Morgunblaðið - 14.08.2003, Page 6
HUNDURINN Flossy,
sem er af íslensku fjár-
hundakyni, fannst á lífi
í síðustu viku eftir að
hafa legið í 68 daga á
botni fjögurra metra
djúps brunns nálægt
Gilleleje á norður-
strönd Sjálands. Eig-
andi hundsins, Birgitte
Pontoppidan, sagði í
samtali við Morgun-
blaðið að Flossy hefði
lést um 11 kíló í prís-
undinni en virtist samt
ekki hafa orðið sérlega
meint af. Hann var um
22 kíló að þyngd þegar
hann týndist.
Hvarf á gönguferð
í júní
Flossy hvarf þann 2.
júní við Nakkehoved í
nágrenni Gilleleje þar
sem eigendur hunds-
ins, Birgitte Pontopp-
idan og Hans Ibsen,
búa. „Við vorum á
göngu í nágrenni heim-
ilis okkar og Flossy
hljóp á eftir dýri, lík-
legast hundi eða ketti,
og við fundum hann hvergi aft-
ur,“ sagði Birgitte. Þau leituðu
lengi að hundinum en án árang-
urs. Sömuleiðis lýstu þau eftir
honum á Netinu og í dagblöð-
um.
Á föstudag heyrði landeigandi
hundgá og fann loks hundinn í
brunninum þar sem hann hafði
legið í tvo mánuði og sex daga.
„Okkur finnst ótrúlegt að hann
skuli hafa lifað þetta af. Hann
var ekki mjög skítugur, en mjög
máttfarinn og afskaplega svang-
ur. Það eina sem hann hafði til
neyslu var regnvatn sem lak
niður í brunninn,“ sagði Birg-
itte. Fluttu þau hundinn heim
og hafa gert vel við hann síðan.
„Hann er við mun betri heilsu
núna, getur vel gengið og leikið
sér, og virðist ekki hafa orðið
langvarandi meint af,“ útskýrir
Birgitte.
Birgitte og Hans hafa átt
Flossy í ein 7 ár og keyptu hann
af hundaræktanda í Danmörku.
Að sögn Birgitte eru hundar af
fjárhundakyni ekki algengir þar
um slóðir og sé það sannarleg
hundaheppni að Flossy skuli
hafa verið það þrautseigur og
sterkbyggður af lifa þessar
hremmingar af.
Þrautseigur
hundur af ís-
lenskum ættum
Lifði af 68 daga án matar í brunni
Birgitte Pontoppidan og hundurinn hennar
Flossy sem man nú tímana tvenna.
NF
FRÉTTIR
6 FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
w
w
w
.k
a
ri
n
h
e
rz
o
g
.c
h
Nýtt líkams krem frá KARIN HERZOG
STERKUR - STINNARI og FALLEGRI líkami með
TONUS - B12
BODY CREAM
1 - 2 - 3 fyrir fullkominn líkama
1. SHOWER BODY SCRUB
Fjarlægir dauðar húðfrumur og
ójöfnur af yfirborði húðarinnar.
Undirbýr húðina fyrir Silhouetter og
B12.
2. SILHOUETTE
4% súrefniskrem sem vinnur á app-
elsínuhúð og sliti, framleitt til að
virka á þau svæði líkamans sem
eru mest útsett fyrir fitu og upp-
söfnun á fituvef, svo sem mjöðmum,
rasskinnum, lærum og á kviðnum.
3. TONUS - B12 - NÝTT
Krem sem styrkir, stinnir og hjálpar
húðinni að losa sig við óæskilega
vökvasöfnun og óhreinindi um leið
og það er borið á líkamann. Með
sameiningu þessara þriggja þátta
verður árangurinn sjáanlegri fyrr.
Kremið gerir það að verkum að
húðin verður silkimjúk og veitir létt-
an angann.
Súrefnisvörur
KARIN HERZOG
Kynning í Snyrtivörudeild Hagkaup Skeifunni
fimmtudag, föstudag og laugardag.
