Morgunblaðið - 14.08.2003, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 14.08.2003, Blaðsíða 21
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2003 21 SÍÐUSTU vikunni í vinnuskólanum í Grindavík er að ljúka og af því tilefni var efnt til veislu í gær. Hlaðinn var bálköstur með hluta af rekavið og drasli sem ungmennin hafa hreinsað úr fjörunum í sumar og kveikt í honum. Þá var boðið upp á grillaðar pylsur og kók. Tæplega 90 krakkar úr 8., 9. og 10. bekk grunn- skóla Grindavíkur tók þátt í starfi vinnuskólans í sum- ar, að sögn Jóns Guðmundssonar starfsmanns Grinda- víkurbæjar. Að auki vann hópur eldri ungmenna að sérstökum verkefnum þannig að hátt í 100 manns voru við störfum á vegum vinnuskólans í sumar. Mest var unnið að fegrun bæjarins, svo sem gróður- setningu, slætti, hreinsun og málun. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Ágætt er að fá að slappa af eina dagstund í síðustu vinnuvikunni.Grillaðar pylsur og kók eru ómissandi í vinnuskólaveislum. Lokaveisla hjá vinnuskólanum Grindavík STARFSMENN Reykjanesbæjar eru með áætlanir um að veita meira vatni í tjarnirnar á Njarð- víkurfitjum til að fuglar sjáist þar meira. Þá verða settar gerviendur á flot til að prýða tjarnirnar þang- að til þeir fiðruðu koma til baka. Lítið vatn hefur verið í tjörn- unum á Fitjum að undanförnu og hafa fuglarnir nánast horfið vegna þess, eins og fram kom í frétt í blaðinu í gær. Lesandi vakti þó at- hygli á því að töluvert fuglalíf væri með ströndinni, í fjörum Njarðvík- urinnar, en þá þarf fólk að ganga heldur lengra til að sjá það en að tjörnunum. Vatnsrennsli virðist hafa minnk- að í gegn um tjarnirnar vegna framkvæmda þarna í kring. Meðal annars hafa verið gerðar úrbætur í holræsamálum. Viðar Már Aðal- steinsson, framkvæmdastjóri um- hverfis- og tæknisviðs Reykjanes- bæjar, segir að svo virðist sem þetta jarðrask hafi orðið til þess að vatnið fari nú eftir öðrum leið- um til sjávar. Þá hafi verið miklir þurrkar að undanförnu og óvenju lítið sé því í tjörnunum, minna en oftast áður. Framkvæmdum við að laga umhverfið á Fitjunum er nú að ljúka. Viðar segir að verið sé að leita leiða til að veita vatni eftir öðrum leiðum í tjarnirnar og leysa þetta mál varanlega með því. Vonast hann til að fuglarnir komi aftur. Þangað til verða gerviendur á tjörnunum til að gleðja augað. Setja gervi- endur á flot í stað þeirra sem stungu af Njarðvík Fimmta skoðunarferð Upplýsinga- miðstöðvar Reykjaness verður í kvöld, fimmtudag. Gengið verður með Reyni Sveinssyni um Sand- gerði. Mæting er á veitingastaðnum Vitanum klukkan 20. Í næstu viku verða þrjár síðustu skoðunarferðirnar en þá verður gengið um Hafnir og Voga á mánu- dag og þriðjudag auk þess sem úti- listaverk Reykjanesbæjar verða skoðuð á fimmtudag. Í DAG

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.