Morgunblaðið - 22.07.2003, Side 25

Morgunblaðið - 22.07.2003, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚLÍ 2003 25 ór leggur í þann slag enda tsýnisins og verðráttunnar aldi í Reykjavík. Og auðvit- þröskuldarnir eftir r misvel að komast yfir sínu sem þó eru ekki nærri ær sem mæta Ástþóri á m. Hann segist vera kom- íkamlega enda alltaf verið aðið af sér flestar pestir. ndurhæfingin er eftir; að ð sem ég ætla mér að gera í Hæstu þröskuldarnir eru ir. Það eru allar þessar sjá þá fram á hvort ég geti hagslega. Það er svo margt sar breytingar hér heima ð sem ég þyrfti helst að haustannir. Ég geri ekk- mið er frost og snjóar. Ég tölulega fljótur að átta mig gera og hvernig.“ kennir að kvíða fyrir ein- ns þar sem enginn jeppi er g verð að vera þannig a sótt læknisþjónustu og einu sinni til tvisvar í viku á g jafnvel suður. Það segir sig sjálft að ég treystist ekki að komast hér upp og niður Bjarngötudal á fólksbíl. Það hefur ekki verið framkvæmanlegt hingað til þó ég hafi getað mokað mig áfram. Það er liðin tíð.“ Hann segir símasamband líka mjög ótryggt og línuna á bæina við Rauðasand lélega. „Þó svo ég myndi bregða búi og vildi mennta mig eða vinna störf í gegnum tölvu þá væri það ekki mögulegt eins og staðan er í dag. Ég er sambandslaus þannig líka.“ Teiknar og smíðar „Ég hef komið að mörgu þó ég hafi ekki menntað mig í neinu. Ég hef haft mikla ánægju af því að teikna og mála,“ segir Ástþór. „Eins hef ég töluvert stundað smíðar bæði með tré og járn. Ég hef verið í viðgerðum og þvíumlíku. Við margt slíkt get ég auðvitað dundað mér. Það kallar á nýbyggingu því þetta vélarhús er að fara í veðrið og þar fyrir utan er aðgengið þann- ig að ég kemst þangað ekki í hjólastóln- um. Það eru bremsur þar líka.“ Þótt Rauðasandur sé afskekktur þá hefur ferðamannastraumur þangað aukist mikið. „Ég gæti kannski nýtt þennan ferðamannastraum sem fer sífellt vax- andi. Það er eins með það, það er engin aðstaða fyrir hendi. Það er í raun og veru sama hvað ég get tekið mér fyrir hendur, það kostar allt ýmist breytingar eða ný- byggingar. Ég verð því að vega þetta og meta í framhaldinu, hvað væri hagkvæm- ast að taka sér fyrir hendur.“ Þegar talið berst að búskap kemur í ljóst að Ástþór hefur mjög afdrátt- arlausar skoðanir á landbúnaðarpólitík- inni. „Ég er ekkert skoðanalaus í pólitík frekar en öðrum sviðum. Í því sauðahúsi mætti nú taka ansi vel til að mínu mati. Ég held að stjórnmálamenn hefðu mjög gott af því að gerast bændur, sérstaklega sauðfjárbændur, í eitt til tvö ár, og reyna að lifa á því.“ Sjálfur segist hann ekki vera með rík- isreknar rollur eins og hann kallar þær. Hann framleiðir kindakjöt án þess að eiga kvóta og er algjörlega bundinn sölumálum með sínar afurðir. Vitlaust styrkjakerfi „Að mörgu leyti hefur ríkisvaldið full mikil afskipti af landbúnaði. Ég held að það sé eins með landbúnaðinn og hvert annað fyrirtæki, það verður að vera hægt að reka þetta á eigin forsendum. Þetta styrkjakerfi allt saman finnst mér að mörgu leyti mjög vitlaust.