Morgunblaðið - 09.08.2003, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 09.08.2003, Blaðsíða 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 12 LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ HAGNAÐUR Landsbanka Íslands á fyrri hluta ársins nam 1.221 millj- ón króna, sem er 32% aukning frá fyrra ári. Greiningardeildir hinna viðskiptabankanna tveggja höfðu spáð 1.260 milljóna króna hagnaði að meðaltali og er hagnaðurinn því heldur undir meðalspá. Arðsemi eigin fjár hækkaði úr 12% í 16% milli ára og hagsauki tímabilsins, sem er ávöxtun eigin fjár umfram meðalávöxtun áhættulausrar fjár- festingar, var 9,1%. Markmið bank- ans um arðsemi er 13%-15% og markmiðið er að hagsaukinn sé á bilinu 6%-8%. Þess ber að geta að rekstrarreikningur samstæðunnar er ekki að fullu samanburðarhæfur við fyrra ár þar sem SP-Fjármögn- un var ekki inni í fyrra árs tölum samstæðunnar á fyrstu sex mán- uðum ársins í fyrra. Ef litið er á annan fjórðung ársins sérstaklega eykst hagnaður milli ára um 112% í 408 milljónir króna. Sigurjón Þ. Árnason bankastjóri segir að þrennt standi upp úr í milli- uppgjöri Landbankans. „Bankinn stækkaði mikið, eða um 48 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi, í um 328 milljarða króna. Helmingurinn af því skýrist af kaupum Lands- bankans á starfsemi Búnaðarbank- ans í Lúxemborg en helmingurinn er vegna innri vaxtar. Einnig er at- hyglisvert að afkoman er mjög góð þrátt fyrir að mikið hafi verið lagt til hliðar í afskriftareikning, sem er einsskiptis aðgerð hjá okkur til að styrkja afskriftareikninginn. Við teljum að bankinn standi sterkari á eftir,“ segir Sigurjón. Halldór J. Kristjánsson banka- stjóri bætir því við að í raun skili allir þættir starfseminnar jákvæðri afkomu. „Hærra hlutfall tekna kem- ur úr þóknanahlutanum og kjarna- starfsemin öll skilar jákvæðri af- komu,“ segir Halldór og bætir því við að þrátt fyrir óreglulega liði sé bankinn á áætlun og ekkert bendi til annars en hann verði á áætlun á árinu. Arðsemin sé betri en á síð- asta ári og bankinn stækki, þannig að uppgjörið sé á heildina litið mjög gott. Kostnaðarhlutfall lækkar Vaxtagjöld drógust meira saman en vaxtatekjur og hreinar vaxta- tekjur, sem eru mismunur vaxta- gjalda og -tekna, hækkuðu um 12%, í 4,2 milljarða króna. Vaxtamunur, sem mælir hreinar vaxtatekjur sem hlutfall af meðalstöðu heildarfjár- magns, hækkaði lítillega og nam 2,75%. Tekjur af hlutabréfum og eignar- hlutum lækka um nálægt þrjú hundruð milljónir króna og nema 67 milljónum króna. Þetta skýrist aðal- lega af því að bankinn hefur selt hlut sinn í Vátryggingafélagi Ís- lands, en í fyrra fékk hann hlutdeild af hagnaði VÍS. Þóknunartekjur jukust um 28% milli ára og námu tæpum þremur milljörðum króna. Aukninguna má einkum rekja til sölu- og ráðgjaf- artekna af verðbréfaviðskiptum. Gengishagnaður hækkaði um tæplega einn milljarð króna og nam tæpum 1,2 milljörðum króna. Þar munar mest um nær átta hundruð milljóna króna viðsnúning í geng- ishagnaði af hlutabréfum, en geng- ishagnaður af skuldabréfum eykst um rúmar tvö hundruð milljónir króna. Þróunin í gengishagnaði af hlutabréfum verður þrátt fyrir að bankinn hafi fært niður umtalsvert af óskráðum hlutabréfum sínum á öðrum