Morgunblaðið - 14.08.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 217. TBL. 91. ÁRG. FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Á réttan
kjöl á ný
Ólafur Jóhann vinnur að tiltekt
hjá AOL Time Warner B4
Markamúr-
inn rofinn
Olga Færseth skoraði 200.
markið í gærkvöld Íþróttir 42
Berjadagar
á Ólafsfirði
Leikrit fyrir einn leikara og pí-
anóleikara á dagskrá Listir 31
CONDOLEEZZA Rice, þjóðar-
öryggisráðgjafi George W. Bush
Bandaríkjaforseta, skýrði Davíð
Oddssyni forsætisráðherra frá því í
gær að engin fyrirmæli væru
lengur í gildi um að F-15-þotur
varnarliðsins á Keflavíkurflug-
velli skyldu kallaðar burt. Ekki
hefur verið tekin endanleg
ákvörðun um framtíð þotnanna
en Bandaríkjastjórn hyggst
skoða málið í tengslum við
heildarendurskoðun á herafla
sínum í Evrópu.
Davíð Oddsson sagði í samtali
við Morgunblaðið að Rice hefði
hringt í sig og sagt að hún hefði þá um
morguninn rætt við Bandaríkjafor-
seta á búgarði hans í Crawford í Tex-
as um stöðu varnarmála hér á landi og
þær umræður sem átt hefðu sér stað
milli þjóðanna.
Hugmynd Bush að lausn
„Hún tjáði mér að Bush Banda-
ríkjaforseti legði til að það yrði breytt
um kúrs í málinu og ekki fjallað leng-
ur einangrað um Ísland einvörðungu
heldur varnarmálin skoðuð í víðara
samhengi og í tengslum við þá heild-
arendurskoðun á herafla Bandaríkj-
anna, ekki síst í Evrópu, sem nú á sér
stað. Sú endurskoðun myndi taka all-
marga mánuði og í framhaldinu væri
hægt að ræða um Ísland. Engin fyr-
irmæli væru lengur í gildi um að þot-
urnar færu. Á hinn bóginn er ekki
hægt að segja, og ég legg áherslu á
það, að Bandaríkin hafi endanlega
fallið frá því að þoturnar kunni ein-
hvern tímann að fara. En það verður
ekki á næstunni.“
Forsætisráðherra sagði þetta afar
mikilvægt og það væri gjörbreyting á
stöðunni, sem þarna væri komin upp.
„Ég sagði að við værum afar þakklát
forseta Bandaríkjanna fyrir að taka
þessa afstöðu og að hafa leitt málið í
þennan farveg. Bað ég hana um að
skila þakklæti til forsetans. Hún sagði
forsetann meta íslensk yfirvöld mikils
sem og varnarsamninginn og hafa
sett sig vel inn í þessi mál. Þetta hefði
verið hans hugmynd að lausn. Í fram-
haldinu hringdi Colin Powell, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, í Halldór
Ásgrímsson utanríkisráðherra og til-
kynnti honum formlega að búið væri
að afturkalla að þoturnar færu.“
Davíð sagðist undirstrika að þótt
þetta væri ekki endir málsins væri
þetta gríðarlega þýðingarmikil niður-
staða og sýndi að Bandaríkin mætu
það góða samstarf sem verið hefði á
milli ríkjanna að undanförnu og vildu
skoða málið í ljósi sameiginlegra
hagsmuna þjóðanna.
„Þetta er afar þýðingarmikið. Mál-
ið er komið í mjög farsælan farveg og
við erum ekki undir þeirri pressu sem
við höfum verið síðan 2. maí [er sendi-
herra Bandaríkjanna tilkynnti ís-
lenskum stjórnvöldum að þoturnar
færu]. Það eru afskipti forsetans
sjálfs, vinsemd í garð okkar og góð
samskipti sem við höfum átt á undan-
förnum misserum sem gera að verk-
um að skipt hefur verið um stefnu.
Við erum afar ánægð.“
Á meðan heildarendurskoðun
Bandaríkjanna á heraflanum stendur
yfir segir Davíð að ekki verði sama
áherslan á málefni Íslendinga. Þau
mál verði ekki rædd sérstaklega en
þó verði áfram samráð milli þjóðanna
um kosti og möguleika.
