Morgunblaðið - 14.08.2003, Page 12

Morgunblaðið - 14.08.2003, Page 12
ERLENT 12 FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. - www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30. Nánari upplýsingar veitir Bárður Tryggvason í 896 5221. Leitum fyrir trausta kaupendur að 2ja, 3ja og 4ra herb. íbúðum í Reykjavík og Kópavogi. Upplýsingar í síma 588 4477 eða í gsm-síma sölumanna okkar, Bárður 896 5221, Bogi 699 3444 og Ingólfur 896 5222. Það kostar ekkert að hafa samband - ekkert skoðunargjald. 2ja, 3ja og 4ra herb. íbúðir óskast UM 50 manns liggja á vegamót- unum við Potsdamer Platz í Berlín í gær til minningar um það fólk sem lét lífið í flóttatilraunum yfir Berlínarmúrinn, en 42 ár voru í gær frá því hann var reistur. Þýzkur gjörningalistamaður fékk vegfarendur í lið með sér til að leggjast í götuna þar sem múrinn lá. Í bakgrunni sjást háhýsin við Potzdamer Platz, Daimler- Chrysler byggingin til hægri. „13. ágúst-vinnuhópurinn“, sem undanfarin tvö ár hefur unnið að því að setja saman tæmandi lista yfir þá sem reyndu að flýja aust- ur-þýzka Alþýðulýðveldið – yfir Berlínarmúrinn eða landamærin að Vestur-Þýzkalandi eða eftir öðrum leiðum til annarra Vestur- Evrópulanda – og lifðu það ekki af. Að sögn sagnfræðinga er óvíst að nokkurn tíma verði hin sanna tala fórnarlambanna ljós, en vinnuhópurinn hefur fundið öruggar heimildir fyrir því að alls 1.008 manns hafi látið lífið í flótta- tilraunum frá því Þýzkalandi var skipt í kjölfar síðari heimsstyrj- aldar fram til falls Berlínarmúrs- ins í nóvember 1989. Fyrir ári, þegar listinn var síðast birtur, voru á honum 985 nöfn. Af þess- um fjölda féllu 645 eftir að Berl- ínarmúrinn var reistur 13. ágúst 1961, þar af 178 við múrinn sjálf- an en hinir við aðra hluta landa- mæranna milli Austur- og Vestur- Þýzkalands. Fórnarlamba múrsins minnzt AP ÞRÍR menn, þar á meðal einn brezk- ur ríkisborgari, voru færðir fyrir al- ríkisdómara í Bandaríkjunum í gær, þar sem þeim var birt ákæra um að hafa reynt að smygla rússneskum sprengiflaugum til Bandaríkjanna, með það fyrir augum að þær yrðu not- aðar til hryðjuverka þar í landi. Brezkur ríkisborgari af indversk- um uppruna – sem kvað heita Hemad Lakhani eftir því sem fram kom í brezkum og bandarískum fjölmiðlum í gær – var handtekinn á þriðjudag í Newark í New Jersey. Var handtak- an liður í stórri aðgerð sem banda- ríska alríkislögreglan, FBI, stýrði í samstarfi við yfirvöld í Bretlandi og Rússlandi. Lakhani gekk í greipar útsendara FBI sem ginntu hann í gildru. Þóttust FBI-mennirnir vera íslamskir öfga- menn sem vildu kaupa vopn til að skjóta niður farþegaþotu. Tveir aðrir menn, Moinuddeen Ahmed Hameed og Yehuda Abra- ham, sem voru handteknir í New York á þriðjudag í tengslum við mál- ið, voru ákærðir fyrir tilraunir til pen- ingaþvættis. „Hryðjuverkamenn sem ógnuðu Bandaríkjunum hafa misst banda- mann í tilraunum þeirra til að bana borgurum okkar,“ sagði saksóknar- inn Christopher J. Christie í ávarpi til fréttamanna eftir að mönnunum voru birtar ákærurnar í Newark í gær. Christie sagði að Lakhani, sem er 68 ára gamall, væri „umsvifamikill al- þjóðlegur vopnasali“. Hann er ákærð- ur fyrir að reyna að útvega hryðju- verkamönnum vígtól og að hafa stundað vopnasölu án leyfis. Lakhani var handtekinn á hóteli við alþjóðaflugvöllinn í Newark, þangað sem hann kvað hafa flogið frá Lund- únum til að ganga frá sölu á háþróaðri rússneskri sprengiflaug, af gerðinni SA-18 Igla, sem einn maður getur skotið af öxl sér og er nógu nákvæm og öflug til að granda farþegaþotu á allt að 5 km færi. Samkvæmt vitnisburði FBI- manna, sem var lagður fram til stuðn- ings ákærunni á hendur Lakhani, kvað hann hafa beðið rússneska tengiliði sína – sem í raun voru rússneskir leyniþjónustumenn – um að útvega sér 50 sprengiflaugar til viðbótar sem smygla átti til Banda- ríkjanna hinn 30. ágúst nk. Hann hafi þar að auki falast eftir einu tonni af C-4 plastsprengiefni. Abraham