Morgunblaðið - 14.08.2003, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 14.08.2003, Blaðsíða 35
Mildi og nákvæmni koma mér fyrst í hug í fari tengdamóður minnar. Mildin kom fram í sam- skiptunum við barnabörnin sem hún gat ekki neitað um nokkurn skapaðan hlut. Það skemmtileg- asta sem þau vissu var að „plata“ ömmu, því hún mótmælti aldrei og samþykkti ævinlega allar tillögur þeirra. Bestu stundirnar voru uppi í bústað, þar sem amma og afi ræktuðu kartöflur, jarðarber og gulrætur. Í þeirra umsjá hafði landið breyst úr örfoka mel í skjól- góðan sælureit með kofa, trjárækt og fótboltavelli. Elín skráði sán- ingardaga og uppskeru svo hægt væri að læra af reynslunni síðar. Hún vissi upp á hár hvenær best var að sá og hvernig átti að búa um gulræturnar í sérstökum gler- kössum sem afi smíðaði. Það var ævinlega tilhlökkun á sumrin að fá að smakka fyrstu uppskeruna af heimsins bestu gulrótum úr garð- inum hjá ömmu og afa. Fjölskyldan var ömmu allt og hún hélt henni saman með fjöl- skylduboðum á hverju einasta laugardagskvöldi þótt hópurinn væri kominn yfir annan tuginn. Og yfir ljúffengu lambalæri voru þjóð- málin krufin með börnum, tengda- börnum og barnabörnum. Á hverju ári var farið í fjöl- skylduferðalag og af einhverjum ástæðum varð venjulega fyrir val- inu einn helsti rigningardagur sumarsins. Stundum var ekki viðlit að borða nestið úti, svo bílunum var lagt í röð og borðað inni með allar hliðarrúður opnar. Og rign- ingin og rokið gerði ferðalagið bara enn þá eftirminnilegra. Mig langar til að þakka fyrir ógleymanlegar stundir, sem við fjölskyldan höfum átt með ömmu í Unubæ og á Fjölnisveginum. Þorsteinn Jónsson. Kvöld eitt eftir gleðiríkan dag á ströndinni lá ég í rúminu og heyrði símann hringja. Mamma svaraði og síðan þaut hún út. Amma hafði átt erfitt um tímabil svo mér datt í hug að það væri neyðarástand hjá henni, en það vissi ég ekki fyrr en um morguninn. Mamma kallaði á mig og sagði fréttirnar. Amma var dáin. Eftir morgunmat fórum við að hitta afa. Ég sá ömmu liggja í rúminu eins og hún væri sofandi, bara enginn andardráttur. Þegar ég horfði á hana ömmu mína minntist ég stundanna sem ég átti með henni lifandi. Ég man þegar við tvær lágum í þessu sama rúmi og skoðuðum orðabókina. Ég man þegar við fórum niður að Tjörn, ég man þegar við fórum upp í sveit og þegar við fórum á Akranes og á róló. Hún var falleg, góð og blíð. Og hún skrifaði mikið. Enda vann hún á skrifstofu. Hún amma hafði búið í fimmtán leigðum húsum en hún átti hús númer sextán, sem hún dó í. Hún hafði fengið hættu- lega krabbameinið. Þetta var mikil sorg fyrir alla. En ég á ömmu enn þá, hún er bara ósýnileg. Elísabet Rún Þorsteinsdóttir. Okkur mæðgur langar til að minnast vinkonu okkar Dúu. Dúa og við áttum sama frænd- fólk – Sissu og Skúla, sem fluttust búferlum til Bandaríkjanna 1958. Þá tóku fjölskyldur okkar að mynda náin tengsl. Minnisstæðust eru okkur ára- mótin, þegar fjölskyldurnar sam- einuðust. Þá var farið á brennu á Klambratúni, horft á áramóta- skaupið heima hjá okkur í Barma- hlíðinni og síðan var rölt yfir í Mávahlíðina, þar sem Dúa og Ósk- ar bjuggu. Flugeldum var skotið, kaffi drukkið og síðan var farið í leiki, sem Dúa hafði undirbúið, öll- um til mikillar gleði. Aðrar hefðir, sem fjölskyldurnar áttu sameig- inlegar, voru laufabrauðsbakstur og jólaboð. Héldust þessar hefðir þar til börnin