Morgunblaðið - 09.08.2003, Blaðsíða 47
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 2003 47
ÍSLENSKA kvennalandsliðið í
knattspyrnu mætir Rússum í
Moskvu í dag, klukkan 11 að ís-
lenskum tíma, í undankeppni Evr-
ópumóts landsliða. Liðið hefur leik-
ið einn leik í undankeppninni – lagt
Ungverja að velli í Reykjavík, 4:1.
Íslendingar tefla fram mjög breyttu
liði í ár og fjölmargir af þeim leik-
mönnum sem léku með liðinu í und-
ankeppni heimsmeistaramótsins
fyrir ári eru horfnir á braut.
Helena Ólafsdóttir, þjálfari liðs-
ins, sagði að vissulega yrði það gott
að fá eitthvað út úr leiknum en taldi
það þó ekki raunhæfar kröfur: „Við
rennum mjög blint í sjóinn. Liðið
sem við teflum fram á morgun (í
dag) er mjög óreynt. Væntingar
mínar til liðsins eru að þær geri sitt
besta – ég get ekki beðið um meira
en óneitanlega yrði stig úr við-
ureigninni hér í Rússlandi frá-
bært.“
Byrjunarlið Íslands í dag er
þannig skipað: Þóra B. Helgadóttir
– Málfríður Erna Sigurðardóttir,
Íris Andrésdóttir, Björg Ásta Þórð-
ardóttir og Íris Sæmundsdóttir –
Erla Hendriksdóttir, Ásthildur
Helgadóttir, fyrirliði, Edda Garð-
arsdóttir og Laufey Ólafsdóttir –
Hrefna Jóhannesdóttir og Olga
Færseth.
Rússland og Ísland gerði jafntefli
í undankeppni HM í Moskvu í fyrra.
Helena segir að stig í
Rússlandi yrði frábært
ARON Kristjánsson, landsliðs-
maður í handknattleik, skoraði sjö
mörk þegar danska liðið Holstebro,
sem Aron leikur með, vann Álborg
23:20 á móti í Ystad í Svíþjóð í gær.
Hann skoraði eitt mark í í leik gegn
Gautaborgarliðinu Redbergslid á
fimmtudag, 23:23.
HARALDUR Ingólfsson, fyrrver-
andi landsliðsmaður í knattspyrnu
frá Akranesi, skoraði eitt mark fyrir
Raufoss, í sigurleiknum gegn
Mandalskammeratene í 16-liða úr-
slitum bikarkeppninnar norsku., 6:1.
Haraldur og samherjar mæta
Tromsö í 8-liða úrslitum.
LIVERPOOL gekk í gær frá kaup-
unum á Carl Medjani, 18 ára göml-
um varnarmanni sem hefur verið af-
ar eftirsóttur í sumar. Vitað er að
Arsenal, Manchester United og
Bayern München reyndu öll að fá
kappann til liðs við sig. Medjani er
fimmti leikmaðurinn sem Gerard
Houllier, knattspyrnustjóri Liver-
pool fær til liðsins í sumar
GARY Mabutt, fyrrum fyrirliði
Tottenham Hotspurs telur að loks
hafi fylgismenn Tottenham ástæðu
til að hlakka til komandi leiktíðar.
„Knattspyrnustjórinn (Glenn
Hoddle) hefur gert mjög góð kaup í
sumar í þeim Helder Postiga, Bobby
Zamora og Frederic Kanoute. Eina
sem mér finnst vanta núna er skap-
andi miðjumaður, því væri upplagt
að reyna að ná í Scott Parker leik-
mann Charlton.“
CARLOS Queiroz, þjálfari Real
Madrid í knattspyrnu hefur gert
framherjann Raul að fyrirliða liðs-
ins. Fernando Hierro var fyrirliði
Madrídarliðsins í áratug en nú þegar
hann er horfinn á brott tekur Raul
við fyrirliðabandinu.
BAYERN München fékk símbréf
frá Spáni í gær, þar sem tilkynnt var
að hollenski leikmaðurinn Roy
Makaay væri orðinn löglegur leik-
maður Bayern. Hann mun verða á
meðal áhorfenda þegar Bayern leik-
ur í Hannover um helgina, en leikur
sinn fyrsta leik þegar Bochum leikur
í München um næstu helgi.
GUÐJÓN Þórðarson, knatt-
spyrnustjóri enska 2. deildarliðsins
Barnsley, fékk í gær fjóra leikmenn
til liðs við sig. Þeir eru Peter Handy-
side og Craig Ireland sem báðir eru
miðverðir, Sasa Ilic markvörður og
Tony Gallimore sem leikur í stöðu
vinstri bakvarðar. Guðjón þekkir vel
til Peter Handyside en hann var fyr-
irliði hjá Stoke City er liðið vann sér
sæti í 1. deild vorið 2002 undir stjórn
Guðjóns.
SASA Ilic er reyndur markvörður
og lék með Charlton Athletic í úr-
valsdeildinni fyrir fjórum árum.
Leikmennirnir eru allir komnir með
leikheimild og verða því til í slaginn í
fyrsta leik ársins sem er í dag á
heimavelli Barnsley gegn Colchest-
er.
