Morgunblaðið - 14.06.2003, Qupperneq 54
ÍÞRÓTTIR
54 LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
KNATTSPYRNA
Laugardagur:
EM kvennalandsliða
Laugardalsv.: Ísland – Ungverjaland ......16
Ókeypis aðgangur.
Bikarkeppni KSÍ
VISA-bikar karla, 32-liða úrslit:
Torfnesvöllur: BÍ – Haukar .................13.30
Húsavík: Völsungur – Fylkir ....................14
Akranes: ÍA-23 – Stjarnan ........................14
Vilhjálmsvöllur: Höttur – FH ...................14
Keflavík: Keflavík-23 – Grindavík ............14
Siglufj.: KS – Afturelding..........................14
Garður: Víðir – Þór.....................................14
1. deild kvenna:
Ólafsfj.: Leiftur/Dalvík – Einherji............14
Sunnudagur:
Bikarkeppni KSÍ
VISA-bikar kvenna:
Kaplakriki: FH – ÍA...................................20
Efsta deild kvenna, Landsbankadeild:
Valbj.v.: Þróttur/Haukar –Þór/KA/KS ....14
3. deild karla:
Gróttuvöllur: Grótta – Drangur................20
1. deild kvenna:
Sauðárk.: Tindastóll – Einherji.................14
Mánudagur:
Efsta deild karla, Landsbankadeild:
KR-völlur: KR – Valur..........................19.15
Vestmannaeyjar: ÍBV – Fram .............19.15
Akranes: ÍA – KA..................................19.15
3. deild karla:
Akranes: Deigan – Skallagrímur..............20
Þorlákshöfn: Ægir – ÍH.............................20
Eyrarbakki: Freyr – Reynir S. .................20
Leiknisvöllur: Leiknir R. – Árborg ..........20
Þróttarvöllur: Afríka – Hamar..................20
Hofsós: Neisti H. – Hvöt............................20
Dúddavöllur: Snörtur – Reynir Á.............20
KA-völlur: Vaskur – Magni .......................20
Seyðisfj.: Huginn – Einherji .....................20
Fáskrúðsfj.: Leiknir F. – Neisti D............20
1. deild kvenna:
Fjölnisv.: Fjölnir – Þróttur/Haukar 2 ......20
FRJÁLSÍÞRÓTTIR
Meistaramót Íslands í fjölþrautum og
lengri boðhlaupum verður að Laugarvatni í
dag og á morgun, sunnudag. Keppni hefst
kl. 12 báða daga.
FH-ingar verða með mót í dag og á
morgun, sunnudag, í Kaplakrika.
UM HELGINA
KNATTSPYRNA
Bikarkeppni KSÍ
VISA-bikar karla, 32-liða úrslit:
Huginn – ÍA...............................................0:6
Hjörtur Hjartarson 3, Ellert Jón Björns-
son, Guðjón Sveinsson, eitt sjálfsmark.
Julian Johnsson lék ekki með Skaga-
mönnum. Hann átti að koma til landsins í
gærmorgun með farþegaskipinu Norrænu,
en missti af skipinu og kom ekki til Íslands
fyrr en í gærkvöld með flugi frá Færeyjum.
HK – KR.....................................................2:3
Ólafur V. Júlíusson 2 - Garðar Jóhannsson
2 (53., 93.), Veigar Páll Gunnarsson 105.
Númi – Valur.............................................1:7
Ómar Bentsen - Hálfdán Gíslason 2, Jó-
hann Möller 2, Baldvin Jón Hallgrímsson,
Sigurbjörn Hreiðarsson, Bjarni Ólafur Ei-
ríksson.
Deiglan – Víkingur R...............................0:2
- Daníel Hjaltason 2.
Njarðvík – Þróttur R................................0:0
Þróttarar unnu í vítaspyrnukeppni, 5:4.
Staðan var 3:3 eftir fimm vítaspyrnur á lið.
Heimamenn náðu ekki að skora úr sjöunda
vítaspyrnu sinni. Leikurinn var baráttu-
leikur, þar sem heimamenn vörðust og
skutust fram í skyndisóknir þegar við átti.
KFS – ÍBV..................................................0:4
- Bjarni Rúnar Einarsson 2, Steingrímur
Jóhannesson, Ian Jeffs.