fjórðungi ársins, að því er fram kemur í tilkynningu bankans. Aðrar rekstrartekjur jukust um nær fjögur hundruð milljónir króna, í 548 milljónir króna, og skýrist sú aukning af söluhagnaði eignarhluta í tryggingafélögum. Stöðugildi móðurfélagsins við bankastörf voru jafn mörg, 907, við upphaf og lok tímabilsins, en stöðu- gildum í dótturfélögum fjölgaði úr 47 í 74. Laun og tengd gjöld hækkuðu um 12% og námu 2,4 milljörðum króna og í heildina hækkuðu rekstrargjöld um 15% í 4,7 milljarða króna. Hreinar rekstrartekjur hækkuðu mun meira, um 34%, og námu 8,6 milljörðum króna. Kostnaðarhlutfall bankans, hlutfall rekstrargjalda af hreinum rekstrartekjum, lækkaði af þessum sökum mikið, eða úr 64% í 55% á fyrri hluta ársins, en fyrir ár- ið í fyrra í heild var hlutfallið 61%. Eignir jukust um 18% Eignir Landsbankans jukust um 18% á tímabilinu og námu 329 millj- örðum króna í lok júní. Þar af námu heildarútlán 264 milljörðum króna og jukust um 23%. Tæpur helm- ingur útlánaaukningarinnar er vegna kaupa Landsbankans á dótt- urfélagi Búnaðarbankans í Lúxem- borg á öðrum fjórðungi ársins. Innlán námu 129 milljörðum króna í lok júní og jukust um 19% á tímabilinu. Eigið fé jókst um átta hundruð milljónir króna á tímabilinu og nam rúmum 17 milljörðum króna við lok þess. Eiginfjárhlutfall, samkvæmt eiginfjárákvæðum laga, lækkaði úr 10,6% í 9,1% á tímabilinu. Í tilkynningu bankans segir að hann geri ráð fyrir að afkoma ársins í heild verði innan arðsemisviðmiða og að arðsemi eigin fjár eftir skatta, miðað við óbreytta ávöxtunarkröfu áhættulausrar fjárfestingar, verði á bilinu 13%-15%. Hagnaður Landsbankans jókst um 32% Kostnaðarhlut- fall lækkar úr 64% í 55%                                                         !" "#$#  $$!  $%!# !$&  '(" '"&       )  *      &%" %  "+" %#(!  !(+!  $! ! (  '% '+   !("" (& +  ,-     )     ./01           2 3  !4%"5 ""4 5 +45 (4 5 +# !4(%5 ($4 5  4(5 !4 5 +"#    !"#"$  &  (    !!%&   HAGNAÐUR Kaupþings Búnaðar- banka hf. nam 3.065 milljónum króna á fyrri helmingi ársins sem er 56,1% aukning hagnaðar milli tímabila, sé miðað við samanlagðan hagnað bank- anna tveggja frá því á fyrri helmingi síðasta árs. Spár greiningardeilda hinna bankanna gerðu ráð fyrir 3.230 milljóna króna hagnaði og er upp- gjörið því rúmum 5% undir spám. Arðsemi eigin fjár nam 19,4% en meðalarðsemi beggja bankanna á sama tíma í fyrra nam 18,7%. Sé annar ársfjórðungur tekinn sér- staklega fyrir sést að hagnaður á tímabilinu apríl-júní nam 1.689 millj- ónum króna eftir skatta og jókst um 111,4% frá öðrum ársfjórðungi 2002. Þá var samanlagður hagnaður bank- anna tveggja eftir skatta 799 millj- ónir króna. Hreinar rekstrartekjur jukust um 63,7% milli fjórðunganna, úr 4.523 milljónum króna í öðrum fjórðungi 2002 í 7.404 milljónir króna á sama tímabili þessa árs. Haft er eftir Hreiðari Má Sigurðs- syni forstjóra Kaupþings Búnaðar- banka, í tilkynningu að þetta fyrsta uppgjör sameinaðs banka sé vel við- unandi. Arðsemi eigin fjár sé góð og tekjumyndun bankans byggist nú á fleiri stoðum en áður. Stjórnunar- teymi bankans sé samhent og starfs- menn staðráðnir í að gera betur, bæði á kostnaðar- og tekjuhliðinni. „Sam- runi Kaupþings og Búnaðarbanka gefur okkur mörg færi til sóknar