Morgunblaðið - 09.08.2003, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 09.08.2003, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 2003 29 i - a - . - - . , a s á - - n - - - r a m . - m r ð - g l - i skal gera grein fyrir fyrirhuguðum forsendum og markmiðum áætlunarinnar. Samgönguráð skal hafa samráð við hagsmunaaðila eins og ástæða þykir til hverju sinni.“ Samkvæmt lögum skal leggja fram sam- gönguáætlun til tólf ára og skal hún endur- skoðuð á fjögurra ára fresti. Er þar um að ræða rammaáætlun um tekjur og helstu fram- kvæmda- og rekstraráform. Jafnframt skal leggja fram fjögurra ára framkvæmda- og rekstraráætlun sem skal endurskoða á tveggja ára fresti. Nú er í gildi rammaáætlun sem nær til tímabilsins 2003 til 2014 og framkvæmda- áætlun fyrir tímabilið 2003 til 2006. Þessar áætlanir eru byggðar á vandaðri undirbúnings- vinnu og miklu samráði við embættismenn stofnana, sérfræðinga á sviði samgöngumála, sveitarstjórnarmenn og stjórnmálamenn. Forsendur skýrt skilgreindar með breyttum vinnubrögðum Þingsályktunin um samgönguáætlun kemur í stað sjö annarra áætlana samgöngumála sem Alþingi samþykkti áður. Með henni er áætl- anagerð flugmála, siglingamála og vegamála samræmd og tekin upp ný vinnubrögð sem gera verður ráð fyrir að þróist áfram í framtíðinni. Í samgönguáætlun er nú í fyrsta sinn skil- greint grunnnet samgangna sem tekur til flug- valla, hafna og vega. Samgönguáætlun miðast við að uppbygging vegakerfi grunnnetsins verði forgangsmál næstu tólf árin. Í samgönguáætluninni eru sett fram fjögur meginmarkmið fyrir samgöngumál almennt auk markmiða fyrir viðhald, þjónustu og uppbygg- ingu grunnnetsins. Vísað er til greinargerðar með þingsályktunartillögu um samgönguáætlun þar sem markmiðin koma fram. Nýmæli er að setja fram markmið með þessum hætti í áætl- unum samgöngumála. Þessari aðferðafræði er ætlað að auðvelda Alþingi að fjalla um sam- göngumál í stærra samhengi. Þegar litið er á markmið vegaframkvæmda skín nokkuð í gegn að áherslumunur er á þeim eftir því hvort horft er til höfuðborgarsvæðisins eða landsbyggðar- innar. Á landsbyggðinni er unnið að því að byggja upp vegakerfið í grunnnetinu þannig að það uppfylli lágmarkskröfur og auki öryggi. Dýrari framkvæmdir á landsbyggðinni miðast einkum við að tengja byggðarlög, atvinnu- og þjónustusvæði. Hins vegar er á höfuðborgar- svæðinu unnið að því að auka afköst grunnkerf- isins, auka öryggi og koma til móts við um- hverfissjónarmið. Það er Alþingi sem á endanum ákveður heildarfjárframlag til upp- byggingar samgöngumála hér á landi og markar stefnuna sem unnið er eftir í öllum landshlutum. Að lokum vil ég taka það fram að það er mín skoðun að umræða um svo mikilvægt málefni sem forgangsröðun sé af hinu góða. Það verður hins vegar að gera þá kröfu til háskólastofnana og sérfræðinga í samgöngumálum að þeir hafi heildarmyndina fyrir sér og fjalli um hlutina eins og þeir eru, en ekki um það sem var, þegar gerðar eru tillögur um framkvæmdir til næstu ára. Það er vissulega hlutverk stjórnmálamanna að taka tillit til ólíkra sjónarmiða við uppbygg- ingu samgangna s.s. öryggis notenda sam- göngukerfisins, hagkvæmni, aðgengis íbúanna að þjónustu, byggðaþróunar og umhverfissjón- armiða. Það er von mín að sem flestir taki þátt í umræðum og taki afstöðu til framkvæmda í samgöngumálum og geri það á málefnalegan hátt. samgöngumálum Höfundur er samgönguráðherra. í