Morgunblaðið - 09.08.2003, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 09.08.2003, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 2003 43 DAGBÓK Súlumót frá formaco ● úr pappa ● einföld og þægileg í notkun ● fæst í mörgum lengdum og breiddum Gylfaflöt 24-30 • 112 Reykjavík Sími 577 2050 • Fax 577 2055 formaco@formaco.is • www.formaco.is STJÖRNUSPÁ Frances Drake LJÓN Afmælisbörn dagsins: Þú átt auðvelt með að ein- beita þér og leysa erfið verk- efni. Þú nálgast viðfangsefni þín á skipulegan hátt og aðr- ir treysta þér vegna þessa. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Nú væri tilvalið að gera sér dagamun og líta á það sem afþreyingariðnaðurinn hefur uppá að bjóða. Taktu ein- hvern af yngri kynslóðinni með þér. Naut (20. apríl - 20. maí)  Í dag ættir þú að einbeita þér að heimili þínu og gera eitt- hvað til þess að fegra það. Þú skalt þó ekki kaupa nýja hluti í dag. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Það er töluverður hraði í þínu lífi þessa stundina. Fundir og umræður halda þér við efnið. Það gefst eng- inn tími til slökunar í dag. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Gætir þú haft betra starf? Hugmyndir þínar um auknar tekjur eiga rétt á sér. Ekki hika við að hrinda þeim í framkvæmd. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Nýtt tímabil í þínu lífi er um það bil að hefjast. Þú þarft að kveðja ákveðið fólk og ýmsa hluti. Gerðu þetta eins vel og þú getur. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú þarft á frið og ró að halda. Í dag skaltu gefa þér tíma til þess að líta yfir farinn veg og sjá hve vel þér hefur tekist upp með ýmsa hluti. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Nú væri tilvalið að njóta samvista með vinum og kunningjum. Segðu vinum þínum frá framtíðaráætl- unum þínum. Þeir gætu gefið góð ráð. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Það er meira tekið eftir þér en venjulega. Í dag átt þú auðvelt með að heilla fólk og vinna það á þitt band. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Gerðu eitthvað óvenjulegt í dag. Þig hungrar í ævintýri og aukna þekkingu. Það væri ekki úr vegi að gerast ferða- maður á sínum eigin heima- slóðum. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú verður að koma til móts við þarfir annarra í dag. Þú skalt þó forðast það sem heit- an eldinn að gera samninga eða taka mikilvægar ákvarð- anir. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Samtöl þín við ættingja og nána vini einkennast af galsa í dag. Þú skalt njóta þess að ræða við þessa einstaklinga. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Hugsaðu um það sem þú get- ur gert til þess að bæta heilsu þína. Hugsaðu fyrst og fremst um það að hætta ein- hverju sem er skaðlegt heils- unni. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. ÁRNAÐ HEILLA EINMANA Engan trúan á ég vin, auðnudagar þverra. Einn ég harma, einn ég styn, einn ég tárin þerra. Einn ég gleðst, og einn ég hlæ, er amastundir linna. Aðeins notið einn ég fæ unaðsdrauma minna. Kristján Jónsson LJÓÐABROT 70 ÁRA afmæli. KatrínKáradóttir, ljós- myndari, er sjötug í dag, laugardaginn 9. ágúst. Eiginmaður hennar er Ei- ríkur Svavar Eiríksson. 60 ÁRA afmæli. JónMagngeirsson pípu- lagningarmeistari verður sextugur á morgun sunnu- daginn 10. ágúst. Eiginkona Jóns er Margrét Snorra- dóttir, öldrunarfulltrúi. Jón óskar eftir að sjá sem flesta í garðinum að Þykkvabæ 14, milli 14 og 17, á afmælisdag- inn. 