„Ég er ekki að segja að endanlega
hafi verið fallið frá því að F-15-þot-
urnar muni fara en það verður ekki í
bráð. Þetta er mikill léttir og mikill
léttir á þeirri pressu sem verið hefur.
Umræðurnar geta nú farið fram með
eðlilegum hætti. Ég tel að
Bandaríkjaforseti hafi svarað
mínu bréfi með mjög jákvæðum
hætti og hann á miklar þakkir
skyldar,“ sagði Davíð.
Málið komið í
eðlilegan farveg
Halldór Ásgrímsson segist
hafa átt samtal við Colin Powell
síðdegis í gær. „Hann tilkynnti
mér að það hefði verið ákveðið
að draga til baka fyrirætlanir um að
flytja þoturnar á brott. Við það skap-
aðist svigrúm til að endurmeta málið í
ljósi þeirra breytinga sem ættu sér
stað núna í Evrópu og innan NATO.
Það ætti að gefa okkur nægilegan
tíma til að skoða málið í rólegheitum.
Spurður um tíma sagði Powell að við
værum að tala um einhverja mánuði
en ekki daga. Þetta yrði ekki aðkall-
andi mál. Við erum afskaplega
ánægðir með þessa framvindu. Ég tel
að málið hafi fengið mjög góða um-
fjöllun í Washington. Þótt að samtal
sem ég átti við Powell 6. maí þar sem
málinu var þá frestað hafi verið ágætt
fór það síðan aftur í svipaðan farveg.
Nú virðist málið vera komið í farveg
sem við getum afskaplega vel við un-
að. Viðræður milli þjóðanna um fram-
haldið hafa ekki verið ákveðnar. Það
mun líða einhver tími þangað til það
liggur fyrir. Málið er komið á ný í eðli-
legan farveg,“ sagði Halldór.
Viðræður um varnarmál komnar í nýjan farveg eftir samtal Davíðs Oddssonar
og Condoleezzu Rice þjóðaröryggisráðgjafa Bandaríkjaforseta í gær
Fyrirmælin ekki lengur í
gildi um að þoturnar fari
Endanleg ákvörðun um framtíð
F-15-þotnanna liggur ekki enn fyrir
George W. Bush Condoleezza RiceDavíð Oddsson Colin PowellHalldór Ásgrímsson
ÍRASKUR drengur lét lífið og að
minnsta kosti fjórir særðust í skot-
bardaga milli bandarískra hermanna
og hóps sjía-múslima í Bagdad í gær.
Þetta eru fyrstu átökin sem orðið
hafa á milli sjíta og Bandaríkja-
manna síðan stríðið hófst en sjítarnir
höfðu safnast saman til að mótmæla
hernum. Hingað til hafa sjítar í land-
inu verið heldur jákvæðari í garð
hersins en súnnítar, en Saddam
Hussein tilheyrði síðarnefnda hópn-
um.
Vitni sögðu að átökin í Bagdad
hefðu hafist þegar bandaríski herinn
reyndi að fjarlægja svartan fána með
íslömskum slagorðum sem mótmæl-
endur höfðu hengt upp í fjarskipta-
turn á svæðinu. Hermenn reyndu að
ná fánanum niður úr þyrlu en þá
snerust Írakar, sem höfðu klifrað
upp í turninn, til varnar og braust þá
bardaginn út. Nokkur þúsund
manns sáust mótmæla á svæðinu um
eftirmiðdaginn í gær og búið var að
hengja fimm svarta fána niður úr
turninum.
Saddam hvetur sjíta í heilagt
stríð gegn hernum
Handskrifuð skilaboð sem sögð
eru vera frá Saddam Hussein voru
birt á Al-Jazeera-sjónvarpsstöðinni í
gærkvöldi en þar eru sjítar hvattir til
að taka þátt í heilögu stríði gegn
herjum bandamanna í Írak. Athygli
vekur að þar er æðsti leiðtogi sjíta,
Ayatollah Ali Sistani ávarpaður en
hann er hófsamur klerkur sem
Bandaríkjamenn hafa lagt áherslu á
að eiga samstarf við.
