Morgunblaðið - 22.07.2003, Side 14
ERLENT
14 ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BRESKIR fjölmiðlar réðust harka-
lega gegn breska ríkisútvarpinu
BBC í gær eftir að það staðfesti á
sunnudag að dr. David Kelly hefði
verið meginheimild vegna fréttar um
að bresk stjórnvöld hefðu „ýkt“
skýrslu um vopnabúnað Íraka til að
réttlæta stríð gegn landinu. Andrew
Gilligan, blaðamaður BBC og höf-
undur fréttarinnar, sagði í tilkynn-
ingu af því tilefni: „Ég vil að það sé
ljóst að ég hafði hvorki rangt eftir dr.
David Kelly né var með rangfærslur
um hann.“
Að því er kemur fram í hinu
vinstrisinnaða breska dagblaði The
Guardian í gær hafnaði BBC boði um
að ljúka deilunni við ríkisstjórnina
vegna fyrrnefndrar fréttar áður en
Kelly dróst inn í hana. Þannig kaus
BBC að velja ekki málamiðlunarleið-
ina vegna þess að stöðin var stað-
ráðin í að gefa ekkert eftir. Í öðru
vinstrisinnuðu dagblaði, Daily Mirr-
or, kom fram að það hvernig frétta-
stöðin varði Gilligan og staðhæfði að
Kelly væri heimildarmaður hans
benti til þess að hún væri að væna
hinn látna um lygar. Þá sagði í leið-
ara The Sunday Times: „Hann
[Kelly] var, án þess að vilja það sjálf-
ur, peð í leik breska forsætisráðu-
neytisins og BBC og það virðist hafa
gert hann örvinglaðan. Þessi leikur
snerist, þar til sl. föstudag, um
mannorð. Nú snýst hann um líf og
dauða og allir þeir sem hlut eiga að
máli – forsætisráðuneytið, varnar-
málaráðuneytið, hin óvenju fjand-
samlega þingnefnd og BBC – ættu
að skammast sín ...“
Robert Jackson, þingmaður kjör-
dæmis Kellys, hefur krafist afsagnar
Gavyns Davies, stjórnarformanns
BBC, vegna málsins auk þess sem
hann hvatti Greg Dyke, fram-
kvæmdastjóra stöðvarinnar, til að
„hugleiða stöðu sína“.
Blair fellur mjög í áliti
Málið hefur þegar skaðað pólitískt
orðspor Tonys Blairs, forsætisráð-
herra landsins, og sýna niðurstöður
nýrrar skoðanakönnunar að 39%
Breta telja að hann ætti að segja af
sér. Þá segja 59% forsætisráð-
herrann hafa fallið í áliti vegna máls-
ins og 50% segja hið sama um varn-
armálaráðherrann, Geoff Hoon.
Jafnframt telja 47% Breta að ríkis-
stjórnin beri ábyrgð á dauða Kellys.
Clare Short, fyrrum ráðherra þró-
unaraðstoðar í bresku stjórninni,
sem sagði af sér vegna þess að hún
taldi Blair hafa beitt sig blekkingum
í Íraksmálinu, hélt því fram í gær að
árásir á BBC væru notaðar til að
beina athyglinni frá „spurningum
um það hvers vegna við tókum þátt í
stríðinu í Írak“.
Robin Cook, fyrrum utanríkisráð-
herra Bretlands, sem einnig sagði af
sér vegna Íraksmálsins, lét hafa eftir
sér í blaðinu The Independant að op-
inber rannsókn ætti að fara fram
ekki einungis á dauða Kellys, heldur
einnig á réttlætingu stjórnarinnar á
Íraksstríðinu. „Bretland á jafnframt
skilið virðulegri stjórnmál og þrosk-
aðri fréttaflutning af pólitík,“ sagði
hann ennfremur.
Asíuför Blairs lýkur á fimmtudag
en hann er nú staddur í Kína. Hann
átti fund með breskum fjárfestum í
Peking í gærmorgun en vildi ekki
svara spurningum fjölmiðla. Málið er
það erfiðasta sem Blair hefur þurft
að svara fyrir í sex ára stjórnartíð.
Breskir fjölmiðlar
harðorðir í garð BBC
Reuters
Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, tekur á móti Tony Blair í Peking í gær.
London. AFP.
