Morgunblaðið - 14.08.2003, Page 18
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
18 FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Guðmundur Andri Skúlason - símar 520 9552/820 0215
gandri@remax.is - Hans Pétur Jónsson lögg. fastsali
Heimilisfang: Austurstræti
Strandgata
Verð: Tilboð
Erum með í sölu allan rekstur veitingastaðar-
ins Shalimar sem er staðsettur í Austurstræti
Reykjavík og Strandgötu Hafnarfirði.
Shalimar býður upp á indverskt- pakistanskt
eldhús á hagstæðu verði og einnig „take
away“ og heimsendingu. Góð framlegð og
mjög hagstæðir leigusamningar.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðmundur
Andri sölufulltrúi RE/MAX
GSM 8 200 215.
GOTT TÆKIFÆRI
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Nú getur þú tryggt þér síðustu sætin í sólina í ágúst á
hreint ótrúlegum kjörum og tryggt þér síðustu sætin til Benidorm. Sumarið er í
blóma á Spáni og hér getur þú notið
lífsins við frábærar aðstæður og nýtur
traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða
allan tímann. Þú bókar tvö sæti, en
greiðir bara fyrir eitt og getur valið um
úrvalsgististaði á Benidorm.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 19.950
Flugsæti kr. 32.600/2 = 16,300.
Skattar kr. 3.650. Samtals kr. 19.950 á
mann. Alm. verð kr. 20.950.
Val um topp gististaði á Benidorm:
Vacanza - El Faro - Vina del Mar
Síðustu 14 sætin
2 fyrir 1 til
Benidorm
20. ágúst
frá kr. 19.950
MIKLAR framkvæmdir hafa staðið
yfir við Stekkjarbakka undanfarna
mánuði. Um er að ræða mislæg
gatnamót sem tengja saman
Stekkjarbakka og Reykjanesbraut
auk Smiðjuvegar. Framkvæmdir
hófust í byrjun apríl og er verkið
hálfnað nú.
Að sögn Hafliða Richards Jóns-
sonar, verkefnastjóra hjá Vega-
gerðinni er verið að afnema þrenn
ljósagatnamót við Reykjanesbraut
til að ná betra flæði um hana.
„Þessi þrjú gatnamót eru gatna-
mótin gömlu við Smiðjuveg, síðan
eru önnur við Stekkjarbakka og
enn ein við Álfabakka. Þarna geta
myndast miklar tafir á umferð og
einnig nokkur slysahætta. Með því
að koma upp þessum mislægu
gatnamótum erum við að bæta
tengingu milli Breiðholts og Kópa-
vogs um leið og umferðin um
Reykjanesbrautina verður greiðari
og öruggari. Einnig verður byggð
göngubrú sem tengir saman Elliða-
árdal og Fossvogsdal, en hingað til
hefur eina leiðin verið gegnum und-
irgöng við Mjódd og Bústaðaveg.“
Stefnt er á að verkinu ljúki fyrsta
nóvember, en þá verði komin um-
ferð á allt mannvirkið. Gróður-
frágangur, hellulagnir og önnur
jarðvinna bíður síðan fram á næsta
sumar.
Hafliði bendir sérstaklega á að
hæðartakmarkanir ríkja á meðan á
byggingu brúarinnar stendur og
verða bílstjórar með háan farm að
gæta fyllstu varúðar.
Mislæg
gatnamót
rísa við
Stekkjar-
bakka
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Reykjavík
FÉLAGSBÚSTAÐIR hf. hafa
opnað nýjan upplýsingavef á
slóðinni www.felagsbustadir.is.
Á nýja vefnum birtast nýjustu
fréttir af starfsemi Félagsbú-
staða og allar þær upplýsingar
sem fólk þarf á að halda um
starfsemi fyrirtækisins og
rekstur. Er vefnum ætlað að
kynna starfsemi Félagsbústaða
og vera upplýsingamiðill fyrir
þá sem nýta sér þjónustu fyrir-
tækisins.
Félagsbústaðir er fyrirtæki í
eigu Reykjavíkurborgar sem
hefur það hlutverk að reka fé-
lagslegar leiguíbúðir fyrir ein-
staklinga og fjölskyldur undir
skilgreindum tekju- og eignar-
mörkum. Félagið starfar í þágu
almannaheilla og skal rekstur-
inn vera sjálfbær. Fyrirtækið
er skilgreint sem þjónustufyr-
irtæki á húsnæðismarkaði.
