Morgunblaðið - 14.08.2003, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 14.08.2003, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til Costa del Sol 27. ágúst. Nú getur þú notið skemmtilegasta tíma ársins á þessum vinsælasta áfangastað Íslendinga í sólinni og búið við frábæran aðbúnað. Þú bókar núna, og tryggir þér síðustu sætin, og 4 dögum fyrir brottför hringjum við í þig og tilkynnum þér hvar þú býrð. Að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann. Munið Mastercard ferðaávísunina Stökktu til Costa del Sol 27. ágúst frá kr. 39.962 Verð kr. 39.962 M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára. Flug, gisting, skattar, 27. ágúst, 7 nætur Almennt verð, kr. 41.960. Verð kr. 49.950 M.v. 2 í herbergi/stúdíó, 27. ágúst, 7 nætur. Almennt verð, kr. 52.447. Ferðir til og frá flugvelli, kr. 1.800. Val um 1 eða 2 vikur. FJÁRHAGSLEG endurskipu- lagning stendur nú yfir á rekstri út- gáfufélags DV. Að sögn Óla Björns Kárasonar, aðalritstjóra og eins eig- enda blaðsins, er unnið að henni í samráði og samvinnu við lánar- drottna félagsins. Endurfjármögn- un hefur þegar verið tryggð miðað við að samningar takist við helstu lánardrottna. Morgunblaðinu barst í gær enn- fremur eftirfarandi yfirlýsing frá Halldóri J. Kristjánssyni, banka- stjóra Landsbankans: „Vegna fréttar Útvarpsins í há- deginu í dag, 13. ágúst, um afskriftir lána DV í Landsbankanum, er rétt að fram komi að vegna bankaleynd- ar tjá forsvarsmenn Landsbankans sig alls ekki um málefni einstakra viðskiptavina. Rétt er að taka fram að Landsbankinn hefur verið einn viðskiptabanka útgefanda DV um árabil, þ.m.t. frá því að nýir eig- endur komu að því árið 2001. Að hálfu eigenda er nú unnið að endur- fjármögnun félagsins. Sú endurfjár- mögnun hefur enn ekki verið til lykta leidd og er því umræða um af- skriftir ótímabær. Jafnframt er rétt að árétta að Landsbankinn leggur metnað sinn í faglega úrlausn verk- efna og að bankinn leitast við að finna þær lausnir sem eru honum hagfelldastar þegar til langs tíma er litið. Af gefnu tilefni er rétt að taka það fram að í alla staði er óeðlilegt að ræða málefni eins viðskiptavinar bankans í tengslum við heildaraf- skriftir bankans á fyrri hluta þessa árs, en þær voru kynntar í afkomu- tilkynningu bankans í síðustu viku.“ Í frétt Ríkisútvarpsins var stað- hæft að Landsbankinn hefði afskrif- að um 700 milljónir króna vegna DV eða sem samsvarar þeirri fjárhæð sem samið var um milli eignarhalds- félagsins Samsonar, aðaleiganda Landsbankans, og einkavæðingar- nefndar að yrði hámark þess af- sláttar sem Samson gæti fengið eft- ir gagnrýnið endurmat á útlánasafni bankans. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hefur ekkert enn verið afskrifað vegna DV af hálfu Landsbankans en á síðastliðnum misserum hefur allnokkurt fé verið lagt til hliðar á afskriftareikning bankans vegna stöðu útgáfufélags blaðsins. Er sú heildarfjárhæð þó mun lægri en sagði í frétt RÚV. DV í fjárhags- lega endur- skipulagningu VEIÐIHUNDADEILD Hunda- ræktarfélags Íslands stóð fyrir kynningu á notkun veiðihunda við rjúpnaveiðar á Mosfellsheiðinni í gær. Umhverfisnefnd Alþingis var boðið að vera á kynningunni en aðeins einn nefndarmaður, Kol- brún Halldórsdóttir frá vinstri grænum, þekktist boðið. Hundaeigendurnir létu hundana hlaupa yfir veiðisvæði og sýndu Kolbrúnu hvernig hundarnir vinna og hvaða kröfur gerðar eru til þeirra við veiðarnar en veiði- hundar verða að standast ströng próf til að þá megi nota við veið- ar. Ástæða þess að boðið var upp á kynninguna var sú að veiðihunda- eigendur töldu að þeir hefðu ver- ið ranglega sakaðir um lögbrot af umhverfisnefnd síðastliðinn vetur með því að nota veiðihunda við rjúpnaveiðar og vildu sýna fram á að notkun hundanna við veið- arnar væri eðlileg og lögum sam- kvæmt. Nota má hunda til að finna bráð en ekki til að hlaupa hana uppi en tilgangur þjálfunar veiðihunda er að kenna þeim að hlaupa ekki uppi fugla sem þeir finna heldur stoppa og halda kyrru fyrir. Vilhjálmur Ólafsson, í Veiði- hundadeild Hundaræktarfélags- ins, segir að veiðum með hundi fylgi viss spenna