og við erum staðráðin í að nýta þau. Það er enn of snemmt að skera úr um hve vel samruninn hefur tekist en óhætt er að segja að byrjunin lofi góðu,“ er haft er eftir Hreiðari Má í tilkynning- unni. Að því er haft er eftir Sóloni R. Sig- urðssyni forstjóra Kaupþings Búnað- arbanka í tilkynningunni lýsir upp- gjörið árangri af þeirri miklu vinnu sem liggi að baki samrunanum. Bæði starfsmenn og viðskiptavinir hafi lýst almennri ánægju með hvernig til hafi tekist. „Þetta er þó aðeins upphafið að því sem koma skal enda gerir auk- inn fjáhagslegur styrkleiki bankans okkur kleift að bjóða viðskiptavinum enn betri þjónustu og treysta þannig enn frekar stöðu okkar á markaðin- um,“ er haft eftir Sóloni í tilkynningu frá bankanum. Þóknunartekjur jukust um 50% Hreinar vaxtatekjur bankans á fyrri helmingi ársins námu 4.601 milljónum króna sem er 37,2% aukn- ing frá fyrri helmingi ársins 2002 þegar þær námu 3.354 milljónum króna. Vaxtamunur bankans, sem mælir hreinar vaxtatekjur sem hlut- fall af meðalstöðu heildarfjármagns, á fyrri helmingi ársins var 2,0%. Hreinar þóknunartekjur jukust um 50,8% milli tímabila og námu 4.260 milljónum króna. Segir í tilkynningu frá bankanum að aukning þóknunar- tekna komi meðal annars til vegna stórra verkefna í fyrirtækjaráðgjöf og aukinna umsvifa í miðlun, mikið til vegna kaupa á JP Nordiska sem nú heitir Kaupthing Bank Sverige. Gengishagnaður nam 4.725 millj- ónum króna og jókst um 50,7% frá því í fyrra. Um 37% gengishagnaðar er innleystur hagnaður. Hreinar rekstrartekjur Kaupþings Búnaðar- banka námu 14.190 milljónum króna sem er 49,1% aukning frá sama tíma 2002 þegar hreinar rekstrartekjur bankanna námu 9.517 milljónum króna. Kostnaðarhlutfall hátt Launakostnaður bankans jókst um 56,7% milli tímabila og nam 4.948 milljónum króna á fyrstu sex mán- uðum ársins. Að því er segir í tilkynn- ingu frá bankanum hækkaði launa- kostnaður meira í öðrum ársfjórðungi, eða um 66,5% milli tímabila, einkum vegna kaupa á Kaupthing Bank Sverige og kaup- réttasamninga sem nú eru gjaldfærð- ir. Annar rekstrarkostnaður jókst um 40,3% á fyrstu sex mánuðunum og nam 3.501 milljón króna. Rekstr- arkostnaður bankans á fyrri helmingi ársins nam samtals 9.077 milljónum króna sem er 50,2% hærra en árið áð- ur en þá var rekstrarkostnaður 6.042 milljónir króna. Í afskriftarreikning útlána voru færðar 1.378 milljónir króna fyrstu sex mánuði þessa árs, þar af voru 317 milljónir króna framlag í almennan hluta reikningsins. Reiknaður tekju- skattur á fyrri helmingi ársins nam 668 milljónum króna. Kostnaðarhlutfall bankans, sem segir til um hlutfall rekstrargjalda af hreinum rekstrartekjum, nam 64,0%. Haft er eftir Hreiðari Má í tilkynn- ingu að samlegðaráhrif af samrunan- um eigi enn eftir að koma fram og að kostnaðarhlutfall bankans muni fara lækkandi eftir því sem á líður. Heild- areignir Kaupþings Búnaðarbanka jukust um 13,9% frá áramótum og voru 493 milljarðar króna í júnílok. Útlán námu 59,4% eigna þann 30. júní sl. eða 293 milljörðum króna sem er 8,7% aukning frá áramótum. Eigið fé bankans nam 34,9 millj- örðum króna í lok tímabilsins og hafði aukist úr 33,4 milljörðum frá áramót- um. Eiginfjárhlutfall samkvæmt CAD reglum var 11,6% í júnílok. Á sama