Morgunblaðið - 14.08.2003, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 14.08.2003, Blaðsíða 37
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2003 37 Hrygningastofn/nýliðun Í skýringu á korti fjögur í grein- inni Endurreisn þorskstofnsins, bls. 23 í gær, víxluðust tölur. Rétt er hún svona: Sjö ára nýliðun fundin eftir hita og 5 ára meðaltali hrygningastofns. Ef hrygningarstofn er 200 þúsund tonn og hiti 4 stig verður nýliðun 250 milljónir fiska við 3ja ára aldur. Fylgni 0,89. Vinnueftirlitið sá um rannsóknina Í grein um ráðstefnuna Hugur og hönd í blaðinu í gær var greint frá verðlaunum sem Ágústa Guðmunds- dóttir hlaut. Rétt er að taka fram að Ágústa vann skipulagsbreytingar á vinnuumhverfi á vegum Leikskóla Reykjavíkur en rannsókna- og heil- brigðisdeild Vinnueftirlitsins sá um rannsóknarvinnuna. LEIÐRÉTT VIKUNA 18.–22. ágúst stendur Ís- land á iði fyrir heiluseflingarverk- efninu ,,Hjólað í vinnuna“. Megin- markmið þess er að vekja athygli á hjólreiðum sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. ,,Hjólað í vinnuna“ er keppni á milli fyrirtækja þar sem starfsfólk er hvatt til að hvíla bílinn en hjóla þess í stað til og frá vinnu. Keppnisgreinarnar eru 3: 1) flestir hjólaðir dagar 2) flestir km hjólaðir og 3) glæsilegustu liðin. Keppt er í 3 flokkum: 1) 10 starfs- menn eða færri, 2) 11–30 starfs- menn, 3) 31 eða fleiri starfsmenn. Hvert lið má innihalda 1–10 liðs- menn. Ef fleiri hjóla á sama vinnu- stað er einfalt að stofna lið númer tvö, þrjú undir kennitölu fyrirtæk- isins. Það er tilvalið að skipta vinnu- staðnum upp, t.d. miða við deildir á sjúkrahúsi eða útibú í bönkum. Í hverju liði er liðsstjóri sem sér um að skrá lið sitt til þátttöku og hann heldur einnig utan um daglega skráningu á Netinu. Allar nánari upplýsingar og skráning eru á heimasíðu Íþrótta- og Ólympíusam- bands Íslands á www.isisport.is. Ísland á iði er fræðslu- og hvatn- ingarverkefni á vegum ÍSÍ. Megin- markmið þess er að hvetja lands- menn til aukinnar hreyfingar og heilsueflingar. Ísland á iði ÁRLEG Hólahátíð verður haldin á Hólum í Hjaltadal sunnudag- inn 17. ágúst og hefst með hátíð- armessu í dómkirkjunni kl. 14. Nývígður Hólabiskup, Jón Að- alsteinn Baldvinsson, prédikar en altarisþjónustu annast séra Ragnheiður Jónsdóttir, Dalla Þórðardóttir prófastur, biskup Íslands Karl Sigurbjörnsson og vígslubiskup Hólastiftis Jón Að- alsteinn Baldvinsson. Lesari er Sigríður Gunnarsdóttir og með- hjálpari Eyrún Guðmundsdóttir. Kammerkór Akureyrarkirkju syngur en organisti er Eyþór Ingi Jónsson. Að messu lokinni verða kaffiveitingar í boði Hóla- nefndar. Hátíðarsamkoma hefst síðan í dómkirkjunni kl. 16.30 en þar flytur hátíðarræðuna Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra. Þorsteinn frá Hamri flytur ljóð og Skúli Skúlason skólameistari flytur ávarp. Milli atriða verður flutt tónlist í umsjá Eyþórs Inga Jónssonar og Kammerkórs Ak- ureyrarkirkju, einsöngvarar eru þær Sigrún Arna Arngríms- dóttir og Þórhildur Örvars- dóttir. Morgunblaðið/Guðbjörg Hólahátíð á sunnudag AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.