Morgunblaðið - 20.05.2003, Side 56

Morgunblaðið - 20.05.2003, Side 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. PÓLVERJAR sem búsettir eru á Ís- landi munu geta tekið þátt í þjóðarat- kvæðagreiðslu Pólverja um Evrópu- sambandsaðild. Hér á Íslandi verða atkvæði greidd á skrifstofu heiðurs- konsúls Póllands, Friðriks Gunnars- sonar, í Ánanaustum 1, helgina 7. til 8. júní en þeir sem hyggjast taka þátt í atkvæðagreiðslunni þurfa að tilkynna hana til sendiráðs Pólverja í Ósló. Pól- verjar eru fjölmennasti hópur er- lendra ríkisborgara á Íslandi og segist Stanislaw Jan Bartoszek, varaformað- ur Samtaka Pólverja á Íslandi, vonast til að sem flestir nýti sér kosningarétt sinn þar sem ESB-aðild snerti flesta Pólverja á Íslandi beint. „Ef Pólland fer inn í Evrópusambandið verður ým- islegt auðveldara fyrir Pólverja sem koma til Íslands eða annarra Evrópu- landa í atvinnuleit eða sem ferðamenn. Þá munu þeir til dæmis njóta sömu réttinda og EES-samningarnir segja til um. Þetta er því mál sem er mikil- vægt fyrir marga,“ segir Stanislaw. Pólverjar á Íslandi kjósa um ESB-aðild Á NÆSTUNNI kemur út hjá Ormstungu heildarútgáfa á leikritum Guðmundar Steinssonar. Verkið er um 1400 bls. í þremur bindum, alls tuttugu og tvö leikrit. Einungis fimm þeirra hafa verið bæði sviðsett og prentuð áður: Þjóðhátíð, Sólarferð, Stundar- friður, Garðveisla og Brúðarmyndin. Útgáfuna prýðir fjöldi ljósmynda úr lífi og starfi Guðmundar. Umsjón með útgáfunni hefur Jón Viðar Jónsson, fil. dr., og ritar hann jafnframt ítarlegan inngang. „Guðmundur var eitt fremsta leikritaskáld Íslands um sína daga og heildarútgáfa á verkum hans er löngu tímabær,“ segir Gísli Már Gíslason, útgáfustjóri Ormstungu. Heildarútgáfa á verkum Guðmund- ar Steinssonar  Öll leikrit Guðmundar/25 TÆPLEGA sextugur Þjóðverji og „burðardýr“ sem handtekinn var á Keflavíkurflugvelli með kíló af hassi og 900 grömm af kókaíni síðasta haust hefur játað á sig sex aðrar ferðir með fíkniefni til landsins og var magnið í hverri ferð svipað og það sem hann var loks gripinn með. Má því ætla að hann hafi verið búinn að flytja inn vel á tólfta kíló af eit- urlyfjum áður en hann var staðinn að verki. Verjandi Þjóðverjans hefur kraf- ist þess að ákæru á hendur honum verði vísað frá þar sem væntanlega eigi að ákæra hann fyrir hinar ferð- irnar síðar en samkvæmt lögum um meðferð opinberra mála má ekki gefa út ákæru fyrr en rannsókn máls er að fullu lokið og auk þess er kveðið á um að dæma verði mönnum refsingu í einu lagi. Handtaka Þjóðverjans var hluti af stærri aðgerð lögreglunnar í Þýska- landi í kjölfar þess að hún komst á sporið um starfsemi stórs smygl- hrings í Norðvestur-Þýskalandi. Fljótlega kom í ljós að hringurinn hafði tengsl við Ísland enda afplán- uðu meintur höfuðpaur smygl- hringsins, 42 ára Þjóðverji, og sam- verkamaður hans á Íslandi samtímis dóma á Litla-Hrauni árið 2001 en samverkamaðurinn er eini Íslend- ingurinn sem ákærður er í málinu. Umsvifamikill smyglhringur sem seldi til Noregs og Íslands Í fréttatilkynningu lögreglu- og tollayfirvalda í Þýskalandi er fullyrt að samvinna við lögreglu og toll- gæslu hér á Íslandi hafi orðið til þess að þrjú þýsk burðardýr hafi verið handtekin hér á landi en ís- lenska lögreglan vill ekki staðfesta slíkt en segir þó margt benda til þess að þessi mál séu tengd. Smyglhringurinn þýski, sem teygði anga sína hingað til lands, flutti amfetamín, kókaín og hass frá Hollandi, Spáni og Marokkó til Þýskalands og þaðan áfram til Nor- egs og Íslands og hafði raunar áform um stórfellt smygl á kókaíni til Liverpool á Englandi. Til marks um umsvif hans má nefna að þegar lögregla og tollur stöðvuðu sendingu af 30 kílóum af hassi, sem flutt var með húsbíl til Noregs, er talið að um tilraunasend- ingu hafi verið að ræða. Ætlunin hafi verið að smygla um hundrað kílóum á mánuði. Af því verður þó ekki enda telur þýska lögreglan sig nú