Í GÆR var byrjað að merkja hlaupa-
leiðir fyrir Reykjavíkurmaraþonið
sem fer fram á laugardaginn. Haf-
steinn Óskarsson og Sighvatur Dýri
Guðmundsson höfðu hraðar hendur
til að nýta þurrkinn þar sem spáð var
vætu næstu daga.
Hafsteinn sagðist áætla að verkið
tæki um tólf tíma og fleiri menn
kæmu þeim félögum til hjálpar
seinnipart dagsins.
Lítil gul strik eru límd á götur og
gangstíga þar sem vafi leikur á hvert
þátttakendur eigi að fara. Einnig eru
tölustafir límdir á götuna og sýna
þeir fjölda kílómetra sem fólk hefur
þegar hlaupið. Þá geta hlauparar séð
hver millitími þeirra er og hversu
hratt þeir hlaupa.
Gunnar Páll Jóakimsson, kynn-
ingarfulltrúi Reykjavíkurmaraþons-
ins, segir að notaðir verða í fyrsta
skipti sérstakir tölvukubbar við
tímamælingu. Þátttakendur geti
annað hvort keypt slíka kubba eða
leigt fyrir keppnina. Þeir sem kaupa
kubb geta notað þá í öðrum keppn-
um en þessi tækni hefur verið að
ryðja sér til rúms í hlaupum víðs veg-
ar um heiminn. Búið er að fjárfesta í
búnaði til að nota hér á landi til tíma-
mælinga en greiða þarf sérstakt
leyfisgjald til fyrirtækisins sem á
þetta kerfi. Búist er við að einhverjir
af þeim fjögur til fimm hundruð út-
lendingum, sem nú þegar hafa skráð
sig til leiks, beri sína eigin kubba.
Gunnar segir að undirbúningur
hlaupsins gangi vel og nú sé allt á
fullu. Skráning er þegar hafin á
mbl.is og í Maraþon í Kringlunni. Á
morgun fer skráning fram í Laug-
ardalshöllinni frá hádegi til klukkan
níu umkvöldið. Markmiðið er að
fleiri skrái sig í ár en var fyrir tíu ár-
um þegar 3.700 manns tóku þátt í
hlaupinu.
Hlaupaleiðir merktar
Morgunblaðið/Kristinn
Hafsteinn Óskarsson og Sighvatur Dýri Guðmundsson merkja götur borgarinnar fyrir Reykjavíkurmaraþon.
SIF Gunnarsdóttir, verkefnis-
stjóri Menningarnætur Reykja-
víkur, segist treysta því að búið
verði að klára gatnagerðar-
framkvæmdir í Bankastræti áður
en dagskrá menningarnætur hefj-
ist klukkan eitt á laugardaginn.
Sama dag er haldið Reykjavík-
urmaraþon og nokkrum götum
lokað í tilefni þess. Siv segir
götulokanir frá klukkan 11 um
morguninn nokkuð víðtækar og
um allan bæ.
Í miðbænum verður
Lækjargötu og Fríkirkjuvegi lok-
að fyrir allri almennri umferð frá
morgni fram á nótt. Klukkan tólf
verður Hverfisgötu lokað en
hægt verður að komast í bíla-
stæðahúsið gegnt Þjóðleikhúsinu
frá Klapparstíg eða Ingólfsstræti.
Klukkutíma síðar er Grófinni
lokað, Aðalstræti og hluti
Vesturgötu.
Strætó mun breyta leiðum sín-
um í miðbænum sökum þessa og í
dagskrárbæklingi hátíðarinnar,
sem kemur út í dag, eru nánari
upplýsingar um strætóleiðir,
götulokanir og aðgengi að bíla-
stæðahúsum.
Siv segir að strætisvagnar
muni keyra í kringum miðbæinn
og eftir klukkan fjögur verður
aðalskiptistöð færð frá
Lækjartorgi í Vonarstræti, gegnt
ráðhúsi Reykjavíkur eins og í
fyrra.
