Morgunblaðið - 09.08.2003, Side 11

Morgunblaðið - 09.08.2003, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 2003 11 ÁRNI M. Mathiesen, sjávarútvegs- ráðherra, telur sig ekki hafa hald- bærar lagaheimildir fyrir því að koma á línuívilnun fyrr en í fyrsta lagi 1. september árið 2004. Árni sagði á blaðamannafundi í gær að eftir álit umboðsmanns Al- þingis á úthlutun byggðakvóta, sem sjávarútvegsráðuneytið hefur til ráðstöfunar, hefði hann ekki talið sig hafa heimild til að nota þann byggða- kvóta til að úthluta sem línuívilnun. Umboðsmaður Alþingis hefði m.a. gagnrýnt þær rúmu heimildir sem sjávarútvegsráðherra hefði til að út- hluta byggðakvótanum og hversu þær reglur sem settar voru um út- hlutunina voru óljósar. Sagðist Árni ekki endilega vera sammála þessari gagnrýni umboðs- manns Alþingis en hafa engu að síð- ur þótt rétt að taka tillit til hennar. Það hefði það í för með sér að hann gæti ekki ráðstafað byggðakvótan- um sem línuívilnun, líkt og hann hafði áður talið sig hafa heimild til, auk þess sem slíkar hugmyndir hefðu fallið í grýttan jarðveg meðal hagsmunaaðila. Árni sagðist ekki hafa aðrar lagaheimildir til að útfæra línuívilnunina. Í ljósi þessa sé nauð- synlegt að Alþingi fjalli um hvernig standa eigi að línuívilnun og setji um það nýjar og skýrar lagaheimildir. Í samráði við formann Framsóknarflokksins Árni sagði að ekki væri slegið neinu föstu varðandi línuvilnun og byggðakvóta í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. „Því eru þeir sem eru að vitna til stjórnarsáttmálans sem grundvöll brigða í þessu efni einfaldlega að fara með rangt mál.“ Varðandi ummæli Kristins H. Gunnarssonar, þingflokksformanns Framsóknarflokksins, á fundi um línuívilnun á Ísafirði í fyrradag, sagði Árni að allar ákvarðanir sem hann kynni að taka varðandi stjórn fisk- veiða á næsta fiskveiðiári væru alfar- ið hans eigin. Hann sagðist taka þessar ákvarðanir að fengnu samráði við formann Framsóknarflokksins, sérstaklega hvað varði línuívilnun. „Í því samráði hef ég ekki orðið var við það að hann álíti að ég sé að brjóta gegn stjórnarsáttmálanum,“ sagði Árni. Árni sagði að með þessu væri hann ekki að útiloka að af línuívilnun yrði. Hann þyrfti einfaldlega lagaheimild- ir til að koma henni á. Hann sagðist ekki hafa heimild til að bíða með að úthluta hluta af aflamarki næsta fiskveiðiárs, uns Alþingi hefði ákveð- ið með lögum hvernig úthluta ætti línuívilnun. Hann sagði að engin for- dæmi væru fyrir því að beðið hefði verið með úthlutun kvótans með þessum hætti. Engar heimildir í lög- um fyrir línuívilnun VERIÐ ÞAÐ berast enn stórþorskar á land eins og þessir tveir sem Snorri Rafnsson starfsmaður fiskmark- aðar Breiðarfjarðar heldur á. Það var aflamaðurinn Marteinn Karls- son á Magnúsi Árnasyni SH sem fékk þessa tvo 20 kíló fiska á hand- færin á Bárðargrunni. En aflinn hjá Marteini þennan dag var um 600 kg af fallegum fiski. Stórþorskur á færin Morgunblaðið/Alfons Finnsson SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTIÐ kynnti í gær 9 reglugerðir sem lúta að stjórnun fiskveiða á næsta fisk- veiðiári og taka þær til úthlutunar aflaheimilda á komandi fiskveiðiári og veiða dagabáta. Meðal þeirra breytinga á stjórn fiskveiða sem sjávarútvegsráðherra kynnti í gær var að leyfilegum sóknardögum fækkar um tvo, eða í 19 sóknardaga, samkvæmt gildandi lögum, þar sem veiðar sóknardaga- báta hafa verið verulega umfram þær heimildir sem þeim voru ætl- aðar. Sagði Árni M. Mathiesen sjáv- arútvegsráðherra að viðræður við Landssamband smábátaeigenda um að setja gólf á fjölda sóknardaga hefðu ekki borið árangur. Þá verði