Morgunblaðið - 14.06.2003, Page 57
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 2003 57
Aflraunakeppnin
„Sterkasti maður
Íslands 2003“
hefst í dag, laug-
ardaginn 14. júní,
kl. 15, þegar
keppt verður í
hnébeygjulyftu í
Firðinum, Hafn-
arfirði. Á sunnu-
dag kl. 14 verður
keppni haldið
áfram í Fjöl-
skyldugarðinum í
Laugardal. Þar
munu menn etja
kappi í steinatök-
um, axlalyftu, drumbalyftu og
hleðslugrein. Þriðjudaginn 17. júní
kl. 14 verður keppt í trukkadrætti á
Hafnarbakkanum í Reykjavík.
Lokasprettur keppninnar mun fara
fram sama dag í Mosfellsbæ og hefj-
ast leikar þar kl. 16. Keppnisgreinar
í Mosfellsbæ eru bóndaganga og
sleðadráttur, Herkúlesarhald og
Húsafellshella.
Aflraunakeppnin „Sterkasti mað-
ur Íslands“ var haldin í fyrsta sinn
árið 1985. Þar var um sögufrægt
mót að ræða og voru þrír keppendur
af sex fluttir á brott með sjúkrabíl.
Þrátt fyrir að helmingur keppenda
hafi meiðst í fyrstu keppninni náði
hún vinsældum og lifir góðu lífi í
dag, að sögn Hjalta Árnasonar, eins
af skipuleggjendum hennar.
Leit að veikleikum
„Meðal keppenda í ár eru Auðunn
Jónsson, sterkasti kraftlyftingamað-
ur Íslandssögunnar, undrabarnið
Benedikt Magnússon gerir tilkall
auk Torfa Ólafs-
sonar og eldri
refa,“ segir Hjalti.
„Keppnin snýst
um það að leita að
veikleikum, ef þú
hefur einhvern
veikleika þá finn-
um við hann. Mót-
ið er þannig upp
byggt. Það kemst
enginn í gegnum
mótið án þess að
búið sé að reyna á
líkamlegt atgervi
hans til hins ýtr-
asta,“ segir hann
og bætir því við að oftar en ekki sé
það viljastyrkurinn sem ráði úrslit-
um í keppni sem þessari.
Leitin að sterkasta manni Íslands er hafin
Auðunn Jónsson og Benedikt
Magnússon verða með í keppninni
„Sterkasti maður Íslands“.
Viljastyrkurinn
getur ráðið úrslitum
EFNT var til langhlaups frá
Sveinshúsi í Krýsuvík til Suðurbæj-
arlaugar í Hafnarfirði um síðustu
helgi. Sveinssafn, sem rekur
Sveinshús og hefur með höndum
kynningu á list Sveins Björnssonar
listmálara, átti frumkvæði að þessu
fyrsta Hafnarfjarðarlanghlaupi og
nefndi hlaupið Madonnuhlaup í
höfuðið á hinu kunna mótífi mál-
arans, Krýsuvíkurmadonnunni.
Hlaupið var skipulagt í sam-
vinnu Sveinssafns, Maraþonfélags-
ins og Hafnarfjarðarbæjar og setti
Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri,
hlaupið af stað með stuttu ávarpi
og niðurtalningu. 50 hlauparar
höfðu skráð sig og hlupu lang-
flestir alla leiðina, 23,21 km þótt
rúta hefði fylgt hlaupurunum og
gefið þeim sem vildu kost á hvíld.
Jasstríó Björns Thoroddsens,
sem saman stóð af Birni á gítar,
Guðmundi Steingrímssyni á
trommur og Jóni Rafnssyni á
kontrabassa, lék í vinnustofu lista-
mannsins áður en hlaupið hófst við
mikinn fögnuð hlauparanna en
jassmúsík, einkum það sem Louis
Armstrong hafði upp á að bjóða,
var eftirlæti listamannsins, þegar
hann var að mála um miðjar nætur.
Ráðgert er að Madonnuhlaupið
verði eftirleiðis árviss viðburður.
Hlaupið snýst um stefnumót lista
og íþrótta, vekur athygli á því sem
þessar greinar eiga sameiginlegt,
að listamenn þurfi á íþróttum að
halda og íþróttamenn sköp-
unarmætti listamannanna. Í þessu
nýstárlega hlaupi er því engin
tímataka, um er að ræða útsýn-
ishlaup en á áfangastað, undir 12
metra langri mósaíkmynd Sveins í
Suðurbæjarlaug, tók jasstríóið á
móti hlaupurunum með hlaupa-
sveiflu. Því næst voru verðlaun
dregin út, þrjú listaverk úr Sveins-
safni, sem hinir heppnu fá að hafa í
sinni vörslu í eitt ár.
Madonnuhlaup úr Krýsuvík í Hafnarfjörð
Hlauparar leggja af stað frá Sveinshúsi í Krýsuvík og framundan er hin ægi-
fagra leið frá Krýsuvík til Hafnarfjarðar. Fyrir miðri mynd er Sveinn Kr.
