Morgunblaðið - 14.08.2003, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 14.08.2003, Blaðsíða 36
36 FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ        BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. ÉG þykist hafa veitt því athygli að ýmsir aldraðir útvarpshlustendur hafi áhyggjur af þætti Ríkisút- varpsins í dagskrá þeirri sem út- varpað er á rásum stofnunarinnar. Rás 1 hefir dagskrárþátt hvern virkan dag sem nefndur er Víðsjá. Í Víðsjárþáttum má oft heyra snarpa pistla, sem beinast að heimsvalda- stefnu Bandaríkjanna. Jafnframt eru flestir starfsmenn Rásar 1 svo handgengnir hljómlist Kanans að naumast heyrast söngvar á móður- máli eða feðratungu í fyrrnefndum þáttum. Í samtalsþáttum er slett engilsaxneskum orðskrípum í nær annarri hverri setningu. Breyting á ævafornum orðum ryður sér til rúms, án þess að málfarsráðunaut- ar láti sig það nokkru skifta. Mar- grét Pála, sem er harðdugleg for- ystukona í uppeldismálum, hefir lagt nýjan skilning í orðið ástríða. Í orðabók Háskóla Íslands og Menn- ingarsjóðs er orðið ritað á|stríða og vísar til þess sem stríðir á hugann. Nú hefir Margrét Pála með harð- fylgi stallsystra sinna lagt þennan forna skilning að velli. Nú er fram- burðurinn breyttur og skifting orðsins lýtur nýjum lögmálum. Ást-ríða segja þær stöllur, sem er allt önnur merking og varðar ástar- atlot. Svo langt gengur þessi hringavitleysa að Niðursuðuverk- smiðjan ORA hefir tekið þennan framburð upp í sjónvarpsauglýs- ingu. Ég hringdi í auglýsingastofu Ríkissjónvarpsins og gerði athuga- semd. Svarið sem ég fékk var: „Þeir vilja hafa þetta svona.“ Sem sagt. Ef þú vilt breyta þjóðtungunni eftir þínu höfði og breyta gömlum orða- tiltækjum og merkingu þeirra þá er bara að greiða nokkur þúsund krónur einhverri auglýsingastofu. Þá er málið leyst og þú getur lagt allt annan skilning í orðið en áður var almennt viðurkennt. PÉTUR PÉTURSSON, þulur. Um framburð á orð- inu ástríða Frá Pétri Péturssyni: HÖFUM verið á Íslandi í 10 daga og ekið kringum landið í bíl. Þið eigið stórkostlega náttúru og fuglalíf sem ég, sem þó kem frá Norður Noregi, varð mjög hrifinn af. Gætið náttúrunnar. Ég óska þess einlæglega: Berið virðingu fyrir náttúrunni og gætið þess að aka ekki utan vega. Að auki: Þökk fyrir að hafa gætt tungunnar og menningarinnar fyrir okkur Norðmenn. Þið hafið á marg- víslegan hátt orðið til þess að hafa áhrif á okkur. Veðrið var gott. Við höfum með okkur ullarflíkur og vindjakka, en þegar hitinn var á bilinu 15 til 20 gráður, klæddumst við aðeins léttum fatnaði. Við munum koma aftur til Íslands. Með kveðju. SNORRE PETERSEN, frá Helgeland í Norður-Noregi. Sumardvöl á Íslandi Frá Snorre Petersen, Noregi: Í ÁGÆTRI grein er Sturla Böðv- arsson samgönguráðherra skrifar í Morgunblaðið nefnir hann sem dæmi að innanlandsflugið eigi allt undir því að það verði áfram á Reykjavíkurflugvelli. Þar vinna um 4.000 manns, þar er glæsilegt hótel, þar byrjar maður utanlands- ferðina er maður fer með rútu suð- ur á Keflavíkurflugvöll og þangað komum við er við komum heim og þar fara í gegn hundruð þúsunda manna allt árið. Þar hefur Land- helgisgæslan sínar bækistöðvar, þar er flugskóli, flugskýli og margt annað. Völlurinn er öryggisflug- völlur bæði fyrir sjúkraflug og allt annað flug. Völlinn fengum við gefins frá Bretum, hann er ómet- anlegur. Það fólk sem segir: völl- inn burt ætti að skammast sín og láta ekki heyra í sér aftur. Ef arkitekta sem vilja völlinn burt vantar byggingarland þá vil ég benda þeim á risastóra golfvelli sem mætti fækka um helming. Í sumum löndum væri þetta fólk, sem hrópar „völlinn burt“ sett á hæli fyrir vangefna en í öðrum löndum sett í fangelsi sem hryðju- verkamenn. Vinna þúsunda skiptir þetta fólk engu máli og ég spyr: Vill nokkur Íslendingur leggja í rúst nýbyggingu Flugmálastjórn- ar, að ég tali ekki um flugturninn. Ég skora á stjórnvöld að setja lög um öryggisflugvelli, en Reykjavík- urflugvöllur er geysiþýðingarmik- ill öryggisflugvöllur. Gleymið því aldrei. VILHJÁLMUR SIGURÐSSON, Njálsgötu 48a, Reykjavík. Reykjavíkurflugvöllur er lífæð þjóðarinnar Frá Vilhjálmi Sigurðssyni:

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.