Morgunblaðið - 19.07.2003, Side 19
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 2003 19
NELSON Mandela, fyrrum forseti
Suður-Afríku, fékk tertu sem
skreytt var með fána Suður-
Afríku að gjöf frá Afríska þjóðar-
ráðinu (ANC) á 85 ára afmælis-
degi sínum í gær. Mandela deildi
kræsingunum með fötluðum börn-
um sem samtök hans, Nelson
Mandela-stofnunin, styrkir. Hann
veitir hér tertunni viðtöku ásamt
eiginkonu sinni, Graca Machel
(fyrir miðju).
Mandela var í gærmorgun vak-
inn með lúðrablæstri og sekkja-
pípuleik þegar herhljómsveit lék
afmælissönginn utan við hús hans
í Jóhannesarborg. Þá hafði fjöldi
fólks safnast saman utan við húsið
til að koma afmælisóskum á fram-
færi. Allir helstu fjölmiðlar í land-
inu fjölluðu um Mandela í gær og
hamingjuóskir bárust frá stór-
mennum víða um heim, þ.á m. Kofi
Annan, framkvæmdastjóra Sam-
einuðu þjóðanna (SÞ). „Ef ég lifi í
85 ár til viðbótar verður það
vegna þeirra hlýju árnaðaróska
sem ég hef fengið alls staðar að
úr heiminum,“ sagði Mandela í
gær.
Hátíðahöldum í tilefni afmælis-
ins lýkur í kvöld með veislu í Jó-
hannesarborg þar sem Bill Clint-
on, fyrrum Bandaríkjaforseti,
sjónvarpsstjarnan Oprah Winfrey
og rokksöngvarinn Bono verða
meðal gesta.
Mandela var látinn laus úr fang-
elsi árið 1990 og var kjörinn for-
seti Suður-Afríku í fyrstu frjálsu
kosningunum þar í landi árið
1994. Hann vék fyrir Thabo Mbeki
1999 en hefur síðan gert barátt-
una gegn alnæmi í Afríku að sinni. AP
Mandela fagnar
85 ára afmæli
MIKIÐ uppnám ríkti í Bretlandi í
gær eftir að fréttist að lögreglan
hefði fundið lík sem svaraði til lýs-
ingar á David Kelly, sérfræðingi í
varnarmálaráðuneytinu breska, sem
saknað hafði verið síðan síðdegis á
fimmtudag. Er talið hugsanlegt að
andlát Kellys – verði staðfest að um
hann sé að ræða – hafi víðtækar
pólitískar afleiðingar, jafnvel að til
afsagna háttsettra embættismanna
og ráðamanna kunni að koma.
Lögreglumenn sem leituðu hins
59 ára gamla, gráskeggjaða manns
eftir að eiginkona hans tilkynnti
hann týndan, greindu frá því í gær
að lík sem fannst nærri heimili vís-
indamannsins í Oxford-skíri virtist
vera af Kelly. Hafa þessar fréttir
dregið fram sorglegri hlið á hinu æ
ruglingslegra máli um það hvort
ráðamenn í Bretlandi hafi vísvitandi
slegið ryki í augu almennings hvað
varðar röksemdirnar fyrir því að
grípa til hernaðaríhlutunar í Írak.
Ekki var vitað í gær hvað hafði
dregið Kelly til dauða; hvort hann
hafði tekið eigið líf eða hvort hann
hafði dáið af eðlilegum orsökum.
Hörð rimma við BBC
Kelly var nýverið ýtt nauðugum
fram í sviðsljósið í tengslum við
deilu um það hvort ráðamenn í
Bretlandi hefðu slegið ryki í augu
almennings hvað varðaði röksemd-
irnar fyrir því að grípa til hern-
aðaríhlutunar í Írak. Var Kelly þá
nefndur af talsmanni ríkisstjórnar-
innar sem hugsanlegur heimildar-
maður umdeildrar fréttar sem
fréttamaður BBC, Andrew Gilligan,
flutti um Íraksmálið.
Stjórnendur BBC og ráðamanna í
Verkamannaflokknum brezka hafa
háð harða rimmu að undanförnu
vegna umræddrar fréttar, en í
henni var vitnað í ónafngreindan
heimildarmann sem sagður var hafa
átt þátt í að semja greinargerðir um
gereyðingarvopnaáætlun Íraka sem
brezk stjórnvöld birtu í aðdraganda
innrásarinnar.
Var haft eftir heimildarmannin-
um að stjórnin hefði vísvitandi ýkt
hættuna sem stafaði af gereyðing-
arvopnaáætlun ríkisstjórnar Sadd-
ams Husseins Íraksforseta.
Kelly var á þriðjudag stefnt sem
vitni fyrir rannsóknarnefnd brezka
þingsins um málið. Kelly hélt því
staðfastlega fram að hann væri ekki
heimildarmaðurinn sem vísað væri
til í BBC-fréttinni, en sumir með-
limir nefndarinnar beindu áleitnum
spurningum til hans og hlífðu hon-
um hvergi. Hann svaraði spurning-
unum þó af yfirvegun og virtist ekki
óstyrkur á taugum.
Undir miklu álagi
En náinn vinur Kellys sagði í gær
að eiginkona hans hefði orðið þess
vör að hann væri undir miklu álagi.
