Morgunblaðið - 14.06.2003, Blaðsíða 50
DAGBÓK
50 LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Á vefsíðunni Múrnumskrifar Ármann Jak-
obsson um tap Línu Nets á
síðasta ári. Hann segir: „Á
aðalfundi Línu nets um
daginn kom í ljós að tapið
á fyrirtækinu seinasta ár
var 157 milljónir. Það er
vissulega há tala, sér-
staklega í ljósi þess að
borgin heldur uppi ýmissi
mikilvægri starfsemi sem
kostar ekki nema brot af
þessu tapi. Það er eðlilegt
að upp vakni spurningar
um hversu skynsamleg
fjárfesting hér hafi verið á
ferð. Mun Lína net skila
hagnaði á næsta ári eða
verður hún síðar talin
mesta axarskaft borg-
arstjórnar undir lok 20.
aldar?“
Múrinn, sem alla jafnaer fullur efasemda
um hinn frjálsa markað,
virðist telja að stofnun
Línu nets, á vegum Orku-
veitunnar, hafi verið um-
deilanleg ákvörun. Ár-
mann segir að ýmiss
konar starfsemi hafi á
undanförnum árum verið
færð frá hinu opinbera á
einkamarkað og jafnvel
hafi verið gengið of langt í
þeim efnum. Varðandi
Línu net segir hann hins
vegar: „Jafnvel hefur ver-
ið gengið of langt í þessu
og afleiðingin orðið fá-
keppni. Það má hins vegar
velta fyrir sér hvort það sé
heillaskref að stofna ný
fyrirtæki á markaði þar
sem allt útlit er fyrir sam-
keppni, enda þurfti enginn
að efast um að þessu hlytu
að fylgja ásakanir um
ójafna samkeppnisstöðu
og opinberan stuðning.“
Ármann heldur áfram:„Öllu verra er þó ef
ævintýrið reynist ekki
ganga upp og hagnaður-
inn lætur bíða eftir sér. Þá
verður spurt að því hvort
verjandi hafi verið fyrir
borgina að standa í slíkum
rekstri. Margir vinstri-
menn hafa undanfarið tal-
að fyrir því að hið op-
inbera standi ekki í
fyrirtækjarekstri. Betra
sé að það skilgreini þá
samfélagsþjónustu sem
það þarf að rækja og hún
sé veitt af stofnunum en
ekki fyrirtækjum. Þannig
var Póstur og sími í raun
og veru stofnun á sínum
tíma þó að það hafi hentað
að skilgreina þá stofnun
sem fyrirtæki.“
Ármann telur að í mörg-um tilfellum kunni að
vera réttlætanlegt að hið
opinbera standi í fyrir-
tækjarekstri þótt tísku-
sveiflur hagfræðinnar
skrifi ekki upp á slíkt um
þessar mundir. Hann er þó
fullur efasemda um að
slíkt eigi við í tilfelli Línu
Nets og telur að gengi
þess kunni að hafa alvar-
leg áhrif á R-listann í
Reykjavík: „Um hitt verð-
ur vart deilt að það er
djörf ákvörðun þegar
sveitarfélög fara að hætta
sér í áhættusaman fyr-
irtækjarekstur. Þá er eins
gott að vel gangi því að
annars verður skellurinn
mikill og margir munu líta
á skipbrot Línu nets sem
áfellisdóm yfir Reykjavík-
urlistanum.“
STAKSTEINAR
Tap Línu Nets 2002
Víkverji skrifar...
VEÐURBLÍÐAN hefur verið ein-stök síðustu daga og fyrir mið-
bæjarrottu eins og Víkverja er þá
fátt meira viðeigandi en að spássera
um miðbæinn. Skoða mannlífið, gefa
öndunum, reka nefið inn í Kolaport-
ið, kaupa þar harðfisk og flatkökur,
renna yfir matseðlana í veitinga-
húsagluggunum, sporðrenna einni
bæjarins bestu, fletta blöðum í Ey-
mundsson, bókum á bókasafninu,
dást að tilþrifum hjólabrettakrakk-
anna sem kastast um Ingólfstorgið
og kasta svo sjálfur kveðju á styttur
bæjarins – sem Víkverji nennir sko
víst að horfa á.
x x x
EN UM þessar mundir, og reynd-ar undanfarna mánuði, ef ekki
hreinlega ár, hefur stór galli verið á
gjöf Njarðar. Það eru þessar eilífu
framkvæmdir. Vissulega er ætlunin
með þeim að fegra miðborgina en að
það skuli þýða að fjölförnustu göt-
urnar séu sundurgrafnar yfir há-
sumar fer vægast sagt í þær fínustu.