Selfoss – KA ..............................................1:1
Hallgrímur Jóhannsson - Steinar Tenden.
KA vann í vítaspyrnukeppni 4:3.
Jón Sveinsson (vsp.), Jónas Guðmundsson
(vsp.), Ingþór Guðmundsson (vsp) - Steinar
Tenden, Þorvaldur Makan (vsp.), Hreinn
Hringsson (vsp.), Þorvaldur Guðbjörnsson
(vsp.), Örlygur Helgason (vsp.).
Tindastóll – Keflavík ...............................0:9
- Þórarinn Brynjar Kristjánsson 3, Krist-
ján Helgi Jóhannsson 2, Hólmar Örn Rún-
arsson 2, Haraldur Freyr Guðmundsson,
Magnús Sverrir Þorsteinsson.
ÍR – Fram ..................................................1:5
Arnar Þór Valsson - Andri Fannar Óttós-
son 2, Kristján Brooks, Ragnar Árnason,
Ómar Hákonarson.
VISA-bikar kvenna, 2. umferð:
Fjölnir – ÍR ................................................6:2
Guðný Jónsdóttir 3, Elín Heiður Gunnars-
dóttir, Margrét Lilja Hrafnkelsdóttir,
Hrafnhildur Eymundsdóttir - Berglind
Rafnsdóttir, Alda Róbertsdóttir.
GOLF
Opna bandaríska meistaramótið. Staða
efstu manna eftir tvo keppnisdaga.
J. Furyk, Bandaríkjunum ......................... -7
V. Singh, Fidjí .............................................-7
S. Leaney, Ástralíu .....................................-5
J. Byrd, Bandaríkjunum ............................-5
T. Woods, Bandaríkjunum.........................-4
N. Price, Zimbabwe ....................................-4
E. Romero, Argentínu................................-4
F. Jacobson, Svíþjóð ...................................-4
J. Leonard, Bandaríkjunum ......................-4
T. Watson, Bandaríkjunum .......................-3
R. Damron, Bandaríkjunum ......................-3
KFS-liðið stóð í stóra bróður, ÍBV, í
fyrri hálfleik í nágrannaslagnum í
Eyjum – í 32 liða úrslitum Bikar-
keppni KSÍ – og það þrátt fyrir að
hafa haft strekkingsvind í fangið og
misst leikmann af velli á sautjándu
mínútu. Þá fékk Jóhann Sveinn
Sveinsson, sonur Sveins Sveins-
sonar, aðstoðarþjálfara ÍBV, rauða
spjaldið eftir að hafa fengið að sjá
tvö gul spjöld fyrir brot.
Í seinni hálfleik tóku leikmenn
ÍBV svo öll völd á vellinum og skor-
uðu fjögur mörk (4:0) og hefðu þau
hæglega getað orðið fleiri. Það tók
Steingrím Jóhannesson, marka-
hæsta leikmann ÍBV frá upphafi,
502 mínútur að opna markareikn-
ing sinn á nýjan leik, eftir að hann
skipti aftur yfir í ÍBV frá Fylki.
Hér var um að ræða bræðraslag
– Steingrímur mætti Lúðvíki, stóra
bróður sínum. Bræðrabyltan hefði
getað orðið stærri en Hjalti úr ÍBV
var meiddur og yngsti bróðirinn,
Sæþór í KFS, kom ekki við sögu.
Bræðurnir Bjarni Geir úr ÍBV og
Sindri í KFS mættust einnig en þeir
eru synir Viðars Elíassonar, for-
manns knattspyrnudeildar ÍBV.
Hlynur Stefánsson, fyrrverandi
fyrirliði ÍBV, var fyrirliði KFS,
þannig að það var söguleg stund
þegar hann gekk inn á Hásteinsvöll
og lék gegn sínum gömlu semherj-
um í ÍBV-liðinu
„Stóri bróðir“
sterkari í Eyjum
STEINAR Þór Guðgeirsson, fyrr-
verandi fyrirliði og leikmaður
Fram, hefur verið ráðinn þjálfari
Framliðsins og tekur við starfi
Kristins Rúnars Jónssonar.