óheimilt að stunda humarveiðar frá 1. október til 15. mars samkvæmt tillögu umgengnisnefndar og er þá horfið aftur til fyrra fyrirkomulags. Þá hefur viðmiðunum við úthlut- un aflaheimilda til skel- og inn- fjarðarækjubáta sem orðið hafa fyr- ir skerðingu á aflaheimildum verið breytt nokkuð frá því sem verið hafi. Við ákvörðun bóta er nú litið til meðaltalsveiði síðustu tíu fiskveiði- ára og þess að aðilar verði að bera 30% skerðingu frá þeirri meðaltals- veiði óbætta. Samkvæmt reglugerð- inni koma rétt um það bil 4.300 þorskígildislestir til skiptingar milli rækju- og skelbáta vegna þessa. Hirða þarf undirmálsfisk sem kemur á handfæri Þá hefur ráðuneytið gefið út reglugerð um nýtingu afla og auka- afurða en þar hefur verið fellt niður ákvæðið um að sleppa eigi undir- málsfiski sem fæst á handfæri og gilda nú sömu reglur um handfæra- veiðar og aðrar veiðar að þessu leyti. Ákvörðun um þessa breytingu er tekin að fenginni umsögn um- gengnisnefndar og byggjast tillögur hennar fyrst og fremst á því að til- raunir Hafrannsóknastofnunarinnar sýna að stór hluti þess þorsks sem sleppt er við handfæraveiðar drepst. Í nýrri reglugerð um úthlutun svonefnds byggðakvóta til stuðn- ings byggðarlögum sem lent hafa í vanda vegna samdráttar í sjávar- útvegi er gert ráð fyrir að ráðu- neytið reikni út á tilgreindum for- sendum hvernig þessu heildarmagni verði skipt milli einstakra sveitarfé- laga. Eftir það er sveitarstjórnum gefinn kostur á að koma með til- lögur til ráðuneytisins um ráðstöfun þess magns til einstakra fiskiskipa og geta þær m.a. litið til atriða sem tryggja vinnslu aflans innan sveitar- félagsins. Komi ekki slíkar tillögur frá einhverju sveitarfélagi skiptir ráðuneytið þeim heimildum sem koma eiga í hlut sveitarfélagsins milli einstakra báta sem þar eru skráðir samkvæmt ákveðnum reglum. Jafnframt hefur ráðuneytið gefið út breytingar á reglugerðum um hrygningarstopp og möskvastærðir á þá leið að heimilt verði að veiða með allt að 9 þumlunga möskvum til 1. september 2004 en frá þeim tíma verði hámarks leyfileg möskvastærð 8 þumlungar en áður hafði verið ákveðið að hámarksmöskvastærð yrði 7,5 þumlungar. Þó verði til 1. maí 2004 heimil notkun á allt að 9,5 þumlunga möskvum tímabundið. Þá verður friðunarsvæði við Suðaust- urland stækkað í samræmi við til- lögur Hafrannsóknastofnunarinnar. Sjávarútvegsráðherra kynnir stjórn fiskveiða Sóknardögum verður fækkað úr 21 í 19 FISKSÖLUFYRIRTÆKIÐ Nept- une Fisheries í Norfolk í Banda- ríkjunum hefur verið kært fyrir samsæri við innflutning á undir- málshumri frá Níkaragva. Um er að ræða innflutning að verðmæti yfir 155 milljónir króna á fimm ára tímabili. Viðurlög gætu verið allt að 60 milljóna króna sektir og fangelsi. Dótturfyrirtæki Coldwater í Banda- ríkjunum, Ocean to Ocean, tók yfir rekstur Neptune Fisheries nýlega, en ekki eldri skuldbindingar og tel- ur það málaferlin sér því óviðkom- andi. Málið var þingfest fyrir dómi í Miami 31. júlí síðastliðinn og er að- stoðarforstjóri NF, Aron Candella, og fyrirtækið sjálft kært fyrir inn- flutning á 87 tonnum af frystum humarhölum á árunum 1996 til 2001, en Neptune var með höfuð- stöðvar í Newport News frá 1985 til 1998. Níkaragva setti árið 1988 lög um leyfileg stærðarmörk á humri við veiðar við landið til að vernda stofninn. Lágmarksþyngd var ákveðin 140 grömm til þess að humarinn næði kynþroska og gæti fjölgað sér áður en hann yrði veidd- ur. Samkvæmt ákærunni smygluðu Neptune og Candella 80 sendingum af humri inn til Bandaríkjanna með því að merkja pakkningarnar rang- lega. Í bréfaskriftum milli aðila kemur einnig fram að lögin um