Morgunblaðið - 25.06.2003, Síða 48
HANN tekur á móti mérárla dags í huggulegriíbúð þar sem hann býrmeð konu sinni og
tveggja ára syni. Hann hellir upp á
afbragðsgott kaffi og við setjumst
niður við borðstofuborðið. Ég er
kominn til að kynnast Jóni Jósep
Snæbjörnssyni, sem oftast er ein-
faldlega kallaður Jónsi og kenndur
við hljómsveitina Í svörtum fötum.
Jónsi hefur á síðustu tveimur ár-
um skotist upp á stjörnuhimininn
með hljómsveit sinni en er þessa
dagana önnum kafinn við æfingar á
söngleiknum Grease þar sem hann
leikur aðalhlutverkið á móti Birgittu
Haukdal.
Það var því ekki úr vegi að byrja á
að spyrja Jónsa hvernig hann hafn-
aði þar sem hann er í dag:
„Ég man þegar ég var fimm ára
gamall og var að róla á leikvelli
heima á Akureyri. Meðan ég rólaði
söng ég einhverja ótrúlega aríu sem
ég samdi á staðnum um prúðuleik-
arana eða eitthvað álíka,“ segir hann
um fyrstu minningarnar af söngferl-
inum.
Tónelskur strákur frá
Akureyri
„Þetta var auðvitað æskudraum-
urinn, að fá að starfa í þessum geira
eða vera kvikmyndastjarna eða flug-
maður. Tónlistin varð eins og örugg
höfn. Það var svo þægilegt að geta
leitað á náðir hennar til að fá frið frá
amstri hversdagsins. Þegar ég var
13 ára átti Örvar frændi minn kassa-
gítar sem við æfðum okkur að spila á
„Wild Thing“. Bibbi vinur minn kom
til okkar í kjallarann með trommu-
sett og við fórum að prufa okkur
áfram. Svo kviknaði neistinn á ein-
hverri æfingunni. Það gerðist eitt-
hvað skemmtilegt og það varð ekki
aftur snúið. Eftir það fór ég alltaf
strax eftir skóla til Örvars niður í
kjallara og spilaði á trommurnar og
söng.“
Að loknu námi við Menntaskólann
á Akureyri fluttu Jónsi og kærasta
hans Rósa til Reykjavíkur. Hann fór
í söngnám og vann fyrir sér á leik-
skóla en hún fór í háskólanám: „Ég
fór fyrst og fremst til borgarinnar til
að læra söng en markmiðið var ekki
að byrja í hljómsveit eða eitthvað
þess háttar. Ég vildi bara taka mér
þetta dæmigerða ársleyfi eftir
menntaskólann; fara suður, vinna og
kynnast menningarlífinu. En að
byrja í hljómsveit, það var ekki einu
sinni fjarlægur möguleiki.“
Ökónómískar hreyfingar
Unga söngnemanum bauðst hálfu
ári eftir komuna til Reykjavíkur
aukahlutverk í poppuðu óperunni
Carmen Negra. Þar má segja að
Jónsi hafi fyrst fyrir alvöru komist í
sviðsljósið og hann fékk að starfa við
hlið margra stærstu stjarna íslensks
tónlistarlífs.
„Það var auðvitað ævintýri út af
fyrir sig að fá að vinna með mönnum
á borð við Egil Ólafsson, Bubba
Morthens, Helga Björnsson, Berg-
þór Pálsson og Garðar Thór Cortes.
Þeir voru allir afskaplega ólíkir en
ég gat lært svo ofboðslega mikið af
þeim.Mér er til dæmis minnisstætt
eitt sinn þegar Egill Ólafsson kom
til mín þegar ég hafði nýlokið ein-
hverjum loftköstunum í einleiks-
atriði. Þá sagði hann við mig: „Jón,
þú verður að vera ökónómískur í
hreyfingum.“ Ég hef aldrei gleymt
þessari setningu því þetta lýsti mér
svo vel, að vera að gera einhverja
óþarfa hluti svo ég snerti varla jörð-
ina á meðan,“ segir Jónsi hlæjandi
dátt og bætir við að á einu ballinu
með hljómsveit sinni hafi hann jafn-
vel farið slíkum hamförum að hon-
um tókst að togna í einum snún-
ingnum.
Græni hljóðneminn
Eftir Carmen Negra lá leið Jónsa
í Abba-sýninguna á Broadway þar
sem hann söng fyrst með Birgittu
Haukdal. Þau voru þá vitaskuld
grunlaus bæði tvö um að nokkrum
árum síðar yrðu þau orðin einar
skærustu poppstjörnur landsins.
Fljótlega eftir Abba varð Í svörtum
fötum til:
„Það var haustið 1998 að vinur
minn úr MA, Einar Örn, hafði sam-
band við mig og bað mig að mæta á
æfingu hjá hljómsveit, sem ég síðan
gerði og tók með mér leikfanga-
hljóðnema sem ég fékk í stúdents-
gjöf.“
Jónsi gengur að stofuskápnum og
tekur fram skærgrænan leikfanga-
hljóðnema og ýtir á takka á honum
svo að fjarska hallærislegur
trommutaktur byrjar að óma:
„Þar sem ég kunni ekkert af þeim
lögum sem þeir kunnu – og þeir eng-
in af þeim lögum sem ég kunni – þá
tók ég leikfangamíkrófóninn og söng
bara í hann „Psycho killer!““
Jón mundar hljóðnemann og
syngur með pönktilþrifum:
„sææækó killaaaah.“
„Þeir horfðu á mig í forundran
þegar þeir sáu þennan rugludall og
veinuðu af hlátri. Mér fannst samt
eins og þeir væru hálffúlir og að þeir
hefðu ekki fílað þetta með míkrófón-
inn of vel. Við Einar komum okkur
hins vegar saman um að ég mætti á
næstu æfingu, og ég komst að því
seinna að þetta hefði verið hálfgert
inntökupróf þar sem ég var valinn
úr litlum hópi fólks.“
Ballhljómsveit
verður til
„Þetta var magnað alveg frá byrj-
un,“ segir Jónsi spurður um lífið
með hinni nýstofnuðu hljómsveit.