Víkverji er löngu búinn að gleyma
hvenær þessar framkvæmdir á
Laugavegi og í Bankastræti hófust
fyrst en það virðist ótrúlega langt
síðan. Og nú hafa skurðirnir lekið
neðst niður í Bankastrætið og eru
nú sem nemur við sjálft Núllið. Allt í
góðu og lítið tillit tekið til okkar
borgarbúa, við hljótum að geta hald-
ið í okkur, beðið betri tíðar með
blóm í haga og heilan miðbæ.
Verst leikur þetta ástand ferða-
manninn sem er kannski í sinni einu
Íslandsferð um ævina og neyðist til
að klofa um sundurgrafna miðborg
og lætur sér duga að ímynda sér
hvernig þessi miðbær lítur út í heilu
lagi. Ekki væri Víkverji a.m.k. sátt-
ur við að þurfa að klofa um sundur-
grafna Oxfordgötu eða Ráðhústorg.
Víkverji gerir sér mætavel grein
fyrir því að stundum eru fram-
kvæmdir nauðsynlegar og að kom-
inn hafi verið tími á þessar fyrir
löngu. En samt vaknar spurningin
hvort þær þurfi að taka svo langan
tíma, því á meðan nostrað hefur ver-
ið við æðakerfi miðbæjarins hafa
risið heilu verslunarmiðstöðvarnar,
mislæg gatnamót úti um allar triss-
ur og hvaðeina. Hefði ekki þurft að
leggja viðlíka pressu á að hespa af
framkvæmdum í miðbænum? Þetta
á nú einu sinni að vera andlit höf-
uðborgarinnar út á við.
x x x
ENDURVINNSLA er af hinugóða og Víkverji fagnar því
hversu víða orðið er að finna gáma
fyrir endurvinnanlegan pappír og
fernur. Nærri heimili Víkverja
stendur einn slíkur gámur, á horni
Bergstaðastrætis og Spítalastígs.
Ánægjulegt er að sjá hversu mikið
hann er notaður en öllu má nú of-
gera. Þannig blöskrar Víkverja til-
ætlunarsemin í fólki þegar það skil-
ur eftir stútfulla og galopna pokana
af pappír utan við gáminn er hann
er fullur – sem fýkur svo að sjálf-
sögðu út um allt. Hvurslags endur-
vinnsla er það?
Morgunblaðið/Ómar
Á sumargöngu í miðborginni.
LÁRÉTT
1 skro, 8 lestarop, 9
snæddur, 10 smávegis
ýtni, 11 kremja, 13 súr-
efnið, 15 hjólgjörð, 18
frumhvatar, 21 sefi, 22
stríðni, 23 hlaupa, 24
skynsemin.
LÓÐRÉTT
2 ótti, 3 híma, 4 forsmán,
5 þátttaka, 6 ill, 7 gabb,
12 nöldur, 14 aðstoð,
15 ráðrík, 16 álúta, 17
eldstæði, 18 hlífði, 19
meginhluti, 20 geð.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 dunda, 4 fýlan, 7 gusta, 8 reist, 9 rúm, 11 riða,
13 hita, 14 korði, 15 maka, 17 klúr, 20 ask, 22 kolin, 23
rjóli, 24 lesta, 25 feiti.
Lóðrétt: 1 dugar, 2 nesið, 3 afar, 4 form, 5 leiði, 6 nátta,
10 útrás, 12 aka, 13 hik, 15 mikil, 16 kolls, 18 ljómi, 19
reiði, 20 anga, 21 krof.
Krossgáta 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
ÉG KEM mjög oft í Foss-
vogskirkjugarð til að líta
eftir leiðum ættingja
minna. Undrar það mig að
þar virðist sjaldan slegið
grasið á leiðunum – og ef
það er gert, þá er það svo
illa gert að grasið skemm-
ist. Allar götur milli leið-
anna eru ósópaðar og er
það til mikillar óprýði.
