Morgunblaðið - 09.08.2003, Page 46
ÍÞRÓTTIR
46 LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
1. deild karla
Afturelding – Keflavík ............................0:4
- Þórarinn Kristjánsson 13., 21., Magnús
Þorsteinsson 23., Kristján Jóhannsson 67.
Staðan:
Keflavík 13 9 3 1 35:14 30
Víkingur R. 13 7 5 1 19:9 26
Þór 12 6 4 2 28:20 22
Stjarnan 12 4 5 3 19:16 17
Haukar 13 4 4 5 17:21 16
Njarðvík 12 4 3 5 24:25 15
HK 13 4 2 7 17:21 14
Breiðablik 13 4 2 7 14:18 14
Afturelding 13 3 2 8 13:28 11
Leiftur/Dalvík 12 2 2 8 16:30 8
2. deild karla
Fjölnir – Tindastóll ..................................5:1
Staðan:
Völsungur 14 11 1 2 51:20 34
Fjölnir 14 9 3 2 42:19 30
Selfoss 14 8 2 4 31:18 26
Tindastóll 14 7 1 6 25:27 22
ÍR 13 6 1 6 25:21 19
KS 14 5 4 5 22:23 19
Víðir 13 5 2 6 16:22 17
KFS 13 4 2 7 27:35 14
Léttir 14 2 1 11 12:55 7
Sindri 13 1 3 9 21:32 6
3. deild karla A
Grótta – Víkingur Ó. .................................2:4
Deiglan – Bolungarvík..............................6:6
Staðan:
Víkingur Ó 13 11 2 0 47:12 35
Skallagr. 13 8 2 3 41:22 26
Númi 12 7 3 2 34:24 24
BÍ 12 5 2 5 23:27 17
Grótta 12 3 2 7 16:19 11
Drangur 11 3 1 7 19:35 10
Bolungarvík 12 2 2 8 28:43 8
Deiglan 13 2 2 9 24:50 8
3. deild karla B
Freyr – ÍH .................................................0:5
Leiknir R. – Reynir S................................2:1
Afríka – Árborg .........................................4:4
Ægir – Hamar ...........................................0:6
Staðan:
Leiknir R. 12 11 1 0 55:8 34
Reynir S. 12 9 2 1 48:7 29
ÍH 12 7 1 4 30:19 22
Árborg 12 5 3 4 42:26 18
Freyr 12 5 0 7 18:42 15
Hamar 12 4 1 7 24:41 13
Afríka 12 1 1 10 11:44 4
Ægir 12 1 1 10 10:51 4
3. deild karla C
Magni – Neisti H. ......................................6:1
Hvöt – Reynir Á. .......................................0:0
Vaskur – Snörtur.......................................3:1
Staðan:
Vaskur 13 10 1 2 39:18 31
Magni 13 7 3 3 38:20 24
Reynir Á 13 6 4 3 22:18 22
Hvöt 13 5 4 4 25:15 19
Neisti H. 13 3 2 8 27:41 11
Snörtur 13 0 2 11 15:54 2
3. deild karla D
Huginn – Höttur........................................0:4
Neisti D. – Fjarðabyggð...........................1:4
Staðan:
Fjarðabyggð 13 10 0 3 38:13 30
Höttur 13 8 2 3 31:13 26
Huginn 13 6 0 7 26:32 18
Leiknir F. 13 5 0 8 28:32 15
Einherji 13 4 1 8 19:31 13
Neisti D. 13 4 1 8 17:38 13
1. deild kvenna A
Þróttur/Haukar 2 –Fjölnir .......................2:2
ÍR – HK/Víkingur .....................................0:1
Staðan:
Breiðablik 2 10 9 0 1 57:10 27
Fjölnir 10 7 1 2 27:17 22
RKV 10 6 2 2 39:24 20
HK/Víkingur 11 5 1 5 22:13 16
ÍR 11 3 1 7 31:30 10
Þróttur/Haukar 2 10 2 1 7 12:42 7
HSH 10 1 0 9 11:63 3
Belgía
Club Brügge - Genk ..................................1:0
Frakkland
Marseille - Auxerre...................................1:0
FRJÁLSÍÞRÓTTIR
Bikarkeppni FRÍ
Stigastaðan eftir fyrri keppnisdag:
FH.............................................................85,5
Breiðablik....................................................82
UMSS ..........................................................81
ÍR.................................................................67
Vestlendingar ..........................................44,5
HSK.............................................................35
KÖRFUKNATTLEIKUR
Promotion Cup, smáþjóðakeppni í
stúlknaflokki, Ásvöllum:
Skotland – Gíbraltar .............................83:44
Ísland – Malta........................................99:44
Stigahæstar: Helena Sverrisdóttir 32, Pet-
rúnella Skúladóttir 20.