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rd2 Be7 4. Rgf3 Rf6 5. e5 Rfd7 6. c3 c5 7. Bd3 b6 8. O-O Ba6 9. Bxa6 Rxa6 10. He1 b5 11. a3 Db6 12. Rf1 c4 13. Rg3 h6 14. h4 Dc6 15. h5 O- O-O 16. Rh2 Rc7 17. Rg4 Hdg8 18. Bd2 Rb6 19. Hf1 De8 20. De2 Bh4 21. Bf4 a5 22. Re3 a4 23. Rg4 Rd7 24. Hae1 Dd8 25. Df3 Bg5 26. Re2 g6 27. Bh2 gxh5 28. Re3 De8 29. Dh3 Bd8 30. f4 h4 31. f5 Bg5 32. Rg4 h5 33. Rf6 Bxf6 34. exf6 Hg4 35. Bxc7 Kxc7 36. Rf4 Rxf6 37. fxe6 De7 Staðan kom upp í ofur- mótinu í Biel sem lauk fyr- ir skömmu. Ilya Smirin (2656) hafði hvítt gegn Yannick Pelletier (2602). 38. Rxd5+! Rxd5 39. Hxf7 Hh7 40. Hxe7+ Hxe7 41. Df3 Rf4 42. He4 og svartur gafst upp. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. VESTUR stendur frammi fyrir athyglis- verðum „teiknivanda“ í þriðja slag. Hann er í vörn gegn fjórum hjörtum og horfir á bókina, en þarf að teikna upp líklegasta mögu- leikann á fjórða slagnum: Norður gefur; allir á hættu. Norður ♠ KDG7 ♥ G4 ♦ 75 ♣ÁKD82 Vestur ♠ 10862 ♥ K7 ♦ 82 ♣97653 Vestur Norður Austur Suður -- 1 lauf 1 tígull 1 hjarta Pass 1 spaði 2 tíglar 2 hjörtu Pass 3 hjörtu Pass 4 hjörtu Pass Pass Pass Útspilið er tígulátta og austur tekur tvo slagi á drottningu og ás, hugsar sig aðeins um, en spilar svo tíg- ulkóng í þriðja slag. Suður fylgir lit alla leið, síðast með gosanum. Nú er það spurn- ingin: Á vestur að henda í slaginn eða trompa með hjartakóngi? Það má slá því föstu að austur eigi ekki spaðaásinn – hann hefði tekið á ásinn áður en hann spilaði þriðja tíglinum. Eini raunhæfi möguleikinn á fjórða slagn- um er í trompinu og þá þarf makker helst að eiga drottn- inguna. Ef makker á D10 tvíspil er nauðsynlegt að trompa með kóngi, en hins vegar má alls ekki blæða kónginum ef staðan er þessu lík: Norður ♠ KDG7 ♥ G4 ♦ 75 ♣ÁKD82 Vestur Austur ♠ 10862 ♠ 95 ♥ K7 ♥ D53 ♦ 82 ♦ ÁKD1096 ♣97653 ♣G10 Suður ♠ Á43 ♥ Á109862 ♦ G43 ♣4 Þá nær sagnhafi drottn- ingunni af makker með tveimur svíningum. Ef sagnhafi þarf hins vegar að trompa þriðja tígulinn kemst hann ekki hjá því að gefa tvo slagi á tromp. Eftir stendur spurningin hvor „teikningin“ sé líklegri: Dxx hjá makker eða D10 stakt. Síðarnefndi mögu- leikinn er í raun mjög hæp- inn. Suður á þá sjölit og hefði sennilega stokkið í þrjú hjörtu. Enn fremur hefði (góður) makker spilað LITLUM tígli í þriðja slag ef hann hefði viljað háa trompun. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson HLUTAVELTA Morgunblaðið/Árni Sæberg ÞESSAR duglegu stúlkur söfnuðu kr. 2.124 til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna. Þær heita Sara Sólrún Aðalsteinsdóttir og Sigríður M. Ágústsdóttir. MEÐ MORGUNKAFFINU Slappaðu af! Ég er bara að passa þá fyrir stúlkuna í hinu rúminu. Hún skrapp á klósettið. Sumar samt við sig Þrátt fyrir Verslunarmannahelgi og ýmsar aðrar uppákomur hefur Sumarbrids haldið sínu striki. Þriðju- daginn 22. júlí mættu 12 pör til leiks og fór „titillinn“ til Dalvíkur og ekki í fyrsta sinn: Ingvar Sigm. – Guðmundur Jónss. 65,5 Stefán Stefánss. – Björn Þorlákss. 57,9 Stefán Sveinbjörnss. – Jón Jónss. 57,6 Reynir Helgas. – Soffía Guðmundsd. 56,7 Hnn 29.júlí mættu 9 pör og fóru leikar svo: Sverrir Haraldss. – Pétur Guðjónss. 57,4 Björn Þorlákss. – Reynir Helgas. 55,6 Kolbrún Guðveigsd. – Gylfi Pálss. 