Morgunblaðið - 25.06.2003, Síða 20
LANDIÐ
20 MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
LJÓSMYNDASÝNING
MORGUNBLAÐSINS Á HÚSAVÍK
Í veitingahúsinu Sölku á Húsavík
stendur yfir sýning á verðlauna-
myndum úr ljósmyndasamkeppni
sem Okkar menn, félag fréttaritara
Morgunblaðsins á landsbyggðinni,
og Morgunblaðið efndu til í vetur.
Á myndunum má sjá fjölbreytt við-
fangsefni fréttaritara Morgunblaðsins
sem starfa um allt land. Fólk er í
brennidepli linsunnar.
Sýningin stendur til miðvikudagsins
2. júlí.
Myndirnar eru til sölu í Myndasafni
Morgunblaðsins á mbl.is
LANDSMENN Í LINSUNNI
Ljósmynd: Fyrsta sturtan, Hafþór Hreiðarsson
á Húsavík.
GRUNNSKÓLANUM var slitið annað árið í
röð í júnímánuði og eins og áður voru skóla-
slitin tvískipt. Nemendur úr 1. til 9. bekk
sóttu vitnisburð sinn á formlegri samkomu í
íþróttahúsinu en 10. bekkingar héldu út-
skriftarhátíð síðdegis sama dag á Hótel Borg-
arnesi. Þar fóru fram ávörp, tónlistarflutn-
ingur og afhending einkunna og
viðurkenninga.
Að venju voru þeim nemendum veittar við-
urkenningar sem náð hafa framúrskarandi
námsárangri. Sá nemandi sem náði bestum
árangri á grunnskólaprófi við skólann þetta
skólaár var Nanna Einarsdóttir. Hlaut hún
viðurkenningar í íslensku, stærðfræði,
dönsku, ensku og náttúrufræði. Nanna tók
einnig próf við Fjölbrautaskóla Vesturlands í
ensku 103 og stærðfræði 103 og fékk 10 í
stærðfræðiáfanganum. Birgitta Stefánsdóttir
var jafnhá Nönnu í náttúrufræðum og Birgir
Þórisson náði sömu einkunn og Nanna í
ensku og hlutu þessir nemendur því einnig
viðurkenningar. Fyrir góðan námsárangur í
samfélagsfræðum fengu Birgir Þórisson og
Jakob Orri Jónsson viðurkenningar. Enn-
fremur fengu nemendur viðurkenningar fyr-
ir góðan árangur í list- og verkgreinum. Í
heimilisfræðum var það Bjarni Freyr Björg-
vinsson, í tæknimennt Gísli Birgir Guð-
steinsson og í myndmennt Nanna Ein-
arsdóttir. Kvenfélag Borgarness veitir á
hverju ári viðurkenningar þeim nemendum
sem sýnt hafa mestar framfarir í námi. Her-
dís Guðmundsdóttir, fulltrúi Kvenfélagsins,
afhenti þeim frænkum Guðrúnu Ósk
Ámundadóttur og Sjöfn Hilmarsdóttur þær.
Að athöfn lokinni buðu foreldrar viðstöddum
upp á veisluhlaðborð.
Hlaut viður-
kenningar fyrir
sex námsgreinar
Borgarnes
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Þeir sem fengu viðurkenningar fyrir námsárangur ásamt umsjónarkennara bekkjarins. Neðri
röð frá vinstri: Birgitta Stefánsdóttir, Nanna Einarsdóttir, Sjöfn Hilmarsdóttir, Ragnhildur
Kristín Einarsdóttir kennari, Guðrún Ósk Ámundadóttir. Efri röð frá vinstri: Birgir Þórisson,
Jakob Orri Jónsson og Bjarni Freyr Björgvinsson. Á myndina vantar Gísla Birgi Guðsteinsson.
SÍÐARI hluti nýrra nemendagarða
við Landbúnaðarháskólann á Hvann-
eyri er nú tilbúinn og var formlega af-
hentur Magnúsi B. Jónssyni, rektor
skólans, sl. miðvikudag. Heildar-
stærð hússins er 1.092 m² og var fyrri
hlutinn (13 litlar íbúðir) tekinn í notk-
un um áramót, en í þessum seinni
hluta eru 6 tveggja og þriggja her-
bergja íbúðir.
Einnig var tekin skóflustunga að
nýjum nemendagarði 5. apríl sl. Það
hús verður svipað að stærð og í því
verða 18 íbúðir. Áætluð verklok á því
húsi eru um næstu áramót. Verktaki
að þessum byggingum er P. J. bygg-
ingar ehf. Hvanneyri.
