Morgunblaðið - 09.08.2003, Síða 18

Morgunblaðið - 09.08.2003, Síða 18
SUÐURNES 18 LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ SAMNINGAR um kaup Hitaveitu Suðurnesja hf. á Vatnsveitu Reykjanesbæjar hafa verið staðfestir í stjórn Hitaveitunnar og bæjarráði Reykjanesbæjar og verða væntanlega endan- lega staðfestir í bæjarstjórn síðar í mánuðinum. Minnihlutinn í bæjarráði greiddi atkvæði á móti sölunni á fundi í fyrradag og dró oddviti Sam- fylkingarinnar lögmæti samningsins í efa. Við gerð fjárhagsáætlunar Reykjanesbæjar fyrir yfirstandandi ár var gert ráð fyrir sölu Vatnsveitu Reykjanesbæjar. Teknar voru upp samningaviðræður við Hitaveitu Suðurnesja hf. sem sem lyktaði með því að samið var um að Hitaveitan keypti eignirnar á 360 milljónir króna. Fyrst og fremst er um að ræða vatns- lagnir og dælustöðvar innanbæjar, auk þeirra réttinda sem fylgja því að selja notendum kalt vatn. Hitaveitan fær nú vatnsgjaldið sem Reykjanesbær innheimtir með fasteignagjöld- um en það mun vera tæpar 90 milljónir kr. á ári. Söluverð 360 milljónir Böðvar Jónsson, formaður bæjarráðs Reykja- nesbæjar, segir að aðdragandinn að þessari sölu sé viljayfirlýsing sem bæjarstjórnirnar á Suðurnesjum samþykktu fyrir nokkrum árum um að Hitaveitan tæki yfir rekstur vatnsveitn- anna. Hann segir að hitaveita annist sölu á heitu vatni í öllum bæjarfélögunum og eðlilegt sé að sala á heitu og köldu vatni sé á sömu hendi. Það hafi hagkvæmni í för með sér og sé skynsamlegt vegna þess að oft fari framkvæmd- ir þessarra tveggja veitna saman. Hitaveitan greiðir 360 milljónir fyrir vatns- veituna. Böðvar telur að það sé eðlilegt verð fyrir eignirnar, það sýni útreikningar sem gerð- ir hafi verið út frá mörgum forsendum. Í fjár- hagsáætlun Reykjanesbæjar er gert ráð fyrir að 450 milljónir komi í sjóðinn fyrir sölu eigna á árinu. Böðvar segir ljóst að áætlunin standist og vel það því áður hafi verið búið að selja fast- eignir og tæki Þjónustumiðstöðvar Reykjanes- bæjar. Hitaveita Suðurnesja hefur annast vatnsöflun fyrir vatnsveitur sveitarfélaganna á Suðurnesj- um, annarra en Voga, og skilað vatninu á bæj- armörkum. Þá á Hitaveitan vatnsveitu í Vest- mannaeyjum. Júlíus Jónsson forstjóri segir að stjórnendur fyrirtækisins hafi, áður en gengið var til endanlegra samninga við Reykjanesbæ, farið í gegnum það hvort fyrirtækið vildi færa sig meira út á þetta svið. Mönnum hafi verið ljóst að ef vatnsveita yrði keypt af einu sveitar- félagi yrði sama að ganga yfir aðra eignaraðila. Ákveðið hafi verið að fara þessa leið og stjórnin sé reiðubúin að ræða við aðrar sveitarstjórnir um kaup á vatnsveitum þeirra, óski þær þess. Hann segir að kaupverðið sé reiknað á gegn- sæjan hátt út frá arðsemi rekstrarins og þeir útreikningar yrðu lagðir til grundvallar í við- ræðum við aðra. Efast um lögmæti samninga Minnihlutinn í bæjarráði Reykjanesbæjar, fulltrúar Samfylkingarinnar, greiddu atkvæði á móti samningnum um sölu vatnsveitunnar. Jó- hann Geirdal lét bóka að hann drægi í efa laga- legt réttmæti samningsins. Afgreiðsla bæjar- ráðs verður lögð fyrir fund bæjarstjórnar 19. ágúst næstkomandi og verður samningurin væntanlega endanlega