Staðan er þessi: Ísland 6, Skotland 6,
Malta 2, Andorra 2, Gíbraltar 0.
Evrópumót drengjalandsliða
18 ára landslið, undankeppni á Ítalíu:
Ísland - Grikkland ..............................66:106
Stigahæstir: Jóhann Ólafsson 12, Brynjar
Kristófersson 12 og Baldur Ólafsson 12.
ÚRSLIT
KNATTSPYRNA
Laugardagur:
Efsta deild karla, Landsbankadeild:
Hásteinsvöllur: ÍBV - Grindavík ...........14
Efsta deild kvenna, Landsbankadeild:
Kaplakriki: FH - Þór/KA/KS.................14
1. deild karla:
Njarðvík: Njarðvík - Þór........................14
Dalvík: Leiftur/Dalvík - Stjarnan..........17
2. deild karla:
Garður: Víðir - Sindri .............................16
Helgafellsvöllur: KFS - ÍR ....................17
3. deild karla A:
Fífan: Drangur - BÍ................................14
1. deild kvenna B:
Eskifj.: Fjarðabyggð - Tindastóll..........16
Fáskrúðsfj.: Leiknir F. -Leiftur/Dalvík16
Sunnudagur:
Efsta deild karla, Landsbankadeild:
Akranes: ÍA - Fram................................18
KR-völlur: KR - KA................................18
Kaplakriki: FH - Fylkir .........................18
3. deild karla A:
Borgarnes: Skallagrímur - Bolungarvík
..................................................................14
1. deild kvenna A:
Sandgerði: RKV - Breiðablik 2..............17
1. deild kvenna B:
Vilhjálmsvöllur: Höttur - Tindastóll .....14
Sindravellir: Sindri - Leiftur/Dalvík .....15
Mánudagur:
Efsta deild karla, Landsbankadeild:
Laugardalsvöllur: Þróttur - Valur.........20
3. deild karla D:
Vilhjálmsv.: Höttur - Fjarðabyggð .......19
1. deild kvenna A:
ÍR-völlur: ÍR - Þróttur/Haukar 2..........19
FRJÁLSÍÞRÓTTIR
Bikarkeppni FRÍ á Laugardalsvellinum í
dag kl. 15.30, seinni keppnisdagur.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Laugardagur:
Promotion Cup, smáþjóðakeppni í
stúlknaflokki, Ásvellir - lokaleikir:
Malta - Andorra ......................................12
Ísland - Skotland ....................................14
GOLF
Fimmta og síðasta Stigamót Golfsam-
bands Íslands verður í dag og á morgun,
sunnudag, í Grafarholti.
UM HELGINA
ÍSLENSKA unglingalandsliðið í
handknattleik skipað leikmönnum
18 og yngri unnu frækinn sigur á
Ungverjum í gær, 27:24, í opn-
unarleik úrslitakeppni Evrópu-
móts landsliða sem fram fer í
Slóvakíu. Íslenska liðið, undir
stjórn Heimis Ríkharðssonar, lenti
undir 1:7 í byrjun leiks og voru
undir 8:13 í hálfleik. En drengirnir
léku mjög vel í síðari hálfleik með
fyrirliðann Ásgeir Örn Hallgríms-
son fremstan í flokki. Hann gerði
10 mörk á síðustu 25 mínútum
leiksins og átti að öðrum ólöst-
uðum hvað mestan þátt í að landa
sigrinum. Markahæstir í liði Ís-
lands voru Ásgeir Örn með 11
mörk, Arnór Atlason 6 og Andri
Stefán gerði 5 mörk. Björgvin
Gustavsson varði 17 skot í marki
Íslands, þar af tvö víti. Næsti leik-
ur íslenska liðsins er í dag gegn
gestgjöfunum frá Slóvakíu.
