Morgunblaðið - 19.07.2003, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 2003 45
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
KRABBI
Afmælisbörn dagsins:
Þú býrð yfir miklum þokka
og hefur sterkar tilfinningar
til ástvina þinna. Þú hefur
mikla löngun til þess að vera
sífellt að bæta þig.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Í dag er ekki ráðlegt að
ræða um persónuleg mál-
efni. Þú munt ekki fá þann
skilning og stuðning sem þú
býst við.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það er líklegt að einhver
misskilningur eigi sér stað í
samskiptum þínum við ann-
að fólk í dag. Nú er ekki
gott að taka mikilvægar
ákvarðanir.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú skalt forðast að taka
þátt í hvers konar samn-
ingaviðræðum. Það er ekki
allt eins og það sýnist vera í
dag.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú skalt eftir fremsta
megni reyna að forðast þá
freistingu að eyða pen-
ingum í munaðarvörur í
dag. Ef þú gerir svo muntu
sjá eftir því.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú ert ekki eins og þú átt
að þér að vera í dag og allt
er fremur ruglingslegt.
Þetta mun vera liðið hjá á
morgun.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Ekki vinna verk í dag sem
krefjast mikillar einbeit-
ingar eða hugsunar. Þú átt
það til að vera annars hug-
ar þessa stundina.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þetta er undarlegur dagur,
jafnvel þó þú skiljir aðra,
gæti þér skjátlast. Á þess-
um tíma er líklegt að reynt
sé að svindla á þér.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Misskilningur gæti átt sér
stað í vinnunni vegna þess
að þú skilur fyrirmæli ekki
nógu vel. Óskaðu eftir frek-
ari leiðbeiningum ef þess
þarf.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú finnur fyrir einhverju
yfirskilvitlegu í dag. Það
gæti verið raunin. Einnig
gæti þetta reynst vera tál-
sýn.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Ekki hafa trú á einhverju
sem tengist fjármálum í
dag. Þú getur treyst öðrum
en misskilningur getur
ávallt átt sér stað.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú gætir fundið fyrir kvíða
og óöryggi í dag. Í raun er
þetta vegna þess að þú
veist ekki hvað öðrum
finnst um þig. Slakaðu á.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Farðu tvisvar yfir verk þín í
vinnunni í dag. Villur og
mistök gætu hæglega átt
sér stað.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
ÁRNAÐ HEILLA
Ungum er það allra bezt
að óttast guð, sinn herra.
Þeim mun vizkan veitast mest
og virðing aldrei þverra.
Hafðu hvorki háð né spott,
hugsa um ræðu mína,
elska guð og gerðu gott,
geym vel æru þína.
Foreldrum þínum þéna af dyggð,
það má gæfu veita.
Varast þeim að veita styggð,
viljirðu gott barn heita.
Hugsa um það helzt og fremst,
sem heiðurinn má næra.
Aldrei sá til æru kemst,
sem ekkert gott vill læra.
- - -
Hallgrímur Pétursson.
LJÓÐABROT
HEILRÆÐAVÍSUR
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rd2 Be7
4. Rgf3 Rf6 5. e5 Rfd7 6. c3
c5 7. Bd3 Rc6 8. 0–0 a5 9.
He1 g5 10. h3 h5 11. g4 hxg4
12. hxg4 cxd4 13. cxd4 Db6
14. Rb1 Rxd4 15. Rc3 Hh3
16. Rh2 Rc6 17. Rb5 Rdxe5
18. Be3 d4 19.
Bxd4 Rxd4 20.
Hxe5 Bd7 21. Bf1
Staðan kom
upp í stórmeist-
araflokki á fyrsta
laugardagsmóti
sem lauk fyrir
skömmu í Búdap-
est í Ungverja-
landi. Jón Viktor
Gunnarsson
(2.411) hafði
svart gegn
Jennifer Shah-
ade (2.366). 21.
… Hg3+! 22.
fxg3 hvítur stæði
uppi með koltapað tafl eftir
22. Bg2 Bxb5. Eftir texta-
leikinn verður hann hins-
vegar mát. 22. … Re2+ 23.
Kg2 Bc6+ 24. Rf3 Hefði
hvítur haft skopskynið í lagi
hefði hann leyft svörtum að
máta sig með riddara á g1
með því að leika 24. Kh3
Rg1#! 24. … Dg1+ og hvít-
ur gafst upp enda mát eftir
25. Kh3 Dxg3#.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
70 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 19 júlí,
er sjötug Guðrún S.M. Hall-
dórsdóttir, Hátúni 12,
Sjálfsbjargarheimilinu
Reykjavík. Hún tekur á
móti gestum á milli kl. 14–17
á 5. hæð, Hátúni 12.
60ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 19. júlí,
verður sextugur Jóhann Ingi
Jóhannsson, verkstjóri, Fíf-
umýri 2, Garðabæ. Jóhann
Ingi og eiginkona hans, Ást-
hildur Einarsdóttir, taka á
móti gestum í Stjörnuheim-
ilinu Garðabæ, í dag, laug-
ardag, kl. 17–19.