„Við byrjuðum að spila í janúar 1999
sem fönk-soul-bandið Í svörtum föt-
um. Á þessum tíma voru Funkmas-
ter 2000 og Jagúar í blóma og okkur
langaði að búa til sálar-fönk með
söng – taka Marvin Gaye og Arethu
Franklin og þannig, en hafa svolítið
stuð í því.
Við fórum að spila hér og þar og
vorum beðnir að hafa smádiskó með,
svo við bættum inn smádiskói. Svo
vorum við beðnir um pínulítið rokk
og við bættum því við. Á endanum
var sálarprógrammið að mestu
gleymt og grafið og í staðinn orðin
til hljómsveit sem var hrein og klár
ballhljómsveit.“
Bandið gaf út í flýti plötuna Verk-
efni 1 fyrir jólin 2000. „Við ákváðum
að gefa út plötu í byrjun desember.
Við settum okkur það markmið að
koma henni út á 12 dögum. Á þeim
tíma sömdum við efni á hana, tókum
upp og prentuðum diskana. Hún
kom síðan út á Þorláksmessu og
seldist í …“ Jónsi hikar og kímir
„…fleiri hundruðum eintaka.“
„Eftir það ákváðum við að taka
fyrsta lagið af plötunni og gera bet-
ur við það. Við fengum þá til okkar
Hafþór Guðmundsson, trommuleik-
ara SSSólar, til að stjórna upp-
tökum, en hann bjó hreinlega til allt
annað lag sem hét „Nakinn“ og þar
byrjaði boltinn að rúlla fyrir alvöru.“
Það var einmitt með því lagi sem
hljómsveitin sló fyrst í gegn. Laglín-
an í viðlaginu „Þú! Ég vil vera eins
og þú! Því ég – ég er nakinn eins og
þú“ ómaði gegndarlaust á öllum út-
varpsstöðvum og var á vörum
flestra ungmenna í landinu sumarið
2001. September sama ár gerði
bandið samning við Skífuna um út-
gáfu fjögurra platna en síðustu jól
gaf Í svörtum fötum út samnefnda
plötu sem seldist í um 5.000 eintök-
um.
Daníel Zoëga í íslensku
úthverfi
Síðustu jól fékk Jónsi símtal þar
sem hann var beðinn að leika í
Grease. Hann segist ekki vera það
gamall að hann muni eftir Grease-
æðinu sem reið yfir 1978 þegar John
Travolta og Olivia Newton-John
gerðu sumarást Dannys og Sandyar
ódauðlega:
„En Grease er mér auðvitað
hjartkær eins og öllum enda kvik-
myndin alveg yndisleg. Það er ein-
hver neisti í henni sem er alveg
hreint lygilegur. Ég horfði á mynd-
ina eftir að hafa gengið frá hlutverk-
inu í söngleiknum og finnst bara svo
mikil gleði í myndinni: Þessi sumar-
tilfinning hinnar ungu, óháðu og
óþroskuðu Ameríku með Kádiljáka,
leðurjakka og brilljantín í hárinu.“
Jónsi ljómar allur upp þegar hann
segir frá verkinu.
Söngleikurinn, sem frumsýndur
verður á morgun, er staðfærð út-
gáfa, þýdd af Gísla Rúnari Jónssyni
og leikstýrt af Gunnari Helgasyni.
Sögusviðið er úthverfi í Reykjavík
samtímans. Danny Zuko heitir
þannig Daníel Zoëga, Kádiljáknum
er skipt út fyrir Hyundai og Birgitta
Haukdal er utanbæjarsnót sem talar
með akureyrskum hreim.
Innblástur frá
gömlu skólaföntunum
Við undirbúning hlutverksins leit-
aði Jónsi meðal annars fanga í eigin
æsku:
„Þegar ég fór að kryfja Danna fór
ég að skoða töffarana í skólunum
norður á Akureyri. Ég rifjaði upp
Jón Jósep Snæbjörnsson leikur Daníel Zoëga í Grease
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Klíkuforinginn tekur lagið: Jónsi í hlutverki sínu í Grease sem Daníel Zoega, aðalgaurinn í strákagenginu.
Jón Jósep Snæbjörnsson leikur annað aðal-
hlutverkið í söngleiknum Grease sem frum-
sýndur verður í Borgarleikhúsinu á morg-
un. Ásgeir Ingvarsson ræddi við hann um
æskuna á Akureyri, risið upp á stjörnuhim-
ininn og ókosti frægðarinnar.
Hamingjan er
lífsviðhorf
48 MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 6 og 8. B.i. 12
Sýnd kl. 6, 8 og 10.Sýnd kl. 8 og 10.
Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B. i. 16 ára.
Sýnd kl. 10. B i. 12
HL MBL
"Triumph!"
Roger Ebert
SG DV
Frá höfundi
"Training Day"
kemur
kyngimagnaður
löggutryllir með
hinum svala Kurt
Russell.
"Fyrsta stórmynd
ársins 2003"
US WEEKLY
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 16.
KVIKMYNDIR.IS
Frá höfundi
"Training Day"
kemur
kyngimagnaður
löggutryllir með
hinum svala Kurt
Russell.
"Fyrsta
stórmynd
ársins 2003"
US WEEKLY
KVIKMYNDIR.COMÓHT Rás 2