Morgunblaðið - 14.08.2003, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 14.08.2003, Blaðsíða 32
UMRÆÐAN 32 FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ NÝSKRÁÐUM nemendum í tölv- unarfræðideildum háskóla landsins fækkaði verulega síðasta vetur og enn frekari fækkun er fyrirsjáanleg í ár. Þetta er verulega slæm þróun bæði fyrir þjóðfélagið í heild og fyrir þá ein- staklinga sem eru að missa af góðum at- vinnutækifærum. Í þessari grein ætla ég að gefa hugsanlegum nem- endum þrjár góðar ástæður fyrir því að velja tölvunarfræði. Námið er skemmtilegt og fjölbreytt Námið er sambland margra þátta, bæði fræðilegra og hagnýtra. Meðal annars má nefna forritun og hönnun hugbúnaðar, verkefnastjórnun, virkni kerfishugbúnaðar og stærð- fræði. Kjarninn í tölvunarfræðinám- inu er undirbúningur fyrir þá mann- virkjagerð sem smíði stórra tölvukerfa er. Við erum reyndar svo vön því að mannvirki séu byggingar sem hægt er að snerta á og skoða, að okkur bregður við að kalla hugbúnað mannvirki. En auðvitað er hann ekk- ert annað og tölvunarfræðinámið snýst um læra þær verkfræðilegu aðferðir sem þarf til að smíða þessi mannvirki. „Burðarþol“ hugbúnaðar fer til dæmis mikið eftir útfærslu neðri laga hans og hönnun viðmóts er á margan hátt sambærileg við innanhússarkitektúr. Allt þetta er hægt að læra innan tölvunarfræð- innar, en ekki annars staðar. Góð atvinnutækifæri að loknu námi Upplýsingatæknigeirinn hefur verið í nokkurri lægð að undanförnu. Þetta mætti auðveldlega túlka sem slæmt atvinnuástand hjá tölvunar- fræðingum, en það er þó alls ekki til- fellið. Í hinni miklu uppsveiflu sem varð í lok síðasta áratugar var gríð- arlegur skortur á starfsfólki með viðeigandi menntun. Til að sinna starfseminni varð í mörgum til- fellum að ráða fólk með stutta hag- nýta menntun eða jafnvel enga formlega menntun. Þegar harðnaði á dalnum var það þetta starfsfólk sem í flestum tilfellum varð að gefa eftir. Flestir tölvunarfræðingar hafa haldið sinni vinnu og þeir sem hafa misst vinnuna hafa fengið aðra mjög fljótlega. Samtök íslenskra hugbún- aðarfyrirtækja telja að nú sé aðeins spurning um tíma hvenær önnur uppsveifla hefjist í hugbúnaðargerð, og þá mun hagur tölvunarfræðinga vænkast enn frekar. Það er auðvitað af sem áður var þegar nýútskrifuðum tölvunarfræð- ingum var boðið gull og grænir skógar frá fyrsta degi óháð frammi- stöðu í námi. Það er hins vegar mjög góð þróun og ósköp eðlilegt að fólk þurfi að sanna sig í starfi. En laun tölvunarfræðinga eru undantekning- arlítið góð og ættu ein sér að duga til að lokka marga nemendur úr öðrum fögum í tölvunarfræðina. Margir tölvunarfræðingar vinna utan hugbúnaðargeirans, hjá fyrir- tækjum á ýmsum öðrum sviðum. Það getur til dæmis verið ómetan- legt fyrir fyrirtæki sem kaupa stór verkefni af hugbúnaðarfyrirtækjum að hafa tölvunarfræðinga innanhúss til að fylgja verkefnunum eftir. Margir tölvunarfræðingar sinna stjórnunarstörfum og hafa sumir farið í framhaldsnám á sviði stjórn- unar eða viðskipta. Þannig er námið góður almennur undirbúningur fyrir atvinnulífið. Þjóðfélagið þarf á tölv- unarfræðingum að halda Ég tel líklegt að skortur á vel menntuðu starfsafli sé hluti ástæð- unnar fyrir hinni miklu niðursveiflu núna. Í mörgum tilfellum þurfti starfsfólk að takast á við verkefni sem það hafði ekki bakgrunn til að takast á við, með tilheyrandi áföllum og aukaverkunum. Þannig tóku verkefni of langan tíma, of marga starfsmenn og of mikla