Morgunblaðið - 19.07.2003, Blaðsíða 52
52 LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 4, 6 og 8.
Sýnd kl. 4.10, 6.10, 8.10 og 10.10. B i. 12 Sýnd kl. 4, 7 og 10.
with english subtitles
Sýnd kl. 3.50. Ensk. texti
Fyndnasta Woody Allen myndin til þessa.
Sjáið hvernig meistarinn leikstýrir stórmynd
frá Hollywood blindandi.
Mike Clark/
USA TODAY
Peter Travers
ROLLING STONE
i l
I
Sýnd kl. 5.30 og 8. B.i. 12
YFIR 42.000 GESTIR!
GH
KVIKMYNDIR.COM
"Besta hasarmynd
sumarsins það
sem af er"
t r
r i
f r"
„Líklegast best heppnasta
ofurhetjumynd allra tíma!
Sá græni rokkar.“
B.Ö.S. Fréttablaðið
í l
j ll í !
i .
. . . l i
KVIKMYNDIR.IS
SG. DV
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B i. 12
X-IÐ 97.7
DV
KVIKMYNDIR.COMKVIKMYNDIR.IS
ÓHT Rás 2
HL MBL
SG DVRoger Ebert
Miðaverð kr. 800.
FRUMSÝNING
Sýnd kl. 4.
Sýnd kl. 10. Bi.14.
SG. DV
AKUREYRI
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.
KRINGLAN
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 1.45, 3.45, 5.50, 8 og 10.10.
FRUMSÝNING
Það er erfitt að falla inn í hópinn þegar
þú skerð þig svona hrikalega úr
Rómantísk gamanmynd með Amanda Bynes og ColinFirth
(Bridget Jones´s Diary)
ÞAÐ er ekkert smáræðis-tækifæri fyrir svo gottsem óþekkta leikkonu aðfá hlutverk í Tortímanda-
mynd. Þetta upplifir hin 23 ára
gamla Kristanna Loken þessa dag-
ana, fyrrverandi fyrirsæta sem ein-
ungis hóf leikferil sinn í kvikmynd-
um fyrir þremur árum og hefur
komið fram í þremur öðrum en lítt
þekktum myndum.
Loken segist í hreinskilni alveg
eins hafa búist við því að stóra
tækifærið byðist á þessum tíma-
punkti í lífi sínu. Hún hafi verið
búin að stefna að því í hartnær tíu
ár, með því að fara með smærri
hlutverk í sjónvarpi og bíómynd-
um. „Ég leit alltaf á það sem skóla
og undirbúning fyrir eitthvað
stærra. Pabbi hefur líka alltaf sagt
við mig að þegar stóra tækifærið
kæmi, þá bara kæmi það. Mér
fannst ég í það minnsta alveg klár
í slaginn þegar kallið kom og mér
fannst ég líka alveg hafa unnið fyr-
ir því.“
Loken var svo gott sem óþekkt
andlit þegar hún birtist manni á
skjánum sem nýjasta vélmennið í
bransanum, hin illskeitta og ofur-
fullkomna Terminatrix, eða TX
eins og drápsvélin sú er oftast köll-
uð. „Ég held að leikstjórinn
(Jonathan Mostow) hafi viljað fá
óþekkt andlit í hlutverkið. Ein-
hvern sem áhorfandinn gat helst
ekki tengt við neitt annað og hugs-
að því með sér að hún hlyti því
bara að vera vélmenni í alvörunni,“
segir Lokenog hlær.
Loken segir það auðvitað hafa
verið yfirþyrmandi tilfinningaríkt
augnablik fyrir sig er henni voru
færð tíðindin um að hún myndi
leika á móti risastjörnunni Arnold
Schwarzenegger í einhverri dýr-
ustu stórmynd bíósögunnar. „En
ég var algjörlega tilbúin. Því ekki,
áskoranir eru mér að skapi!“
Hún segist heldur ekki hafa átt-
að sig almenninlega á því hvað hún
væri að fara út í, ekki fyrr en hún
mætti sjálfum manninum á fyrsta
vinnudegi, tortímandanum eina
sanna, Arnold.
„Það var ótrúlega fjarstæðu-
kennt augnablik að sjá hann fyrst
auglitis til auglitis og það sem mót-
leikara. Og ég hugsaði bara með
mér: „Guð minn góður, þetta er
Arnold og ég á eftir að vinna með
honum á hverjum degi næstu sex
mánuðina.“ Í fyrsta atriðinu sem
við lékum saman í þá átti ég ofan á
allt saman að lumbra á honum! Þá
reyndi aldeilis á leikhæfileikana og
sjálfstraustið – maður lifandi!“
Aðspurð hvernig allur hama-
gangurinn í kringum svona sumar-
stórmynd leggist í hana, öll þessi
auglýsingaherferð, öll athyglin,
sagðist Loken vera spennt, „en um
leið alveg skíthrædd.