staðfestur þá. Stefnt er að því að Hitaveita taki við rekstri vatnsveit- unnar um næstu mánaðamót. Böðvar Jónsson segir að vissulega megi túlka lögin með mismunandi hætti en fram komi í lög- fræðiáliti að ekki sé hægt að slá því föstu að sala vatnsveitunnar sé í ósamræmi við lögin. Reykjanesbær sé að fylgja þróun sem orðið hafi víða um land þar sem veitufyrirtæki hafi verið sameinuð og vatnsveitur seldar. Stjórnvöld hafi ekki gert athugasemdir við það og nú sé verið að undirbúa breytingar á lögum sem taki af öll tvímæli um lögmæti slíkra gerninga. Nokkur fordæmi Júlíus Jónsson segir að Hitaveitan hafi áður farið í gegn um lagalega stöðu slíkra samninga, það var þegar félagið keypti Bæjarveitur Vest- mannaeyja. Vatnsveitan hafi verið inni í þeim kaupum. Þá hafi Orkuveita Reykjavíkur og Norðurorka á Akureyri með höndum sölu á köldu vatni. Júlíus segir að þótt sameining vatns- og hita- veitna kunni að vera á gráu svæði og laga- ramminn mætti vera skýrari hafi stjórnvöld hingað til ekki treyst sér til að mæla á móti slíku, þótt eftir hafi verið leitað og segist hann ekki eiga von á að farið verði að gera at- hugasemdir nú. Hitaveita Suðurnesja hf. bætir kaldavatnskrananum við þann heita Kaupir Vatnsveitu Reykja- nesbæjar á 360 milljónir Reykjanesbær ÁRLEGUR fjölskyldudagur verður í Vogunum í dag. Hátíðin vex með hverju árinu, í takt við öran vöxt sveitarfélagsins. Fjölskyldudagurinn er útihátíð og er hugsuð fyrir alla fjölskylduna eins og nafnið bendir til. Einkum er verið að höfða til íbúanna sjálfra en þó er öllum unglingum á Suðurnesjum, 15 til 17 ára, boðið að koma í sundlaug- arpartý um kvöldið. Félög og klúbb- ar í Vatnsleysustrandarhreppi bera hitann og þungann af framkvæmd hátíðarinnar, segir Lena Rós Matthíasdóttir tómstundafulltrúi. Dagskráin hefst klukkan 10.30 með dorgveiðikeppni við höfnina. Hátíðarsvæðið í Aragerði opnar klukkan 14. Þar verða leiktæki, íþróttaviðburðir og skemmtiatriði á dagskrá fram á kvöld. Þar verður lif- andi tónlist, húsmunauppboð og línu- skautahokkí, svo örfá atriði séu nefnd. Um kvöldið verður grillað í Aragerði, hreppurinn býður upp á pylsur og kók. Um kvöldið verður félagsmið- stöðvarpartý fyrir 12 til 14 ára ung- linga, sundlaugarpartý fyrir 15 til 17 ára með tónlist og fjöri. Fjölskyldu- deginum lýkur síðan með dansleik þar sem Stuðbandalagið leikur fyrir dansi. Húsmuna- uppboð á fjölskyldu- degi Vogar GRASVÖLLURINN í Njarðvík, sem vígður var árið 1959, var með þeim alfyrstu á landinu. Þetta kom fram í kynningu Áka Gränz í Njarðvík- urgöngu sem Upplýsingamiðstöð Reykjaness stóð fyrir á dögunum. Á undanförnum vikum hefur Upplýsingamiðstöð Reykjaness staðið fyrir skoðunarferðum um sveitarfélögin á Suðurnesjum. Markmiðið er að kynna Upplýs- ingamiðstöðina, sem opnuð var fyrr í sumar, og vekja áhuga fólks á um- hverfi sínu, að sögn Rannveigar Garðarsdóttur, starfsmanns mið- stöðvarinnar. Í júlí var gengið um Keflavík með Sturlaugi Björnssyni og Grindavík með Halldóri Ingv- arssyni en Áki Gränz fór fyrir Njarðvíkurgöngunni og ákvað blaðamaður Morgunblaðsins að slást í för. Grasvöllur og Stekkjarhamar Gengið var um helstu kennileiti í Ytri-Njarðvík og