tíma í fyrra var hlutfallið 14,7% hjá Kaupþingi banka og 10,9% hjá Búnaðarbanka Íslands. Hluthafar bankans við lok tímabilsins voru um 40 þúsund talsins, að því er segir í til- kynningu. Erfiður rekstur á Norðurlöndum Kaupþing Búnaðarbanki skiptir rekstri sínum í sex afkomusvið og fimm stoðsvið. Jákvæð framlegð var af öllum afkomusviðum á fyrri helm- ingi ársins. Mest framlegð var af markaðsviðskiptum eða 2.230 millj- ónir króna. Bankinn starfar á fjórum land- svæðum: Íslandi, Norðurlöndum, Evrópulöndum og Bandaríkjunum. Reksturinn á Íslandi gekk vel, skilaði 2.966 milljónum króna í hagnað sam- kvæmt tilkynningu. Verr gekk að reka bankann á hinum Norðurlönd- unum en af þeirri starfsemi var 399 milljóna króna tap eftir skatta. Í til- kynningu segir að 143 milljónir króna af þeirri upphæð komi til t.d. vegna kostnaðar við uppsagnir starfsfólks. Hagræðing og samlegðaráhrif við önnur fyrirtæki innan samstæðunnar hafi hins vegar leitt til þess að starf- semin í Svíþjóð sé nú farin að skila hagnaði. Hagnaður af rekstri annars staðar í Evrópu nam 167 milljónum króna og 331 milljón króna í Banda- ríkjunum. Hagnaður Kaupþings Búnaðarbanka 56% meiri en á sama tíma í fyrra Tap af rekstri á Norðurlöndum    ' () *                                         $"%+ ++%#  +"#+  + %% &%#  6(%       )  *      $"%%(% &$+  &(#$  &&  ((& % ( $!  %(  '$&"   &++ && &&&%+  ,-     )     ./01           !4 5 ($4 5 4(5 +4$5 !#! (&4"5 #4%5 &(    !"#"$  &  (    !!%&   LANDSBANKINN ríflega tvö- faldaði framlag sitt í afskrifta- reikning útlána frá fyrra ári og nam framlagið nú 2.430 millj- ónum króna. Í tilkynningu frá bankanum segir að þrátt fyrir aukið framlag í afskriftareikn- ing útlána á tímabilinu bendi töl- ur um þróun vanskila hjá bank- anum til þess að viðsnúningur sé að verða hjá fyrirtækjum í við- skiptum við hann. Framlagið nú gefi því ekki vísbendingu fyrir komandi ársfjórðunga. Ef framlagið hefði verið óbreytt frá fyrra ári hefði hagn- aður fyrir skatta ekki numið 1.439 milljónum króna heldur 2.663 milljónum króna. Hagn- aður fyrir skatta í fyrra nam 1.107 milljónum króna og aukn- ingin milli ára hefði því numið 140% í stað 30% eins og hún er miðað við aukið framlag. Framlag í afskrifta- reikning tvöfaldað KAUPÞING Búnaðarbanki áætl- ar að spara 1–1,2 milljarða króna á ári frá og með ársbyrjun 2004 vegna samruna Kaupþings banka og Búnaðarbanka Íslands. Kostnaður vegna samrunans hef- ur verið áætlaður um 200 millj- ónir króna og hefur tæplega helmingur verið gjaldfærður. Samlegðaráhrif eiga einkum að felast í lægri fjármagnskostn- aði og lægri almennum rekstrar- kostnaði, svo sem launakostnaði, markaðs- og sölukostnaði og kostnaði við rekstur tölvu- og upplýsingakerfa. Í útreikningum um samlegðaráhrif er ekki gert ráð fyrir aukningu eða lækkun tekna vegna samrunans. Stöðugildi bankans voru 1.282 í lok júní og hafði fækkað um 78, eða 5,7%, frá áramótum. Miðað við tölur úr rekstrar- reikningi á fyrri hluta þessa árs hefði kostnaðarhlutfall bankans verið um 60% í stað 64% ef áætl- uð samlegðaráhrif hefðu verið komin fram, en sameinaður banki hóf starfsemi 27. maí síð- astliðinn. Sparnaður vegna sam- runa 1–1,2 milljarðar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.