Baldursson langhlaupari úr hlaupaklúbbnum Bláu könnunni í Hafnarfirði.
Jasstríó Björns Thoroddsen í vinnu-
stofu Sveins Björnssoar.
Stefnumót lista og íþrótta
Sveinssafn er opið fyrsta sunnudag í
hverjum mánuði í sumar milli kl. 13
og 17.30 og eftir samkomulagi.
JÓN Jósep Snæbjörnsson, betur
þekktur sem Jónsi í Svörtum fötum
er þessa dagana önnum kafinn við
æfingar á söngleiknum Grease sem
frumsýndur verður í Borgarleikhúsinu
26. júní. Svörtu fötin vinna líka hörð-
um höndum að plötu sem væntanleg
er fyrir jól og Jónsi fæst endrum og
sinnum við skrif fyrir Hús og híbýli.
Hann segist þó reyna að vera eins
mikið og hann getur með fjölskyldu
sinni og sofa eins mikið og hægt er.
Hvað ertu með í vösunum?
Þúsundkall, afsláttarkort á Booztbar-
inn í Kringlunni og símann minn. Ann-
ars gengur eiginlega ekki upp fyrir
mig að vera með mikið í vösunum á
Grease-æfingum þessa dagana, það
hoppar bara út og suður!
Er mjólkurglasið hálftómt eða hálf-
fullt.
Ekkert hálfkák hér, ég vil fá fullt glas.
Ég held að minnsta kosti að það lýsi
mér vel þessa dagana. Það gæti ekki
veri skemmtilegra að vera ég en ein-
mitt nú.
Ef þú værir ekki tónlistarmaður,
hvað myndirðu þá helst vilja vera?
Þá væri ég örugglega kominn með
háskólapróf í einhverju sem teng-
ist viðskiptum, fjölmiðlum
eða þess háttar.
Hefurðu tárast í bíói?
Já, oft og mörgum sinn-
um. Man ekki hvenær það
var seinast vegna þess að
ég kemst svo sjaldan í bíó!
Hverjir voru fyrstu
tónleikarnir sem þú
fórst á?
Fyrstu alvöru tónleik-
arnir sem ég fór á
voru í 1929 á Akureyri,
þungarokkshljómsveitirnar Skurk,
Sororicide og fleiri voru að spila. Man
að ég var með hálsríg eftir „head-
bangið“ í marga daga á eftir og mér
fannst það bara kúl!
Hvaða leikari fer mest í taugarnar á
þér?
Vonda Shepard. Það er alveg sama
hvað þessi kona gerir, leikur eða
syngur, það er allt ömurlegt!
Hver er þinn helsti veikleiki?
Ég veit ekki hvort er verra,
hégómi eða leti, en hjá
mér virkar þetta
tvennt eins og gott
mótvægi á hvort ann-
að, ég er sumsé að
vona að það núllist út.
Finndu fimm orð
sem lýsa per-
sónuleika
þínum vel.
Orkumikill,
glaðlyndur,
djúpt hugsi
endrum og
eins, ófeiminn og alveg jafn hress og
Gunni leikstjóri í Grease.
Bítlarnir eða Stones?
Bítlarnir. Mér finnst Stones vera
svona band sem maður fílar eftir
góða tónleika með þeim en Bítlaplöt-
urnar eru bara skólabókardæmi um
vel samda tónlist.
Hver var síðasta bók sem þú last
tvisvar?
Night over Water eftir Ken Follet.
Hvaða lag kveikir blossann?
Það fer eftir því hvaða blossa þú
meinar! „Smells Like Teen Spirit“
með Nirvana leysti allavega tónlistar-
bakteríuna úr læðingi. Ég var þrjá
mánuði að æfa trommutaktinn á
trommurnar hans Bibba í kjallaran-
um hjá Örvari frænda. Fallegasta lag
í heimi er hins vegar „Soon after
Christmas“ með Stinu Nordenstam,
maður bara fyllist einhverri sælutil-
finningu við að heyra fyrstu tónana.
Hvaða plötu keyptirðu síðast?
Nýju Cardigans-plötuna. Hún er eins
og draumur.
Hvert er þitt mesta prakkarastrik?
Þótt ótrúlegt megi kannski virðast er
ég ekki þessi prakkaratýpa en ég á
nú samt nokkur ágæt í pokahorninu.
Ég límdi til dæmis límband undir alla
symbalana hans Dodda, gamla
trommarans okkar á Patreksfirði, og
eyddi korteri í að undrast yfir því hvað
þeir hljómuðu þurrir og skítugir.
Doddi sat við settið og barði og barði
og skildi ekki neitt í neinu.
Hver er furðulegasti matur sem þú
hefur borðað?
Ábrystir með kanilsykri. Ég veit ekki
enn þá hvort mér fannst þetta þykka,
slímuga furðubragð gott eða vont.
Setti límband undir symbalana
SOS
SPURT & SVARAÐ
Jón Jósep
Snæbjörnsson
Jón Jósep
Snæbjörnsson