Framkvæmdum í
Bankastræti verður lokið
TÓMAS Ingi Olrich menntamála-
ráðherra telur það miður að
Reykjavíkurborg vilji ekki halda
áfram að styðja við rekstur Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands. Hann segir
að samstarf um reksturinn hafi ver-
ið til góðs; bæði fyrir Sinfóníuhljóm-
sveitina, Reykjavíkurborg og sam-
skipti ríkis og borgar.
Samþykkt var í borgarráði
Reykjavíkur í fyrradag að fara þess
á leit við menntamálaráðherra að
hann beitti sér fyrir lagabreyting-
um svo Reykjavíkurborg þyrfti ekki
að taka þátt í kostnaði við rekstur
Sinfóníuhljómsveitarinnar. Var
meðal annars vísað í skýrslu
menntamálaráðuneytisins og sagt
að þar kæmi fram það sjónarmið að
stjórn og ábyrgð á hljómsveitinni
skyldu vera á einni hendi.
Sómi fyrir höfuðborgina
Menntamálaráðherra segir um-
ræðu um stjórnunarleg markmið,
eins og að stjórn og ábyrgð séu á
einni hendi, ekki tengjast því hvort
Reykjavíkurborg komi að rekstrin-
um. Hægt sé að ná þeim mark-
miðum með ýmsum hætti m.a. með
stofnun einkahlutafélags sem
Reykjavíkurborg og ríki séu aðilar
að. Hann telur fulla ástæðu til að
skoða þann möguleika og er opinn
fyrir því að hlýða
á sjónarmið
Reykjavíkur-
borgar í þeim
efnum.
Aðspurður tel-
ur Tómas það á
margan hátt
æskilegt að
Reykjavíkurborg
taki þátt í rekstri
Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar, ekki síst frá pólitísku
sjónarmiði, og að hagsmunir og
fjárhagsleg ábyrgð haldist í hendur.
„Það fer ekkert á milli mála að
Reykjavíkurborg hefur mjög mikla
hagsmuni af því að Sinfóníuhljóm-
sveitin starfi í höfuðborginni. Hún
er undirstöðustofnun í tónlist á Ís-
landi og hefur mikil áhrif í kringum
sig – ekki síst á tónlistarlíf – og aðr-
ar hljómsveitir njóta góðs af starfi
hennar. Tónlistarskólarnir njóta
líka góðs af nálægðinni við hljóm-
sveitina. Frá þessum sjónarhóli litið
er á margan hátt ákjósanlegt að
Reykjavíkurborg taki þátt í rekstr-
inum enda mikill sómi fyrir höf-
uðborgina að koma að starfi Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands með þessum
hætti.“
Samstarf við borgina farsælt
á ýmsum sviðum
Tómas segir að tengsl milli hags-
muna og fjárhagslegrar ábyrgðar
hafi verið höfð til hliðsjónar í menn-
ingarsamningum og nefnir sem
dæmi samninga sem gerðir voru við
Austurland og sérstaklega Akur-
eyri. Þar komi báðir aðilar, ríki og
Akureyrarbær, að stuðningi við list-
ir og menningu.
Hann segir að samstarf við
Reykjavíkurborg hafi verið farsælt í
sambandi við listahátíð í Reykjavík,
sem byggi á hugmyndum um að
hagsmunir og fjárhagsleg ábyrgð
fari saman. Einnig eigi þessir aðilar
í samstarfi í tengslum við byggingu
tónlistar- og ráðstefnuhúss í
Reykjavík.
„Við munum að sjálfsögðu ræða
þessi mál við Reykjavíkurborg og
gefa fulltrúum hennar kost á að
greina frá sjónarmiðum sínum og
röksemdafræslum,“ segir Tómas
Ingi Olrich.
Menntamálaráðherra segir miður ef borgin dregur sig
út úr rekstri Sinfóníuhljómsveitarinnar
Vill skoða stofnun einka-
hlutafélags um reksturinn
Tómas Ingi Olrich
Menningarnótt og Reykjavíkurmaraþon undirbúið