Morgunblaðið - 14.08.2003, Page 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2003 11
HAUST 2003
Kringlunni & Hamraborg
568 4900 552 3636
FJÓRUM mönnum á aldrinum 19-21
árs var í gær gert að greiða sektir
fyrir brot á reglum um flugelda með
viðurlagaákvörðun Héraðsdóms
Vesturlands. Mennirnir stóðu saman
að því að skjóta upp flugeldum við
Ölver þann 11. janúar 2002 með þeim
afleiðingum að hross trylltust og
hlupu í veg fyrir fólksbíl og jeppa
sem ekið var um Vesturlandsveg
undir Hafnarfjalli.
Í frétt Morgunblaðsins af atvikinu
segir að jeppinn hafi ekið á eitt
hrossanna. Þegar fólksbílnum var
sveigt frá dauða hrossinu skall hann
á öðru hrossi og valt síðan heilan
hring áður en hann staðnæmdist ut-
an vegar. Sex manns voru í bílunum
en þeir sluppu allir með minniháttar
meiðsl, að því er talið var. Lögregla
sagði að legið hefði við stórslysi.
Piltarnir voru ákærðir fyrir brot á
reglum um skotelda. Í gær bauð
fulltrúi sýslumannsins í Borgarnesi
piltunum að ljúka málinu með 15-
20.000 króna sektargreiðslum og
féllust þeir á það. Milljón króna bóta-
krafa sem lögð var fyrir dóminn var
ekki tekin til meðferðar að svo
stöddu.
Sektaðir fyrir að
skjóta upp flugeldum
Hross fældust og hlupu í veg fyrir bíla MIKILL erill hefur verið hjá Friðriki Skúlasyni ehf.
síðan skæður tölvuvírus byrjaði að breiðast út í fyrra-
dag. Um 200 símtölum hefur verið svarað auk þess
sem um 30 manns hafa komið með tölvurnar sínar til
viðgerðar.
Að sögn Erlends S. Þorsteinssonar, verkefnastjóra
hjá fyrirtækinu, verða notendur með Windows XP-
stýrikerfi fljótt varir við vírusinn en engar breyt-
ingar verða hjá notendum með eldra Windows-kerfi.
Erlendur segir það í raun vera galla í tölvuorminum
sem gerir það að verkum að tölvur með Windows XP
hrynji.
Eins og fram hefur komið munu allar smitaðar
tölvur ráðast gegn uppfærslukerfi Windows aðfara-
nótt laugardags. „Hefði þessi galli ekki verið í orm-
inum er alls óvíst að hann hefði uppgötvast,“ segir
Erlendur en hann vill árétta við alla tölvunotendur
að þeir vírusskanni tölvurnar sínar, uppfæri síðan
Windows og verði sér út um eldvegg, t.d. á heimasíð-
unni www.zonelabs.com.
Morgunblaðið/Jim Smart
Starfsmenn Friðriks Skúlasonar ehf. hafa í nógu að
snúast þessa dagana.
Tölvuvírusinn
veldur vanda
ÍSLENDINGAR sem flytjast til
útlanda og þá sérstaklega þeir sem
fara í nám, þurfa stundum að skila
inn sakavottorði og fæðingarvott-
orði. Hjá embætti ríkissaksóknara
fengust þær upplýsingar að saka-
vottorð eru aðeins gefin út á ís-
lensku og kosta 1.200 krónur. Hjá
löggiltum skjalaþýðanda sem
Morgunblaðið hafði samband við
kostaði þýðing á hreinu sakavott-
orði í kringum 2.500 krónur. Fæð-
ingarvottorð er hins vegar hægt að
fá fyrir 400 krónur á mörgum
tungumálum.
Þarna er augljóslega mikill
munur á en að sögn Sigríðar Frið-
jónsdóttur saksóknara hefur það
verið í umræðunni að gefa hrein
sakavottorð út á ensku og dönsku.
„Þetta er lítið mál þegar um er að
ræða hrein vottorð en það er ekki
gert ráð fyrir því í reglugerðum
um sakaskrá að hún sé gefin út á
öðru tungumáli en íslensku. Hins
vegar hefur verið nokkuð um fyr-
irspurnir um vottorð á ensku svo
að þetta er í skoðun,“ segir Sigríð-
ur.
Sakavottorð aðeins
gefin út á íslensku
www.nowfoods.com