sem komi ekki þegar veiðimaðurinn er einn á ferð. Ákvörðun umhverfisráðherra um að banna rjúpnaveiðar kom til umræðu í gær en veiðahunda- menn, líkt og aðrir skotveiði- menn, eru ekki sammála því að nauðsynlegt hafi verið að banna veiðar á rjúpu. Á myndinni má sjá veiðitíkina Kátu og Kolbrúnu Halldórsdóttur, þingkonu, fylgjast með veiðihund- unum leita fugla á heiðinni í gær. Morgunblaðið/Árni Sæberg Kynning á aðferð- um veiðihunda ÞORLÁKUR Björnsson, formaður leikskólaráðs Reykjavíkur, segir ekki rétt að loka eigi gæsluvellinum við Frostaskjól alfarið eins og skilja hafi mátt af fréttaflutningi í fjölmiðl- um heldur verði hann áfram starf- ræktur á sumrin. Mikil óánægja er meðal foreldra í hverfinu með fyrir- hugaða lokun vallarins í vetur og er stefnt að því að afhenda borgaryfir- völdum undirskriftalista með um 1.000 undirskriftum síðar í vikunni þar sem lokunni er mótmælt. Búið að lofa Grandaskóla lóð- inni fyrir frístundaheimili Í síðustu viku samþykkti hverfis- ráð Vesturbæjar að beina þeim til- mælum til leikskólaráðs að endur- skoða þá ákvörðun sína að hætta rekstri gæsluvallarins í núverandi mynd. Formaður leikskólaráðs segir hins vegar að stefnt hafi verið að því að Grandaskóli fengi afnot af lóð gæsluvallarins og húsnæðinu sem þar er strax í haust undir frístunda- heimili fyrir 90 börn á aldrinum 6–9 ára. Viðbúið sé að ekki verði hægt að koma þeirri þjónustu fyrir annars staðar. Að hans sögn sækja þrjú til fjögur börn daglega gæsluvöllinn við Frostaskjól frá september fram í maí og þar starfa þrír starfsmenn. „Við getum ekki gengið fram hjá því að það eru 1.000 foreldrar sem hafa ritað nafn sitt á undirskrifta- listana og ég er tilbúinn að taka mál- ið upp til skoðunar, að við höldum honum opnum næsta vetur og sjáum hvort tíðnin eykst,“ segir Þorlákur. Hann segir að borgin standi frammi fyrir þeirri ákvörðun hvort halda eigi úti gæsluvallastarfsemi fyrir þrjú til fjögur börn eða frístundaheimili fyr- ir 90 börn. Gæsluvöllurinn verður opinn í dag í síðasta sinn í sumar. Leikskólaráð tekur málið fyrir 22. ágúst nk. Formaður leikskólaráðs um vetrar- lokun gæsluvallar við Frostaskjól 3–4 börn á gæsluvellinum yfir veturinn GRÆNLENSKA flugfélagið Air Greenland hefur ákveðið að halda áfram flugi á flugleiðinni milli Kaup- mannahafnar og Akureyrar en félag- ið hefur fengið leyfi til flugsins fram í október 2004. Stjórn Air Greenland kom saman til fundar sl. mánudag og ákvað að halda fluginu áfram. Flugleyfið, sem veitt var nýverið, er með þeim fyr- irvara um að samningaviðræður Ís- lendinga og Dana um nýjan loft- ferðasamning, sem fram fara í haust, beri árangur fyrir 1. maí 2004. Áfram flogið til Grænlands VINNUSLYS varð við höfnina á Stöðvarfirði í gær er maður féll ofan af pallbifreið niður á steypt plan og rotaðist. Komst hann fljótlega til meðvitundar en mikið blæddi úr stórum skurði á hnakka. Var gert að sárum mannsins á heilsugæslustöð- inni á Fáskrúðsfirði. Vinnuslys á Stöðvarfirði GAMLAR líkkistur hafa fundist við uppgröft á kirkjulóðinni við Hóls- kirkju í Bolungarvík en ekki var vitað af kistunum áður en fram- kvæmdir hófust. Kisturnar hafa ekki verið aldursgreindar en bæði hafa fundist barna- og fullorðins- kistur og verða þær sendar til Reykjavíkur til nánari rannsókna en nú þegar hefur allur beinaupp- gröftur verið sendur suður. Forn- leifavernd Íslands var látin vita um leið og kisturnar fundust og Garðar Guðmundsson, fornleifafræðingur frá Fornleifastofnun Íslands, kom á staðinn fljótlega eftir að fram- kvæmdir hófust síðari hluta júlí- mánaðar og sá um fornleifaupp- gröftinn. Framkvæmdir við Hólskirkju munu standa fram í desember en styrkja á bæði undirstöður kirkj- unnar, sem farin er að síga, sem og gólf hennar, að sögn Halldórs Ey- dal kirkjuvarðar. Framkvæmdum á að vera lokið í desember. Á mynd- inni er Guðmundur Óli Kristj- ánsson, smiður, með eina af þremur heilum barnalíkkistum sem fundist hafa við kirkjuna. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns Gamlar lík- kistur finn- ast við upp- gröft hjá Hólskirkju ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.