“ Hann segir nýjustu tískuna vera skóga- bændur. Óhemju fjármagni sé ausið í skógrækt þó hægt sé að nýta landið til annarra hluta betur. „Tré er miklu hag- kvæmara að rækta annars staðar í heim- inum,“ segir hann yfirvegað. „Það gerist enginn bóndi til að verða ríkur. Hins vegar má segja að bændur eru ríkir af svo mörgu öðru en endilega fjár- magni. Ég myndi alla vega ekki vilja skipta á minni reynslu og því lífi sem ég lifi fyrir nokkurn pening. Það myndi ég aldrei gera. Það hefur verið mér alveg ómetanlegt að geta búið hérna. Þess vegna þrjóskast maður við og vill halda því áfram,“ segir Ástþór. Vilja styrkja Ástþór Hann segir margt hafa hjálpast að við að koma honum yfir líkamlega og andlega hjallann í lífinu í kjölfar slyssins. „Ég held að það sé einna helst þessi þrjóska og þvermóðska; að gefast aldrei upp. Það hefur hjálpað mér mikið. Svo hef ég líka átt góða að. Það er fólk sem hefur hlaupið í skarðið fyrir mann og reddað hlutunum. Það voru bæði vinir og ættingjar sem komu og sáu um störfin.“ Ættingjar og vinir Ástþórs hafa líka opnað reikning á hans nafni í Sparisjóði Vestfirðinga á Patreksfirði. Þeir sem vilja styðja við bakið á honum honum leggja inn á reikning 1118-05-401445 og kenni- tala Ástþórs er 200773-4979. Ástþór segist ekki hafa orðið reiður eða ásakað sjálfan sig eftir slysið. Í fyrstu hafi sér vissulega þótt tilgangur með lífinu lít- ill. Hann hafi lifað fyrir að ganga á fjöll. En þar sem hann fór ekki alveg síðasta vetur sé einhverjum verkefnum ólokið hér á jörðu. Því trúir hann og lærir að sætta sig við aðstæður. „Það þýðir ekkert ann- að. Ég get ekki breytt hlutunum úr því sem komið er. Það verður að reyna að gera það besta úr því sem maður á eftir. Ég stefni á það.“ Morgunblaðið/Björgvin Guðmundsson on segir að fyrst hafi sú hugsun sótt að honum að betra hefði verið að fá að fara. Þegar hann fékk fréttirnar um að eftir að ganga aftur fannst honum allt sem var einhvers virði farið. „En það er það náttúrulega ekki. Ég hef yrir þó að ég sé lamaður.“ út af fjallvegi er kominn aftur heim á Melanes á Rauðasandi u leið sína á Rauðasand fyrsta daginn eftir að Ástþór Skúlason kom ar fallegt og þá sækir fólk á Rauðasand í sandinn og sjóinn. Ástþór g spurðu margir um staðhætti og hvar best væri að labba eða keyra. m bæjarhlað Melaness, bæ Ástþórs, þegar sögufrægt eyðibýli sem er skoðað. Þar voru framin tvö morð árið 1802 og voru Bjarni Steinunn Sveinsdóttir dæmd til dauða fyrir að hafa myrt maka sína. arsson gerði morðin víðfræg í skáldsögu sinni Svartfugl. r dregur nafn sitt ekki af rauðum skeljasandi eins og margir halda aldið fram í alfræðibókum. Sandurinn dregur nafn sitt af Ármóði hin- bjarnarsyni sem nam Rauðasand. Þetta kemur meðal annars fram í segir Ástþór að fyrst hafi þetta heitir Rauðssandur. r er að stórum hluta hörpudiskur en kúskel er að finna í bland að Grunnt fyrir framan sandrifið er hlein eða klettabelti sem liggur ströndinni. Þar sem þetta er opið úthafinu mylur sjórinn skeljarnar á ndurinn berst upp á land og lokast þar af. gjahvítuefni er í sandinum og gæsir sækja í hann. Fé sækir þangað þór segir selina í húsdýragarðinu veidda á sandinum. Á laugardaginn n hóp sela sóla sig á sandinum. Landselur kæpir þarna á vorin og seg- ðeins hafi borið á útsel á haustin. óður nam Rauðasand ÁÆTLANIR Bush-stjórnarinn-ar um að flytja síðustu árás-arþoturnar frá Íslandi hafamætt mikilli andstöðu ís- lenskra stjórnvalda og gætu stefnt í hættu samskiptum [Bandaríkjanna] við enn eitt bandalagsríkjanna í NATO. Embættismenn í Pentagon [varnar- málaráðuneytinu bandaríska] staðhæfa að engin þörf sé lengur fyrir það að þot- urnar, sem fyrst var komið fyrir á Íslandi fyrir fjórum áratugum til að verja Norð- ur-Atlantshafið fyrir hættunni sem staf- aði af Sovétríkjunum, séu til staðar á Ís- landi og segja að þær komi í betri þarfir annars staðar. Íslendingar, sem engan her hafa, líta