tók fyrir hönd Lakhanis við 30.000 Bandaríkjadölum sem voru greiddir sem fyrsta afborgun af rússnesku flaugunum. Hameed bætt- ist á sakamannabekkinn eftir að hann kom nýlega inn í áformin sem uppi voru um að „þvo“ þá hálfa milljón Bandaríkjadala sem greiða átti til staðfestingar kaupunum á sprengi- flaugunum fimmtíu. Að sögn ónafngreindra FBI- manna hófst rannsókn málsins fyrir nokkrum mánuðum, eftir að ábend- ingar bárust um að vopnasalinn hefði falast eftir vopnum til kaups í Sankti Pétursborg í Rússlandi. Sá árangur sem nú hafi náðst með handtöku sak- borninganna þriggja sé afrakstur samvinnu leyniþjónusta Rússlands, Bretlands og FBI. Sprengiflaugasmygl í Bandaríkjunum Þrír menn ákærðir AP Sakborningurinn Hemat Lakhani sést hér handjárnaður í aftursæti bifreiðar sem FBI-menn óku að dómshúsinu í Newark í gær. Newark í New Jersey. AFP, AP. SEGULBAND sem spilað var við vitnaleiðslur í rannsókn á dauða breska vopnasérfræðingsins David Kelly í gær virðist styðja fullyrð- ingar þess efnis að breska ríkis- stjórnin hafi ýkt ógnina sem staf- aði af íröskum gereyðingar- vopnum. Blaðakona BBC lagði segul- bandið fram í gær en hún tók upp samtal sem hún átti við Kelly þann 30. maí sl., degi eftir að umdeild frétt um meðhöndlun stjórnvalda á leyniþjónustuupplýsingum birtist á BBC. Á segulbandinu segir Kelly að ríkisstjórnin hafi gert of mikið úr þeirri fullyrðingu að Írakar gætu beitt gereyðingarvopnum á aðeins 45 mínútum. „Þessu var lýst yfir og varð of umfangsmikið. Þeim lá mikið á að fá upplýsingar,“ heyrist Kelly segja fréttakonunni á segul- bandinu. Þegar Watts innti Kelly eftir áliti hans á fullyrðingum George W. Bush Bandaríkjafor- seta og Jack Straw, utanríkisráð- herra Breta, um gereyðingar- vopnaeign Íraka sagði hann: „þetta voru ýkjur“. Við vitnaleiðslurnar sagði Watts mikinn mun vera á sínum frétta- flutningi og Andrew Gilligans, sem var höfundur hinnar umdeildu fréttar. „Ég minnist nefnilega ekki á Alastair Campbell [almanna- tengslastjóra Tony Blair forsætis- ráðherra].“ Hún sagði jafnframt að yfirmenn hennar á BBC hefðu þrýst á hana að staðfesta frétt Gilligans. „Ég var undir miklum þrýstingi að greina frá heimildar- manni mínum. Mér fannst að til- gangur þess væri að staðfesta ásakanir Andrew Gilligans en ekki að flytja fréttir,“ sagði Watts. Að því er fram kemur á frétta- vef BBC bar Richard Sambrook, fréttastjóri BBC, einnig vitni vegna rannsóknarinnar í gær. Hann sagði nafnlausa heimildar- menn vera fréttastöðinni „lífsnauð- synlega“ og kvað fréttamenn stöðvarinnar auk þess einungis nota slíka heimildarmenn ef þeir „vita um hvað þeir eru að tala“. Sambrook sagðist enn fremur vera hissa á þeim deilum sem frétt Gilligans kom af stað og gagnrýni Campbells á stöðina í kjölfar frétt- arinnar. „Við bjuggumst sannar- lega ekki við þessu. Hann [Camp- bell] notaði þetta til að ráðast á öll gildi ritstjórnar BBC.“ Segulband sönnunargagn í Kelly-rannsókninni í Bretlandi Virðist staðfesta full- yrðingar um ýkjur London. AFP. STRÍÐSHERRANN Harold Keke á eynni Guadalcanal, einni Salómonseyja, gafst í gær upp og var handtekinn af fjölþjóðlegu her- liði undir forystu Ástrala. Blóðug átök hafa lengi geisað milli vopn- aðra hópa á Guadalcanal og ann- arri eyju, Malaita. Keke er m. a. grunaður um að bera ábyrgð á morðum á sex prestum og tugum þorpsbúa á Guadalcanal. Fjölmiðlar á Salómonseyjum fögnuðu handtökunni og töldu að nýr kafli væri hafinn í sögu lands- ins. Ríkisútvarpið sagði að Keke væri „versti glæpamaður sem Sal- ómonseyjar hafa nokkru sinni átt“. Keke hefur sagt að prestarnir, sem hann hafði tekið í gíslingu, séu látnir en hefur ekki sagt hvað olli dauða þeirra. Stjórnvöld á eyjun- um óskuðu eftir því að friðargæslu- lið yrði sent til landsins og kom það á vettvang í júlí. Handtaka Keke er sögð vera mikilvægasti sigur liðs- ins til þessa. Stríðsherra gefst upp Honiara. AFP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.