Steinar Þór mun stjórna sinni
fyrstu æfingu í dag í Safamýrinni
og síðan Framliðinu í fyrsta deild-
arleiknum í Eyjum á mánudaginn,
en þess má geta til gamans að hann
varð Íslands- og bikarmeistari með
liði ÍBV 1998. Fram er á botni efstu
deildar með tvö stig úr fjórum leikj-
um. Steinar Þór er 32 ára gamall og
lék með meistaraflokki Fram frá 18
ára aldri þar til hann lagði skóna á
hilluna í lok ársins 2000, fyrir utan
árið í Eyjum 1998.
Steinar Þór var valinn efnilegasti
leikmaður efstu deildar árið 1990,
en það ár varð hann einmitt Ís-
landsmeistari með Fram. Steinar
Þór er einn leikjahæsti leikmaður
Fram í efstu deild og lék hann 174
leiki með liðinu og skoraði 10 mörk.
Steinar lék einn landsleik, 14 leiki
með 21 árs landsliðinu, 16 leiki með
18 ára landsliðinu og sex leiki með
16 ára landsliðinu.
Steinar Þór hefur ekki þjálfað
áður í efstu deild, en hefur þjálfað
yngri flokka Fram og sá um knatt-
spyrnuskóla félagsins í mörg ár.
Hann hefur setið í stjórn Fram og
gengt ábyrgðarstöðum fyrir Fram
og Knattspyrnusamband Íslands.
Steinar tekur við
Framliðinu
Framan af varðist HK af stakrifimi og gestunum gekk illa að
finna smugu á vörn þeirra. Þeir
urðu síðan sjálfir að
gæta sín í vörninni
því heimamenn voru
snöggir fram og
hvort lið fékk tvö
góð færi fyrir hlé. Ljóst var að KR-
ingar ætluðu sér að taka öll völd á
vellinum eftir hlé, þeir spiluðu af ör-
yggi og Garðar Jóhannsson, sem
kom inn á fyrir Arnar Gunnlaugsson
í hálfleik, skoraði af öryggi með
skalla eftir hornspyrnu. Það dugði
samt engan veginn til að brjóta nið-
ur baráttuvilja HK-manna, þeir
hófu að fikra sig framar á völlinn og
áttu jafnvel að fá vítaspyrnu á 56.
mínútu þegar sóknarmanni þeirra
var hrint inni í teig. Þeir héldu sínu
striki og Ólafur V. Júlíusson skoraði
af öryggi eftir að hann fékk góða
sendingu fram völlinn. Í lokin færð-
ist mikið fjör í leikinn með mörgum
færum en engu marki svo það var
framlengt.
Á þriðju mínútu framlengingar
skoraði Garðar aftur eftir vel út-
færða sókn. Fyrstu mínútur eftir
það var sjálfstraust KR gott en
heimamenn ekki af baki dottnir og
Ólafur jafnaði með glæsilegri auka-
spyrnu af 25 metra færi. KR-ingar
tóku hraustlega við sér, sóttu af
krafti og Veigar Páll Gunnarsson
skoraði af öryggi fimm mínútum síð-
ar eftir að hann náði boltanum af
varnarmanni HK sem reyndi að
leika á hann. Heldur lá á gestunum í
seinni hluta framlengingarinnar og
HK fékk góð færi en KR slapp með
skrekkinn.
HK-menn stóðu sig mjög vel,
voru vel skipulagðir og misstu aldrei
taktinn eða einbeitinguna enda var
þjálfari þeirra, Goran Kristófer
Micic sem kom þeim upp um deild í
fyrra, ánægður. „Við urðum að spila
af skynsemi og reyna snöggar sókn-
ir, það gekk vel og skapaði hættu.
Við vorum mjög nálægt því að gera
alla hissa en þeir skora sín mörk eft-
ir okkar mistök og við erum lið sem
á enn eftir margt ólært. Samt var
þetta góður leikur, við sýndum að
við getum leikið góða knattspyrnu
og liðið hefur bætt sig mikið á
tveimur árum.“
Þjálfari KR, Willum Þór Þórsson,
var ekki síður ánægður með sína
menn enda lék liðið vel. „Mér fannst
þetta fínn bikarleikur. Við fengum
nóg af færum og héldum boltanum
en HK spilaði af skynsemi og nýtti
sín færi. Mér fannst okkar strákar
standa sig vel, gáfu sig alla í leikinn
og við vissum að það þyrfti mikla
orku til að gera út um þennan leik.
