein/Changing Lanes  Vel leikin mynd um afdrifaríkan dag í lífi tveggja manna. Óvanaleg spennumynd því hún veltir fyrir sér siðferði, fjölskylduböndum, heiðri og skyldum, á vitrænan hátt. (S.V.) Reglur aðdráttaraflsins/ Rules of Attraction  Nýjasta myndin sem gerð er eftir sögu Brets Eastons Ellis er viðlíka óvægin og fyrri sögur hans og segja mætti að hún fjalli um hvað gerðist eftir að John Hughes slökkti á myndavélunum.(S.G.) Svali spæjarinn/Undercover Brother  Góðir grínarar hæða svarta popp- menningu áttunda áratugarins. (H.L.) Í skóm drekans Í skóm drekans er frábær heimild- armynd, djörf og merkileg tilraun, tvímælalaust í hópi þess áhugaverð- asta sem gert hefur verið á þessu sviði á Íslandi. (H.J.) Kynlíf er grín (Sex is Comedy)  Líkt og fyrri myndir leikstjórans Breillat, forvitnileg, ástríðufull, heimspekileg og jafnvel enn per- sónulegri. Mynd innan myndar þar sem verið er að fjalla um mannlegar tilfinningar og eðli, einkum kynhvöt- ina, frá nýstárlegu sjónarhorni. (S.V.) GÓÐ MYNDBÖND Heiða Jóhannsdóttir/Skarphéðinn Guðmundsson/Sæbjörn Valdimarsson  Meistaraverk  Ómissandi Miðjumoð  Tímasóun 0 Botninn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.