Morgunblaðið - 14.08.2003, Blaðsíða 52
ÞESS eru dæmi að mikil umferð um Flug-
vallarveg til ylstrandarinnar í Nauthólsvík á
góðviðrisdögum hafi valdið töluverðum töfum
fyrir þyrlusveit Landhelgisgæslunnar á leið í
útköll. Þetta staðfestir Benóný Ásgrímsson,
yfirflugstjóri Gæslunnar, í samtali við Morg-
unblaðið en sveitin hefur sem kunnugt er haft
næg verkefni síðustu daga. Var hún á einni
viku kölluð út níu sinnum vegna slysa víða um
land þar sem oftast hefur verið um líf og
dauða að tefla. Viðbragðstími sveitarinnar
skiptir því miklu máli, ekki síst um helgar eða
á kvöldin þegar flugmenn eru kallaðir út
heiman frá sér.
Bent á blá ljós í skýrslu um
Svanborgarslysið
Með endurbættri ylströnd í Nauthólsvík og
stærri bílastæðum hefur aðkoman í flugskýli
Landhelgisgæslunnar breyst og þrengst frá
því sem áður var. Benóný segir að nýlega hafi
fengist samþykki Flugmálastjórnar fyrir því
að meðlimir þyrluáhafna geti farið inn á flug-
völlinn um hjáleið skammt frá flugturninum
og Hótel Loftleiðum. Það sé skárri kostur en
ekki algóður þar sem tafir verði t.d. af því að
fá hliðið inn á völlinn opnað og aka þurfi með-
fram flugbraut.
Þyrluáhafnir hafa ekki blá forgangsljós til
að setja á þak einkabifreiða sinna í útköllum
Þyrluáhafnir Landhelgisgæslunnar ekki með blá forgangsljós í útköllum
Mikil umferð í Nauthóls-
vík hefur valdið töfum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eftir þessum vegi við ylströndina þarf þyrluáhöfnin að aka, oft í flýti, er útkall verður.
en beiðni um slíkan búnað hefur legið fyrir í
nokkur ár, að sögn Benónýs. Vonast hann til
að lausn finnist á þessu en Landhelgisgæslan
hefur farið formlega fram á það við dóms-
málaráðuneytið að fá slík ljós. Í skýrslu
Rannsóknarnefndar sjóslysa frá vordögum
2002 um slysið er Svanborg SH fórst við
Snæfellsnes í desember 2001 er það meðal til-
lagna í öryggisátt að þyrlusveit Landhelgis-
gæslunnar fái blá forgangsljós til að nota í út-
köllum.
„Það hefur einnig komið fyrir að lögreglan
hafi stöðvað okkur í útköllum vegna hrað-
aksturs en þegar hún hefur fengið að vita til-
efnið hefur okkur verið fylgt með forgangi á
flugvöllinn. Síðan eru margir lögreglumenn
farnir að þekkja okkur og hafa þá ekið á und-
an okkur að flugskýlinu,“ segir Benóný.
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Sími 588 1200
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla daga
EIÐUR Smári Guðjohnsen skoraði fyrra mark Chelsea þegar liðið
vann MSK Zilina 2:0 í fyrri leik liðanna í forkeppni Meistaradeildar
Evrópu en leikið var í Slóvakíu í gærkvöldi. Eiður Smári átti einnig
hlut að máli í síðara markinu sem var sjálfsmark. Á myndinni fagnar
Juan Sebastian Veron Eiði Smára eftir að hann kom Chelsea yfir
skömmu fyrir leikhlé með glæsilegu marki./42
AP
Eiður Smári á skotskónum
VIÐBÚNAÐUR lögreglu verður mikill í miðbæn-
um á menningarnótt. Geir Jón Þórisson yfirlög-
regluþjónn sagði á blaðamannafundi í gær að sam-
vinna lögreglu og skipuleggjenda hátíðarhaldanna
hefði gengið vel og að 40-45 lögregluþjónar yrðu á
vakt í miðbæ Reykjavíkur auk þess sem fjölmargir
aðrir aðilar, m.a. frá borginni, kæmu að öryggis-
málum á hátíðinni.
