Morgunblaðið - 22.07.2003, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚLÍ 2003 43
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
Sýnd kl. 6, 8.30 og 11. B.i. 14 ára.
www.regnboginn.is
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
YFIR 28.000
GESTIR!
Stríðið er hafið!
Sýnd kl. 6.10, 7, 8.30,
9.30 og 10.50.
Sýnd kl. 4, 6.30, 9 og 11.10. B.i. 14 ára.
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 4, 6., 9 og 11.10.
Sýnd kl. 4, 6.30 og 9
GH
KVIKMYNDIR.COM
KVIKMYNDIR.IS
SG. DV
YFIR 28.000 GESTIR!
Stríðið er hafið!
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
N
O
I
21
72
9
0
7/
20
03
BJÓDDU TENGDÓ Í BÍÓ
EIN BESTA GRÍNMYND ÁRSINS
FRUMSÝND 25.JÚLÍ
Þegar þú kaupir þrjú stykki
af 200g rjómasúkkulaði í
Fjarðar kaupum, af hvaða bragð -
tegund sem er, færðu í kaupbæti
miða á sérstaka forsýningu á
gaman myndinni The In-Laws
fimmtu daginn 24. júlí. Tilboðið
gildir þar til allir miðar hafa
gengið út.
CHRIS Martin, söngvari ensku hljómsveit-
arinnar Coldplay, var handtekinn í Ástralíu
eftir að hafa ráðist á bíl ljósmyndara. Var
Martin sakaður um að hafa brotið glugga á
jeppa ljósmyndarans, sem tók myndir af tón-
listarmanninum þegar hann var að reyna sig
við brimbrettareið í Byron Bay. Sætir Martin
nú ákæru og skaðabótakröfu.
Martin var á Sjömílnaströnd við Byronflóa
þegar hann sá ljósmyndarann John Lester
taka af sér myndir. Martin reiddist og krafð-
ist þess að Lester hætti. Þegar ljósmyndarinn
neitaði er Martin sagður hafa gripið stein og
brotið rúður á bílnum og síðan hleypt lofti úr
hjólbörðunum.
Haft er eftir Lester að Martin hafi alger-
lega misst stjórn á skapi sínu. „Ég sagði að ég
væri í fullum rétti að taka myndir af honum á
opinberri baðströnd en hann sætti sig ekki
við það,“ sagði Lester sem leitaði til lögregl-
unnar eftir atvikið.
Martin er staddur í Ástralíu ásamt kvik-
myndaleikkonunni Gwyneth Paltrow. Palt-
row var ekki með Martin á ströndinni en lög-
regla handtók Martin á hótelherbergi þeirra.
Hann viðurkenndi sök sína.
Coldplay er á tónleikaferðalagi í Ástralíu
og hélt m.a. tónleika í Byron Bay þar sem um
12 þúsund manns mættu. Coldplay fer síðan
til Nýja-Sjálands.
Þau Martin og Paltrow hafa reynt að halda
einkalífi sínu frá fjölmiðlum. Fyrir nokkrum
vikum voru þau á veitingahúsi ásamt tísku-
hönnuðinum Stellu McCartney þegar ljós-
myndarar birtust. Martin er sagður hafa
hrópað að þeim: „Gefið mér líf mitt aftur. Ég
vil eignast líf mitt aftur!“
Fréttirnar af þessu koma ekki síst á óvart í
ljósi þess að hingað til hefur Chris Martin og
strákarnir allir í Coldplay þótt hin mestu
gæðablóð. Martin til málsbóta má þó vekja at-
hygi á því að hann lét reiði sína bitna á eigum
ljósmyndarans og slapp Lester í heilu lagi.
Gæðablóðið Chris Martin missti stjórn á sér
Handtekinn í Ástralíu
Skyldi hann skammast sín? Söngvari
Coldplay, Chris Martin, skýlir andlitinu fyrir
ljósmyndurum í Ástralíu eftir atvikið.
AP