Skæruliðar felldu tvo bandaríska
hermenn norðan við Bagdad í gær
auk þess sem bandarískur hermaður
féll fyrir hendi skæruliða sunnan við
Tíkrit. Talsmenn bandaríska hersins
sögðu að tveir háttsettir meðlimir í
Lýðsveldisverðinum, úrvalssveitum
íraska hersins, hefðu verið hand-
teknir í gær en auk þess gjaldkeri
Fedayeen sveitanna sem voru sér-
sveitir Saddams Hussein.
Þá sagðist stjórn Bandarískjahers
hafa sent 25 milljónir lítra af bensíni
til suðurhluta Íraks þar sem skortur
á eldsneyti hefur verið mikill.
Fyrstu átök
sjíta og banda-
ríska hersins
AP
Hópur Íraka hrópar slagorð gegn Bandaríkjunum í Al-Sadr-hverfinu í
Bagdad eftir átökin í gær, en íraskur drengur beið þar bana.
Bagdad, Tíkrit, Dubai. AP, AFP.
ÞAÐ er gott að eiga sér góða
fyrirmynd í lífinu en mikill
áhugi á ríka og fræga fólkinu
getur hæglega breyst í sjúk-
lega fíkn. Kemur þetta fram í
grein tveggja sálfræðinga í vís-
indatímaritinu New Scientist,
sem út kemur á laugardag.
Þeir ræddu við meira en 600
karla og konur og kynntu sér
áhuga þeirra á frægu fólki.
Komust þeir að því, að aðdáun-
in er ekki annaðhvort meinlaus
eða sjúkleg, heldur er oft um að
ræða þróun, sem fer hægt af
stað en endar í sjúklegri
ástríðu. Segja þeir, að aðdáun
af þessu tagi geri fólk áhyggju-
fullt og niðurdregið og oft eigi
það erfiðara með félagsleg
samskipti en aðrir.
Þeir benda á að um 10%
„aðdáendanna“ telji sér trú um,
að eitthvað alveg sérstakt tengi
þau og stjörnuna þeirra og þá
sé um að ræða sjúklegt ástand.
Hættuleg
aðdáun
París. AFP.
TALIÐ er, að menn, sem sádi-arab-
íska lögreglan handtók í vikunni eftir
skotbardaga, hafi verið að ráðgera
árás á farþegaflugvél á helsta flug-
vellinum í Riyadh, höfuðborg Sádi-
Arabíu.
Var þetta haft eftir bandarískum
embættismanni, en hann sagði, að
lögreglan í Sádi-Arabíu, hefði fundið
gögn í fórum mannanna, sem bentu
til þessa og tengdu þá einnig við al-
Qaeda, hryðjuverkasamtök Osamas
bin Ladens. Breska flugfélagið Brit-
ish Airways aflýsti í gær ferðum til
Riyadh af öryggisástæðum og
bandarísk yfirvöld vöruðu fólk við að
ferðast til Sádi-Arabíu.
Í fyrradag var bresk-indverskur
vopnasali handtekinn í Bandaríkjun-
um fyrir að reyna að selja flugskeyti
og hefur það enn aukið á ótta við, að
farþegaþotur séu líklegt skotmark
hryðjuverkamanna.
Hugðust
granda far-
þegaþotu
Washington. AFP.
Þrír/12
STÁLHEPPINN íbúi þorps rétt ut-
an við Mílanó varð tæplega 6 millj-
örðum króna ríkari í gærkvöldi er
hann hlaut fyrsta vinning í ítalska
lottóinu. Vinningurinn er stærsti
lottóvinningur í sögu Evrópu en
ítalski potturinn hafði ekki gengið
út í sex mánuði.
Svo mikill var spenningurinn að
fólk frá Frakklandi, Sviss, Slóveníu
og Austurríki hafði hópast yfir
landamærin til að ná sér í miða.
Vann sex
milljarða
Róm. AFP.
♦ ♦ ♦