Þarna virðist sem ungling-
ar séu látnir vinna og þeir
kunni ekki almennilega til
verka. Finnst mér hirðingu
þarna hafa farið mjög aftur
með árunum og leiðinlegt
er þarna að koma meðan
ástandið er óbreytt.
Borgari.
Meingallað
ÉG VIL taka undir orð
Árna Jónssonar sem lýsir
andúð sinni á okkar mein-
gallaða dómskerfi í grein í
Velvakanda hinn 12. júní
sl. Hvernig hefðu dómarar
dæmt í þessu máli ef þetta
hefði verið eitt af þeirra
börnum? Svari nú hver
fyrir sig.
Elín.
Lokun útibúa
MIG langar til að vekja at-
hygli fólks á máli sem
skiptir okkur öll miklu. Nú
stendur til að loka útibúum
hjá Íslandspósti og færa
afgreiðslustaði í Nóatúns-
búðir vítt og breitt um bæ-
inn. Það er þegar búið að
færa eina afgreiðslu í Nóa-
túnsbúð í Árbænum. Póst-
húsum hefur verið að
fækka á undanförnum ár-
um og hafa mörg góð útibú
verið lögð niður.
Hérna í Grafarvoginum
er eitt útibú í Spönginni
þar sem er þjónustukjarni
fyrir hverfið og fer vel á að
hafa útibú þar. Var áður
við hliðina á Íslandsbanka
v/Gullinbrú. Við viljum alls
ekki missa þetta útibú og
þá þjónustu sem það veitir
okkur. Starfsfólkið er gott
í Spönginni og viljum við fá
að hafa það áfram hjá okk-
ur. Ég skora á alla Graf-
arvogsbúa, Grafarvogs-
samtökin og aðra
hagsmunaaðila að láta nú
til sín taka og skrifa bréf
og mótmæla þessari
ákvörðun yfirstjórnar.
Pósturinn er til fyrir okkur
og er þjónustustofnun sem
á að veita sem besta þjón-
ustu fyrir alla. Við viljum
geta treyst því að póstur-
inn komist til skila og glat-
ist ekki á leiðinni. Það er
og nauðsynlegt að hafa
gott og reynt starfsfólk við
stjórnvölinn sem kann sitt
fag.
Pósturinn mætti einnig
taka það til athugunar að
notast í auknum mæli við
frímerki og hætta ofnotk-
un stimpla. Við viljum frí-
merki og almennilegan
póst.
Katrín Þorsteinsdóttir.
Hvar er fegr-
unarfélagið?
VÆRI ekki gott fyrir
Fegrunarfélagið að skoða
inngang að læknastöð og
Lyfjum og heilsu Vestur-
bæjar sem þar er til húsa?
Vegfarandi.
Dýrahald
Páfagaukur flaug
út í óvissuna
KARLKYNS gári, grænn
og gulur að lit, týndist frá
heimili sínu í Árbænum 9.
júní sl. Fuglinn er með af-
brigðum gæfur og bítur
aldrei. Litur hans er að
sögn eiganda afar sjald-
gæfur. Punktar fyrir neð-
an gogg eru kolsvartir að
lit og fullkomlega hring-
laga. Þeir sem kunna að
hafa séð fuglinn eru vin-
samlegast beðnir að hafa
samband í síma 567 2954
eða 869 1247.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Hirðuleysi í
kirkjugarði
Morgunblaðið/Kristinn
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í
dag eru væntanleg
Bjarni Sæmundsson,
Baltica Hav., Ronhald
H. og Brown.
Hafnarfjarðarhöfn: Í
dag eru væntanleg
Arrow og bv. Kleif-
arberg.
Mannamót
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraun-
seli, Flatahrauni 3.
Morgungangan er frá
Hraunseli kl. 10.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Skrifstofa
félagsins er í Faxafeni
12, sími 588 2111.
Húnavatnssýslur –
Vatnsdalur 15.–16.júlí,
2 dagar. Ekið norður
Kjalveg. Hveravellir,
Vatnsdalur. Ekið til
Þingeyra og kirkjan
skoðuð. Á Blönduósi
verður m.a. litið inn í
Heimilisiðnaðarsafnið.
Ekið um þjóðveg 1 til
Reykjavíkur. Gist á
Húnavöllum. Leiðsögn
Þórunn Lárusdóttir.
Uppl. á skrifstofu
FEB s. 588 2111.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Á mánudög-
um, miðvikudögum og
föstudögum sund og
leikfimiæfingar í
Breiðholtslaug kl.