stiklað á stóru í sögu bæjarfélagsins. Í máli Áka kom m.a. fram að grasvöllurinn í Njarðvík, sem tekinn var í notkun við hátíðlega athöfn 1959, hafi ver- ið sá fyrsti á Suðurnesjum og með þeim alfyrstu á landinu. Njaðvík- ingar réðust í byggingu vallarins eftir að þeir tóku við rekstri Kross- ins, sem gekk vel. Völlurinn var ekki langt frá skemmtistaðnum og innan seilingar er einnig Stekkjar- hamar, staður elskenda. Þangað fóru pör oft til að eiga góða stund saman, enda fallegt útsýni þaðan út á Faxaflóa. Áki sagðist eitt sinn hafa verið beðinn að mála þrjár myndir af staðnum fyrir sama mann, þar sem hann hafi átt svo góðar minningar frá honum. Næsta ganga verður þriðjudag- inn 12. ágúst en þá mun Ásgeir Hjálmarsson fara fyrir skoðunar- ferð um Garðinn. 14. ágúst verður farið um Sandgerði í fylgd Reynis Sveinssonar, hinn 18. verða Hafnir skoðaðar með Jóni Borgarssyni og kvöldið eftir verður gengið um Voga í fylgd með Þorvaldi Erni Árnasyni og Höllu Guðmunds- dóttur. Síðasta skoðunarferðin verður 21. ágúst en þá verða úti- listaverk í eigu Reykjanesbæjar skoðuð með Valgerði Guðmunds- dóttur menningarfulltrúa. Allar nánari upplýsingar er hægt að nálgast á Upplýsingamiðstöð Reykjaness. Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Stekkjarhamar var vinsæll staður elskenda. Áki Gränz fylgdi fólki á staðinn og leyfði þeim að njóta útsýnisins. Góðar minningar frá stað elskenda Njarðvík ÞÓTT íbúar í Garði hafi lengst af haft aðalframfæri sitt af sjósókn er talið að þar hafi verið gróin land- svæði, nokkrar stórjarðir og akrar. Um síðustu áramót sást votta fyrir 18 akurreinum fyrir vestan prest- setrið Útskála. Þótt byggðin teljist nú þéttbýli er hún á köflum gisin og menn hafa tækifæri til að rækta tún og vera með hesta og aðrar skepnur. Íbúi í einu húsanna í Út-Garði þurfti að skamma hundinn sinn duglega fyrir að atast í hestunum þegar ljós- myndarinn raskaði ró skepnanna. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Ræktun frá fornu fari Garður SANDGERÐISBÆR hefur frum- kvæði að viðræðum sveitarfélaga á Suðurnesjum um hugsanlega sölu á lóð og húsakosti hjúkrunarheimilis- ins Garðvangs í Garði. Reynir Sveinsson, forseti bæjar- stjórnar Sandgerðis, segir að eftir deilur sem urðu um skipulag Gerða- hrepps á lóð Garðvangs á síðasta ári hafi vaknað umræður um samstarf sveitarfélaganna og ríkisins um þetta verkefni. Þá hafi sveitarfélögn sjálf, eins og Sandgerðisbær, byggt upp aðstöðu á þessu sviði. Sveitar- félögin eigi saman hús hjúkrunar- heimilisins og mikla lóð í kringum það en reksturinn sé alfarið á hendi ríkisins. Þyki eðlilegt að reyna að skýra verkaskipti sveitarfélaganna og ríkisins. Bæjarráð Sandgerðis samþykkti að óska eftir tilnefningum sveitarfé- laganna fjögurra sem eiga aðild að Dvalarheimilum Suðurnesja. Reynir segir að vel hafi verið tekið í þetta af hinum sveitarfélögunum og býst við að nefndin hefji störf strax að lokn- um sumarleyfum. Kanna hagkvæmni Nefndinni er ætlað að kanna hag- kvæmni þess að selja umræddar eignir og ræða við ríkisvaldið um framgang málsins. Viðræður um sölu eigna Garðvangs Sandgerði

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.