hafa náð að uppræta smyglhring- inn en hún handtók níu manns í tengslum við rannsóknina, þar af einn á Spáni. Húsleit var gerð í fjór- tán íbúðum og hald lagt á 21 kíló af hassi. Þýskur smyglhringur teygði anga sína til Íslands Hafði farið með tólf kíló í gegnum Leifsstöð  Játar/10 FJÖLVEIÐISKIPIÐ Hákon EA kom til hafnar í Neskaupstað á laug- ardag með ágætis afla úr norsk-ís- lenska síldarstofninum. Skipið var með 670 tonn af frystum síldarflök- um og á milli tvö og þrjú hundruð tonn af síldarúrgangi til bræðslu. „Við héldum út í gærkvöld [sunnu- dagskvöld] eftir sólarhring í lönd- un,“ sagði Oddgeir Jóhannsson, skipstjóri á Hákoni EA, í samtali við Morgunblaðið um nónbil í gær, mánudag, á siglingu norður í Síld- arsmuguna. „Ætli við förum ekki eitthvað norðar núna – við verðum tvo sólarhringa að sigla norður.“ Hann sagði að skipin fyrir norðan hefðu fiskað ágætlega í trollið en það væri eitthvað verra í nótina. „Ég hef nú grun um að eitthvað af síldinni sé komið inn í Jan Mayen-lögsöguna.“ Oddgeir sagði að þeir hefðu mætt Guðmundi Ólafi ÓF á leið úr Síld- arsmugunni til löndunar. Morgunblaðið/Ágúst Hákon EA er nú á leið á miðin eftir löndun í Neskaupstað um helgina. Hákon EA með góðan síldarafla FORSTJÓRI og stjórnarformaður Ol- íuverzlunar Íslands, Olís, hafa keypt 71% hlutafjár í félaginu og munu gera yfirtökutil- boð í önnur hlutabréf þess. Miðað við gengi viðskiptanna er kaup- verð allra bréfa fé- lagsins 6,7 milljarðar króna. Seljendur 71% hlutarins eru Hydro Texaco og Ker, sem eiga jafnan hlut í Olís, en meðal ann- arra hluthafa er Landsbankinn fjárfesting hf., sem á 13% hlut. Aðrir hluthafar eiga innan við 10% hluta- fjár. Að sögn forstjóra Olís, Einars Bene- diktssonar, sér Lands- bankinn um fjármögn- un kaupanna, en aðrir munu hugsanlega koma að þeim á síðari stigum. Hann segir einnig að öll hagræðingartæki- færi verði skoðuð, en ekkert hafi verið ákveðið í því sambandi enda hafi kaupin borið brátt að. Þá eigi félagið um 2,3 milljarða króna í öðrum félögum, sem hægt sé að losa um að einhverju marki. Bókfærður söluhagnaður Kers 1,2 milljarðar króna Kaupin eru gerð í gegnum eignarhaldsfélagið FAD 1830, sem er í eigu Einars Benedikts- sonar forstjóra og Gísla Baldurs Garðarssonar stjórnarformanns og voru að frumkvæði þeirra. Stjórnendurnir höfðu tryggt sér hlut Hydro Texaco þegar þeir leituðu til Kers, sem á Olíufélagið jafnframt því sem það átti 35,5% í Olís, og féllst Ker einnig á að selja. Bókfærður söluhagnaður Kers vegna sölu á bréfunum í Ol- ís er um 1,2 milljarðar króna. Ætlunin er að afskrá Olís úr Kauphöll Íslands en að sögn for- stjóra félagsins hefur lengi legið í loftinu að til afskráningar kynni að koma. Hann segir að eign- arhald hafi verið samþjappað um langt skeið, markaður með bréfin verið óvirkur og félagið hafi verið nærri því að uppfylla ekki reglur Kauphallarinnar um skráningar- hæfi. 6,7 milljarða yfirtöku- tilboð í hlutabréf Olís Forstjóri og stjórnarformaður Olís hyggjast kaupa fyrirtækið að fullu og taka það af markaði – Seljendur 71% hlutarins eru Hydro Texaco og Ker  Stjórnendur/28         +E((7F /+!%.,%  ( 0GDH 0GD0 0D !# !# !#% KVIKMYND Sólveigar Anspach, hin fransk-íslenska Stormy Weath- er, verður frumsýnd á Un Certain Regard-dagskrá kvikmyndahátíð- arinnar í Cannes í kvöld og verður Sigríður Snævarr, sendiherra Ís- lands í Frakklandi, á meðal frum- sýningargesta. Kvikmyndin hefur fengið mikla athygli fjölmiðlafólks í Cannes að undanförnu og hafa Sólveig og aðrir aðstandendur myndarinnar meðal annars verið mikið spurðir um Ísland en mynd- in er að stórum hluta tekin í Vest- mannaeyjum og fara nokkrir Ís- lendingar með veigamikil hlutverk í henni. Á meðfylgjandi mynd má sjá Sólveigu Anspach í viðtali við fjölmiðla í Cannes.Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Stormy Weather frumsýnd í kvöld

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.