hins vegar svo á að þoturnar séu bráðnauðsynlegar fyrir loftvarnir landsins og, það sem meira er, séu tákn um þá skuldbindingu Bandaríkjanna að verja landið. Það hefur sett Íslendinga í jafnvel enn meira uppnám hvernig stjórnvöld í Wash- ington hafa haldið á málinu. Stjórnvöldum í Reykjavík var tilkynnt um það snemma í maí að Bandaríkin hefðu ákveðið að flytja vélarnar á brott – örfáum dögum áður en háðar voru tvísýnar þingkosningar. Olli sú tímasetning því að George Ro- bertson, framkvæmdastjóri NATO, blandaði sér í málið og hvatti Bush-stjórn- ina til að hætta við þá ákvörðun að flytja vélarnar á brott í júní, sem hún síðan gerði. „Hann [Robertson] hringdi og sagði: Í guðanna bænum, þetta er ekki rétti tím- inn til að gera svona lagað,“ sagði emb- ættismaður hjá NATO. Hvað varðar fjölda starfsfólks og um- fang tækjabúnaðar eru áætlanir varðandi varnarstöðina á Íslandi aðeins lítill hluti viðamikilla áætlana um liðsflutninga á vegum Bandaríkjahers víðs vegar í heim- inum sem Pentagon hefur ákveðið að hrinda í framkvæmd í viðleitni til að hverfa frá viðbúnaði er miðaðist við að- stæður kalda stríðsins til viðbúnaðar sem betur er fallinn til þess að takast á við hryðjuverkaógnina. Þetta tiltekna dæmi varpar hins vegar einnig ljósi á það hvern- ig umræddar breytingar hjá Bandaríkja- her geta komið þjóðum sem hýst hafa bandaríska varnarstöð í uppnám og verið andstæðar hagsmunum þeirra. Miðhægristjórnin á Íslandi hélt völdum í kosningunum 10. maí sl. en með ótrygg- ari þingmeirihluta en áður. Í bréfi sem Bush forseti sendi Davíð Oddssyni for- sætisráðherra snemma í júní var lýst vilja til að efna til viðræðna um varnarskuld- bindingar Bandaríkjanna en bréfið gerði þó lítið til að draga úr sárindum Íslend- inga. Embættismenn þar litu á einhliða ákvörðun Bandaríkjastjórnar sem brot á anda varnarsamkomulagsins frá 1951. Fundur sem bandarískir og íslenskir embættismenn áttu 23. júní um fram- kvæmd varnarsáttmálans frá 1951 bar lít- inn árangur en þátttakendur í fundinum segja að þar hafi menn gert lítið annað en lýsa skoðunum sínum. „Forsætisráðherrann hefur sagt að hann telji litla þörf fyrir frekari viðræður ef Bandaríkin halda fast við sinn keip,“ sagði Helgi Ágústsson, sendiherra Ís- lands í Bandaríkjunum. „Við vonumst til þess að þoturnar verði áfram [í Keflavík].“ Til að reyna að komast hjá meiriháttar uppgjöri hittust helstu ráðgjafar Bush í þjóðaröryggismálum á fundi í síðustu viku og ræddu stöðu mála á Íslandi. Urðu þeir sammála um að leggja aukna áherslu á viðræður við stjórnvöld í Reykjavík. „Við erum reiðubúnir til að taka málið upp á æðstu stigum,“ sagði einn háttsettur emb- ættismaður. Frá lokum kalda stríðsins hefur flug- herinn þrýst á um að fá að flytja herþot- urnar frá Íslandi. Árið 1994 flutti Clinton- stjórnin átta árásarþotur á brott en sam- þykkti að fjórar yrðu áfram varanlega staðsettar í Keflavíkurstöðinni, nærri Reykjavík. Löndin tvö áttu [skv. bókun við samninginn] að semja um málið á nýj- an leik árið 2001 en öllum viðræðum var frestað í kjölfar hryðjuverkaárásanna 11. september 2001 og endurskoðunar á hernaðarmati Bandaríkjanna. Núna vill Bush-stjórnin flytja F-15 árásarþoturnar fjórar, sem enn eru á Íslandi, á brott og með þeim fimm björgunarþyrlur og tvær olíuáfyllingarvélar. Bandarískir embættismenn halda því fram að sú hætta sem steðjaði að Norður- Atlantshafssvæðinu í kalda stríðinu sé ekki lengur fyrir hendi en íslenskir emb- ættismenn vara á móti við því að Ísland sé svipt öllum loftvörnum. „11. september átti ekki að geta gerst heldur,“ segir [Helgi] Ágústsson. „Óvinur leitar ávallt að veikasta blettinum.