karla- og kvenna- nnslu. Hávær krafa að allar konur hylji ð slæðu. Það væri t kaldhæðnislegt ef ms Hussein í Írak yrði bókstafstrúarmenn- ahópar margs konar kum í landinu. En mst yrði það mjög aða fyrir þorra onur. jarðvegur í Írak virð- tæki og kúgun. Sú ndi að meirihlutinn nn verður saman sett- frelsi til þess að fót- ið í viðleitni sinni til þess að hafa hemil á minnihlutahóp- um eða andstæðingum sínum. Það er því algjört grundvallaratriði í upp- byggingu lýðræðis í Írak að staða minnihlutahópa sé tryggð og að rétt- indi kvenna verði höfð að leiðarljósi við uppbygginguna. Bandarísk og bresk stjórnvöld, her- námsliðið og höfuð þess, Paul Brem- er, landstjóri í Írak, eru blindir á mik- ilvægi þess að virkja konur til þátt- töku í þessu gríðarstóra og mikilvæga verkefni. Konur hafa verið útilokaðar frá þátttöku í ráðum og ráðgjafar- nefndum með örfáum undantekn- ingum. Sýndaraðgerðir, svokallaður tókenismi, munu ekki duga til. Óöldin sem geisað hefur í Írak síð- astliðna mánuði hefur sett mark sitt á daglegt líf kvenna og barna. Margar konur eru hættar að þora einar út fyr- ir hússins dyr. Kynferðisglæpum hef- ur fjölgað gífurlega. Stjórnleysi, grip- deildir og fullkomin ringulreið er viðvarandi ástand á meðan að her- námsliðinu tekst ekki að koma á lög- um og reglum í landinu. Áður voru það uppljóstrarar Baath-flokksins sem kyntu undir ótta og óöryggi hins almenna borgara, nú hafa þeir tekið á sig nýja mynd. Konur sem reyna að sinna daglegum störfum sínum, t.d. við háskólakennslu eða á sjúkra- húsum, verða oft fyrir áreiti sjálfs- skipaðra siðavarða sem krefjast þess að þær klæði sig rétt eða ógna þeim með öðrum hætti. Mannréttindasamtökin Human Rights Watch birtu skýrslu í júlí þar sem sérstaklega var vakin athygli á óviðunandi stöðu kvenna í Bagdad og fleiri borgum í Írak. Samtökin segja að nauðganir og brottnám kvenna og barna, m.a. til mansals, séu í ískyggi- legum vexti. Ekki bætir úr skák að hið almenna viðhorf til nauðgana er að þær séu fórnarlambinu að kenna, enda sé það búið að kalla skömm yfir sig og fjölskyldu sína. Í skýrslunni segir orðrétt: Þetta ástand hefur geigvænleg og lamandi áhrif á dag- legt líf kvenna og barna, og kemur í veg fyrir þátttöku kvenna á opinber- um vettvangi, einmitt þegar þeirra er mest þörf við endurreisn og uppbygg- ingu landsins. Það er óneitanlega kaldranalegt að horfa upp á þróunina í Írak og Afgan- istan með tilliti til stöðu kvenna. Þær hafa losnað undan ógnarstjórn Sadd- ams Hussein og talibana en margt bendir til þess að þarfir kvenna, frelsi þeirra og almenn borgaraleg réttindi, séu fyrir borð borin í uppbygging- arstarfinu sem nú er á byrjunarreit. Ef hagsmunir kvenna verða út undan í því ferli sem fram undan er, er hætt við að árangurinn verði lítill sem eng- inn. Líklega er þess langt að bíða að kvennalisti líti dagsins ljós í Írak eða annars staðar í Miðausturlöndum. En eitt er víst: Lýðræði án þátttöku kvenna er andvana fætt. n og konurnar Höfundur situr í utanríkismálanefnd fyrir Samfylkinguna.  !"#!