Félagsbú-
staðir hf.
opna nýj-
an vef
Reykjavík
TENGLAR
............................................
www.felagsbustadir.is
HAFNARFJARÐARBÆR aug-
lýsti nýlega eftir umsóknum um
stöðu sviðsstjóra umhverfis- og
tæknisviðs. Umsóknarfresturinn
rann út fyrsta ágúst síðastliðinn og
höfðu þá fjórtán umsóknir borist.
Eftirtaldir einstaklingar sóttu um
starfið: Arinbjörn Vilhjálmsson
arkitekt, Bjarki Jóhannesson verk-
fræðingur, arkitekt og skipulags-
fræðingur, Björn Jóhannesson
landslagsarkitekt, Finnur Birgis-
son arkitekt, Gísli Hermannsson
verkfræðingur, Gísli Ó. Valdimars-
son verkfræðingur, Ingólfur Hjör-
leifsson verkfræðingur, Jón Magn-
ús Halldórsson byggingar-
fræðingur, Óskar Örn Jónsson
verkfræðingur, Sigurþór Aðal-
steinsson arkitekt, Smári Þor-
valdsson verkfræðingur, Trausti S.
Harðarson arkitekt, Viktor Þór
Sigurðsson byggingarfræðingur og
Þormóður Sveinsson arkitekt.
Ánægja með undirtektir
og hæfni umsækjenda
Að sögn Gunnars Svavarssonar,
formanns skipulags- og bygginga-
ráðs Hafnarfjarðarbæjar, eru bæj-
aryfirvöld sátt við undirtektir við
auglýsinguna og segir hann um
marga hæfa umsækjendur að
ræða. „Í hópnum eru verkfræðing-
ar, arkitektar, skipulagsfræðingar
og byggingarfræðingar. Umsækj-
endur þurftu að uppfylla viss hæfn-
isskilyrði samkvæmt skipulags- og
byggingarlögum og þarna er al-
mennt séð um mjög hæfan og
reynslumikinn hóp að ræða.“ Segir
Gunnar næsta skref í stöðunni yf-
irferð umsókna og viðtöl við um-
sækjendur. „Ráðningarskrifstofan
Intellecta og sérstakur starfshóp-
ur, skipaður af skipulags- og bygg-
ingarráði, eru að fara yfir umsókn-
ir og ræða við umsækjendur í
kjölfar umsagnar Ráðningarskrif-
stofunnar. Gert er ráð fyrir að til-
lögum um ráðningu verði skilað til
bæjarráðs mjög fljótlega.“
Sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs Hafnarfjarðarbæjar
Fjórtán umsóknir bárust
Hafnarfjörður
HEILMIKIÐ húllumhæ var í fé-
lagsmiðstöðinni Hólmaseli í Breið-
holti síðasta föstudag, þegar yngsta
kynslóðin í tómstundastarfi ÍTR
þar á bæ, alls um hundrað börn á
aldrinum sex til níu ára, hélt sum-
arhátíð. Hátíðin var haldin við
tjörnina hjá Hólmaseli í rjómablíðu
og sól og höfðu gestir fjölmargt sér
til skemmtunar. Söngsystur komu
og sungu fyrir gesti hátíðarinnar
og leiddu svo hópsöng. Einnig sýndi
töframaðurinn Jonni listir sínar og
gerði mikla lukku með því að saga
sundur starfsmann. Einnig breytti
hann fimm hundruð króna seðli í
fimm þúsund krónur og gerði fleiri
merkilegar sjónhverfingar og
töfrabrögð.
Börnin höfðu sjálf séð um drjúg-
an hluta undirbúningsins, til dæmis
ýmiss konar búninga og leikmuni,
og þótti viðstöddum einstaklega vel
hafa tekist til í þeim málaflokki,
enda var engu líkara en að Hólma-
selið væri fullt af Harry Potter, vík-
ingum og Pálínum með prikið.
Einnig höfðu þau undirbúið söng-
og dansatriði sem þau fluttu við
góðar undirtektir.
Ekki þótti við hæfi að skemmta
sér á fastandi maga og voru því
djús og grillaðar pylsur í boði auk
íss í eftirrétt.
Krakkarnir léku sér svo í góða
veðrinu við tjörnina fram eftir degi,
veiddu síli og léku sér í leiktækjum
og „hoppkastala“. Voru börn og
starfsfólk sammála um að þar hefði
sleginn góður botn í sumarstarfið.
Sumargleði í Hólmaseli
Reykjavík
Morgunblaðið/Jim Smart
Þessi vakra víkingamey brosti sínu
hýrasta brosi á sumarhátíðinni.
Þessir prúðbúnu pottormar voru yfirmáta ánægðir með sumargleðina og
skemmtiatriðin og brostu út að eyrum eins og börnum sæmir.