Morgunblaðið - 09.08.2003, Blaðsíða 36
MINNINGAR
36 LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Í SUMAR komu krakkar af
nokkrum leikjanámskeiðum í
heimsókn á Morgunblaðið. Þau
fengu að fræðast aðeins um
hvað fram fer á blaðinu og
skoðuðu m.a. prentsmiðjuna.
Krakkarnir voru prúðir og
áhugasamir. Morgunblaðið
þakkar þeim kærlega fyrir
komuna.
Krakkar á leikjanámskeiði Ársels úr Árbænum.
Krakkar úr Félagsmiðstöðinni Selinu á Seltjarnarnesi.
Morgunblaðið/Jim Smart
Krakkar frá í þróttaleikjanámskeiði Hamars í Hveragerði.
Litfríð og ljóshærð,
og létt undir brún,
handsmá og hýreyg,
og heitir Sigrún.
(Jón Thor.)
Allt frá þeirri stundu er okkur
bárust þau tíðindi að Sigrún væri
látin hefur þetta ljóð ómað í höfði
okkar. Hún raulaði oft þessar
laglínur fyrir okkur þegar við
vorum litlar stelpur. Sigrún lagð-
ist til hvílu að kvöldi og vaknaði
ekki aftur. „Hún er lögð af stað í
langt ferðalag í 100 ár,“ sagði
prinsinn hennar, ömmubarnið
Andri Marinó. Sigrún var móðir
Líneyjar vinkonu okkar sem fyrir
tæpum 30 árum sneri sér að okk-
ur systrunum og spurði hvort við
vildum vera vinkonur hennar.
Hún bauð okkur heim til sín að
loknum skóladegi og þá hittum
við Sigrúnu. Hún tók strax vel á
móti okkur og milli okkar mynd-
aðist vinskapur sem hefur haldist
öll þessi ár. Þegar við vorum að
vaxa úr grasi bjó fjölskyldan á
Grenigrundinni. Þar var oft líf og
fjör, mikið brallað og hlegið í litla
borðkróknum. Og það er ekki
hægt að minnast Sigrúnar án
þess að nefna Marinó eiginmann
hennar. Marinó var hógvær mað-
ur. Hann blandaði sér ekki mikið
í ærslalætin í okkur en átti það til
að líta inn í eldhúsið til okkar
þegar við töluðum sem hæst eða
hlógum sem mest og koma með
spekingsleg innlegg í annars
„frumlegar“ samræður okkar.
Hann kenndi okkur ýmislegt og
ræddi alltaf við okkur sem jafn-
ingja. Við stelpurnar kunnum vel
að meta heilræðin hans og tókum
þau gjarnan mjög alvarlega.
Heimili þeirra hjóna var okkur
alltaf opið og móttökurnar hlý-
SIGRÚN EDDA
GEIRSDÓTTIR
✝ Sigrún EddaGestsdóttir
fæddist í Reykjavík
15. desember 1947.
Hún lést á heimili
sínu 24. júlí síðastlið-
inn og var útför
hennar gerð frá
Kópavogskirkju 31.
júlí.
legar. Sigrún var
tilbúin að leggja mik-
ið á sig til að taka
þátt í ærslalátum
okkar og uppátækj-
um. Hún fylgdist með
okkur fullorðnast og
þroskast og að sjálf-
sögðu tók hún vel á
móti mannsefnum
okkar þegar við
kynntum þá fyrir
henni. Síðustu árin
fylgdist hún með
börnum okkar og
vildi vita hvernig
þeim vegnaði. Fjöl-
skyldan var Sigrúnu allt. Af natni
og alúð lagði hún sig alla fram til
að þeim vegnaði sem best. Fyrir
fáum árum knúði sorgin dyra
þegar Marinó veiktist alvarlega
og dó ári síðar. Sigrún tók veik-
indi hans og dauða mjög nærri
sér. Hún lagði sig alla fram um
að gera honum síðasta tímann
sem bærilegastan og Marinó dó
heima í faðmi fjölskyldunnar eins
og hann óskaði sjálfur. Það er trú
okkar að þau fái nú að njóta sam-
veru hvort annars ásamt móður
Marinós sem dó fyrir aðeins örfá-
um dögum og föður Sigrúnar.
Það hefur enginn lofað að lífið
yrði alltaf auðvelt og án erfið-
leika. Því hefur elskuleg vinkona
okkar fengið að kynnast síðustu
daga. Skyndilegt fráfall Sigrúnar
er Líney, Kalla, Andra Marinó og
Sigrúnu Ósk og öðrum aðstand-
endum þungt áfall. Andri Marinó
dýrkaði og dáði ömmu sína. Hann
var sólargeislinn hennar, hún
kallaði hann prinsinn sinn. Það
var gott að sjá kærleikann á milli
þeirra og Sigrún sagði okkur oft
hversu mikils virði hann væri
henni og prakkarinn litli fyllti líf
hennar gleði og ánægju.
Síðustu dagar hafa verið erfiðir
og þungir elskulegri vinkonu okk-
ar sem nú hefur misst móður sína
og bestu vinkonu. Við reynum af
öllum mætti að styrkja þessa litlu
fjölskyldu, drúpum höfði í bæn og
biðjum guð um styrk henni og
þeim öllum til handa. Hvíl í friði,
elskulega vinkona,
Anna og Jóna.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SÓLVEIG B. GUÐMUNDSDÓTTIR
VIKAR,
Bugðulæk 10,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítala Landakoti
fimmtudaginn 7. ágúst sl.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 15. ágúst kl. 13.30.
Þórhildur Lilja Þorkelsdóttir,
Jón Gunnar Þorkelsson, Sigrún Haraldsdóttir,
Herdís Þorkelsdóttir, Einar Einarsson,
Ágústa Þorkelsdóttir, Ólafur H. Óskarsson,
Páll Þorkelsson,
Lilja Þorkelsdóttir, Garpur Dagsson
og fjölskyldur.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við
andlát
ELINBORGAR SIGURÐSSONAR,
Ljósvallagötu 10.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk á deild E-2
Sóltúni.
Gunnar Sigurðsson,
Borghildur Aðils, Jón Aðils,
Gunnhildur Gunnarsdóttir,
Jakob Gunnarsson, Þuríður Árnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.