“ Embættismenn í Reykjavík eru sér meðvitaðir um að Bush-stjórnin er nú þegar upp á kant við áhrifamikil banda- lagsríki úr NATO eins og Þýskaland og Frakkland vegna árásinnar á Írak. Þeir hafa því bent á að ríkisstjórn [Davíðs] Oddssonar hefur stutt [Bandaríkin] dyggilega á undanförnum árum. Ísland hefur lagt sitt af mörkum til friðargæslu- verkefna á Balkanskaganum og í Afgan- istan og hét því nýlega að leggja til fjórar milljónir Bandaríkjadala vegna mannúð- ar- og uppbyggingarverkefna í Írak. Deilan um herflugvélarnar hefur hins vegar „skapað verstu kreppuna í sam- skiptum Bandaríkjanna og Íslands frá því snemma á áttunda áratugnum, þegar vinstri stjórn gerði sig líklega til að ógilda varnarsamninginn og vísa Bandaríkja- mönnum á brott,“ sagði Valur Ingimund- arson, sérfræðingur um utanríkismál við Háskóla Íslands. Grannt er fylgst með í höfuðstöðvum NATO hverjar verða lyktir þessarar deilu. „Ég held ekki að nokkur muni halda því fram í fullri alvöru að það sé enn hern- aðarlega nauðsynlegt að hafa bandarískar herþotur á Íslandi,“ sagði diplómatinn hjá NATO. „En þegar menn eiga aðild að bandalagi snúast varnir ekki aðeins um þotur. Þá snúast varnirnar líka um þá mynd sem aðrir hafa [af stöðu mála], þær snúast um góð samskipti, þær snúast um loforð og fyrirheit.“ Auk 680 liðsmanna flughersins sem staðsettir eru í varnarstöðinni á Íslandi hefur flotinn þar 1.200 liðsmenn og rekur fjórar P-3C Orion kafbátaleitarvélar sem hluta af eftirliti með Norður-Atlantshaf- inu. Jafnvel þó að dregið hafi úr hernaðar- legu mikilvægi Íslands sem herstjórnar- legrar útvarðarstöðvar hefur flotinn engin áform um að halda þaðan á brott, að sögn háttsetts talsmanns Bandaríkja- flota. [Davíð] Oddsson hefur hins vegar gefið í skyn að flotinn verði hugsanlega beðinn um að fara líka ef flugherinn hættir sínum viðbúnaði [á Íslandi] með því að segja að án trúverðugrar og sjáanlegrar varnar- viðveru Bandaríkjanna telji hann enga ástæðu til að nokkur bandarískur her- maður verði áfram í landinu. Framganga Washington í málinu hefur leitt af sér nokkrar skeytasendingar inn- an stjórnarinnar. Einn fulltrúi í utanrík- isráðuneytinu kenndi Pentagon um hvernig málum er nú háttað því varnar- málaráðuneytið hefði stillt íslensku ríkis- stjórninni upp við vegg án þess að hafa sinnt hinni eðlilegu diplómatísku undir- búningsvinnu. En nokkrir aðrir embætt- ismenn stjórnvalda segja að vilji Banda- ríkjastjórnar hefði ekki átt að koma íslenskum stjórnvöldum á óvart vegna þess að Oddssyni hafi verið greint frá því á síðasta ári að Bandaríkin hefðu áhuga á að flytja flugvélarnar á brott. „Við höfum ekki flutt neitt enn og engar endanlegar ákvarðanir hafa verið tekn- ar,“ sagði háttsettur embættismaður. „Við viljum eiga einlægar viðræður við Ís- lendingana um þetta mál. Þetta verður gagnsær ákvarðanaferill þar sem við munum ráðgast við Íslendinga á öllum stigum málsins.“ Ísland vill ekki að bandarísku árás- arþoturnar fari The Washington Post segir frá því í gær að helstu ráð- gjafar Bandaríkjaforseta hafi í síðustu viku rætt varnarsamninginn við Ís- land. Frétt blaðamannsins Bradleys Grahams fylgir hér á eftir orðrétt. bjorgvin@mbl.is r mikill straumur fólks á Rauðasand og mannmargt á Melanesi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.