39% Breta vilja að Tony Blair segi af sér vegna dauða Davids Kellys
BRESKA útvarpið, BBC, hefur frá upphafi notið
virðingar um heim allan og hefur skapað sér afar
jákvætt orðspor. Hins vegar hefur fréttastofan
skapraunað ráðamönnum, úr hvaða flokki sem
þeir hafa komið, frá því hún var stofnuð árið 1922.
Þannig hefur BBC löngum verið í erfiðri aðstöðu
enda er stöðin rekin með afnotagjöldum sem
breskum skattborgurum er skylt að greiða en um
leið leggur hún áherslu á eigið sjálfstæði. BBC
átti fyrst í útistöðum við ríkisstjórnina aðeins
áratug eftir að útsendingar hófust.
Síðan hafa ráðherrar ríkisstjórnarinnar hirt
stöðina ýmist fyrir að aðhyllast róttæka vinstri-
stefnu eða fyrir að vera þvermóðskufull í hægri-
sjónarmiðum, allt eftir því á hvorum pólitíska
ásnum stjórnin hefur verið hverju sinni. Þetta
samræmist þó engan veginn orðstír BBC erlend-
is en þar hefur nákvæmur og varfærinn frétta-
flutningur stöðvarinnar skapað henni virðingu,
sérstaklega fólks sem ekki heyrir óhlutdrægar
fréttir í heimalöndum sínum.
Vilja stýra fréttaflutningnum
Að sögn Rod Allen, prófessors í blaðamennsku
við London City University vilja breskir stjórn-
málamenn, fremur en nokkuð annað, geta stýrt
BBC. „Þeir geta keypt velvilja eigenda dagblað-
anna með pólitískum greiðum en BBC er stjórn-
málamönnum ofviða og það þola þeir alls ekki,“
segir hann. Hin bitra deila sem BBC á nú í við rík-
isstjórnina vegna skýrslu um gereyðing-
arvopnaeign Íraka sem fréttastöðin segir stjórn-
ina hafa ýkt til að færa rök fyrir Íraksstríðinu,
breyttist í liðinni viku í harmleik er heimild-
armaður BBC, David Kelly, svipti sig lífi. Þrátt
fyrir þá miklu gagnrýni sem nú beinist að BBC
vegna þáttar stöðvarinnar í harmleiknum eru
þetta þó ekki erfiðustu tímar sem stjórnendur rík-
isútvarpsins hafa gengið í gegnum. Þannig var rík-
isstjórn íhaldsmanna árið 1956 verulega óánægð
með umfjöllun BBC um Súez-deiluna og Margaret
Thatcher, fyrrum forsætisráðherra, var mjög ósátt
við umfjöllun ríkisútvarpsins um Falklandseyjastr-
íðið árið 1981 sem og verkfall breskra námaverka-
manna 1984. Ennfremur hlaut fréttastofan gagn-
rýni fyrir umfjöllun sína um stríðið við Persaflóa
árið 1991 og Kosovo 1999. „Þessi nýjasta deila er
ekkert frábrugðin hinum,“ sagði Allen í gær. „BBC
móðgar alltaf stjórnvöld óháð því hvaða flokkur er
við völd.“ Áhrifamiklir þingmenn Verkamanna-
flokksins hafa krafist þess að stjórn breska rík-
isútvarpsins verði leyst upp og að fréttastöðinni
verði héðan í frá stjórnað frá fjarskiptaráðuneyt-
inu. Að mati Allens myndi BBC þannig missa sér-
stæða stöðu sína og slíkar aðgerðir því ekki ákjós-
anlegar. BBC er eini fjölmiðillinn á Bretlandi sem
ekki er rekinn með tekjum af auglýsingum.
Áratuga útistöður BBC og breskra stjórnvalda
London. AFP.
BRESKI rithöfundurinn Jeffr-
ey Archer var látinn laus úr
fangelsi í gær en þá hafði hann
afplánað tvö ár
og tvo daga af
alls fjögurra
ára dómi. Var
hann dæmdur
fyrir meinsæri,
fyrir að hafa
logið í máli,
sem hann höfðaði gegn dag-
blaðinu Daily Star 1987. Hélt
blaðið því fram, að hann hefði
greitt fyrir þjónustu vændis-
konu, sem síðar reyndist rétt,
en Archer lávarður neitaði því
og fékk blaðið dæmt til að
greiða honum miklar skaða-
bætur. Archer var í svokölluðu
opnu fangelsi og var oft í frétt-
um meðan hann sat inni og
gerðist raunar sekur um brjóta
fangelsisreglurnar. Gerði hann
það m.a. með því að taka þátt í
veislu á heimili eins fyrrver-
andi ráðherra Íhaldsflokksins.
