Morgunblaðið - 09.08.2003, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 09.08.2003, Blaðsíða 20
ÁRBORGARSVÆÐIÐ 20 LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ NÝ SÆLKERAVERSLUN hefur verið opnuð í Breiðumörk 21 í Hveragerði. Verslunin heitir Kjöt og kúnst og er í eigu hjónanna Önnu Maríu Eyjólfsdóttur og Ólafs Reynissonar matreiðslu- meistara. Í versluninni verður ferskt kjötborð þar sem alltaf verður hægt að fá eitthvað gott á grillið og einnig verður hægt að fá tilbúna rétti beint í ofn- inn. Ólafur ætlar auk þess að bjóða upp á heitan mat, súpu og salatbar og geta gestir þá borðað á staðnum. Eldri borgurum verður boðinn 10% af- sláttur af heitum mat í hádeginu út árið. Öll brauð verða bökuð á staðnum og má segja að verslunin verði kaffihús í leiðinni, þar sem boðið verður upp á kaffi og kruðerí. Þau Anna María og Ólafur hafa rekið heilsu- kost sl. átta ár og einnig hafa þau verið með Veisluþjónustuna. Núna sameinast þessi þrjú fyr- irtæki undir sama þak. Húsnæðið hafa þau hjón endurnýjað að stórum hluta síðastliðna mánuði, bæði innandyra og utan og er árangur þeirrar vinnu glæsilegt hús og aðkoman að húsinu hefur breyst til mikilla muna. Ólafur segir aðspurður að í nýja eldhúsinu sé allt keyrt á gufuafli og hann hafi í hyggju að vera með nokkurskonar „túristaeldhús“ þar sem hann sýnir fólki hvernig brauð er bakað og allur matur eldaður með gufu- afli. Á veggjunum við veitingaborðin eru spakmæli innrömmuð og eitt þeirra ættu allir að hafa í huga og fara eftir, en það er svona: „Láttu engan dag líða svo að þú brosir ekki.“ Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir Mannfjöldi var við opnun sælkeraverslunarinnar. Kjöt og kúnst Hveragerði Á GÁMASVÆÐI Hveragerðisbæjar sem stendur við áhaldahús bæjarins er regla á hlutunum. Það er Kristján Sigurjónsson sem þar hefur ráðið ríkjum í sumar. Flokkun á sorpi er nú orðin algengari en áður var og aðstoðar Kristján gesti gámasvæðisins til að flokka rétt. Auk gáms fyrir almennt sorp eru gámar fyrir garðaúrgang, járn og bílhræ, timb- ur, dagblöð og tímarit, mjólkur- og drykkjar- fernur, spilliefni og úrgangsolíu. „Það nýjasta hér eru hjólbarðagámur og fatamóttaka. Fötin fara síðan til Rauða krossins sem úthlutar þeim til bágstaddra. Hér lánum við bæjarbúum líka kerrur og er fólk ánægt með þá þjónustu. Fyrsta mánudag í hverjum mánuði erum við svo með flösku- og dósamóttöku,“ segir Kristján. Í sumar hefur stöðin verið opin frá kl. 13-19 alla virka daga og einnig á laugardögum. Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir Kristján Sigurjónsson á gámasvæðinu. Regla á hlutum á gámasvæðinu Hveragerði „ÉG SÉ ekkert í farvatninu að þessi mikli vöxtur hérna á Sel- fossi minnki neitt,“ segir Bárður Guðmundsson, byggingar- fulltrúi Árborgar, en á fyrstu sex mánuðum þessa árs hafa framkvæmdir verið hafnar við 41 mannvirki á Selfossi og hýsa þessi nýju mannvirki 36 íbúðir. Þessar byggingar eru í takt við uppsveiflu í framkvæmdum sem hófst 1999 en það ár voru hafnar framkvæmdir við 51 mannvirki en þrjú árin þar á undan var byrjað á 25 mann- virkjum. Í fyrra var hafist handa við 68 mannvirki, 63 árið 2001 og 82 mannvirki árið 2000. Bárður Guðmundsson segir þessa uppsveiflu í beinu sam- bandi við aukið lóðaframboð ár- ið 1999, sem varð með tilkomu nýs hverfis í Fosslandi á vegum einkaaðila, Fossmanna ehf. Það ár hófust einnig framkvæmdir við gatnagerð í Suðurbyggð á vegum bæjarins. Bæði þessi hverfi hafa verið í örri uppbygg- ingu og nú eru framkvæmdir hafnar við nýja skólabyggingu í Suðurbyggðinni. Frá 1999 til júní 2003 hefur verið hafist handa við 310 mannvirki með samtals 321 íbúð. „Ég fullyrði það að við önnum ekki eftirspurn eftir lóðum því öllum lóðum sem sveitarfélagið