Morgunblaðið - 09.08.2003, Page 23
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 2003 23
Skortur á trefjum getur valdið því að fæðan fer hægar í gegnum
meltingarfærin en eðlilegt er. Trefjarnar í Colon Cleanser drekka í sig meiri
vökva en flestar aðrar trefjar og koma því fæðunni hratt og
örugglega í gegnum meltingarfærin. Acidophilus mjólkursýrugerlarnir
viðhalda eðlilegri og heilbrigðri starfsemi meltingarfæranna.
Hratt og örugglega!
Þegar þú kaupir
glas af Acidophilus
færðu annað eins
á hálfvirði! *
* Þ e t t a t i l b o ð g i l d i r ú t n æ s t u v i k u
www.markid.is • Sími: 553 5320 • Ármúla 40
H
ön
nu
n:
G
un
na
r
S
te
in
þ
ór
ss
on
/
M
ar
ki
ð
/
08
.2
00
3
Reiðhjól 10-40% afsláttur
-21 gíra fjallahjól frá kr. 14.900
Golfvörur 10-70% afsláttur
- Járnasett frá kr. 9.900
Sportfatnaður og íþróttaskór 20-70% afsláttur
Hlaupahjól aðeins kr. 6.900, áður 11.900
Regnfatnaður 20% afsláttur
Sundfatnaður frá kr. 500
Rólur og rennibrautir 20% afsláttur
Fótboltaskór barna frá kr. 990
®
Dúndur!
afsláttur
aföllum
vörum
SENN líður að því að skólar hefj-
ist og munu margir sjálfsagt eign-
ast sína fyrstu skólatösku á næstu
vikum. Guðrún Ólafsdóttir, hjúkr-
unarfræðingur við Heilsugæslu-
stöðina í Mjódd og Ölduselsskóla,
segir mikilvægt að skólataskan
sem verði fyrir valinu henti
barninu og sé þægileg. Taska sem
passi ekki geti leitt til slæmrar lík-
amsstöðu og vandamála í stoð-
kerfi seinna meir. Hún segir að
bæklingurinn Barnið og skóla-
taskan geymi bestar upplýsingar
um hvernig standa skuli að vali á
skólatösku. Bæklingurinn var gef-
inn út árið 2002 af Heilsugæslunni
í Reykjavík og er eftir Ágústu
Guðmarsdóttur, Ellu B. Bjarnason
og Guðrúnu Hafsteinsdóttur.
Hann liggur frammi á flestum
heilsugæslustöðvum og er víða af-
hentur foreldrum þegar þeir
koma með börn sín í 5 ára skoðun.
„Ég bendi foreldrum gjarnan á að
geyma bæklinginn því þær upplýs-
ingar sem þar koma fram nýtast
einnig þegar barnið verður
eldra,“ segir Guðrún.
Sex ára börn mega
bera tvö kíló
Guðrún bendir á að taskan þurfi
að henta vel baki barnsins, liggja
þétt upp við hrygg og sitja á
mjöðmum. Töskur, sem hægt er
að spenna um brjóst og mitti, séu
sérstaklega góðar fyrir yngri
börnin, þannig sitji taskan betur
og auðveldara sé fyrir börnin að
hreyfa sig eðlilega. Þá eigi böndin
sem fara yfir axlirnar að vera
breið, bólstruð og auðstillanleg.
Hún segir mikilvægt að taskan
sé ekki of þung fyrir barnið.
„Þyngd töskunnar ætti helst ekki
að vera meira en 10 prósent af lík-
amsþyngd barnsins og alls ekki
meira en 20 prósent. Hjá sex ára
börnum er miðað við að taskan sé
ekki þyngri en 2 kíló með bókum
og best er að taka með bækur þeg-
ar taskan er mátuð,“ segir Guð-
rún.
Of þungar töskur
valda verkjum
Guðrún segir að börnin fari
fljótlega að kvarta um einkenni
frá stoðkerfi ef töskurnar eru
farnar að íþyngja þeim. Hún segir
slíkar kvartanir mjög algengar
hjá börnum, allt frá 9 ára aldri og
upp úr. „Eitt það fyrsta sem ég
geri þegar þau koma til mín og
kvarta yfir verkjum í baki og öxl-
um er að biðja þau um að koma
með skólatöskuna til mín. Ég
vigta hana og ef hún er of þung
segi ég þeim að fara með hana
heim og taka aðeins til í henni. Ég
bendi þeim á að vera ekki með
neitt í töskunni sem þau þurfi
ekki, passa sig á að taskan sitji
rétt og hangi ekki niður af öxl-
inni,“ segir Guðrún.
Val á skólatöskum fyrir börn
Brjóst- og mjaðma-
festingar æskilegar
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Ýmsu þarf að huga að þegar skólataskan er valin.
NÝ G-Shock-úr frá Casio eru kom-
in á markaðinn en nýr umboðs-
aðili Casio á Íslandi er Ingimar
Guðmundsson ehf. G-Shock-úrin
frá Casio hafa verið framleidd frá
árinu 1983 og eiga því 20 ára af-
mæli um þessar mundir. Nýju G-
Shock-úrin eru búin svokallaðri
tvísýnarskífu eða tveimur skífum;
úraskífu og digitalskífu. Í gegnum
op á úraskífunni er hægt að sjá
digitalskífuna, en hún sýnir meðal
annars heimstíma, skeiðklukku og
niðurteljara. Casio-úrin fást í
flestum úraverslunum.
Ný G-
Shock-úr
KAFFIBOÐ ehf. hefur
hafið innflutning á capp-
uccino- og espresso-
kaffivélum frá ítölsku
fyrirtækjunum Rancilio
og Isomac. Vélarnar eru
bæði ætlaðar til heim-
ilis- og fyrirtækjanota.
Heimilisvélarnar Silvia
og Zaffiro eru að öllu leyti smíð-
aðar í verksmiðjum fyrirtækj-
anna, þar með taldir íhlutir, og
er allur frágangur eins og í
stórum kaffihúsavélum. Silvia-
heimilisvélin hefur verið
valin besta kaffivélin
fjögur ár í röð af sam-
tökum kaffiunnenda að
því er fram kemur í til-
kynningu frá innflytj-
anda. Í dag verður sér-
stakur kynningardagur í
verslun Kaffiboðs á
horni Grettisgötu og Barónsstígs
þar sem notkun vélanna verður
kynnt og fólki gefinn kostur á að
bragða kaffið úr báðum vél-
unum.
Cappuccino-vélar til
heimilisnota
alltaf á sunnudögumFERÐALÖG