aukavinnu. Þegar viðskiptavinirnir og fjárfest- arnir áttuðu sig á þessu, kipptu þeir að sér höndunum allt of harkalega, með þeim afleiðingum að fallið varð hátt og sveiflan mikil. Ég tel því að mun fleira vel menntað starfsfólk þurfi til að ná stöðugleika og framþróun á mark- aðnum, bæði tölvunarfræðinga með BS gráðu og með framhalds- menntun – meistaragráðu og dokt- orsgráðu. Erlendis dettur fáum í hug að stofna nýtt og framsækið upplýsingatæknifyrirtæki nema hafa innan borðs einhverja doktora í tölvunarfræði. Hér á landi eru rétt á annan tug slíkra manna, sem vinna flestir við að mennta tölvunarfræð- inga, þannig að mikill skortur er á fólki með framhaldsmenntun. Niðurstaða Af framantöldu má ljóst vera að nám í tölvunarfræði er góður val- kostur, bæði fyrir einstaklinga og fyrir þjóðfélagið. Ef litið er til sög- unnar hafa alltaf verið upp- og nið- ursveiflur í tölvubransanum. Þeir nemendur sem eru nýútskrifaðir núna, komu inn í uppsveiflunni en hafa því miður útskrifast í niður- sveiflunni. Til að vera tilbúinn í næstu uppsveiflu gæti rétti tíminn til að hefja námið einmitt verið núna! Það er hægt að læra tölvunar- fræði við Háskólann í Reykjavík, Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri. Ég hvet nemendur til að kynna sér þessa valkosti. Það þarf þó ekki að koma á óvart að ég mæli sérstaklega með Háskólanum í Reykjavík, enda tel ég okkur hafa byggt upp mjög gott nám, bæði á BS-stigi og meistarastigi. Til að gefa fleiri nemendum kost á því að skrá sig í námið, höfum við framlengt umsóknarfrest okkar eins mikið og mögulegt er, eða til 15. ágúst. Ég hvet ykkur til að skoða vefinn okkar www.ru.is/td eða hringja í 510 6200 til að leita upplýsinga. Þrjár ástæður til að velja nám í tölvunarfræði Eftir Björn Þór Jónsson Höfundur er dósent í tölv- unarfræði við Háskólann í Reykjavík. ÞEGAR Bill Clinton komst til valda í Bandríkunum var það eitt af hans fyrstu verkum að koma á há- tekjuskatti. And- stæðingar skattsins héldu því fram að hann myndi letja há- tekjumenn svo til vinnu að laun þeirra myndu lækka svo mikið að heildar- skattgreiðslur þeirra myndu einnig lækka. Raunin varð allt önnur og jókst vinnuframlag þeirra sem urðu fyrir skattinum. Þannig lagði þessi skattur mikið af mörkum við að rétta af fjárlagahallann í Bandaríkjunum. Nú beita sjálfstæðis-framsókn- armenn sömu rökum. Þeir ætla nú að lækka skatt mest á þá hæstlaun- uðu, sem munu þannig vinna miklu meira, fá hærri laun, borga hærri skatta og bæta þannig lífskjör allra. Reynslan frá Bandaríkjunum sýnir að það mun ekki ganga eftir. Skattalækkunin mun ekki auka vinnuframlag þeirra hæst launuðu og hefur því ekkert með almenna hagsæld að gera heldur aðeins gild- ismat flokksmanna. Þeim finnst ein- faldlega að þeir hæst launuðu eigi að fá meiri skattalækkun en aðrir, meðan t.d. Frjálslyndum og Sam- fylkingunni finnst að allir eigi að fá sömu skattalækkun, og Vinstri grænum að enginn eigi að fá skatta- lækkun. Tekjuskattur og leti Eftir Guðmund Örn Jónsson Höfundur er verkfræðingur MBA. MARGAR feg- urstu borgir heims státa af tignarlegu fjalli innan borg- armarkanna eða í næsta nágrenni. Má þar til dæmis nefna Höfðaborg í Suður-Afríku, Bergen í Noregi og Vancouver í Kanada. Þessar borg- ir eiga það einnig sameiginlegt að borgarbúar eru ákflega stoltir af fjöllunum sínum og sjá til þess að aðgangur að þeim og upp á þau sé greiður fyrir hvern sem er, jafnt klifurgarpa sem fatlaða ein- staklinga og alla þar á