Fréttaritari Mbl. hitti Magnús B.
Jónsson, rektor Landbúnaðarháskól-
ans á Hvanneyri, að máli af þessu til-
efni.
Magnús sagði þennan áfanga í
uppbyggingu nemendagarðanna
koma sér mjög vel nú þegar aðsókn
að skólanum er stöðugt að aukast.
Nemendagarðarnir eru í öllu hinir
glæsilegustu og íbúðirnar fjölbreyti-
legar að stærð. Einstaklingsíbúðir
með öllum þægindum og tveggja til
fjögurra herbergja fjölskylduíbúðir
sem henta ættu öllum fjölskyldu-
stærðum.
Íbúðirnar eru í tveim tveggja hæða
húsum sem eru tengd saman með
sameiginlegum vistarverum. Allar
vistarverur eru útbúnar með tölvu-
tengingum sem eru tengdar tölvu-
kerfi skólans og með öflugri netteng-
ingu. Húsaleigu er stillt í hóf eins og
lög gera ráð fyrir í félagslegu hús-
næði en nemendur eiga rétt á húsa-
leigubótum.
Aðspurður segir Magnús að nem-
endum fari fjölgandi ár frá ári og nú
eru fleiri umsóknir um háskólanám á
Hvanneyri en nokkru sinni fyrr. At-
vinnumöguleikar að námi loknu eru
margvíslegir og greiður aðgangur að
framhaldsnámi á grundvelli sam-
starfssamninga skólans virkar einnig
aðlaðandi fyrir nemendur. Þá bjóðast
nemendum frá Hvanneyri margvís-
legir styrkir til framhaldsnáms. Þar
er bæði um að ræða sjóði í vörslu
skólans og einnig eru styrktarsjóðir
landbúnaðarins, s.s. Framleiðnisjóð-
ur, mjög virkir í styrkveitingum til
nemenda í framhaldsnámi í landbún-
aði.
Fullt í námsbraut í
umhverfisskipulagi
Nýjar námsbrautir skólans vekja
athygli og er þegar yfirfullt í náms-
braut í umhverfisskipulagi á komandi
vetri og aðsókn að landnýtingu fer
vaxandi enda líklegt að þar vanti fag-
þekkingu til leiðbeiningar og rann-
sókna á komandi árum vegna þeirra
verkefna sem unnið er að á vettvangi
landgræðslu og skógræktar hér á
landi og aðstæður með þeim hætti að
mikilvægt er að efla íslenska sér-
þekkingu á þessum fræðasviðum.
Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri
Nýir nemenda-
garðar afhentir
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
Magnús B. Jónsson, rektor LBH,
og Pétur Jónsson verktaki.
Skorradalur
HEITAVATNSHOLA sem boruð
var á Eskifirði á síðasta ári gefur
ekki nóg afköst ef miðað er við
væntanlega íbúafjölgun í bænum í
kjölfar virkjana- og stóriðjufram-
kvæmda á Austurlandi.
Heitavatnsholan gefur nú rúma
16 sekúndulítra af 80 gráðu heitu
vatni og kostaði borun og frágang-
ur hennar um eitt hundrað millj-
ónir króna. Bæjarstjórn Fjarða-
byggðar tekur ákvörðun í vikunni
um hvort bora eigi nýja vinnslu-
holu og er verið að leggja loka-
hönd á kostnaðaráætlun vegna
þess, en talið er að kostnaður við
hana verði mun lægri en við fyrri
holuna.
Frekari boranir
fyrirhugaðar
Eskifjörður
KONUR í Kvenfélaginu Einingu á
Hvolsvelli héldu upp á kvenrétt-
indadaginn 19. júní með því að
fara í sannkallaða kvennaferð í
Þórsmörk. Í hópnum voru 30 kon-
ur á öllum aldri. Haldið var af stað
frá Hvolsvelli síðdegis og gengið
um í Mörkinni og síðan grillað og
sungið fram að miðnætti. Mættu
sumar kvennanna með mikla
eyrnalokka og í fjallapilsum í til-
efni dagsins og þrátt fyrir að ekki
hafi farið mikið fyrir umræðu um
kvenréttindamál voru félagar í
Kvenfélaginu Einingu á einu máli
um að það væri sérstaklega hress-
andi að halda upp á daginn með
ferð á þennan fallega stað á bjart-
asta tíma ársins.
Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
Héldu upp á daginn í Þórsmörk
Hvolsvöllur