stærðarmörkin væru engin fyrir- staða þess að smærri humar yrði keyptur frá Níkaragva. Neptune gæti hlotið sekt allt að 40 milljónum króna og Candella á yfir höfði sér allt að fimm ára fang- elsi og tæplega 20 milljóna króna sekt. Sektirnar eru áætlaðar sem tvöfaldur hagnaður aðila af þessum ólöglegu viðskiptum. Kom okkur í opna skjöldu Í frétt um yfirtöku Ocean to Ocean á rekstrinum segir meðal annars að OTO muni leigja fast- eignir og vélar af fyrri eigendum Neptune og ráða til sín starfsfólkið í framleiðslunni. OTO taki yfir við- skiptasambönd Neptune, vörumerki og birgðir en engar skuldbindingar. Gunnar Svavarsson, forstjóri SH, segir að þegar skrifað hafi verið undir samninga um yfirtöku rekstr- ar Neptune, hafi ekkert verið minnzt á málaferli og því hafi þetta komið algjörlega í opna skjöldu. „OTO tók ekki yfir skuldbind- ingar fyrri eigenda, aðeins rekst- urinn og réði til sín starfsfólk, með- al annars Candella. Þegar ákæran á hendur Neptune og Candella kom til sögunnar, fóru stjórnendur OTO vandlega ofan í málið og niðurstað- an var sú að Candella var þegar í stað vikið frá störfum. Þá hefur því verið lýst yfir að vinnubrögð af þessu tagi séu ekki í takt við stefnu OTO, sem kappkostar að fara að lögum í hvívetna,“ segir Gunnar Svavarsson. Neptune Fisher- ies ákært fyrir humarsmygl Dótturfyrirtæki SH yfirtók rekstur fyrirtækisins í síðustu viku TÍU félög útvegsmanna víðs vegar um land hafa samþykkt samhljóða ályktanir þar sem mótmælt er harð- lega öllum áformum um að tekin verði upp sérstök ívilnun í kvóta til báta sem róa með línu. Segja félögin ljóst að það muni fela í sér mismunun innan atvinnugreinarinnar, þar sem einum útgerðarflokki séu veittar auknar veiðiheimildir á kostnað ann- arra. Í ályktunum segir, að í ljósi þess að heildarafli á Íslandsmiðum sé tak- markaður sé sýnt að slík mismunun muni leiða til þess að veiðiheimildir annarra verði skertar að sama skapi. Jafnframt sé ljóst að ef línubátum verði leyft að veiða meira en núver- andi aflamark þeirra sé muni það koma niður á byggðarlögum, þar sem útgerð byggist ekki á línuveiðum, með minni afla og veikja þau. Byggð um landið muni til framtíðar ekki byggjast á útgerð smábáta. Þá segir að frá því aflamarkskerfi var tekið upp á Íslandi hafi smábátar aukið afla sinn gríðarlega á kostnað annarra. Sé þar um meira en 15 föld- un að ræða og ljóst að markmið þeirra sé að ná til sín enn stærri hluta af veiðiheimildum annarra. Svonefnd línuívilnun sé tilraun til þess. Mis- munun af þessu tagi samrýmist ekki nútíma hugmyndum um jafnræði og að almennar reglur gildi um starf- semi þegnanna. Telja félögin að hug- myndir af þessum toga ættu að heyra sögunni til. Félögin tíu eru Útvegsmannafélag Reykjavíkur, Útvegsmannafélag Akraness, Útvegsmannafélag Snæ- fellsness, Útvegsmannafélag Norður- lands, Útvegsmannafélag Austfjarða, Útvegsmannafélag Hornafjarðar, Útvegsmannafélag Þorlákshafnar, Útvegsmannafélag Suðurnesja, Út- vegsmannafélag Hafnarfjarðar og Útvegsbændafélag Vestmannaeyja. „Hugmyndir sem ættu að heyra sögunni til“ LÍNUÍVILNUN hefur mjög verið til umræðu síðustu daga og vikur. Í línuívilnun felst að bátum sem að- eins veiða á línu og landa daglega verði umbunað fyrir það sér- staklega. Þannig hafa komið fram hugmyndir um að tekin verði upp 20% línuívilnun í þorski. Það þýðir að 80% af þorskafla umræddra línu- báta verði reiknuð til aflamarks. Sé þannig tekið dæmi af línubát sem landar einu tonni af þorski, yrðu aðeins tekin 800 kíló af þorskkvóta hans, verði þessi hugmynd að veru- leika. Hvað er línuívilnun?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.