52,3 Viku síðar áttust 8 pör við og þá kom, sá og sigraði Hornfirðingur ásamt Akureyringi: Steinarr Guðm. – Ragnar formaður 54,2 Frímann Stefánss. – Reynir Helgas. 53,6 Jón Sverriss. – Una Sveinsd. 51,8 Gríðarlega jöfn barátta er um hver verður bronsstigameistari sumarsins en hér eru þeir fimm efstu hingað til: Björn Þorláksson 114 Reynir Helgason 114 Frímann Stefánsson 101 Stefán Stefánsson 87 Pétur Guðjónsson 83 Sumarbrids er spilað á þriðjudög- um í Hamri, félagsheimili Þórs, kl. Bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Glæsibæ mánud. 21. júlí sl. Spilað var á 10 borðum. Meðalskor 216 stig. Árangur N-S: Albert Þorsteinsson – Bragi Björnsson 263 Björn E. Pétursson – Gísli Hafliðason 253 Júlíus Guðmundss. – Rafn Kristjánss. 242 Árangur A-V: Eysteinn Einarsson – Magnús Oddss. 275 Ólafur Ingvarsson – Birgir Sigurðsson 267 Magnús Halldórsson – Kristján Ólafss. 255 Tvímenningskeppni spiluð mánud. 28. júlí. Spilað var á 8 borðum. Með- alskor 168 stig. Árangur N-S: Júlíus Guðmundss. – Rafn Kristjánss. 199 Alda Hansen – Jón Lárusson 197 Oddur Jónsson – Ægir Ferdinandss. 190 Árangur A-V: Ásta Erlingsdóttir – Magnús Halldórss. 219 Sigtryggur Ellertss. – Þórarinn Árnas. 205 Kristján Samúelss. – Gunnar Péturss. 173 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson FRÉTTIR BYGGINGARNEFND Byggða- safns Vestfjarða og Múrkraft ehf. hafa undirritað með sér verksamn- ing um fyrsta áfanga sýningar- og geymsluhúss fyrir byggðasafnið. Björgmundur Örn Guðmundsson, formaður byggingarnefndar, segir fyrsta áfangann felast í gerð sökkuls fyrir húsið en það mun standa á lóð á móts við húsaþyrpinguna í Neðsta- kaupstað. Gert er ráð fyrir að ljúka verkinu í október og stefnt er að áframhald- andi framkvæmdum á næsta ári. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns Frá undirritun samningsins milli Múrkrafts ehf. og byggingarnefndar. Byrjað á byggingu fyrir Byggðasafn Vestfjarða MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynn- ingar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyr- irvara fyrir sunnudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælis- tilkynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og síma- númer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréf- síma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa : Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík MORGUNBLAÐINU hefur bor- ist eftirfarandi ályktun sem sam- þykkt var á fundi stjórnar Full- trúaráðs sjálfstæðisfélagana í Snæfellsbæ: „Stjórn Fulltrúaráðs sjálfstæð- isfélaganna í Snæfellsbæ ítrekar að á framboðsfundi sem haldinn var nú í vor kom fram að allir frambjóðendur Sjálfstæðisflokks- ins í NV-kjördæmi sem þar voru staddir voru sammála um að taka upp línuívilnun í stað byggðakvóta. Sömu skoðunar var Davíð Oddsson forsætisráðherra er hann hélt framboðsfund í fé- lagsheimilinu á Klifi, þar sem hann sagði einnig að sú 30 þús. tonna aukning í þorski sem sagt var að kæmi til framkvæmda skyldi fara til þeirra sem orðið hafa fyrir skerðingum undanfar- inna ára. Einnig vill stjórn fulltrúaráðs- ins minna á að þegar tillögu Guð- mundar Halldórssonar var unnið fylgi á landsfundi Sjálfstæðis- flokksins var það gert með þeim formerkjum að byggðakvótinn yrði notaður í þá framkvæmd en byggðakvótinn hefur ávallt valdið miklum deilum.“ Segja þingmenn fylgjandi línuívilnun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.