Á menningarnótt verður í fyrsta skipti notast við
nýja fjarskiptamiðstöð í Skógarhlíð, sem er ætlað
að vera miðstöð almannavarnaaðgerða ef til nátt-
úruhamfara kemur. Aðstaðan nýtist einnig vel þeg-
ar margir aðilar þurfa að vinna saman; eins og
verður á menningarnótt. „Þetta er í fyrsta skipti
sem við notum aðstöðuna í Skógarhlíð. Þetta er
orðið samtengt; neyðarlínan og fjarskiptamiðstöð
Ríkislögreglustjóra. Við nýtum okkur myndavél-
arnar í miðborginni og öll fjarskipti,“ segir Geir
Jón.
Hann segir fleiri koma á menningarnótt en t.d.
17. júní og reiknar með 80-100 þúsund gestum.
Dagur B. Eggertsson, stjórnarformaður Höfuð-
borgarstofu, segir að til að draga úr líkum á ólátum
hafi skipulögð dagskrá verið stytt þannig að henni
ljúki kl. 23. Dagur segir að sérstök áhersla verði
lögð á að framfylgja útivistarreglum ungmenna.
„Þessar aðgerðir koma þó aldrei í staðinn fyrir það
að fólk beri ábyrgð á sér og sínum,“ segir hann.
Mikill undirbúningur lögreglu
vegna menningarnætur
Fjarskipta-
miðstöð notuð
í fyrsta sinn
Vegmerkingar/6
VÍÐA um land er sumar-
slátrun hafin, og að sögn
Gísla Garðarssonar, slát-
urhússtjóra Sölufélags
Austur-Húnvetninga, hef-
ur hún gengið vel það sem
af er. Slátrun í sláturhúsi
félagsins á Blönduósi
hófst 31. júlí, og hefur
verið slátrað vikulega.
Fyrsta daginn var slátrað um 170 lömbum og
var meðalvigt rétt tæp 15 kíló. Gísli á von á
lömbum til slátrunar í dag, og þá því mesta
hingað til í sumar, um 700 lömbum. „Þetta
hefur gengið mjög vel, og lömbin eru væn,“
segir Gísli. „Mér sýnast dilkarnir vera jafn-
vel vænni en í fyrra, en það mun koma enn
frekar í ljós eftir slátrunina á morgun,“ bætti
Gísli við. Hann á von á að annríkið aukist á
næstunni, og muni alls um 3.000 fjár verða
slátrað. „Það hefur flokkast ágætlega úr því
sem komið hefur, og kjötið hefur selst vel.“
Sumarslátrun á sauðfé hafin
Vænir dilkar í ár
♦ ♦ ♦
SÉRFRÆÐINGAR verða að vera á varð-
bergi gagnvart heimasíðum þar sem ungar
stúlkur eru beinlínis hvattar til að grenna sig
sem aftur getur í sumum tilvikum leitt til lyst-
arstols. Á síðunum eru m.a. gefnar ráðlegg-
ingar um hvernig eigi að blekkja sérfræðinga
með því að halda niðri einkennum sjúkdóms-
ins. Þar er gjarnan að finna myndir af tág-
grönnum stúlkum auk ýmissa ráðlegginga,
svo sem að drekka mikið vatn áður en stigið er
á vigtina og klæðast þykkum fatnaði. Margar
slíkar heimasíður eru vistaðar í Bandaríkjun-
um og þótt yfirvöldum hafi tekist að loka
mörgum þeirra spretta þær jafnharðan upp
aftur. Þetta segir dr. Janet Treasure, prófess-
or í geðlæknisfræði við Guy’s, King’s and
Saint Thomas læknaháskólann í Lundúnum,
sem stödd er hér á landi í tengslum við nor-
rænt geðlæknaþing í Reykjavík.
Hvatt til lystar-
stols á Netinu
Heimasíður/10