$ %&&  '() Þ RÓUNARLÖNDUM er oft ráðlagt (eða skipað) að ráðast í umbætur, sem „sérfræð- ingar“ eða svokallaðir „tækni- kratar“ leggja til og njóta oft stuðnings Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. And- stöðu við umbæturnar er yfirleitt vísað á bug sem „lýðskrumi“ eða „lýðhyggju“. Þjóðir sem láta hjá líða að koma þessum umbótum í framkvæmd eru vændar um hugleysi og „skort á pólitísku viljaþreki“ og þær fá brátt að kenna á afleiðing- unum: hærri vöxtum þegar þær taka lán erlendis. Þegar grannt er skoðað kemur samt í ljós að margar af tillögum „tæknikrat- anna“ byggjast frekar á hugmyndafræði en hagvísindum. Auðvitað er hægt að ganga út frá því sem vísu að þeir geti bætt rekstur raforkuvera. Markmiðið er einfalt: að framleiða rafmagn með eins litlum kostnaði og mögulegt er. Það snýst einkum um verkfræði, ekki stjórnmál. Efnahagslegar ráðstafanir eru yfirleitt ekki „tæknikratískar“ í þessum skilningi. Í þeim felst oft að einu er fórnað fyrir annað: sumar geta leitt til meiri verð- bólgu en minnkandi atvinnuleysis; sumar koma fjárfestum til góða, aðrar launþeg- um. Í hagfræðinni er orðið Pareto- hagkvæmur haft um ráðstöfun sem felur í sér að ekki sé hægt að bæta hag neins hóps án þess að hagur annars versni. Ef tiltekin ráðstöfun er betri en allar aðrar fyrir alla, þ.e. þegar engir Pareto- hagkvæmir kostir eru fyrir hendi, er hún sögð vera Pareto-ráðandi. Væru kostirnir fullkomlega Pareto [í samræmi við hug- mynd Vilfreds Pareto, ítalsks verkfræð- ings sem var uppi 1848–1923], þ.e. ef eng- inn hópur myndi tapa á þeirri ráðstöfun sem valin er, miðað við aðrar ráðstafanir, væru kostirnir allsendis „tæknilegir“. Í raun og veru eru kostirnir þó sjaldan þannig. Þess í stað eru þeir oft góðir fyrir suma hópa en verri fyrir aðra. Mismun- andi ráðstafanir bæta hag eða skaða ólíka hópa. Í Austur-Asíu, til að mynda, hafa fjár- hagslegar björgunaraðgerðir Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins hjálpað alþjóðlegum lánardrottnum, en komið hart niður á launþegum og innlendum fyrirtækjum. Aðrar ráðstafanir hefðu getað falið í sér meiri áhættu fyrir alþjóðlegu lánardrottn- ana en minni fyrir launþega og innlendu fyrirtækin. Þegar ráðstafirnar eru valdar standa menn oft frammi fyrir vali á milli gilda, þannig að það er ekki tæknileg spurning um hvaða ráðstöfun sé „betri“ í einhverjum siðfræðilega óumdeilanlegum skilningi. Þetta val á milli gilda er póli- tískt val og ekki er hægt að láta tækni- kratana um það. Auðvitað er svigrúm fyrir tæknilega greiningu jafnvel þótt ákvörðunin snúist fyrst og fremst um pólitískt val. Tækni- kratar geta stundum orðið að liði við að forðast Pareto-lakari ráðstafanir sem verða til þess að hagur allra versnar. Stundum er hægt að gera ráðstafanir sem stuðla bæði að hagvexti og jöfnuði og það er einmitt verkefni góðra hagfræð- inga að finna þær. Vandinn er hins vegar sá að margar ráðstafanir, sem tæknikrat- ar beita sér fyrir eins og þær væru Par- eto-hagkvæmar, eru í raun gallaðar og verða til þess að hagur margra hópa – stundum heilla þjóða – versnar. Við skulum líta á nokkur af fjölmörgum dæmum um einkavæðingu og afnám reglugerða fyrir tilstilli tæknikrata síð- asta áratuginn. „Bankaumbæturnar“ urðu oft til þess að ríkisvaldið þurfti fljótlega að koma bönkunum til hjálpar, þannig að örfáir menn urðu miklu ríkari en landið miklu fátækara. Þetta sýnir að við ættum að hafa minna traust á meintri faglegri færni tæknikrata – eða að minnsta kosti minna traust en þeir hafa á sjálfum sér. Hafa ber einnig mikilvægara grundvall- aratriði í huga. Lýðræðislega kjörnir stjórnmálamenn eru líklegri til að vera viðkvæmari fyrir raunverulegum afleið- ingum efnahagsráðstafana, þeim fórnum sem eru í raun færðar fyrir annað. Auðvitað getur gagnrýni á úrræði tæknikrata