Morgunblaðið - 14.07.2003, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 14.07.2003, Qupperneq 4
FRÉTTIR 4 MÁNUDAGUR 14. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi borgarstjóri og vara- þingmaður Samfylkingarinnar, sótti ráðstefnu fræðimanna, stjórn- málamanna og stjórnmálaleiðtoga jafnaðarmannaflokka, í London um helgina en það var Tony Blair, for- sætisráðherra Bretlands, sem bauð til ráðstefnunnar. Ráðstefnan bar heitið Framsæknir stjórnarhættir, en undir þeirri yfirskrift hafa for- ystumenn jafnaðarmannaflokka beggja vegna Atlantshafsins komið reglulega saman frá árinu 1999. Með Ingibjörgu í för var Kristrún Heimisdóttir, lögfræðingur og varaþingmaður Samfylkingarinn- ar. Ingibjörg Sólrún segir að ráð- stefnan hafi í raun og veru verið samtal stjórnmálamanna og fræði- manna á sviði stjórnmála, alþjóða- mála og opinberrar þjónustu. Um 350 manns tóku þátt í ráðstefn- unni. „Inntak ráðstefnunnar var að ræða nýjar leiðir til að tryggja ör- yggi og þjónustu við almenning; þ.e. að skoða leiðirnar til að ná fram hugmyndum jafnaðarmanna vítt og breytt um veröldina,“ út- skýrir hún. „Þarna var t.d. rætt um opinbera þjónustu; hvernig hún ætti að vera, hver ætti að veita hana og hvernig ætti að tryggja það að hún væri góð þrátt fyrir að einkaaðilar kæmu inn á þennan markað. Einnig var rætt um það hvernig ætti að tryggja jafnan rétt fólks að þessari þjónustu.“ Ingibjörg Sólrún segir að einnig hafi verið rætt um hlutverk ríkis- valdsins sem og um hnattvæð- inguna. „Til dæmis var rætt um það hvernig hægt væri að breyta inntaki hnattvæðingarinnar, þann- ig að hún væri ekki bara fyrir hina fáu; hina ríku. Rætt var um það hvernig hægt væri að tryggja að hnattvæðingin gæfi almenningi, hvar sem hann byggi, tækifæri til að bæta líf sitt.“ Ingibjörg Sólrún segir að menn séu alltaf að þróa hugmyndir sínar um þau mál sem rædd voru á ráð- stefnunni, t.d. um hina opinberu þjónustu, um ríkisvaldið og um umbótastefnuna. „Menn eru að reyna að sjá fyrir sér hvernig hægt er að taka á nýjum vandamálum eins og t.d. áhrifum hnattvæðing- arinnar,“ útskýrir Ingibjörg Sól- rún. Áhrifamikil ræða Í ráðstefnunni tóku þátt fjöl- margir stjórnmálaleiðtogar eins og áður var vikið að. Auk Tonys Blairs, forsætisráðherra Bret- lands, má nefna Bill Clinton, fyrr- verandi forseta Bandaríkjanna, Javier Solana, æðsta embættis- mann utanríkismála innan Evrópu- sambandsins, og Jean Chretien, forsætisráðherra Kanada, svo dæmi séu nefnd. Þeir fluttu erindi á ráðstefnunni og tóku þátt í pall- borðsumræðum. Clinton hélt m.a. ræðu í kvöld- verðarboði um helgina og segir Ingibjörg Sólrún aðspurð að ræðan hafi verið mjög áhrifamikil. „Mér fannst áhugavert að hlusta á Clint- on sérstaklega þegar hann var að tala um það hvernig ætti að taka á vandamálum eins og í Norður-Kór- eu,“ segir hún. „Menn hafa verið að tala um að Norður-Kóreumenn séu ákveðin ógn við heimsfriðinn vegna þess að þeir eigi kjarnorku- vopn. Spurningin er því sú hvort menn ætli að takast á við slík vandamál með því að ráðast inn í slík ríki og steypa stjórnvöldum af stóli eða leita einhverra annarra leiða.“ Ingibjörg Sólrún segir að Clinton hafi talað fyrir því að menn leituðu annarra leiða. „Hann benti m.a. á að Norður-Kóreumenn vantaði mat og orku og að þeir vildu verða viðurkenndir í sam- félagi þjóðanna. Hann sagði enn- fremur að ef menn reyndu ekki að halda sambandi við þá; reyndu að eiga í samræðum við stjórnvöld í Norður-Kóreu, væri sú hætta yfir- vofandi að þeir seldu kjarnorku- vopnin sín; þeir væru með öðrum orðum ekki endilega að hugsa um að nota vopnin gegn Suður-Kóreu heldur gætu þeir selt vopnin. Þess vegna væri svo mikilvægt að stjórnvöld á Vesturlöndum lok- uðu ekki á Norður-Kóreumenn heldur reyndu að ræða við þá. Þannig talaði Clinton í raun fyrir því að menn reyndu samningaleið- ina og samtalsleiðina í stað þess að beita hervaldi.