stofnuðu sínar eigin fjölskyldur. Oft var komið saman á sumrin í sumarbústöðunum í Grafningnum og við Úlfarsfell. Einnig var farið í ferðalög. Minn- isstæðust er ferðin í kringum land- ið með viðkomu í Vestmannaeyj- um. Dúa var alltaf hress og kát og tók alltaf brosandi á móti okkur. Söknuðum við þess að hafa hana með okkur þegar frænka okkar fermdist sl. vor. Við og fjölskyldur okkar munum sakna Dúu, við þökkum góðar samverustundir á liðnum árum og vottum Óskari, Auði, Eygló, Erlu og fjölskyldum þeirra dýpstu sam- úð. Doris og Edda. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2003 35 Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa kl. 14–17 í neðri safnaðarsal. Sönghópur undir stjórn Kára Þormar, organista. Kaffi og með því eftir sönginn. Allir velkomnir. Hallgrímskirkja. Hádegistónleikar kl. 12. Natalie Chow, sópran og Katalin Lörincz orgel. Háteigskirkja. Taize-messa kl. 20. Landspítali – háskólasjúkrahús: Arnar- holt: Guðsþjónusta kl. 15. Sr. Sigfinnur Þorleifsson. Laugarneskirkja: Kyrrðarstundir í hádegi hefja nú göngu sína á nýju starfsári. Gunn- ar Gunnarsson leikur á orgelið frá kl. 12. Þjónustu annast sr. Bjarni Karlsson. Kl. 12.30 er léttur málsverður í boði í safn- aðarheimilinu. Fella- og Hólakirkja. Biblíulestur og helgi- stund í Gerðubergi kl. 10.30–12. Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðarstund í kirkjunni kl. 22. Gott er að ljúka deginum og undirbúa nóttina í kyrrð kirkjunnar og bera þar fram áhyggjur sínar og gleði. Bænarefni eru skrá í bænabók kirkjunnar af prestum og djákna. Boðið er upp á molasopa og djús að lokinni stundinni í kirkjunni. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung börn og foreldra þeirra í Vonarhöfn, safn- aðarheimili Strandbergs, kl. 10–12. Opið hús fyrir 8–9 ára börn í safnaðarheimilinu Strandbergi, Vonarhöfn, frá kl. 17–18.30. Þorlákskirkja. Biblíupælingar í kvöld kl. 20. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 10 Mömmumorgun í safnaðarheimilinu. Kaffi á könnunni og djús fyrir yngri kynslóðina. Kl. 14.30 Helgistund á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja. Kletturinn. Kl. 19 alfanámskeið. Allir vel- komnir. Akureyrarkirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna- stund kl. 12. Léttur hádegisverður á vægu verði í safnaðarheimili eftir stundina. Kyrrðar- og fyrirbænastund kl. 12. Léttur hádegisverður á vægu verði í safnaðar- heimili eftir stundina. Safnaðarstarf Morgunblaðið/Ómar AT V I N N U A U G LÝ S I N G A R 40 ára og eldri — konur og karlar Viljum ráða sölufólk til ýmiss konar verk- efna við símasölu, bæði á daginn og kvöld- in. Nokkur störf eru laus strax en önnur inn- an skamms. Söluvertíðin er hafin og því gott tækifæri til að afla góðra tekna. Árangurstengd launþegakjör. Aðstoð, leið- beiningar og góður starfsandi. Nánari upplýsingar í síma 590 8000 á milli kl. 13.00 og 15.00 alla virka daga. BM-ráðgjöf er upplýsingafyrirtæki sem veitir sérhæfða þjónustu í markaðs-, upplýsinga- og innheimtumálum. Markmið fyrirtæk- isins er að aðstoða fyrirtæki og félagasamtök við að ná settu marki í upplýsinga-, markaðs- og innheimtustarfi. Með sér- þjálfuðu starfsfólki og öflugum tæknibúnaði beitum við hnit- miðuðum vinnubrögðum til að auka gæði þjónustu og auka árangurinn af innheimtu- og markaðsstarfi viðskiptavinarins. BM ráðgjöf ehf., Ármúla 36, Reykjavík, sími 590 