HK stóð sig mjög vel og markið úr
aukaspyrnu var eitthvað sem æðri
máttarvöld ráða ekkert við.“ Sigur-
inn var þó ekki alveg ókeypis því að
fjórir leikmenn fengu að líta gula
spjaldið fyrir kjánaleg brot eins og
að sparka burtu bolta eftir brot, þeir
Veigar Páll, Einar Þór, Bjarki
Gunnlaugsson og Sigurvin Ólafsson.
KR slapp fyrir
horn gegn HK
HURÐIN skall harkalega nærri hælum Íslandsmeistara KR þegar
þeir sóttu fyrstu deildar lið HK heim í Kópavoginn í gærkvöld. Tví-
vegis héldu Vesturbæingar sig hólpna en með mikilli skynsemi
tókst HK-mönnum að jafna og það var ekki fyrr en eftir varnar-
mistök í framlengingu að KR tókst að skora sigurmarkið í 3:2-sigri.
Stefán
Stefánsson
skrifar
HELENA Ólafsdóttir, landsliðs-
þjálfari kvenna, tilkynnti í gær-
kvöld byrjunarlið sitt gegn Ung-
verjalandi í undankeppni EM.
Leikurinn fer fram á Laugardals-
velli í dag kl. 16 og er aðgangur
ókeypis. Byrjunarliðið er þannig
skipað (4-5-1) að Þóra B. Helgadótt-
ir er í markinu, varnarmenn eru
Málfríður Erna Sigurðardóttir, Íris
Andrésdóttir, Guðrún Sóley Gunn-
arsdóttir og Laufey Jóhannsdóttir,
miðjumenn eru Erla Hendriks-
dóttir, Edda Garðarsdóttir, Laufey
Ólafsdóttir, Dóra Stefánsdóttir og
Ásthildur Helgadóttir fyrirliði og í
fremstu víglínu er Olga Færseth.
Þær byrja gegn
Ungverjum
ÍSLAND leikur í næstu viku fyrstu
landsleiki sína í yngri aldurs-
flokkum í blaki um árabil. Drengja-
og stúlknalandslið Íslands, skipuð
ungmennum 15 ára og yngri, mæta
Færeyingum í landsleikjum á
mánudag og þriðjudag, í Kambsdal
og Klakksvík. Íslensku liðin verða í
Færeyjum til miðvikudags en til
viðbótar landsleikjunum munu þau
dvelja í æfingabúðum með jafn-
öldrum sínum. Það er liður í nýju
samstarfsverkefni sem blak-
sambönd þjóðanna hafa komið á og
verða slíkar æfingabúðir haldnar á
hverju ári, til skiptis í löndunum.
Yngri landslið í
blaki endurvakin
Framarar sýndu nýjum þjálfarasínum, Steinari Guðgeirssyni,
hvers þeir eru megnugir á ÍR-vell-
inum í gærkvöldi.
ÍR-ingar áttu aldrei
möguleika gegn létt-
leikandi liði gest-
anna sem unnu auðveldlega og
þurftu ekki að hafa mikið fyrir þeim
sigri, 5:1. Heimamenn lágu aftarlega
í fyrri hálfleik og Framarar náðu
ekki að skora nema eitt mark. ÍR-
ingar þurftu að setja mörk til að
vinna og gerðust því sókndjarfari
eftir leikhléið – þá komu mörk
Framara á færibandi og með þeim
urðu bikarvonir ÍR-inga að engu.
Andri Fannar Óttósson var
sprækastur Framara, skoraði tvö
mörk og lagði upp eitt fyrir Ómar
Hákonarson. „Þetta var fín æfing
fyrir okkur. Það hefur verið létt yfir
hópnum í stjórnleysinu síðustu vik-
una og þetta styrkti liðsandann. Svo
er æfing með nýjum þjálfara á morg-
un og framhaldið leggst vel í okkur.
Við getum aðeins farið upp á við í
deildinni,“ sagði Andri Fannar.
Áreynslu-
laust hjá
Fram
Morgunblaðið/Golli
Steinar Þór Guðgeirsson, nýráðinn þjálfari Framliðsins (t.h.), fylgdist með sínum mönnum, ásamt
Finni Thorlacius, formanni Fram Fótboltafélags Reykjavíkur, leggja ÍR að velli í gærkvöldi.
Andri
Karl
skrifar