verið helbert lýðskrum, en stundum felst í henni innsæi sem tækni- kratana í fílabeinsturnunum skortir (þeir eru yfirleitt menntaðir í Bandaríkjunum). Hugum að því sem gerðist í Mexíkó þar sem lýðræðislega kjörið þing hafnaði til- lögu um að auka tekjur ríkisins með skatti á matvæli og lyf – og sú niðurstaða kom ekki á óvart þar sem þetta hefði komið harðast niður á fátækum lands- mönnum. Með því að hafna þessari tillögu gerð- ust stjórnmálamennirnir ekki sekir um taumlaust lýðskrum. Vandamálið fólst í tillögunni. Stuðningsmenn hennar færðu rök fyrir því að til að tryggja „skilvirkni“ þyrfti að leggja virðisaukaskatt á allar vörur. Þróuð iðnríki í Evrópu nota slíkan skatt. Þróunarlöndin, sögðu tæknikrat- arnir, ættu að fara að dæmi þeirra. Það er hins vegar grundvallarmunur á þróuðum Evrópuríkjum og nýiðnvæddum löndum: stærð óformlega eða óskipulagða geirans þar sem virðisaukaskattur er ekki innheimtur. Vegna þessa gríðarstóra „svarta markaðar“ er virðisaukaskattur óhagkvæmur í flestum þróunarlöndum. Virðisaukaskattur torveldar þar þróun vegna þess að hann er aðeins lagður á formlega geirann – nýju verksmiðjurnar, bankana og fyrirtækin sem greiða reglu- leg laun og stunda viðskipti sem auðvelt er að rekja (ólíkt götusölunum, smáfyrir- tækjunum og fátæku bændunum sem fá yfirleitt greitt í reiðufé). Rökin eru einföld. Þróunarlönd sem taka upp virðisaukaskatt stuðla þar með að því að framleiðslan haldist í óformlega geiranum sem framleiðir oft varning sem seldur er innanlands. Formlegi geirinn, sem framleiðir vörur með meiri virð- isauka, keppir hins vegar við þróuðu iðn- ríkin. Í mörgum þróunarlöndum er hægt að auka tekjurnar með öðrum sköttum sem eru sanngjarnari og hindra miklu síður framfarir en virðisaukaskatturinn. Í mörgum þeirra er enginn skattur á tekjur fyrirtækja: gríðarmikill hagnaður síma- fyrirtækja, sementsverksmiðja og ann- arra einokunarfyrirtækja er því ekki skattlagður. (Hafi menn áhyggjur af tví- sköttun geta þeir heimilað afslátt af sköttum einstaklinga vegna fyrirtækja- skatta.) Ennfremur getur komið til greina að leggja skatta á munaðarvörur (sem eru oft innfluttar) og stuðla þannig að jöfnuði án þess að hindra hagvöxt. Hagfræðingar styðja aðeins virðis- aukaskatt telji þeir að jöfnuður skipti ekki máli og ef hægt er að skattleggja allar vörutegundir. Menn þurfa ekki að vera með doktorsgráðu í hagfræði til að átta sig á því að í þróunarlöndunum er ekki hægt að leggja skatta á allar vörur. Auk þess ættu menn að líta svo á að jöfn- uður skipti máli. Þannig að næst þegar menn heyra nöldur á þingi nýiðnvædds lýðræðisríkis yfir hinni og þessari tillögu „tæknikrata“ ættu þeir að hugsa sig tvisvar um áður en þeir vísa efasemdum þingmannanna á bug sem gífuryrðum lýðskrumara. Ef til vill eru lýðskrumararnir vinsælir vegna þess að þeir vita eitthvað sem tæknikrat- arnir hafa ekki hugmynd um. Lýðskrumarar hafa stundum rétt fyrir sér Eftir Joseph Stiglitz © Project Syndicate. Joseph Stiglitz fékk Nóbelsverðlaunin í hagfræði 2001. Hann er hagfræðiprófessor við Columbia- háskóla og var formaður ráðs efnahagsráðgjafa Bills Clintons, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, og aðalhagfræðingur og varaforseti Alþjóða- bankans. ’ Þegar grannt er skoð-að kemur í ljós að marg- ar af tillögum „tækni- kratanna“ byggjast frekar á hugmyndafræði en hagvísindum ‘
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.