Aralvatn horf-
ið eftir 15 ár
FRAM kemur í nýrri rann-
sókn, að Aralvatn, fjórða
stærsta vatn í heimi, verði að
mestu horfið eftir 15 ár, miklu
fyrr en áður hafði verið talið.
Má rekja örlög þess til ákvarð-
ana Sovétstjórnarinnar á sjötta
og áttunda áratug síðustu ald-
ar en þá var hafist handa við
mikla baðmullarrækt í Mið-As-
íu og við hana notað vatnið í án-
um, sem í það renna. Aralvatn
er nú aðeins fjórðungur af fyrri
stærð og hefur skipst upp í tvö
vötn, mjög seltumikil. Af vatns-
botninum, sem áður var,
standa saltstormar og hafa þeir
valdið sjúkdómum í fólki og
eyðilagt stór landbúnaðarhér-
uð. Áætlað er, að dag hvern
rjúki 200.000 tonn af salti og
sandi yfir land í 300 km radíus
frá vatninu.
Hitar í
Þýskalandi
MIKLIR hitar hafa verið í
Þýskalandi að undanförnu og á
sunnudag sýndi mælirinn 37,9
gráður á celsíus í Karlsruhe og
37,7 gráður í Mannheim. Hit-
unum hafa fylgt þrumuveður
og eldingar, sem valdið hafa
nokkrum eldsvoðum.
Hótel Moskva
rifið og reist
YFIRVÖLD í Moskvu hafa
ákveðið að rífa eitt kunnasta
mannvirki borgarinnar, Hótel
Moskvu, og reisa það aftur, að
mestu leyti í sömu mynd. Hót-
elið var reist 1935 og stundum
hefur verið sagt, að ekki þurfi
vodka til, nóg sé að horfa á það
litla stund til að verða sér úti
um timburmenn. Er ástæðan
sú, að álmurnar tvær, hvor sín-
um megin við miðbygginguna,
eru ekki alveg samhverfar. Er
önnur með stórum gluggum og
skreytingum en hin með litlum
gluggum og látlausum. Það
kom þannig til, að arkitektinn
skilaði teikningunni þannig og
ætlaðist til, að Stalín veldi aðra
hvora útfærsluna. Hann sam-
þykkti hins vegar bara teikn-
inguna eins og hún kom fyrir
og þar sem enginn þorði að
andæfa einræðisherranum, var
húsið byggt í tvenns konar stíl.
STUTT
Jeffrey
Archer lát-
inn laus
BANDARÍSKUR hermaður virðir
fyrir sér leifarnar af herjeppa sem
eyðilagður var í sprengjuárás
íraskra harðlínumanna norður af
Bagdad í gær. Einn Bandaríkjamað-
ur lést í árásinni og einn íraskur
túlkur Bandaríkjahers. Þá særðust
þrír til viðbótar í árásinni. Setið var
fyrir Bandaríkjamönnunum þar sem
þeir komu akandi á fararskjótum
sínum og sprengja síðan sprengd
með fyrrgreindum afleiðingum.
AP
Tveir féllu í árás í Írak
EINN af þingmönnunum sem tók
þátt í yfirheyrslunni yfir dr. David
Kelly, efnavopnasérfræðingnum
breska sem svipti sig lífi fyrir helgi,
hefur beðist afsökunar á því hversu
fast var sótt að Kelly er hann kom
fyrir þingnefnd á þriðjudag í síðustu
viku.
„Ég harma mjög dauða Kellys. Ég
biðst afsökunar á því að hafa hugs-
anlega valdið honum hugarangri, þó
að það hafi verið óviljandi, með
spurningum á fundi utanríkismála-
nefndar,“ sagði þingmaðurinn,
Andrew Mackinlay, í yfirlýsingu sem
hann gaf frá sér um helgina.
Vottaði Mackinlay eiginkonu
Kellys og fjölskyldu samúð sína en
mörgum þótti þingmaðurinn býsna
hvass í tóni í spurningum sínum til
Kellys.
Breska útvarpið, BBC, hefur stað-
fest að Kelly var heimildarmaður fyr-
ir frétt um að bresk stjórnvöld hefðu
átt við skýrslu um vopnabúnað Íraka
til að réttlæta stríð gegn landinu.
Þingmað-
ur biðst
afsökunar
London. AFP.