Ráðherrar í ríkisstjórninni höfðu
látið hafa eftir sér að þeir tryðu því
að Kelly væri heimildarmaður
BBC-fréttarinnar. Fréttamaðurinn
Gilligan hefur hafnað því að nefna
heimildarmann sinn, en varnar-
málaráðherrann Geoff Hoon sagði
að Kelly hefði gefið sig fram og
greint frá því að hann hefði þrívegis
átt fund með Gilligan á undanförn-
um mánuðum.
Segir Campbell af sér?
Eftir yfirheyrsluna á þriðjudag
ályktaði meirihluti rannsóknar-
nefndarinnar að það væri „mjög
ólíklegt“ að Kelly væri meginheim-
ildin fyrir frétt BBC. Og, eftir því
sem segir á fréttavef BBC, sögðu
nefndarmenn að Kelly hefði sætt
„illri meðferð“ af hálfu ríkisstjórn-
arinnar, en þeirri fullyrðingu vísaði
Hoon varnarmálaráðherra alger-
lega á bug. Donald Anderson, for-
maður nefndarinnar, neitaði því
jafnframt að Kelly hefði fengið
harkalega meðferð er hann kom
fyrir nefndina á þriðjudag.
Fréttaskýrendur telja að hin
hörmulegu örlög Kellys, reynist
rétt að hann sé látinn, verði óhjá-
kvæmilega til þess að gera málið
mun skaðlegra fyrir ríkisstjórn
Verkamannaflokksins en það þegar
var orðið. Adam Boulton, stjórn-
málaritstjóri Sky-sjónvarpsstöðvar-
innar, sagði að þetta myndi „nærri
því örugglega binda enda á feril
Alastairs Campbells,“ en Campbell
stýrir upplýsingamálaskrifstofu for-
sætisráðuneytisins og hafa ásakan-
irnar um að stjórnin hefði átt við
orðalag greinargerðanna um vopna-
eign Íraka aðallega beinzt að hon-
um. Deilurnar milli BBC og stjórn-
arinnar spruttu af frétt Gilligans og
harðri gagnrýni Campbells á hana.
Að mati Boultons kann málið líka að
kosta Hoon varnarmálaráðherra
embættið, en hann hafi greinilega
ýtt mjög á um að flett yrði ofan af
hinum ónafngreinda heimildar-
manni BBC.
Iain Duncan Smith, leiðtogi
brezka Íhaldsflokksins, sagði að
Tony Blair forsætisráðherra ætti að
taka alvarlega til athugunar að
stytta ferð sína til Austurlanda
fjær, en Blair og fleiri forystumenn
stjórnarinnar hófu opinbera heim-
sókn til Japans í gær.
Robert Jackson, þingmaður
Íhaldsflokksins úr kjördæminu þar
sem Kelly bjó, sagði að „ekki mætti
sleppa því að nefna ábyrgð BBC“ í
málinu.
Gífurlegt uppnám í Bretlandi vegna andláts sérfræðings í varnarmálaráðuneytinu
Hafði verið ýtt
nauðugum fram
í sviðsljósið
Reuters
Frá vettvangi í grennd við Oxford á Suður-Englandi þar sem lík manns
fannst í gær sem talið er vera af David Kelly, ráðgjafa brezku stjórn-
arinnar í efna- og sýklavopnamálum.
Lundúnum, Tókýó. AFP, AP.
FÁIR vissu hver David
Kelly var fyrir 9. júlí en
þann dag var hann hins
vegar nefndur til sög-
unnar sem hugsanlegur
heimildarmaður Andr-
ews Gilligans, frétta-
manns BBC, í frétt um að
fulltrúar ríkisstjórnar
Tonys Blairs hefðu átt við
gögn um hættuna sem
stafaði af meintum
gereyðingarvopnum
Íraka.
Kelly viðurkenndi að
hafa átt fundi með Gill-
igan í óleyfi. Hann neitaði hins vegar fyrir þingnefnd í vikunni að
hann væri heimildin fyrir frétt Gilligans.
Kelly hafði doktorsgráðu í örverufræði og vann lengi að rann-
sóknum í landbúnaðarvísindum. Naut hann virðingar á sínu sviði og
fór m.a. fyrir rannsóknarstofnun varnarmálaráðuneytisins í örveru-
fræði í Porton Down á árunum 1984 til 1992.
Kelly var aðili að vopnaeftirliti Sameinuðu þjóðanna í Írak á ár-
unum 1991 til 1998. Árið 1994 var hann gerður að aðalráðgjafa SÞ í
sýklahernaði í Írak og gegndi hann því starfi til 1999. Kelly hafði
komið til Íraks 37 sinnum vegna starfa sinna. Einnig kom hann að eft-
irliti með sýklavopnabúri Rússa á árunum 1991–1994.
Undanfarin ár hafði hann starfað í varnarmálaráðuneytinu breska
sem ráðgjafi stjórnvalda um gereyðingarvopn.
Kelly þótti hæglátur maður og telja menn að hann hafi ekki kunnað
að meta að vera skyndilega í sviðsljósinu. Var augljóst að hann var
ekki ánægður með hlutskipti sitt er hann kom fyrir þingnefnd í vik-
unni. Hann þótti þó svara spurningum nefndarmanna af yfirvegun.
Hann var 59 ára gamall.
David Kelly fyrir þingnefnd á þriðjudag.
Hæglátur vísindamaður
AP