FÓLK
Aðeins voru liðnar þrettán mín-útur frá upphafsflauti þegar
Keflavík skoraði fyrsta markið,
þar var á ferðinni
Þórarinn Kristjáns-
son sem fylgdi vel
eftir varðri koll-
spyrnu Magnúsar
Þorsteinssonar. Þórarinn var svo
aftur á ferðinni átta mínútum síðar
– hörkuskalli af stuttu færi. Gest-
irnir létu ekki þar við sitja heldur
pressuðu fast á Mosfellinga sem
enn voru að jafna sig eftir mörkin
tvö. Þá var röðin komin að næsta
stjörnuframherja gestanna, Magn-
úsi Þorsteinssyni, og gerði hann
vel eftir stungusendingu frá Þór-
arni. Þeir tveir yfirspiluðu vörn
heimamanna og hefðu getað gert
fleiri mörk. Eftir þennan magnaða
kafla var róðurinn orðinn þungur
fyrir brúnaþunga leikmenn Aftur-
eldingar. Spilamennska þeirra –
háar sendingar fram völlinn og svo
eltingaleikur – gekk ekki vel gegn
skipulagðri vörn sunnanmanna og
örfá marktækifæri þeirra fóru for-
görðum. Leikurinn datt svo í
dúnalogn þegar líða tók á og lítið
markvert gerðist fyrr en á 67.
mínútu. Þá skoraði Kristján Jó-
hannsson fjórða mark gestanna –
aftur hörkuskalli eftir góða fyr-
irgjöf. Mosfellingar sáu þá hvað
fyrir þeim lá, ekki nægur tími til
að vinna upp fjögur mörk, og
lögðu því árar í bát á meðan leik-
tíminn fjaraði út. Öruggur sigur í
höfn hjá léttleikandi liði Keflavík-
ur sem virðist eiga greiða leið upp
í efstu deild að nýju. Þórarinn
Kristjánsson lék manna best hjá
gestunum, sagði. „Við áttum von á
hörkuleik, þeir eiga í harðri bar-
áttu í neðri hlutanum og oft er það
þannig að þegar botnlið mætir
toppliði þá verður mikill slagur.
Því má segja að þetta hafi komið
okkur nokkuð á óvart. Við gerðum
reyndar út um leikinn strax í fyrri
hálfleik á einhverjum tíu mínútum.
Við erum í frábæru formi og
stemningin gæti ekki verið betri.
Það er erfitt að vera með betra lið
í fyrstu deild.“
Hörð barátta er fram undan hjá
liði Aftureldingar. „Þetta var mjög
erfitt en við missum ekki trúna,
höldum áfram ótrauðir því það er
nóg eftir af leikjum. Það er ekki á
stefnuskránni að fara niður,“ sagði
Sigurður Þorsteinsson, þjálfari
Aftureldingar.
Maður leiksins: Þórarinn Kristj-
ánsson, Keflavík
Morgunblaðið/ArnaldurSveinn Margeirsson á ferðinni í
3.000 m hindrunarhlaupi.
Miklir yfirburðir
Keflvíkinga
KEFLAVÍK styrkti stöðu sína á toppi fyrstu deildar í knattspyrnu er
þeir sóttu Aftureldingu heim á Varmárvöll í gærkvöld, 4:0. Gestirnir
voru ekki lengi að gera út um leikinn því á tíu mínútna leikkafla í fyrri
hálfleik skoruðu þeir þrjú mörk gegn engu heimamanna. Mosfell-
ingar náðu aldrei að komast í takt við leikinn eða taktfasta Keflvík-
inga sem réðu lögum og lofum á vellinum. Eftir leikinn er Keflavík
sem fyrr á toppnum og eiga nú fjögur stig á Víkinga í öðru sæti. Aftur-
elding situr hins vegar í fallsæti og eiga erfiða leiki fram undan.
Andri
Karl
skrifar
Fjárhags-
vandræði
hjá Lille-
ström
NORSKA úrvalsdeildarliðið
Lilleström, sem Íslendingarnir
Indriði Sigurðsson, Ríkharður
Daðason, Gylfi Einarsson og
Davíð Þór Viðarsson leika
með á í miklum fjárhagserfið-
leikum. Í gær áttu leikmenn
liðsins að fá útborguð laun en
félagið sendi leikmönnum bréf
þar sem í stóð að ekki væri
unnt að greiða þeim nema 80%
af þeirri upphæð sem þeir
ættu inni. Nú hafa forráða-
menn Lilleström 30 daga frest
til að greiða leikmönnum það
sem eftir er. Takist félaginu
hins vegar ekki að greiða leik-
mönnunum það sem þeir eiga
inni þá geta þeir rift samningi
sínum við félagið tafarlaust.
Torgeir Bjarmann, fyrirliði
liðsins hefur sýnt erfiðleikum
félagsins mikinn skilning og
bað félagið um að bíða með að
greiða sér laun svo unnt yrði
að greiða öðrum leikmönnu
sem mest.
MIKLAR varúðarráðstafanir
hafa verið gerðar á þýskum
knattspyrnuvöllum fyrir leiki
dagsins, sem fara fram í dag
miklum hita. Við flesta vellina
verður áhorfendum boðið að
fara í sturtu til að kæla sig og
drykkir eru seldir á mjög
vægu. Slæmar fréttir hafa
komið frá Bochum, þar sem
þjálfari liðsins hefur óskað eft-
ir því að áhorfendur sleppi að
fá sér bjór, heldur svali þorsta
sínum með vatni. Dregið verð-
ur úr sölu á áfengum
drykkjum á mörgum völlum.
Vatnsflaska sem kostar 280
kr. er seld á 130 kr. í Bochum.
Fjölgað hefur verið klósettum
við velli, því að reiknað er með
að áhorfendur drekki miklu
meira magn af vökva en þeir
eru vanir.
Á vellinum í Dortmund hef-
ur hjúkrunarfólki, sem er við
öllu búið, fjölgað úr 100 í 300.
Áhorfendur í Bremen verða
eflaust sælastir – fyrir utan
marga drykkjarvagna verður
á staðnum stór vörufluttn-
ingabifreið hlaðin ís, sem
áhorfendum verður boðið upp
á í hita leiksins.
Áhorfend-
um boðið
í sturtu