Hinir leikirnir í riðlinum fóru
þannig:
Slóvakía - Rússland.............26:24
Þýskaland - Slóvenía ............3028
B-RIÐILL:
Portúgal - Frakkland ..........30:23
Danmörk - Króatía..............30:20
Serbía/Svartf. - Svíþjóð ......22:20
Glæsilegur sigur á
Ungverjum á EM
ÚRVALSDEILDARLIÐ Tindastóls í
körfuknattleik er þessa dagana á
fullu við æfingar og undirbúning
fyrir veturinn. Allmiklar breytingar
verða á liðinu frá síðasta keppnis-
tímabili en fimm af fasta-mönnum
eru farnir – Óli Barðdal, Óskar Sig-
urðsson og Gunnar Þór Andrésson
verða allir í Danmörku, en þó eru
líkur á að Gunnar komi heim um eða
eftir áramót. Sigurður Grétar Sig-
urðsson fer væntanlega aftur til síns
gamla félags Þórs á Akureyri. Þá er
Michail Antropov farinn.
Búið er að ganga frá ráðningu
þriggja erlendra leikmanna, en þeir
eru Clifton Cook, sem lék með liðinu
í fyrra og verður áfram. Nýir menn
eru Adrian Parks, 24 ára skotbak-
vörður, 191 cm á hæð – kemur frá
Eastern Kentucky, með 11 stig, 3,1
frákast og 1,7 stoðsendingu að með-
altali í leik, og Carlton Brown, 24
ára kraftframherji/miðherji, 198 cm
á hæð – kemur frá Texas A&M.
Carlton lék síðast í Finnlandi 2001–
2002 og var með 33,5 stig og 20 frá-
köst að meðaltali í leik.
Þá kemur Matthías Rúnarsson aft-
ur eftir nokkurt hlé og Hans Björns-
son hefur tekið fram skóna aftur eft-
ir allnokkra hvíld.
Aðrir leikmenn liðsins eru Krist-
inn Friðriksson, Axel Kárason, Ein-
ar Örn Aðalsteinsson, Helgi Rafn
Viggósson, Árni Einar Sævarsson og
Magnús Barðdal.
Að sögn Halldórs Inga Steins-
sonar, formanns körfuknattleiks-
deildar Tindastóls, líst mönnum
mjög vel á hina nýju leikmenn og fé-
lagið vel undir launaþakinu góð-
kunna með samningum við þessa
menn. „Allir sem eru hér heima eru
byrjaðir að æfa af fullum krafti, og
erlendu leikmennirnir munu koma
fyrstu dagana í september,“ sagði
Halldór.
Þjálfari liðsins verður sem fyrr
Kristinn Geir Friðriksson en aðstoð-
arþjálfari er Kári Marísson.
Helst var talið að baráttan umgullið væri á milli FH og
Breiðabliks en góður árangur
Sunnu Gestsdóttur í
100 metra spretti og
þrístökki og gull
Sveins Margeirs-
sonar í 3.000 metra
hindrunarhlaupi dugði UMSS til að
blanda sér í toppslaginn. Sveinn
kom ferskur frá Danmörku, þar
sem hann sló Íslandsmetið í 3.000
metra hindrunarhlaupi í síðasta
mánuði. „Það er krafa um að vinna,
gerð var spá þar sem gert er ráð
fyrir manni á verðlaunapalli svo
það verður að standa sig,“ sagði
Sveinn eftir sigurinn en hann ætlar
sér meiri hluti í dag. „Ég keyrði
fyrri hlutann af hlaupinu ágætlega
en slakaði á í þeim síðari svo að
tíminn var ágætur miðað við að
keyra ekki á fullu alla leið en ég
hleyp 5.000 metra á morgun og ef
veðrið verður gott stefni ég á að
taka bikarmetið. Ég á það reyndar
sjálfur í hindrunarhlaupinu svo það
á alveg að vera mögulegt.“ Sveinn
æfir og keppir í Danmörku en átti
erindi heim. „Ég æfi með góðum
mönnum í Danmörku og það skiptir
miklu máli fyrir mig þótt æfingaað-
staðan sé ekki betri en hér heima,
hér er hún til fyrirmyndar og frá-
bært hvernig byggt hefur verið upp
síðustu ár en það er nauðsynlegt að
hafa góða samkeppni á brautinni
auk þess sem veðrið spilar inn í.