9.30.
Allar upplýsingar um
starfsemina á staðnum
og í síma 575 7720.
Gjábakki. Nokkur
sæti eru laus í Pól-
landsferðina 1.–13.
ágúst nk. Upplýsingar
í síma 554 3400.
FEBK. Púttað á Lista-
túni kl. 10.30 á laug-
ardögum. Mætum öll
og reynum með okkur.
Gönguklúbbur Hana-
nú. Morgunganga kl.
10 laugardagsmorgna
frá Gjábakka.
Krummakaffi kl. 9.
Gigtarfélagið. Leik-
fimi alla daga vik-
unnar. Létt leikfimi,
bakleikfimi karla,
vefjagigtarhópar, jóga,
vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyr-
ir þá sem vilja. Uppl.
á skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
Kvenfélag Hallgríms-
kirkju. Sumarferð fé-
lagsins verður farin
fimmtudaginn 19. júní
nk. og er ferðinni heit-
ið á Kirkjubæj-
arklaustur. Brottför er
frá Hallgrímskirkju kl.
9. Verð er kr. 4.500 og
er þar innifalið rúta og
matur. Þátttaka ósk-
ast tilkynnt til Dag-
bjartar í síma 510 1033
eða Ásu (mánudag), í
síma 552 4713.
Stuðningsfundir fyrr-
verandi reykingafólks.
Fólk sem sótt hefur
námskeið gegn reyk-
ingum í Heilsustofnun
NLFÍ í Hveragerði,
fundur í Gerðubergi á
þriðjud. kl. 17.30.
GA-fundir spilafíkla,
kl. 18.15 á mánudög-
um í Seltjarnar-
neskirkju (kjallara),
kl. 20.30 á fimmtudög-
um í fræðsludeild SÁA
Síðumúla 3–5 og í
Kirkju Óháða safn-
aðarins við Háteigsveg
á laugardögum kl.
10.30.
Samtök þolenda kyn-
ferðislegs ofbeldis.
Fundir mánudaga kl.
20 að Sólvallagötu 12.
Stuðst er við 12-spora
kerfi AA-samtakanna.
OA-samtökin. Átrösk-
un / Matarfíkn / Ofát.
Fundir alla daga.
Upplýsingar á
www.oa.is og í síma
878 1178.
Ásatrúarfélagið,
Grandagarði 8. Opið
hús alla laugardaga
frá kl. 14.
Kattholt. Flóamark-
aður í Kattholti,
Stangarhyl 2, er opinn
þriðjud. og fimmtud.
frá kl. 14–17. Leið 10
og 110, gengið að
Kattholti.
Minningarkort
Minningarkort Sam-
taka sykursjúkra fást
á skrifstofu samtak-
anna Tryggvagötu 26,
Reykjavík. Opið virka
daga frá kl. 9–13, s.
562 5605, bréfsími
562 5715.
Minningarkort
Krabbameinsfélags
Hafnarfjarðar (K.H.)
er hægt að fá í Bóka-
búð Böðvars, Reykja-
víkurvegi 64, 220
Hafnarfirði s. 565 1630
og á skrifstofu K.H.,
Suðurgötu 44, II. hæð,
sími á skrifstofu
544 5959.
Krabbameinsfélagið.
Minningarkort félags-
ins eru afgreidd í síma
540 1990 og á skrif-
stofunni í Skógarhlíð
8. Hægt er að senda
upplýsingar í tölvu-
pósti (minn-
ing@krabb.is).
Félag MND-sjúklinga
selur minningarkort á
skrifstofu félagsins á
Norðurbraut 41, Hafn-
arfirði. Hægt er að
hringja í síma
565 5727. Allur ágóði
rennur til starfsemi
félagsins.
Landssamtökin
Þroskahjálp.
Minningarsjóður Jó-
hanns Guðmundssonar
læknis. Tekið á móti
minningargjöfum í
síma 588 9390.
Hrafnkelssjóður
(stofnaður 1931) minn-
ingarkort afgreidd í
símum 551 4156 og
864 0427.
Í dag er laugardagur 14. júní,
165. dagur ársins 2003. Orð dags-
ins: Ég er dyrnar. Sá sem kemur
inn um mig, mun frelsast, og hann
mun ganga inn og út og finna haga.
(Jóh. 10,9)