milli. Oftast er aðgengi tryggt með ýmiss konar lyftum eða sporvögn- um og svo akvegi, þannig að bíl- fært sé fyrir hvern og einn. Fyrir þá sem vilja spreyta sig í fjalla- klifri er að sjálfsögðu einnig að- staða og merktar klifurleiðir. En það var þetta með Esjuna. Flestir eru sammála um að Esjan sé ægifögur og víst er um það hún gefur höfuðborginni okkar tign- arlegan bakgrunn. Fyrir lang- flesta borgarbúa hefur aðdáun á Esjunni þó takmarkast við að líta hana augum og tiltölulega fáir hafa gengið á Esjuna, þótt ekki sé nema eitthvað áleiðis upp í brekk- ur hennar. Ég var kominn yfir miðjan ald- ur þegar eiginkonan dreif mig í það að ganga með sér á Esjuna fyrsta sinni og ég gleymi aldrei þeirri upplifun að standa í sól og blíðu uppi á sjálfri Esjunni og berja augum þá undurfögru sjón sem gaf að líta. Bókstaflega óend- anlegt útsýni í allar áttir, höfuð- borgarsvæðið, Suðurlandið, Snæ- fellsnesið, hvert sem litið var. Þótt Esjan sé ekki nema um 900 metra há þá sést óskaplega víða, svo vítt og breitt að vart er hægt að trúa fyrr en maður upplifir það í reynd. Þegar ég kom heim aftur endur- nærður eftir tiltölulega auðvelda fjallgöngu á Esjuna mátti ég til með breiða út fagnaðarerindið og segja öllum frá því hversu dýrð- legt það væri að ganga á Esjuna og njóta útsýnisins þegar upp væri komið. Hversu margir frels- uðust veit ég ekki, en foreldrar mínir frelsuðust alla vega af frá- sögnum mínum, þótt þau gætu ekki, sökum aldurs og fötlunar, gengið sjálf á fjallið. Þau urðu að láta sér nægja hástemmdar lýs- ingar mínar, því að á þeim tíma hafði ég ekki aðgang að þyrlu til þess að skreppa með þau á fjallið, jafnvel þótt ég hefði haft efni á því að leigja eina slíka. En þar með er ég kominn að kjarna málsins. Af hverju gerum við ekki öllum kleift að njóta þess- arar dýrmætu perlu sem við eig- um, Esjunnar? Eftir hverju erum við að bíða með að taka okkur til fyrirmyndar margar fegurstu borgir heims, sem búa svo vel að eiga fjöll innan seilingar, og leggja allt undir til þess að allir fái að njóta? Aðstaða til þess að ganga á Esj- una er til fyrirmyndar. Góð að- koma, bílastæði og merktar gönguleiðir. En aldraðir, fatlaðir, allur almenningur og hinn almenni ferðamaður (eða „túrhestur“) ganga ekki á Esjuna. Fyrir þá þarf að grípa til annarra ráða og einfaldasta og ódýrasta leiðin í fyrstu atrennu er að legga veg upp á Esjuna og slíkur vegur þarf ekki að vera malbikaður eða með mörgum akreinum. Einfaldur veg- arslóði, eins og svo víða er á finna á landi voru, nægir fullkomlega. Ég sé fyrir mér útlenska ferða- menn sem eru að koma til baka eftir dagsferð til Gullfoss, Geysis og Þingvalla að skjótast upp á Esjuna og berja augum höfuð- borgina og allt nágrennið í „nótt- lausri voraldarveröld“. Slíkt er eitthvað sem aldrei gleymist. Það var þetta með Esjuna Eftir Grétar Óskarsson Höfundur er flugvélaverkfræð- ingur, Kosovo. Á hádegistónleikunum í Hall- grímskirkju í dag koma fram þær Natalía Chow sópransöng- kona og Katal- in Lörincz org- elleikari. Efnisskrá þeirra saman- stendur bæði af söng- og orgelverkum. Orgelverkin eru Hátíðar- mars eftir Juli- an Michael Hewlett, konsert í h-moll eftir Johann Gottfried Walther, sálmforleikurinn Liebster Jesu, wir sind hier eftir J.S. Bach og tokkata eftir Frigyes Hidas. Inn á milli syngur Nat- alía Domine Deus eftir Vivaldi, Bist du bei mir eftir Bach/Stölzel, Óttast þú eigi eft- ir Katalin Lörincz og 23. Dav- íðssálm eftir David Yeung, en hann