Það er alltaf gaman að koma heim
og taka þátt í bikarmótinu en það
verður samt skemmtilegra að gift-
ast Rakel Gylfadóttur, þjálfara
mínum, í næstu viku svo það er
gaman að lifa þessa dagana.“
Stig frekar en árangur
Hjá Breiðabliki var Jón Arnar
drjúgur við að safna stigum og
vann allar fjórar greinar sínar –
var að vísu ekki stoltur af tölunum
en sagði það ekki skipta öllu máli.
„Stangarstökkið var lélegt, kúlu-
varpið líka, langstökkið í lagi og ég
veit ekki með boðhlaupið en veðrið
var líka frekar leiðinlegt til að
keppa í. Það skipti samt öllu að fá
stigin og betra að fá stig í staðinn
fyrir slakan tíma,“ sagði Jón Arnar
og vonaðist eftir spennandi keppni í
dag. „Það er aldrei að vita hvort
einhver nær að hrekkja mig, von-
andi eitthvað en ekki of mikið –
samt gott ef einhver nær góðum
árangri.“
Silja Úlfarsdóttir náði að krækja
í flest stig fyrir FH en miklu skipti
fyrir Hafnfirðinga að þeir náðu sjö
sinnum í annað sætið, sem skilar 5
stigum hvert. Silja kvaðst þó ekki
hætt, einn dagur eftir. „Ég skila
mínu fyrir mitt lið, það skiptir öllu
máli núna,“ sagði Silja eftir tvö gull
og eitt silfur. „Ég finn að það er
pressa með að taka stig en ég vildi
alveg keppa í færri greinum, ég átti
ekki að keppa svona mikið en svo
vantaði í nokkrar greinar. Það
besta er að það er enginn vindur og
í rigningu er meira súrefni í loftinu.
Ég er sátt við daginn og morgun-
dagurinn leggst vel í mig, ég hleyp
í hundrað metra grindarhlaupi og
síðan tekur við grill og veisla en
þetta er síðasta mótið mitt fyrir
hvíld.“
Vala vann kúluvarpið
ÍR-ingar hafa ekki náð sér á
strik en þó hlotið tvö gull. Annað
fékk Vala Flosadóttir fyrir kúlu-
varp og hitt Fríða Rún Þórðardótt-
ir fyrir 1.500 metra hlaup eftir mik-
ið einvígi við Eygerði Ingu
Hafþórsdóttur úr FH. „Ég stirðn-
aði alveg hrikalega í lokin, man
ekki eftir svona áður enda var
hlaupið einkennilegt því hringirnir
urðu hraðari eftir því sem leið á,“
sagði Fríða Rún eftir sigurinn en
Eygerður fylgdi fast á hæla henn-
ar. „Það var alveg nóg til að ýta við
mér að hafa Eygerði alveg í bak-
inu. Tíminn hefði mátt vera aðeins
betri hjá mér en hinar voru að
hlaupa á sínu besta í ár. Það má
ekkert gefa eftir og fá stig fyrir sitt
lið.“
Morgunblaðið/Arnaldur
Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni. Helga Þráinsdóttir, 14 ára úr ÍR, varð í öðru sæti í hástökki.
Hún er dóttir Þórdísar Gísladóttur, margfalds Íslandsmeistara og methafa í hástökki úr ÍR, og
Þráins Hafsteinssonar, fyrrverandi íslandsmeistara í tugþraut.
FH-ingar með
nauma forystu
REIKNIVÉLIN var oft dregin á loft í Laugardalnum í gærkvöldi þegar
fram fór bikarkeppnin í frjálsum íþróttum því hvert stig er mjög mik-
ilvægt í þessari stigakeppni. Eftir fyrri keppnisdaginn hafði
kvennasveit FH náð í 44 og karlarnir 41,5 stig, sem dugði til forystu
í samanlögðu því þótt Blikakörlum tækist vel upp náði kvenfólkið
ekki að halda í við þá. Kópavogsliðið er með 82 stig, tveimur og
hálfu minna en FH en UMSS fylgir fast á hæla þeirra með 81 stig.
Stefán
Stefánsson
skrifar
Tindastólsmenn hafa safnað
liði og eru komnir á fulla ferð