GULLBRÚÐKAUP. Í dag, laugardaginn 19. júlí, eiga 50 ára
hjúskaparafmæli, hjónin Guðbjörg Guðmundsdóttir og Sæ-
mundur Helgason, bændur á Galtarlæk í Skilmannahreppi.
SPIL dagsins er gamall
flakkari. Sagan segir að
Frakkinn Henry Svarc hafi
unnið sex spaða við borðið,
en það telst gott ef lesand-
inn getur leyst spilið með
allar hendur uppi:
Vestur gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ Á432
♥ Á105432
♦ Á54
♣--
Vestur Austur
♠ 6 ♠ --
♥ 976 ♥ DG8
♦ 2 ♦ KD1098
♣KG986532 ♣ÁD1074
Suður
♠ KDG109875
♥ K
♦ G763
♣--
Vestur Norður Austur Suður
4 lauf Dobl 6 lauf 6 spaðar spaðar
Pass Pass Pass
Hvernig á að ná í tólf
slagi með tígultvistinum
út?
Hjartað fríast með einni
trompun, en vandinn er
innkomuleysið í borði.
Tígulásinn fer í fyrsta slag
og þá er aðeins ein inn-
koma eftir – spaðaásinn.
Hinir liðsmenn tromplitars-
ins eru of smáir.
Svarc fann lausnina við
borðið. Hann tók á hjarta-
kóng í öðrum slag, spilaði
spaðafimmu og gaf vestri
slaginn á spaðasexuna! Þá
varð vestur að útvega inn-
komuna sem vantaði.
Nokkuð óvenjulegt:
Sagnhafi á öll trompin
nema sexuna, en eina leiðin
til vinnings er að gefa slag
á tromp.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
Samkvæmisveski og spariskór
Bankastræti 11 • sími 551 3930
A
1
#
!
# $ "G
!
" # <$# " -
?1
F ! '
#
$F
$ ?. @ '" #< F @
8 *' $
#" 8 8' @
1 )L '# #*
$C" F$#
B E
'
#" ,< '" #
#
$F$# " # M8 ' #
#
$?:
!
1#
"1 & " *
$#'
"
#
E# # G
G-N;:9-;;
$ E"
F
N;;;'##
>
# ! E#
E# ! #
' #
F "
#
$E"
'
3 0 & *.0 'KF<'8:
$'
$<
"'1 :
#" #'*
'7#
'
$'F
$
1
$
$
2
% $ 3 &/1 5***64
788 9788 :: ) $- 788 ;
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmæl-
istilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100, sent
í bréfsíma 569-1329, eða
sent á netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
Þar munaði mjóu!
FRÉTTIR
RÍFLEGA 30 krakkar frá Hólmavík
og nágrenni tóku þátt í Búnaðar-
bankamótinu í knattspyrnu í Borgar-
nesi í lok síðasta mánaðar. Eins og oft
áður sameinuðu lið Kormáks á
Hvammstanga og Geislans á Hólma-
vík krafta sína og að þessu sinni kom
hópurinn heim með einn bikar, en 4.
flokkur drengja fór með sigur af
hólmi eftir spennandi keppni. 5. flokk-
ur lenti í næstneðsta sæti, 6. flokkur í
9. sæti og 7. flokkur í 5. sæti. Í keppni
stúlkna átti Geislinn/ Kormákur lið í
4. flokki sem hafnaði í 5. sæti. Hóp-
urinn var sem áður segir stór og gisti
ýmist í tjöldum eða skólaselinu í
Borgarnesi. Veður var ágætt til að
byrja með en tók fljótlega að rigna og
varð ekkert lát á. Engu að síður
skemmti hópurinn sér vel og var að
vonum ánægður með frammistöðuna.
Góð frammistaða Geisl-
ans á Búnaðarbankamóti
Hólmavík. Morgunblaðið.
RAUÐAKROSSDEILD Eskifjarðar
færði nýlega Eskifjarðarsókn líkbíl
að gjöf. Hér sést Árni Helgason,
formaður deildarinnar, afhenda
Georg Halldórssyni, formanni
sóknarnefndar, bifreiðina.
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Rauðakrossdeild Eskifjarðar færði nýlega Eskifjarðarsókn líkbíl að gjöf.
Hér sést Árni Helgason formaður deildarinnar afhenda Georg Halldórs-
syni, formanni sóknarnefndar bifreiðina.
Höfðingleg gjöf
Rauðakrossdeildar
Eskifirði. Morgunblaðið.
HINN 17. júlí sl. um kl. 9 varð
árekstur á gatnamótum Kringlu-
mýrarbrautar og Suðurlandsbraut-
ar. Um var að ræða grænan Mitsub-
ishi Galant og hvítan Mitsubishi
Colt. Ágreiningur er um stöðu um-
ferðarljósa. Þeir sem upplýsingar
gætu gefið um umferðaróhappið eru
beðnir að hafa samband við lögregl-
una í Reykjavík.
Vitni óskast