“ Leið samræðunnar Aðspurð segist Ingibjörg Sólrún hafa lært mikið á ráðstefnunni. „Mér fannst ég læra mjög mikið,“ segir hún, „og mér finnst ég hafa fengið staðfestingu á því að menn leggja mikla áherslu á það sem ég hef leyft mér að kalla samræðu- stjórnmál. En ég hef alltaf talið það vera mitt erindi inn í pólitík, þ.e. mitt erindi að gefa pólitíkinni nýtt inntak; breyta hinni pólitísku umræðu; þróa hugmyndir um lýð- ræði.“ Ingibjörg Sólrún segir að sam- ræðan eða samræðustjórnmál sé eitt það mikilvægasta sem við stöndum frammi fyrir nú við upp- haf 21. aldarinnar; þ.e. að samræð- an fari fram á öllum vígstöðvum; hún fari fram milli stjórnmála- manna og almennings, milli þjóð- ríkja, milli álfa og á öllum vett- vangi. „Við eigum enga aðra leið í stjórnmálum en leið samstarfs og samræðu.“ Hún segir að lokum að sér hafi fundist ráðstefnan mjög merkileg að því leyti að þar hafi farið fram samræða eða samtal milli stjórn- málamanna og fræðimanna. Stjórnmálamennirnir hafi t.d. ekki bara komið til að tala „yfir hausa- mótunum á fólki,“ heldur hafi þeir verið þátttakendur í umræðunni og fólk hafi haft aðgang að þeim. „Að því leyti var ráðstefnan ólík því sem maður á að venjast,“ útskýrir Ingibjörg Sólrún. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir á ráðstefnu jafnaðarmanna í London Samræðan fari fram á öllum vígstöðvum Ingibjörg Sólrún Gísladóttir tók þátt í ráðstefnu stjórnmálamanna og stjórn- málaleiðtoga jafnaðarmannaflokka í Lond- on um helgina. Hún segir m.a. í samtali við Morgunblaðið að á ráðstefnunni hafi verið lögð mikil áhersla á það sem hún hefur kallað samræðustjórnmál. Morgunblaðið/Dagur Gunnarsson Ingibjörg Sólrún Gísladóttir á ráðstefnu jafnaðarmanna ásamt Anthony Giddens, rektor London School of Economics. BRODDI Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Al- þjóðahúss, segir það geta verið erfitt fyrir út- lendinga að finna tíma og peninga til að sækja íslenskunámskeið. Ingibjörg Hafstað, hjá Fjöl- menningu ehf., bendir á að lagaákvæði sem gera viðkomandi einstaklingum skylt að ljúka 150 stunda íslenskunámskeiði hafi verið sett án þess að huga að því hvernig ætti að fylgja þeim eftir. Í skýrslu Evrópuráðs um kynþáttafordóma kemur fram ákveðin gagnrýni á það mikla vald sem dómsmálaráðuneytið hefur í málefnum fólks sem sem ekki hefur íslenskt ríkisfang en sækir um ótakmarkað dvalarleyfi (græna kort- ið). Þá er vísað í þau ákvæði sem gera viðkom- andi einstaklingum skylt að ljúka 150 stunda ís- lenskunámskeiði með góðum árangri. Að sögn Brodda eru ákveðin vandkvæði sem hafa fylgt setningu þessara laga. „Það virðist lítið tillit tekið til þess hvaðan fólk kemur. Til dæmis hvort það sé kunnugt latnesku stafrófi eða ekki. Auk þess hafa efnahagslegar að- stæður áhrif. Það er staðreynd að innflytjendur fara oft í láglaunastörf og þurfa oft einnig að vera í aukavinnu. Þá getur verið erfitt að finna tíma og pening til að borga fyrir íslensku- námskeið,“ segir Broddi. Skortur á menntuðum kennurum og námsgögnum Broddi bendir jafnframt á að í lagasetning- unni sé ekkert tillit tekið til þess hvort framboð sé á íslenskunámskeiðum þar sem fólk býr, þótt það sé í lagi á höfuðborgarsvæðinu geti það ver- ið erfiðara í minni bæjum úti á landi. Ingibjörg segir lagasetninguna hafa verið ótímabæra „Útlendingum stendur ekki kennsla til boða nema á fáeinum stöðum á landinu. Það er í raun og veru enginn sem heldur almenni- lega utan um þessi mál.