syngur Natalía á kín- versku. Natalía Chow, sem er fædd í Kína, og Katalin Lörincz frá Ungverjalandi komu báðar til Íslands í byrjun síðasta áratug- ar. Þær hlutu tónlistarmenntun sína í heimalandi sínu en þær hafa starfað sem tónlistarmenn hér á Íslandi undanfarin ár. Hallgrímskirkja Kína og Ungverja- land mætast Natalía Chow AUKASÝNING á einleiknum „Ellý, alltaf góð“ eftir Þorvald Þor- steinsson í flutningi Ævars Þórs Benediktssonar verður í kvöld, fimmtudagskvöldið 14. ágúst, kl. 21 í Litla-Garði innan Akureyrar, gegnt flugvellinum. Þetta er síð- asta sýning á Akureyri en svo leggur sýningin Castor Media í ferðalag suður á bóginn; á morgun föstudag verða tvær sýningar á Kaffi Króki á Sauðárkróki kl. 12 og 21. Á Menningarnótt í Reykjavík er svo sýning á Kaffi Reykjavík kl. 21 og ferðinni lýkur á sunnudag með sýningu í Félagsheimilinu Óðali, Borgarnesi kl. 21. Eftir sýn- inguna heldur sigurvegari Söng- keppni FF 2002, söngkonan Eva Karlotta, tónleika. Morgunblaðið/Kristján Ævar Þór í hlutverki sínu. Ellý alltaf góð á ferðalagi LISTIR TÓNLISTARVEISLA hefst annað kvöld á Hólmavík og stendur fram yfir helgi. Veislan samanstendur af fernum tónleikum af ýmsum toga, allt frá poppi til klassíkur. „Ríó tríóinu verður með konsert í Bragganum á föstudagskvöld kl. 21, en á miðnætti hefst dansleikur með Hljómum á sama stað og mun- um við spila langt fram eftir nóttu. Á laugardag kl. 21 spila KK og Magnús Eiríksson í Bragganum og seinna um kvöldið mun Halli Reyn- is vera með ekta trúbadúrastemn- ingu á Café Riis. Síðustu tónleikar helgarinnar fara fram í Hólmavík- urkirkju kl. 14, þar sem Ólafur Kjartan Sigurðarson baritón og Jónas Ingimundarson píanóleikari koma fram,“ segir Gunnar Þórð- arson einn skipuleggjandi veisl- unnar. Aðspurður hvað Hljómar munu bjóða upp á svarar Gunnar því til að flutt verði nýtt efni, af væntanlegu plötunni, í bland við gömlu góðu lögin. Að sögn Magnúsar Magnússonar, er rekur Braggann og Café Riis sem stendur fyrir tónlistarveisl- unni, er þetta í fyrsta sinn sem far- ið er af stað með svona stóra tón- listarhátíð á Hólmavík. „Hugmyndin að tónlistarveislunni er tilkomin annars vegar sökum tónlistaráhuga fólks á staðnum auk þess sem reynt er að búa eitthvað til handa ferðamanninum. Dag- skráin er mjög fjölbreytt þannig að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Gunnar hefur reynst okkur einstaklega hjálplegur við alla skipulagningu og sá t.d. um að velja tónlistarfólkið og fá það til að koma,“ segir Magnús og bætir við: „Síðan þykir okkur auðvitað frá- bært að Hljómar skuli spila hér, en svo skemmtilega vill til að þetta er í fyrsta skiptið sem þeir spila í Strandasýslu.“ Að sögn Magnúsar var Bragginn félagsheimili Hólmvíkinga til margra ára, eða allt þar til fyrir um fimmtán árum. „Fyrir fjórum árum keyptum við hann, gerðum upp og opnuðum aftur með pompi og prakt í fyrra. Þetta er gamall hermanna- braggi sem kom til Hólmavíkur 1946 frá Reykjum, en hér var steypt viðbygging við braggann,“ segir Magnús ánægður með að aft- ur sé komið líf í Braggann. „Það er einstakur hljómburður í þessu húsi. Menn sem vit hafa á tónlist og hljómburði hafa haft sérstaklega á orði hversu góður hljómburður er í Bragganum. Hann er einmitt í þessum gamla góða anda sem mönnum virðist falla vel í geð.“ Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson Hljómar verða með dansleik í Bragganum. Hljómar á Hólmavík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.