En hún segist ekkert hafa á móti
því að kynna myndina og veita við-
töl þess vegna. „Þegar maður er
búinn að leggja svona mikla vinnu í
eitthvað þá vill maður fylgja því al-
mennilega eftir og klára það með
stæl.“
Aðpurð hvort hún vitið hvað það
hafi verið við hana sem færði henni
hlutverkið, segist hún aldrei hafa
fengið það almennileg á hreint
sjálf. „Ætli ég hafi bara ekki náð
svona góðu sambandi við þetta
hlutverk, vélmennið TX og Mostow
komið auga á það. Hann bar alla-
vega fyllsta traust til þess sem ég
var að gera, allt frá fyrsta töku-
degi.“
Loken segist alltaf hafa verið
mjög hrifin af því hvernig Robert
Patrick fór með hlutverk sitt í T2
en þar lék hann samskonar
hlutverk og Loken, fullkominn
tortímanda, algjörlega svip- og
vægðarlausan. „Kannski var ég
undir beinum áhrifum frá honum,
ómeðvitað. Við skulum segja að
hann hafi gefið mér hugmynd um
hvernig túlka ætti vélmenni.“
Hún segist hafa verið mjög hrif-
in af fyrri myndunum, sérstaklega
T2 og hvernig Robert Patrick ger-
breytti þeirri mynd með þessari
ógnvekjandi drápsvél sem hann
skapaði.
Og hún kveðst vel meðvituð um
þá pressu sem hvílir á henni og
öðrum er að þessari þriðju mynd
koma, þær ógurlegu væntingar
sem aðdáendur fyrri myndana gera
til hennar. „Ég reyndi samt að
leiða það hjá mér á meðan á gerð
myndarinnar stóð. Núna er ég hins
vegar farin að finna óþægilega
mikið fyrir þessum þrýstingi, þeg-
ar ég er farin að umgangast alla
þessa aðdáendur. Þetta eru ótrú-
lega vinsælar myndir! Vonandi höf-
um við ekki valdið vonbrigðum. Ég
held við höfum ekki gert það.“
Þokkafull drápsvél
Og Loken segist vinsælli núna
en nokkru sinni fyrr hjá hinu kyn-
inu. Ekki vegna þokkans, aldrei
þessu vant, heldur vegna þess að
nú er hún orðinn drápsvél, sem
náttúrlega er ennþá girnilegra í
augum hasarmyndaóðra ungra
manna. „Ég hef verið toguð til í
allar áttir, sagt að gera hitt en
ekki þetta. Maður verður bara að
treysta eigin eðlishvöt undir slíkum
kringumstæðum.“
Loken segir TX vera ansi hreint
illskeytt vélmenni. „Hún notar
kvenleika sinn út í ystu æsar, og
þegar hann blandast saman við alla
tæknilegu eiginleikana og vægðar-
leysið þá erum við aldeilis að tala
um óviðráðanlega drápsvél get ég
sagt þér.“
Hún segist líka hafa skemmt sér
konunglega við að leika það og að
hún hafi alltaf vitað að hlutverk í
hasarmyndum myndu eiga vel við
hana. „Ég hef alltaf verið mikið
fyrir hreyfingu og alls kyns
íþróttaiðkun þannig að þessi hlut-
verk sameina vel vinnu mína og
frístundagaman.“
Hlutverkið kallaði á gríðarlega
undirbúningsvinnu, segir Loken.
Hún þurfti að bæta á sig vænum
skammti af vöðvum en segist bless-
unarlega hafa verið laus við mikla
förðun.
Langar að djamma
í Reykjavík
Mikið hefur verið fjallað um
uppruna nýja vélmennisins en það
á ættir að rekja til Noregs.Loken
segist því líta á sig sem norska
enda séu norskir hættir hafðir í
heiðri á heimili hennar. Hún segist
sannarlega hafa fundið fyrir aukn-
um áhuga í Noregi á sér eftir að
fréttist að hún myndi leika í T3.
„Allt í einu á ég orðið helling af
aðdáendum í Noregi og fjölmiðlar
þar fylgjast mjög, mjög grannt
með mér þessa dagana,“ segir hún
og hlær. „Og ég skil það vel. Ann-
ars hefur mig alltaf dauðlangað til
að koma til Íslands. Mér hefur ver-
ið sagt að næturlífið í Reykjavík sé
nefnilega verulega líflegt.“
Hún tekur loforð blaðamanns um
að koma við og sannreyna það
næst þegar hún sækir heim ætt-
ingja sína í Noregi, sem hún segist
gera annað veifið en þó alls ekki
nógu oft.
Norski
tortímandinn
Hún er fyrrum fyrirsæta, er af norskum
ættum og nýjasta vélmennið sem hefur
þá dagskipun að tortíma öllu, einkum þó
og sér í lagi John nokkrum Connor.
Skarphéðinn Guðmundsson ræddi við
hina 23 ára gömlu Kristönnu Loken. Loken sem vélmennið válega í Tortímandanum. „Áskoranir eru mér aðskapi!“ segir hún m.a. í skemmtilegu spjalli við Morgunblaðið.
Sýningar á T3: Upprisu vélanna
eru hafnar hérlendis.
skarpi@mbl.is