“ Ingibjörg bendir á að skortur á námsgögnum, menntuðum kennurum og einhverjum sem heldur utan um málefnin geri þetta erfiðara. „Skilyrðið að læra íslensku kemur í heildina já- kvætt út. Ég hef varla hitt útlending sem ekki vill læra tungumálið. En á meðan staðan er eins og hún er núna þá er ekki hægt að framkvæma lögin. Lagasetningin gerir hins vegar það að verkum að yfirvöld verða að taka á þessum málaflokki og það er jákvætt,“ segir Ingibjörg. Ingibjörg og Broddi benda bæði á að ýmsir aðilar atvinnulífsins og stéttarfélög eru farin að styrkja útlendinga til íslenskunáms og eru ánægð með þá þróun. Evrópuráðið fjallar um 150 stunda íslenskukennslu fyrir útlendinga Erfitt að framfylgja lögunum UMBOÐSMAÐUR Alþingis komst að þeirri niðurstöðu í nýlegu áliti að úrskurður úrskurðarnefndar at- vinnuleysisbóta um að synja um- sækjanda um atvinnuleysisbætur hafi ekki samræmst lögum. Umsækjandanum var synjað á þeirri forsendu að hann félli undir skilgreiningu þágildandi reglugerð- ar um bótarétt sjálfstætt starfandi einstaklinga úr Atvinnuleysistrygg- ingasjóði og ætti þ.a.l. ekki rétt á at- vinnuleysisbótum samkvæmt lögum. Umboðsmaður telur með hliðsjón af ákvæði laga og reglugerðar að mat nefndarinnar fái ekki staðist lög. Sjálfstætt starfandi einstaklingur er skilgreindur sem aðili sem greiðir tryggingargjald af starfsemi sinni mánaðarlega eða með reglulegu millibili samkvæmt ákvörðun skatt- yfirvalda. Umsækjandinn hafði hins vegar ekki staðið reglulega skil af tryggingargjaldi vegna eigin at- vinnurekstrar en nefndin gekk út frá þeirri forsendu við mat sitt. Um- boðsmaður tók fram að engu máli skipti þó starfsemin væri í raun tryggingargjaldsskyld heldur ætti eingöngu að líta til þess hvort slíkt gjald hefði verið innheimt sam- kvæmt ákvörðun skattyfirvalda. Gögn ekki könnuð með full- nægjandi hætti Umboðsmaður fann einnig að því að nefndin hafði ekki kannað með fullnægjandi hætti gögn um hvort umsækjandanum hefði verið gert að standa skil á tryggingargjaldi vegna eigin atvinnurekstrar áður en hún tók afstöðu til málsins. Hann beindi því til nefndarinnar að taka málið fyrir á ný ef fram kæmi beiðni frá umsækjandanum og að þá skyldi nefndin taka mið af þeim sjónarmið- um sem fram komu í álitinu. Umboðsmaður Alþingis Synjun at- vinnuleys- isbóta ekki í samræmi við lög FRÁ og með 1. júlí 2004 verða öll skip hérlendis, stærri en 500 brúttólestir, og allar viðkomuhafnir þeirra í milli- landasiglingum að vera með viður- kenndar verndaráætlanir gegn hryðjuverkum í samræmi við öryggis- staðal sem lýtur að öryggi á sjó, að því er segir í frétt frá Eimskipum hf. Að- ildarþjóðir að Alþjóðasiglingamála- stofnuninni samþykktu í desember 2002 viðbætur við svonefnda SOLAS- samþykkt sem fjallar um öryggi á sjó. Hafa íslensk stjórnvöld staðfest um- ræddar viðbætur. Viðbæturnar við SOLAS-sam- þykktina lúta að svonefndri siglinga- vernd, svipaðri vernd í flugi og á flug- völlum. Með siglingavernd er leitast við að hindra að skip séu notuð til að flytja hryðjuverkamenn eða hluti sem nota má til hryðjuverka. Einnig miðar verndin að því að hindra að skip séu notuð til að valda skaða á einhvern hátt. Spáð er sams konar þróun hérlend- is og verið hefur erlendis að undan- förnu með því að þeir sem gera út skip eða reka hafnarstarfsemi sem fellur undir samþykktina leggi á hlið- stæð gjöld og viðgengist hafa á flug- völlum. Segir í fréttatilkynningu að með auknum kröfum frá hendi hins opinberra sé ljóst að tilkostnaður vegna flutninga til og frá landinu muni hækka. Aukinn flutn- ingskostn- aður fyrir- sjáanlegur Öryggiskröfur hertar á sjó vegna hryðjuverka ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.