hefur upp á að bjóða hefur verið úthlutað. Nýjar lóðir verða aug- lýstar nú í ágúst í Suðurbyggð- inni fyrir 30 íbúðir en fyrsti áfangi þeirrar auglýsingar gerir ráð fyrir íbúðum í raðhúsum, parhúsum og einbýlishúsum. Síðan er gert ráð fyrir að 12 lóð- ir bætist við í október en fram- kvæmdir við þá gatnagerð munu ráðast af eftirspurn. Þá eru lóðir tilbúnar í fjórða áfanga Fosslandsins með 96 íbúðum,“ segir Bárður Guðmundsson. „Við þurfum að vera tilbúin að mæta þeirri auknu þörf sem er fyrir lóðir. Það er orðið afar þróast . Bestu svæðin eru í Suð- urbyggðinni, Fosslandinu og Hagalandinu en þessi svæði eru tilbúin að taka á móti íbúðar- byggð. Svo kemur flugvallar- svæðið inn í myndina sem mjög ákjósanlegt byggingarsvæði til framtíðar. Nú er og verið að vinna deiliskipulag fyrir þétt- ingu byggðar í miðbæ Selfoss og ég geri ráð fyrir að auðir skikar muni fyllast í bænum,“ segir Bárður. Einkaaðilar bjóða lóðir Hvað flugvallarsvæðið varðar og deilur um nýtingu þess og síðan það að sveitarfélagið nýtti sér forkaupsrétt að landinu, segir Bárður að þegar komi að umræðu um þetta svæði þurfi menn að spyrja sig grundvall- arspurninga um framtíðarhlut- verk landsins og nýtingu þess ásamt því að horfa til góðrar reynslu undanfarinna ára með framboð einkaaðila á lóðum. „Það hefur gefist mjög vel að bærinn og einkaaðilar hafi verið að bjóða upp á byggingarlóðir en með því hefur bærinn fengið mikla kynningu og góð eftir- fylgni einkaaðila verið í þessum málum með að bjóða lóðir og við frágang og gatnagerð. Einu gallarnir eru þeir að bærinn getur ekki stýrt úthlutun lóða á einkalandi en þarna tel ég að finna þurfi gagnsæjar reglur um úthlutun lóða þar sem meg- inlínur yrðu þær sömu hjá báð- um aðilum þannig að hvers kon- ar einokun minnki eða hverfi á ákveðnum tegundum lóða s.s. fyrir fjölbýlishús eða atvinnu- húsnæði. Hjá bænum er verið að setja nýjar reglur um úthlut- un lóða með það að markmiði að menn geti ekki hangið á lóðum án þess að hefja framkvæmdir. Það er mjög ánægjulegt að vera í hringiðu þessarar fólks- fjölgunar og verða vitni að þeim mikla áhuga sem er hjá fólki á því að setjast að á þessu svæði hérna. Það er alveg ljóst að fólk trúir á hið svonefnda Stór-Ár- borgarsvæði með Selfoss sem aðalmiðstöð,“ segir Bárður Guð- mundsson byggingafulltrúi Ár- borgar. brýnt að ákveða hvar eigi að bera niður næst með íbúða- hverfi. Á aðalskipulagi þarf að taka ákvörðun um næstu skref og ákveða hvert byggðin á að Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Starfsmenn Trésmiðju Agnars Péturssonar hf. við byggingu raðhúss í Suðurbyggðinni. 310 mannvirki hafa risið á Selfossi frá árinu 1999 Uppsveiflan í beinu sambandi við aukið lóðaframboð Selfoss Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Bárður Guðmundsson byggingafulltrúi við nýju skólabygginguna. og Valdís Bjarnadóttir, arkitekt hjá Vinnustofunni Þverá ehf., undirrituðu samninginn fimmtudaginn 31. júlí. Í tengslum við aðalskipulags- vinnuna verður haldið íbúaþing þar sem óskað verður eftir þátt- töku sem flestra íbúa sveitarfé- lagsins. Með þátttöku í íbúa- þingi er gert ráð fyrir að íbúar geti komið sjónarmiðum sínum á framfæri við forsvarsmenn sveitarfélagsins og starfsmenn Vinnustofunnar Þverár. SVEITARFÉLAGIÐ Árborg hefur samið við Vinnustofuna Þverá um vinnu vegna aðal- skipulags Árborgar en vinnu- stofan tekur að sér að vinna nýtt aðlaskipulag fyrir sveitarfélag- ið og eru áætluð verklok haustið 2005. Ekki er til aðalskipulagsáætl- un fyrir sveitarfélagið í heild sinni en til eru áætlanir fyrir hvern þéttbýlisstað og má finna uppdrætti á heimasíðu Árborg- ar. Einar Njálsson bæjarstjóri Vinna hafin við nýtt aðalskipulag í Árborg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.