8000, netfang bm@bm.is „Au pair" í nágrenni Washington, Bandaríkjunum Ábyrg 18—26 ára „au pair“ óskast til að gæta 5 og 8 ára drengja í eitt ár, frá byrjun septem- ber. Núverandi „au pair“ er íslensk og getur aðstoðað við aðlögun. Hafið samband við Mary Palmer, netfang mpalm@aol.com, svo ákveða megi hvenær símaviðtal getur farið fram. Kvöldvinna — góðar tekjur Söluvertíðin er hafin og nú vantar okkur duglegt símasölufólk á kvöldin. Aldurstak- mark 20 ára og uppúr. Við bjóðum hentuga aukavinnu með góðum tekjumöguleikum eitt til 5 kvöld í viku. Árangurstengd laun- þegakjör. Aðstoð, leiðbeiningar og góður starfsandi. Nánari upplýsingar í síma 590 8000 á milli kl. 13.00 og 15.00 alla virka daga. BM ráðgjöf ehf., Ármúla 36, Reykjavík, sími 590 8000, netfang bm@bm.is Starfsmaður í byggingavöruverslun Sérhæfð byggingavöruverslun óskar eftir að ráða starfsmann. Leitað er eftir duglegum og reglusömum starfsmanni með góða þjónustulund. Umsóknum skal skilað á augldeild Mbl. og/eða senda á box@mbl.is, merktum: „B — 14024“. SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF Fimmtudagur 14. ágúst 2003 Almenn samkoma í Þríbúðum, Hverfisgötu 42, kl. 20:00. Mikill söngur og vitnisburðir. Predikun Erling Magnússon. Föstudagur 15. ágúst Opinn AA-fundur kl. 20:00. Mánudagur 18. ágúst UNGSAM kl.19:00 Uppbyggileg þjálfun fyrir ungt fólk í bata. www.samhjalp.is Jórunn Oddsdóttir miðill Verð á landinu í örfáa daga. Ef þú hefur áhuga á að panta tíma, þá getur þú hringt í síma 0047 980 60578 fyrir 17. ágúst. Smiðjuvegi 5, Kópavogi. Bænastund kl. 19:30. Samkoma kl. 20:00 lofgjörð og fyrirbænir, Högni Valsson predikar. Athugið ný sending af „The Heavenly man“ í bókabúðinni. FRÉTTIR HIÐ árlega norðurlandamót í öku- leikni á strætisvögnum fór fram í Södertälje í Svíþjóð 9. ágúst sl. Þrjátíu vagnstjórar, frá höf- uðborgunum fimm, tóku þátt. Ís- lenska liðið hafði Gull að verja frá því í fyrra og tókst að sigra aftur eftir harða baráttu við finnska lið- ið sem hafnaði í öðru sæti, en 800 sek. skildu liðin að. Norðmenn höfnuðu í þriðja sæti, Danir í fjórða og heimamenn frá Svíþjóð hlutu Júmbó-sætið að þessu sinni. Íslenska liðið hlaut farandbikar að launum, til varðveislu í eitt ár, en bikarinn var gefinn af Strætó b.s. í fyrra. Einnig hlaut íslenska liðið verðlaun fyrir jafnasta liðið og villuminnsta liðið. Í einstaklingskeppninni sigraði Per Petersen frá Danmörku, Timo Kettunen frá Finnlandi varð annar og okkar maður, Þórarinn Söebech,hlaut bronsverðlaun. Íslenskir vagnstjórar kepptu í ökuleikni í Svíþjóð Sigurlið Strætó í Norðurlandamóti vagnstjóra 2003. Efri röð frá vinstri: Markús Sigurðsson, Kjartan Pálmarsson, Steindór Steinþórsson, Þórarinn Söebech, Hallgrímur Jónsson og Rögnvaldur Jónatansson. Neðri röð frá vinstri: Kristján Kjartansson, Hörður Tómasson og Jóhann Gunnarsson. Sigruðu á norðurlanda- móti vagnstjóra EFTIRFARANDI ályktun hefur borist frá stjórn Blaðamannafélags Íslands. „Stjórn Blaðamannafélags Ís- lands gagnrýnir tilraunir eigenda Norðurljósa til að hafa áhrif á fréttaflutning fréttastofu Stöðvar 2. Sjálfstæði ritstjórna er grundvall- aratriði í óháðri, hlutlausri og fag- legri blaðamennsku. Stjórn Blaða- mannafélagsins brýnir fyrir íslenskum blaðamönnum að standa vörð um sjálfstæði sinna rit- stjórna.“ Ályktun frá Blaðamanna- félagi Íslands

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.